Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 16.–19. desember 201624 Sport Glæsibæ • www.sportlif.is PróteinPönnukökur Próteinís Próteinbúðingur V arnarmaðurinn Sergio Ramos, fyrirliði Real Madrid, stefnir hraðbyri að sínu besta markaskor- unartímabili á ferlinum, en spænski landsliðsmaðurinn er þegar kominn með 4 mörk í 9 leikj- um í La Liga. Besti árangur hans er fimm deildarmörk tímabilin 2006/07 og 2007/08 sem nokkuð ljóst er að hann muni slá ef fram heldur sem horfir. Þessi markheppni miðvörður hefur allan sinn feril verið iðinn við kolann í markaskorun og þá ekki síst þegar mest liggur við. Hann á kannski metið í fjölda rauðra spjalda á Spáni, en þegar kemur að því að þurfa mark á lokamínútum leikja eru fáir sem betra er að hafa í markteig andstæðinganna en Sergio Ramos. Hugrekki hans, styrk- ur og kjarkur gerir það að verkum að hann er alltaf líklegur til að ná til boltans með höfðinu og næla í mörk sem ráðið geta úrslitum. Ótrúleg tölfræði Ramos, sem stendur á þrítugu, stát- ar af þeirri ótrúlegu tölfræði að vera búinn að skora 63 mörk í 492 leikjum í öllum keppnum fyrir Real Madrid frá því að hann gekk til liðs við félagið árið 2005 frá Sevilla. Þar að auki hefur hann lagt upp 35 mörk fyrir samherja sína og því komið beint og óbeint að 98 mörk- um Real á ferlinum. Ekki dónalegt hjá miðverði/bakverði í liði sem alla tíð hefur haft á að skipa heimsklassa framherjum sem séð hafa um að raða inn mörkum. Þá eru ótalin mörkin 10 sem hann hefur skorað í 140 landsleikjum fyrir Spán. Rauð spjöld og flautumörk Á meðan tíð rauð spjöld eru eitt- hvað sem háð hefur Ramos á ferl- inum, hann hefur 21 sinni fengið reisupasann, þá hefur hann alltaf bætt það upp með mörkum sínum. Og síðastliðin misseri ekki síst með mikilvægum mörkum á lokamínút- um leikja. Þar af tvö í síðastliðnum tveimur deildarleikjum Real, bæði í uppbótartíma. Hér eru fjögur valin flautumörk miðvarðarins markheppna síðustu árin. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Miðvörðurinn markheppni n Sergio Ramos skorað 63 mörk í 492 leikjum n Leiknum ekki lokið fyrr en Ramos skorar í uppbótartíma Eins og framherji Ramos hefur fengið að fagna mörkum oftar en flestir varnarmenn í bolt- anum í dag. Hann hefur einstakt lag á að bjarga liði sínu á lokamínútum leikja. Mynd EPA Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu 2014 Real var að leika sinn fyrsta úrslitaleik frá 2002 og var undir 1-0 gegn erkifjendunum í Atletico Ma- drid. Í uppbótartíma reis Ramos manna hæst í teignum og hamraði boltann í netið með höfðinu. Real gekk síðan frá Atletico í framlengingu, lokatölur 4-1 og tíundi Evróputitill liðsins í höfn. Mynd EPA Úrslitaleikur Uefa Super Cup 2014 Í ágúst 2014 mættust meistarar meistaranna í Evrópu, Real Madrid og Sevilla, í Ofurbikar Uefa. Ramos hafði gefið klaufalega víta- spyrnu í seinni hálfleik og Sevilla komst yfir 2-1 í kjölfarið. En Ramos sýndi karakter sinn og styrk og jafnaði á 3. mínútu uppbótartíma og tryggði Real framlengingu á ný. Dani Carvajal skoraði sigurmark Real í framlengingu á 119. mínútu. Mynd EPA Tvö í röð Annan deildarleikinn í röð var Ramos mættur í teig andstæðinganna í uppbótartíma, nú gegn Deportivo La Coruna þann 10. desember síðastliðinn. Markið tryggði Real 3-2 sigur í leiknum og 6 stiga forystu á toppi La Liga. Mynd EPA Mikilvægt mark í El Clásico Ramos fagnar hér marki sínu í uppbótartíma gegn Barcelona 3. desember síðastliðinn. Markið tryggði Real 1-1 jafntefli gegn erki- óvinunum. Mynd EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.