Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 29
Helgarblað 16.–19. desember 2016 Fólk Viðtal 21 ég sé ennþá villingur og ekki sé búið að afeitra mig hvað það varðar.“ Flutti beint úr föðurhúsum til Þýskalands Þorgerður Katrín stundaði mennta­ skólanám í Menntaskólanum við Sund. Eftir útskrift flutti hún út til Þýskalands ásamt manni sínum, Kristjáni Arasyni, sem þá hélt í at­ vinnumennsku í handbolta. „Fyrst fluttum við til Hameln sem var alveg yndisleg borg að búa í. Síðan fórum við til Gummersbach og enn síðar til Spánar. Tíminn í útlöndum var frá­ bær tími og hafði mikil áhrif á mig. Það var lærdómsríkt að flytja út að­ eins tvítug. Ég held að ég hafi ekki skynjað það að fullu þá hversu mikil­ vægt það er að flytja út og kynnast annarri menningu. Ég var auðvitað að fara í fyrsta skipti úr föðurhúsum, ég flutti beint út til Þýskalands. Eftir á sér maður hvað þetta var ómetan­ legt. Ég held að það sé sannarlega engin bábilja að með því að flytja út og ferðast, verði maður víðsýnni.“ Ætlaði að verða dýralæknir Þorgerður stundaði handboltann úti í Þýskalandi í neðri deildum og dæmdi einnig töluvert. Hún hélt áfram að dæma þegar hún var kom­ in heim til Íslands og varð fyrsta kon­ an til að dæma leiki í efstu deild bæði kvenna og karla. Úti lagði hún stund á lögfræði í fjarnámi frá Háskóla Ís­ lands og útskrifaðist með lögfræði­ gráðu árið 1993. „Ég ætlaði nú samt alltaf að verða dýralæknir, vegna sveitarinnar og dýranna.“ Þú værir þá kannski formaður Framsóknarflokksins núna? „Það væri nú ekki slæmt,“ segir Þorgerður glottandi og bætir við að hún hafi lengi sagt að hún myndi þá bara hefja dýralæknanámið þegar hún yrði fimmtug. Hún er reyndar orðin aðeins eftir á með það og sér ekki alveg fram úr því að komast í slíkt nám á næstunni en maður skyldi aldrei segja aldrei. Minna rúm fyrir fjölbreyttar skoðanir í Sjálfstæðisflokknum Þorgerður og Kristján fluttust alkom­ in til Íslands árið 1997 og hóf hún þá störf sem yfirmaður samfélags­ og dægurmáladeildar Ríkisútvarps­ ins. Þorgerður tók svo þátt í próf­ kjöri Sjálfstæðisflokksins í nóvember 1998 og var í framboði fyrir flokk­ inn í kosningunum vorið 1999 þar sem hún var kjörin á þing. Þorgerður hafði starfað með ungliðahreyf­ ingu Sjálfstæðisflokksins í Hafnar­ firði upp úr 1990 og segir að hún hafi alltaf haft áhuga á pólitík. „Pólitík var mikið rædd á heimilinu. Ég er alin upp á krata­, kvennalista­ og kven­ réttindaheimili. Ég var alltaf að reyna að sannfæra pabba um að Sjálfstæð­ isflokkurinn væri stærsti jafnaðar­ mannaflokkur Íslands, til að reyna að fá hann til að kjósa flokkinn. Þá var rúm fyrir mjög fjölbreyttar skoðanir í Sjálfstæðisflokknum.“ En ekki í dag? „Nei, minna.“ Þorgerður Katrín var sem fyrr segir kjörin á þing árið 1999 og var gerð að ráðherra menntamála í lok árs 2003. Hún varð síðan varafor­ maður Sjálfstæðisflokksins árið 2005. Þetta er nokkuð skjótur framgang- ur, þú nærð mjög langt innan flokks- ins. Ertu sátt við tíma þinn þar þegar þú lítur til baka? „Já, mér leið vel þar, þetta var góður tími og ég kynntist mörgu góðu fólki. Í dag sé ég hvað var raun­ verulegt í því, hverjir eru vinir manns og hverjir ekki. Að mínu mati velur maður ekki vini eftir stjórnmála­ skoðunum og ég á marga góða vini sem eru með aðrar hugsjónir en ég.“ Þú verður vör við það núna, eftir að þú gengur til liðs við Viðreisn, að það eru ekki allir sáttir? „Já, ég verð það.“ Vill aukna samvinnu Þorgerður segist sátt við sín störf á Alþingi og í menntamálaráðu­ neytinu, þótt auðvitað sé það svo að margt hefði mátt gera á annan hátt. „Ég lærði að hlutirnir gengu betur þegar maður hafði meira sam­ ráð. Dæmi um það er skólalöggjöf­ in sem ég vann að því að koma á. Það hikstaði til að byrja með, árin 2004 til 2005. Þá fórum við í víð­ tækari samvinnu við kennarasam­ böndin og sveitarfélög og það gekk strax betur. Málin kláruðust ekki fyrir kosningar 2007 og þá var til umræðu að ég myndi skipta um ráðuneyti. Ég vildi það hins vegar ekki, ég vildi ljúka þessari vinnu. Með því að auka samráð náðist mikilvæg sátt í skóla­ málum. Niðurstaðan varð sú að all­ ir flokkar voru með við afgreiðsluna, þótt menn hefðu auðvitað sína fyrir­ vara,“ segir Þorgerður sem auðsjáan­ lega er talsvert niðri fyrir þegar kem­ ur að umræðu um aukið samráð og samvinnu í stjórnmálum. Hún segir að á þessum árum hafi henni þótt vanta meira upp á samræðukúltúr í íslenskum stjórnmálum þannig að fólk ynni saman þvert á flokka og næði sáttum um mál. „Þannig var það þá og við skulum virða það. Nú erum við að upplifa aðra tíma og mér finnst það ótrúlega spennandi. Líkt og þessar viðræður flokkanna fimm.“ Ríkisreksturinn risastórt velferðarmál Þorgerður sat sem ráðherra þegar bankahrunið reið yfir árið 2008. „Það voru skrýtnir tímar, ákaflega skrýtnir. Og erfiðir.“ Vissirðu eitthvað hvað var að gerast? „Nei, ég get ekki sagt það. Ekki frekar en margir aðrir. Þetta tímabil var ákaflega erfitt en lærdómsríkt og ég hugsa um það í dag hvernig best er að draga lærdóm af því sem þarna gerðist. Ríkisreksturinn til lengri tíma skiptir ótrúlega miklu máli og ég hugsa um þessa tíma núna í fjár­ lagaumræðunni. Það er risastórt vel­ ferðarmál að ríkisreksturinn sé í lagi. Tónninn úr kosningunum er sá að við þurfum að sinna betur grund­ vallarmálaflokkum eins og um heil­ brigðismálum, menntamálum og velferðarmálum. Það eru skýr skila­ boð um það. En á sama tíma verð­ um við að fara varlega í ríkisfjár­ málunum. Menn lækkuðu til að mynda skatta á miklu þensluskeiði fyrir hrun. Var það skynsamlegt? Í ljósi sögunnar þá var það ekki. Eig­ um við ekki að reyna að læra svolítið af sögunni?“ Þorgerður segir að það hafi verið á hennar ábyrgð að verja menntamál og menningarmál eins og hægt væri eftir hrun og hún sé í meginatrið­ um þokkalega ánægð með hvernig það hafi tekist, þrátt fyrir að auðvitað hafi verið hægt að gera betur. Lögð var áhersla á að opna háskólana til að mæta stöðunni á vinnumarkaði og auka fullorðinsfræðslu. Þorgerð­ ur hrósar Katrínu Jakobsdóttur sem tók við sem menntamálaráðherra á eftir henni fyrir það hvernig hún hélt áfram með þá stefnu, að tryggja menntakerfið eftir föngum. Sumt bíður ævisögunnar En bankahrunið hafði líka persónu­ leg áhrif á Þorgerði, í meira mæli en margan annan. Þorgerður sagði af sér sem varaformaður Sjálfstæð­ isflokksins og sagði sig tímabundið frá þingmennsku í apríl 2010. Hún gaf síðan ekki kost á sér til áfram­ haldandi þingsetu við kosningarn­ ar árið 2013. Ástæðan var umfjöllun um skuldamál Kristjáns, eiginmanns hennar, en hann var einn stjórnenda Kaupþings á árunum fyrir hrun. Skuldamálin ollu hins vegar mikilli úlfúð og meðal annars var mótmælt ítrekað fyrir utan heimili Þorgerðar þar sem mótmælendur kröfðust þess að hún segði af sér þingmennsku. Þorgerður sagði að endingu af sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins og vék af þingi með þeim orðum að hún teldi að það væri best fyrir flokkinn að hún viki á meðan að málin yrðu skýrð. Þegar Þorgerður er spurð hvort henni hafi þótt hún fá nægilegan stuðning frá Sjálfstæðisflokknum þegar þessi mál voru í hámæli vill hún lítið fara út í þá sálma. „Mér finnst bara í dag, þegar ég er að koma aftur inn í pólitíkina, þá fæ ég ekkert út úr því að vera að tala um Sjálfstæðisflokkinn. Mínir tímar þar voru almennt góðir, auðvitað urðu einhver sárindi eins og gengur, en ég held að ég muni frekar tíunda þetta þegar og ef ævisaga mín kemur út.“ Forréttindi að fá að búa til frjálslynt afl En hafði þetta áhrif á það að þú ákvaðst nú, fyrir þessar kosningar, að ganga til liðs við Viðreisn og fara fram í kosningum fyrir þann flokk? Af hverju tókst þú þá ákvörðun? „Mér fannst rétt á sínum tíma að stíga til hliðar eftir þetta mikla rót og tel mig hafa lært af því. Ég hélt í raun að ég væri alfarið hætt í pólitík. Svo gerist það að þegar maður er farin út úr pólitíkinni og er óháður öllu, þá leitar maður kannski svolítið í ræt­ urnar. Leitar í það sem maður var alinn upp við og hjá mér var grund­ vallartónninn, þetta frjálslyndi. Sjálf­ stæðisflokkurinn var kannski áður með breiðari skírskotun málefna­ lega en nú er. Þetta segi ég af fullri vinsemd og virðingu við þá sem nú starfa í flokknum. En ég held að það sé engin tilviljun að flokkurinn er í dag undir 30 prósentum á meðan að hann var alltaf nær 40 prósent­ um í fylgi á árum áður. Það sem dró mig inn í Viðreisn var þessi grund­ vallarhugmyndafræði um frjáls­ lyndi og svo kannski ákveðinn svona sprotahugsunarháttur. Í Viðreisn eru engin tabú, menn ræða sig í gegnum allt með frjálslyndi að leiðarljósi og það er dásamlegt og algjör forréttindi að vera með í að búa til svona frjáls­ lynt afl eins og Viðreisn er.“ Ekki auðvelt að yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn Þorgerður segir þó að það hafi ekki verið auðvelt að yfirgefa Sjálfstæðis­ flokkinn og ganga til liðs við Við­ reisn. Í Sjálfstæðisflokknum hafi hún átt vini og stuðningsmenn og hún hafi ekki getað gert þá kröfu til sinna stuðningsmanna að þeir fylgdu henni. „En fyrst ég var að koma aftur varð ég að vera 100 prósent sátt við það sem ég var að gera. Þá skipti hugmyndafræðin og málefnin mig öllu máli. Ég fann mig í stefnu Við­ reisnar.“ Þorgerður segir að henni þyki sem margt hafi breyst frá því að hún, tímabundið eins og nú er orðið ljóst, kvaddi stjórnmálin „Mér finnst dýnamíkin í íslenskri pólitík vera orðin mun meiri núna en hún var fyrir fjórum árum þegar ég hætti, skoðanaskiptin eru hreinskiptnari og sett fram af meiri virðingu, og það er hlustað. Enn sem komið er í það minnsta. Mér finnst forréttindi að fá að taka þátt í þessu, mér finnst þessi pólitík sjúklega skemmtileg.“ Er ekki mikil Pollýanna Erum við þá að lifa nýja pólitíska tíma sem þú heldur að endist, með nýjum vinnubrögðum og betri sam- skiptum milli fólks og milli flokka? „Já, ég er ekki gjörn á að vera eins og Pollýanna. Stundum er ég raunar óþarflega leiðinlega raunsæ. Ég bind hins vegar vonir við þessar stjórnar­ myndunarviðræður sem núna hafa staðið í sjö vikur. Viðræðurnar hafa leitt til þess að það eru að hrynja for­ dóma­ og fyrirvaramúrar sem stund­ um hafa verið milli flokka áður. Ég vona að þetta skili sér í því að sú stjórn sem verður mynduð, ég veit ekki hver hún verður, tileinki sér önnur vinnubrögð en hafa tíðkast. Að hún reyni eftir megni að teygja sig til þeirrar stjórnarandstöðu sem mun sitja á Alþingi. Að menn reyni að nýta þá möguleika sem mér finn­ ast vera til til að taka upp ný vinnu­ brögð, nýja hugsun og vinna saman í miklu meira mæli en verið hefur.“ Ómaklega vegið að flokksleiðtogum Þorgerður færist öll í aukana við þetta umræðuefni. „Í sjö vikur höfum við rætt málefni. Það „Mér finnst bara í dag, þegar ég er að koma aftur inn í pólitíkina, þá fæ ég ekkert út úr því að vera að tala um Sjálf- stæðisflokkinn. Sumt bíður ævisögunnar Þorgerður segir að tími hennar í Sjálfstæðisflokknum hafi verið góður en vill þó ekki fara náið út í viðskilnaðinn við flokkinn. Sumt verði að fá að bíða ævisögunnar. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.