Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 16.–19. desember 20168 Fréttir Krefur Baltasar um svör vegna gjaldþrota félags n Framleiðslufélag Djúpsins fór í þrot n „Ósvífin krafa,“ segir leikstjórinn S kiptastjóri félags í eigu Baltasars Kormáks hefur far- ið fram á að leikstjórinn og aðrir aðstandendur Djúps- ins svari því hvernig tekjum af kvikmyndinni var ráðstafað. Fór skiptastjórinn fram á að þau svöruðu spurningum hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur næsta þriðjudag en óvíst er hvort af því verði. Baltasar segir félagið hafa farið í gjaldþrot vegna „ósvífinnar kröfu“ kranafyrirtækis sem félag hans var dæmt til að greiða rúmar átta millj- ónir króna. Leikstjórinn vísar á bug að ekki hafi verið rétt staðið að ráð- stöfun á tekjum Djúpsins. „Við lentum í því í Djúpinu að það sex- eða sjöfaldaðist reikningur frá ákveðnu fyrirtæki og það kom í ljós að öllum bellibrögðum var beitt til að hækka þennan reikning. Þeir gerðu síðan kröfu í félagið og það er því miður ekkert í því lengur. Ef þeir vilja taka það í gegnum gjaldþrot þá er það þeirra en við vorum tilbúnir að semja við þá og ég ætlaði að greiða það og koma með þann pening sjálfur. En fyrst þeir voru svona ósvífnir á endan- um þá ákváðum við að láta þetta fara þessa leið,“ segir Baltasar. Funduðu í gær Félagið Andakt ehf. var stofnað árið 2010 utan um framleiðslu Djúpsins sem var frumsýnd tveimur árum síðar. Samkvæmt nýjasta ársreikningi félags- ins, sem er fyrir árið 2014, er það í eigu Sagnar ehf. Baltasar á 12 prósenta hlut í Sögn í eigin nafni og annað hlutafé þess í gegnum félagið Langbrók Film ehf. Leikstjórinn er skráður stjórnarformað- ur Andaktar en Agnes Johansen, fram- leiðandi hjá Sögn, framkvæmdastjóri þess. Félagið var rekið með 47 milljóna hagnaði árið 2014 en skuldaði þá 132 milljónir umfram eignir sem námu 50 þúsund krónum. Tveimur árum síðar var félagið eins og áður segir úrskurð- að gjaldþrota og hæstaréttarlögmaður- inn Gunnar Ingi Jóhannsson skipaður skiptastjóri. „Ég sem skiptastjóri hef litið svo á að félagið hafi verið framleiðandi myndar- innar og eigi öll réttindi yfir henni. Þar á meðal rétt til tekna, dreifingar og sýn- ingar. Þessu er móðurfélagið ósam- mála og því hef ég óskað eftir gögn- um frá móðurfélaginu um tekjur sem hafa komið inn af verkefninu og hvern- ig þeim hefur verið ráðstafað og samn- ingar sem liggja að baki því að það eigi rétt á þessum tekjum. Eftir að hafa reynt árangurslaust í þrjá mánuði að afla þessara gagna þá einfaldlega óskaði ég eftir því með heimild í gjaldþrotalögum að fyrirsvarsmenn félagsins yrðu færðir til skýrslugerðar fyrir héraðsdómi,“ segir Gunnar Ingi í samtali við DV. Aðstandendur Djúpsins eiga að mæta fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur næsta þriðjudag en Gunnar Ingi seg- ir óvíst hvort af því verði. Hann hafi fundað með þeim í gær, fimmtudag, og fengið gögn og aðrar upplýsingar sem hann sé nú að skoða. Tveir kröfuhafar Sögn ehf. og fyrirtækið Á.B. Lyfting eru einu kröfuhafar Andaktar. Gjaldþrota félagið var í maí 2015 dæmt til að greiða kranafyrirtækinu rúmar fjórar milljónir króna vegna leigu á krönum sem not- aðir voru við tökur á Djúpinu í Helgu- vík á Reykjanesi. Kranarnir voru tekn- ir á leigu árið 2010 og sendi fyrirtækið reikning upp á 8,2 milljónir króna. Að- standendum Djúpsins þótti krafan of há og töldu sig einungis eiga að greiða 3,5 milljónir sem lagðar voru inn á fyr- irtækið mánuði síðar. Héraðsdómur Reykjavíkur lækkaði kröfuna í 7,7 millj- ónir. „Okkur datt ekki í hug að þetta myndi nást í gegn, þetta var svo ósvíf- in krafa, að við tókum þetta ekki með í þeirri skýrslu sem við skiluðum inn til iðnaðarráðuneytisins vegna endur- greiðslunnar frá ríkinu. Varðandi greiðslur til Andaktar þá er þetta gert svona í öllum tilfellum og það er móð- urfélagið sem við erum að reka og það er ýmis kostnaður og annað sem Sögn er búin að leggja út í og þarf að greiða til baka. Sögn setti síðan fram sína kröfu í búið fyrst það var farið fram á skipti. Mér finnst ljóst fyrir hvern þessi skiptastjóri er að vinna og hann geng- ur greinilega hart fram í þessu máli,“ segir Baltasar og heldur áfram. „Fyrir utan gjaldþrot sem átti sér stað í tengslum við A Little Trip to Heaven, sem ég átti 25 prósent í, hef ég alltaf staðið við allt sem að ég hef sagt. Þar var einungis um lánastofnan- ir að ræða sem töpuðu peningum, en ég er búinn að framleiða kvikmyndir í yfir 20 ár.“ n „Fyrir utan gjald- þrot sem átti sér stað í tengslum við A Little Trip to Heaven, sem ég átti 25 prósent í, hef ég alltaf staðið við allt sem að ég hef sagt. Leikstjórinn Baltasar Kormákur segir „ósvífna kröfu“ kranafyrirtækis hafa leitt til þess að félag hans Andakt ehf. fór í þrot. Mynd SigTryggur Ari djúpið Kvikmyndin fjallar um þrekvirki Guðlaugs Friðþórssonar sem synti sex kílómetra í land til að bjarga lífi sínu þegar Hellisey VE sökk í mars 2014. Haraldur guðmundsson haraldur@dv.is Fæst í helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum Frábær jólagjöf! Augnhvílan getur minnkað þreytu í augum, hvarmabólgu og haft jákvæð áhrif á augn- þurrk, vogris, rósroða í hvörmum/augnlokum og vanstarfsemi í fitukirtlum. Augnhvílan Dekraðu við augun Bættu forgjöfina með golfgleraugum frá Gleraugnasölunni 65

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.