Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 4
Helgarblað 16.–19. desember 20164 Fréttir S tjórn eignarhaldsfélagsins Glitnis HoldCo áformar að inna af hendi eingreiðslu upp á samtals 5,3 milljónir evra, jafnvirði um 630 millj­ óna íslenskra króna, til Steinunnar Guðbjartsdóttur og Páls Eiríkssonar, en þau skipuðu slitastjórn Glitnis allt þar til slitabúið lauk nauðasamning­ um í árslok 2015. Greiðslan er hluti af samkomu­ lagi Glitnis við Steinunni og Pál um að sérstakur sjóður að jafnvirði átta milljarða króna, sem var settur á fót fyrir um ári og átti að tryggja skað­ leysi þeirra gagnvart mögulegum málsóknum kröfuhafa til ársins 2025, verði lagður niður og fjármunirnir þess í stað greiddir að stærstum hluta út til núverandi hluthafa fé­ lagsins. Auk þess að fá greiðslu í peningum, sem nemur að óbreyttu um 315 milljónum króna á mann, þá mun Glitnir jafnframt sjá um að út­ vega Steinunni og Páli tíu milljóna evra tryggingu sem gildir til næstu tíu ára. Sú trygging á að standa straum af ýmsum kostnaði sem gæti að öðrum kosti fallið á þau, með sambærilegum hætti og skaðleysissjóðurinn hefði gert, vegna mögulegra málshöfðana í tengslum við fyrri ákvarðanir og störf slitastjórnar Glitnis. Ávinningur fyrir hluthafa Á sérstökum hluthafafundi sem hefur verið boðaður 19. desember næst­ komandi munu hluthafar Glitnis greiða atkvæði um tillögu stjórnar Glitnis að fyrirhuguðu samkomu­ lagi við fyrrverandi slitastjórn bank­ ans. Fastlega er gert ráð fyrir því að mikill meirihluti hluthafa félagsins muni greiða atkvæði með tillögunni enda hafa þeir hagsmuni af því að fá úthlutað til sín mun fyrr en ella þeim fjármunum sem hingað til hafa ver­ ið lagðir til hliðar í skaðleysissjóðinn. Samkvæmt hinu nýja samkomulagi stjórnar Glitnis við Steinunni og Pál, sem DV hefur undir höndum, kem­ ur meðal annars fram að verði það samþykkt þá sé í kjölfarið hægt að greiða út 58 milljónir evra til hlut­ hafa. Höfuð stóll skaðleysissjóðsins er núna 68 milljónir evra – sú fjárhæð jafngilti einu prósenti af heildareign­ um slitabúsins fyrir nauðasamning – en vegna núverandi vaxtaumhverfis í Bandaríkjunum og Evrópu hafa þeir fjármunir verið ávaxtaðir á neikvæð­ um vöxtum. Þá gerir samkomulagið við Steinunni og Pál sömuleiðis ráð fyrir því að Glitnir muni veita þeim skaðleysisábyrgð sem fellur úr gildi 11. janúar árið 2020. Sú skaðleysis­ ábyrgð er hins vegar að hámarki 3,53 milljónir evra, jafnvirði um 420 millj­ óna króna, og aðeins verður hægt að ganga á hana eftir að fyrrverandi meðlimir slitastjórnar hafa nýtt að fullu tíu milljóna evra trygginguna sem Glitnir mun útvega þeim. Ef engar málsóknir verða höfðað­ ar gegn Steinunni og Páli á næstu þremur árum þá munu þau fá til við­ bótar 590 þúsund evra eingreiðslu, eða sem nemur um 70 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi, eftir að skaðleysisábyrgð Glitnis rennur úr gildi í ársbyrjun 2020. Fordæmalaust flækjustig Þrátt fyrir að Steinunn og Páll fái greidda verulega fjármuni í sinn hlut, auk þess að vera úthlutað sér­ stakri tryggingu til tíu ára, þá er rétt að geta þess að með samkomu­ laginu munu þau samþykkja að taka á sig stóran hluta af þeirri áhættu sem fylgir mögulegum málsóknum á næstu árum. Í dag liggur sú fjárhags­ lega áhætta nánast alfarið á herðum hluthafa Glitnis. Þannig er skemmst að minnast þess gríðarlega kostn­ aðar sem Kaupþing þurfti að standa straum af vegna skaðabótakröfu sem breski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz höfðaði á hendur Jóhann­ esi Rúnari Jóhannessyni, fyrrverandi formanni slitastjórnar Kaupþings, í lok árs 2014. Breskir dómstólar vís­ uðu málinu frá fyrr á þessu ári og þurfti Tchenguiz að greiða Jóhann­ esi Rúnari 310 milljónir króna vegna málskostnaðar. DV upplýsti fyrst um að til stæði að koma á fót sérstökum skaðleysissjóði til handa slitastjórn Glitnis þann 1. september 2015. Í samtali við blaðið á þeim tíma útilokaði Steinunn ekki að slitastjórnin myndi segja sig frá störfum ef kröfuhafar myndu ekki fallast á slíka tryggingu fyrir skaðleysi þeirra. Til þess kom hins vegar aldrei enda samþykktu kröfuhafar nánast samhljóða slíkan skaðleysissjóð á kröfuhafafundi skömmu síðar. Steinunn benti einnig á að sam­ bærilegt skaðleysi til handa meðlim­ um slitastjórnarinnar vegna starfa við slitameðferðina væri í samræmi við það sem tíðkast í flestum öðrum löndum. Í ljósi þess fordæmalausa umfangs og flækjustigs sem leiðir af uppgjöri Glitnis þá sagði hún að það væri „fullkomlega óeðlilegt að setja einstaklinga í þá stöðu“ að eiga hættu á að ósáttir kröfuhafar – eða þriðji aðili – geri kröfur á hendur þeim persónulega. „Við verðum að hafa í huga að kröfuhafar Glitnis eru skráð­ ir í 52 löndum og lögsögum.“ Lítið eftir af eignum Slitabú Glitnis lauk nauðasamning­ um sem fyrr segir í desember 2015 í kjölfar þess að kröfuhafar bankans samþykktu að inna af hendi stöðug­ leikaframlag til íslenskra stjórnvalda að fjárhæð um 240 milljarða króna miðað við bókfært virði eignanna á þeim tíma. Þar munaði mestu um 95 prósenta eignarhlut í Íslandsbanka. Stærstu kröfuhafar Glitnis við sam­ þykkt nauðasamninga voru vog­ unarsjóðirnir Solus Alternative Asset Management, Davidson Kempner Management og Silver Point. Í dag er Glitnir eignarhaldsfélag, stýrt af þriggja manna stjórn, og er félagið á góðri leið með umbreyta öllum óseldum eignum í lausafé og greiða út til hluthafa. Samkvæmt nýjasta árshlutareikningi Glitnis námu eign­ ir félagsins um 343 milljónum evra, jafnvirði 40 milljarða króna, í lok september á þessu ári. Helmingur þeirra eigna var í formi reiðufjár og bundinna bankainnstæðna. n Fengu 60 þúsund á tímann Tímagjald slitastjórnar Glitnis var hækkað verulega í byrjun 2015, sem var síðasta starfs- ár hennar, og nam þá 390 evrum, jafnvirði um 60 þúsunda íslenskra króna á þáverandi gengi. Tímagjald Steinunnar og Páls, eins og greint var frá í umfjöllun DV um miðjan septembermánuð 2015, hafði áður verið 35 þúsund krónur. Þegar slitameðferð búsins hófst snemma árs 2009 nam tímagjaldið hins vegar sextán þúsund krónum. Í samtali við DV á þeim tíma sem frétt blaðsins birtist nefndi Steinunn að í sam- anburði við helstu ráðgjafa kröfuhafa slitabúsins séu þóknanir til handa slitastjórninni ekki háar. Þannig væri tímagjaldið aðeins um þriðjungur af því sem erlendir ráðgjafar kröfuhafa Glitnis rukka á tímann. Þá væru helstu innlendu ráðgjafarnir að sama skapi að fá hærri þóknun á útselda vinnustund vegna starfa fyrir erlenda kröfuhafa en slitastjórn Glitnis. Samtals námu þóknanagreiðslur til slitastjórnar Glitnis 381 milljón króna á árinu 2015, samkvæmt ársreikningi Glitnis. Greiðslur til slitastjórnarinnar tvöfölduðust á milli ára en samtals námu þær 190 milljónum 2014. Að því gefnu að greiðslurnar hafi skipst jafnt á milli Steinunnar og Páls þá hafa þau fengið hvort fyrir sig tæplega sextán milljónir í þóknun á mánuði á árinu 2015. n Stjórn Glitnis áformar að greiða Steinunni og Páli 5,3 milljónir evra n Samkomulag um að leggja niður 8 milljarða króna skaðleysissjóð Taka á sig meiri áhæTTu gegn 630 milljóna eingreiðslu Fyrrverandi slitastjórn Glitnis Páll Eiríksson og Steinunn Guð-bjartsdóttir. Mynd SiGtryGGur Ari Hörður Ægisson hordur@dv.is Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn Uppakomur • Leikir • Tilboð Sjálfstætt starfandi apótek í Glæsibæ Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn Uppakomur • Leikir • Tilboð Opnunartími: Virka daga 8.30-18 Laugardaga 10.00-14.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.