Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 16.–19. desember 20164 Flutningaþjónusta - Kynningarblað Alltaf nóg að gera í Flutningum Flutningar Stefáns Steingrímssonar F lutningar Stefáns Steingrímssonar er gamalgróið flutningafyrirtæki á Akureyri. Fyrir­ tækið stofnaði Norð­ lendingurinn og einyrk­ inn Stefán Steingrímsson í mars árið 2006 og eru viðskiptin sífellt að færast í aukana. Stefán, sem er mikill tækjaáhugamaður, ekur á milli Akureyrar og Reykjavíkur á átján tonna Iveco Stralis­flutningabíl með stórri kerru og flyt­ ur nánast hvað sem er. Flutningar Stefáns Stein­ grímssonar sinnir öllum almennum flutningum, almennri sendibílaþjón­ ustu og búslóðaflutning­ um. Einnig sinnir fyrir­ tækið flutningi fyrir ýmis fyrir tæki. „Það er alltaf nóg að gera hjá mér á sumrin og veturna en svo róast þetta aðeins á vorin. Febrúar, mars og apríl eru alla­ jafna rólegustu mánuðirnir. Þá nýti ég tímann og fer í jeppaferðir upp á fjöll og snjósleðaferðir,“ segir Stefán sem hefur mjög gaman að útivist. Stefán er með áætlunarakstur milli Akureyrar og Reykjavíkur, en þess milli flytur hann hvert á land sem er. n Áætlunarakstur: Akureyri–Reykjavík á þriðjudögum Reykjavík–Akureyri á miðvikudögum Hringdu í 891-7993 og fáðu verðtilboð Útleiga á sendibílum og kassabílum með lyftum Cargo sendibílaleiga C argo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleigu á sendi­ og kassabílum með lyftu til flutninga á búslóðum og vör­ um. Þar leigir þú þann bíl sem hentar þínum flutningum, ekur sjálf­ ur/sjálf og sparar því umtalsverðan kostnað. Bílafloti til búslóðaflutninga Gunnar Haraldsson, eigandi Cargo sendibíla, segir bílaflota fyrirtækisins samanstanda af þremur bílastærð­ um. „Í 1.100 kílóa flokknum erum við með minni sendibíla sem hafa alveg einstaklega góða aksturseiginleika og eyða litlu eldsneyti.1.200 kílóa flokkurinn er kassabílar með lyftu sem eru einstaklega góður kostur til flutninga á stórum og meðalstór­ um búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki meirapróf og þeir eru sparneytnir. Stærsti bíllinn okkar er Benz Atego, kassabíll með lyftu, sem hefur 2.500 kílóa burðargetu og lyftigetan er 750 kíló,“ segir hann. „Þessi bíll er frábær ef um þyngri flutninga er að ræða og hefur hentað vel fyrir stórar búslóðir. Á þennan bíl þarf meirapróf eða hafa tekið ökupróf fyrir 1993.“ Trillur og brettatjakkar „Við erum síðan einnig með hjálp­ artæki til þess að auðvelda fólki flutningana, eins og sekkjatrillu, sem er með burðargetu upp að 200 kílóum. Þetta er létt handtrilla með föstum palli. Svo er einnig hægt að leigja tröpputrillu sem flytur þunga hluti bæði upp og niður stiga. Báð­ ar trillurnar eru íslensk framleiðsla. Trillurnar reynast mjög góðar til þess að flytja t.d. þvottavélar og ís­ skápa úr stað. Við erum líka með brettatjakka ef um er að ræða vörur á brettum eða sterk bönd til þess að festa vörurnar í bílunum.“ Að leigja sendibíl Að sögn Gunnars þarf viðskiptavin­ ur sem hyggst leigja sendibíl að fram­ vísa ökuskírteini og kreditkorti sem tryggingu fyrir leigu sendibifreiðar­ innar. „Vert er að taka fram að leigu­ taki þarf ekki að vera með meirapróf til að leigja sendibíl með burðargetu 1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir sendibílinn fullan af eldsneyti og skil­ ar svo með tankinn fullan.“ n Cargo sendibílaleiga Skemmuvegi 32 (bleik gata) 200 Kópavogur Sími: 566-5030 Tölvupóstfang:info@cargobilar.is Opið virka daga frá kl. 8.00– 18.00 Um helgar frá klukkan 10.00– 16.00 www.cargobilar.is 18'' Iveco Stralis flutningabíll Stefán Steingrímsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.