RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Blaðsíða 91

RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Blaðsíða 91
BERNSKA RM unnar, sem Babúska hafði sagt niér af Ivar keisarasyni og Ivanuska hinum heimska. III. Þegar ég var orðinn aftur frísk- ur fór mér brátt að skiljast, að Ziganok liafði sérstöðu á heimil- inu: afi rauk ekki eins oft upp á liann og viðhafði ekki um liann slík ókvæðisorð og vandi hans var, ér hann talaði við syni sína; ef hann minntist á hann þegar hann var fjarstaddur, brosti hann kank- víslega og hristi höfuðið: ■— Hendurnar á honum Ivan eru hreinasta gull — það veit guð! Takið eftir orðum mínum: Það verður einhvern tíma maður úr honum! Þegar Ziganok var fjarstaddur, töluðu báðir móðurbræður mínir af mikilli vonzku eða fyrirlitningu um hann, þeir löstuðu vinnu hans °g kölluðu hann þjóf og slæp- ingja. Ég spurði Babúsku, hverju þetta sætti, og eins og hennar var vandi, sagði hún mér allt af létta: — Já, sjáðu til, — þeir vilja báðir hafa Vanja hjá sér, þegar þeir skilja og fara að reka sjálfir verkstæði hvor fyrir sig. Þess vegna rægir annar þeirra hann í eyru hins og báðir vilja þeir sýna fram á, að hann sé slakur verkmaður — allt eru þetta helberar hlekkingar og klókindi! Þá eru þeir einnig hræddir um, að Vanja fari til hvorugs þeirra, en verði hjá afa og liann geti rekið þriðja verk- stæðið með hans hjálp, og það á nú ekki við móðurbræður þína, eins og þú getur ímyndað þér. Hún hló hljóðlega í gaupnir sér. — Þetta eru mestu refir, heimsk- ingjar í augum drottins! En afi þinn liefur fyrir löngu séð, hver fiskur liggur undir steini, og gerir sér það til gamans að æsa þá og ergja: „Ég kaupi Ivan undan her- þjónustu“ — segir hann, — „ég hef svo mikil not af honum!“ Og þá ná þeir ekki upp í nefið á sér af reiði og óttast um peningana, því að undanþágan er dýr! Nú lifði ég aftur lijá Babúsku í hinni sömu friðsæld og á Volgu- skipinu og á liverju kvöldi áður en ég sofnaði, sagði liún mér ævin- týri eða viðburði úr lífi sínu, sem einnig voru líkastir ævintýrum. Ef hún minntist á það, sem fram fór á heimilinu — um eignaskiptingu eða fyrirætlun afa um að bregða búi — þá talaði hún um það bros- andi, rétt eins og það væri fjar- lægt og framandi málefni, er hana skipti engu og varðaði nágranna hennar. Hún trúði mér fyrir því að Ziganok væri tökubarn! Einu sinni snemma vors um nótt, þegar mikið rigndi, hafði hann fundizt á bekknum fyrir framan húsið. — Hann lá þarna, vafinn inn í pils, — sagði Babúska hugsandi og dul á svip — liann kvakaði varla, litla skinnið! Því að minnstu mun- 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

RM: Ritlist og myndlist

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: RM: Ritlist og myndlist
https://timarit.is/publication/1205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.