Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 16.–19. desember 201638 Fólk FÁKASEL - FYRIR ALLA Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.is | símI: 483 5050 matur, drykkur og skemmtun Hjálpar efnalitlum fjölskyldum að halda jól É g var að hlusta á útvarps- þátt þar sem kona var valin úr ábendingum og vann jóla- tré og inneign í fataverslun. Hún bókstaflega hágrét af þakklæti þegar þáttarstjórnendur hringdu í hana og ég var bara í mol- um þegar ég hlustaði á þetta. Þessi kona átti tvö þúsund krónur í vas- anum til að halda jól. Ég varð hálf- hissa á að einhver skyldi vera svona þakklátur fyrir hlut sem mér fannst vera sjálfsagður. Maður var kannski bara svona einfaldur, og hélt að all- ir hefðu það jafn gott um jólin og maður sjálfur,“ segir Örvar Þór Guð- mundsson, þriggja barna faðir úr Hafnarfirðinum en umrætt atvik í byrjun desember 2012 varð til þess að hann hóf að safna fé til styrktar fjölskyldum og einstaklingum sem eiga um sárt að binda. Söfnunar- starfið átti svo sannarlega eftir að vinda upp á sig og hefur Örvar nú, ásamt fleirum komið á fót góðgerða- samtökunum Samferða. Í samtali við blaðamann DV segir Örvar að í kjölfar þess að hafa hlust- að á umræddan útvarpsþátt í des- ember 2012 hafi hann ákveðið að hjálpa umræddri konu að halda gleðileg jól og tókst honum á einum degi að safna 150 þúsund krónum með hjálp vina sinna á Facebook. Ári síðar hvöttu vinir Örvars hann til að endurtaka leikinn, og fékk hann þá aðstoð við finna fjölskyldur tveggja langveikra barna. Viðbrögðin við söfnuninni voru slík að Örvar sá að framtak hans var komið til að vera. All safnað sjö milljónum „Upphaflega setti ég mér það markmið að safna 300 þúsund krón- um, 150 þúsundum fyrir hvora fjölskyldu, en sú upphæð endaði síðan í 1.700 þúsund krónum. Fjöl- skyldurnar fóru frá því að vera tvær yfir að vera tólf. Þetta varð eiginlega hálfgerð sprengja.“ Seinustu tvenn jól hefur Örvar síðan safnað alls tæplega sjö milljónum króna fyrir Kraft og Ljósið og hafa rúmlega þrjá- tíu fjölskyldur notið góðs af. Fyrstu þrjú árin fór allt söfnunar- starfið eingöngu fram á persónulegri Facebook-síðu Örvars. Það sem byrj- aði að hans sögn sem „lítið og krút- tlegt konsept“ hefur nú undið upp á sig og orðið til þess að nú á haust- mánuðum kom Örvar á fót góð- gerðasamtökunum Samferða ásamt þeim Rúti Snorrasyni og Hermanni Hreiðarssyni. Tilgangur samtakanna er að aðstoða fólk fjárhagslega sem hefur orðið fyrir áföllum í lífinu, svo sem vegna veikinda, en fimm manna stjórn kemur saman einu sinni í mánuði og vinnur úr ábendingum sem hafa borist um fjölskyldur og einstaklinga sem eiga um sárt að binda. Átti 50 krónur „Við setjum mesta púðrið í þetta núna fyrir jólin og höfum safnað yfir þremur milljónum í jólasöfnuninni okkar, með framlögum frá einstak- lingum og fyrirtækjum. Við höfðum samband við tíu fjölskyldur í gær- kvöldi og munum hafa samband við fleiri fjölskyldur á næstu dögum. Bæði eru þetta fjölskyldur langveikra barna og einnig fjölskyldur þar sem annað foreldrið er að berjast við krabbamein. Kona, sem fékk styrk frá okkur, glímir við krabbamein og á 50 þúsund krónur til aflögu hver mánaðamót þegar hún er búin að greiða húsaleigu. Hún þarf þá fara tvisvar á spítala til að fara í rann- sóknir og eftirlit. Þegar við hringdum í hana og létum hana vita um styrk- inn hágrét hún, enda átti hún að- eins 50 krónur og var á leið í krabba- meinsrannsókn daginn eftir.“ Örvar segir engan kostnað hljót- ast af starfi samtakanna, svo sem vegna auglýsinga, húsaleigu eða launakostnaðar, og allt er unnið í sjálfboðavinnu. „Við gerum ekkert sem kallar á kostnað heldur rennur allt sem safnast inn til viðkom- andi fjölskyldna eða einstaklinga. Þannig að allt sem safnast fer beint út, sem telst nokkuð óalgengt í þess- um heimi en ég trúi því að það sé vel hægt. Gjöf sem gefur Örvar tekur undir að það sé svo sannarlega afar gefandi að geta létt undir með fjölskyldum og einstak- lingum og ekki sé óalgengt að fólk gráti gleðitárum þegar því er tilkynnt um styrk. „Ein móðirin grét svo mikið af gleði að átta ára dóttir hennar fór að gráta líka. Það er stórkostlegt að finna þetta gífurlega þakklæti og sjá hvað þetta skiptir fólk miklu máli. Það er erfitt að trúa því hvað hund- rað þúsund krónur geta gert mikið fyrir jólin hjá fólki,“ segir Örvar að lokum en nafnið á samtökunum á sér einfalda skýringu. „Við erum öll samferða í þessu lífi. Við verðum að standa saman.“ n Þeir sem vilja leggja samtökunum Samferða lið er bent á styrktarreikn- inginn 0327-26-114, kt. 651116-2870 og þá er hægt að senda ábendingar á netfangið godgerdarsamtokin@gma- il.com. n Örvar hefur safnað tæpum sjö milljónum n Gefandi að geta létt undir með fólki Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Jólin voru kvíðavaldur Þetta ritaði ung kona í þakkarbréfi til Örvars: „Jólin voru bara kvíðavaldur hjá mér. Í gær var ég með hnút í maganum þegar ég var að reyna að kaupa jólagjafir. Það er svo gríðarlega þungu fargi af mér létt. Ég skuldaði bankanum skólagjöldin og það var virkilegur baggi á mér því ég átti engan veginn pen- inga til að borga þau. Nú get ég borgað skólagjöldin, keypt í matinn, keypt kuldaskó á dóttur mína, keypt bensín á bílinn, keypt jólagjafir og samt átt afgang.“ Í öðru þakkarbréfi ritar kona: „Ég get ekki lýst með orðum hversu þakklát við erum. Við erum sex manna fjölskylda með börn á öllum aldri. Við höfum búið við fjárhagsáhyggjur þennan tíma þótt þær blikni í samanburði við þær áhyggjur sem maður hefur þegar maður er að glíma við lífshættulegan sjúkdóm. Ég hef glímt við krabbamein í rúmt ár og viku áður en ég greindist, greindist tengdamóðir mín einnig með krabbamein þannig að síðasta árið og rúmlega það hefur verið erfiður tími fyrir fjölskylduna. En mitt í myrkrinu glittir í ljóstýru sem er þessi yndislega óeigingjarna gjöf frá þér.“ „Ein móðirin grét svo mikið af gleði að átta ára dóttir hennar fór að gráta líka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.