Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 36
Helgarblað 16.–19. desember 201628 Lífsstíll Holtasmári 1, Kópavogur Sími: 571 5464 Smart föt fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á www.tiskuhus.is Stærðir 38-52 Alveg að drepast Ekki er alltaf um líf eða dauða að ræða þegar fólk kennir sér meins Þ etta er býsna algeng kvörtun sem læknar fá um allt mögu­ legt nánast milli himins og jarðar. Mjög oft er um að ræða minniháttar vanda en í sumum tilvikum er raunverulega um líf eða dauða að tefla. Það er alls ekki óalgengt að fólk færi aðeins í stílinn eða noti þetta orðalag til að leggja áherslu á hversu mikið það finnur til eða upplifir einkenni sín. Hvimleið vandamál Mörg vandamál geta verið býsna hvimleið og valdið ómældum óþægindum hjá viðkomandi þannig að það er akkúrat engin biðlund eftir þjónustu. Ef hún ekki fæst á svip­ stundu getur fjandinn verið laus hjá sumum. Þá eru það hinir sem bera óþægindi sín án þess að himinn og jörð séu að farast. Þetta eru auðvitað einna helst karaktereinkenni sem koma fram undir þessum kringum­ stæðum og er að vissu leyti áhuga­ verð upplifun fyrir lækna og aðra heilbrigðisstarfsmenn að fylgjast með hegðun sjúklinga. Hughreysting og fræðsla Læknisfræði snýst um að lækna sjúk­ dóma, en ekki síður um að líkna eða lina þjáningar og svo auðvitað um samskipti og fræðslu. Þannig má ekki gera lítið úr því sem sjúklingur­ inn upplifir, en á stundum þarf hann fyrst og fremst hughreystingu og samkennd, sérstaklega þegar lítið er hægt að gera fyrir hann í formi lyfja eða beinnar meðferðar. Tökum nokkur dæmi þessu til útskýringar; sá sem fær í bakið skyndilega getur upplifað sig eins og hann hafi verið skotinn og nauðsynlegt sé að gera eitthvað strax. Eðlilegt er að meta viðkomandi en í langflestum tilvik­ um er meðferðin einföld, mynd­ greining er óþarfi og tíminn notaður til að lækna vandann. Ýmsar sýkingar geta kallað fram einkennið „að vera að drepast“ og sem betur fer er oftsinnis hægt að koma í veg fyrir slíkan dauð­ daga með einföldum hætti. Háls­ bólga er algengt fyrirbæri sem veld­ ur þessari líðan, eyrnabólga geta líka verið býsna flókin að glíma við því þar spilar inn sjúklingur sem getur illa tjáð sig og foreldrar sem eru áhyggjufullir og líða með barni sínu. Í flestum tilvikum eru þessi vandamál á grundvelli veirusýk­ ingar, en ekki af bakteríutoga og þá duga engin sýklalyf. Hughreysting og fræðsla kemur sér þá vel. Sveppa­ sýkingar eða þvagfærasýkingar hjá konum og körlum valda oft miklum óþægindum og sem betur fer er alla jafna auðvelt að meðhöndla þær og er það jafnan mjög þakklátt. Sjaldan bráðavandi Það er erfitt að drepast úr þreytu, en sannarlega geta verið ýmsar orsak­ ir fyrir slappleika og orkuleysi og er það ákveðin áskorun að finna hana hjá aðilum sem hafa ekki fengið skýr­ ingu jafnvel yfir langan tíma. Rétt er að kanna með hormóna búskap og járn sem dæmi, en algengara er að konur glími við vanda þar en karlar. Þá ætti að skoða kæfisvefn sem er vangreint vandamál sem orsök þreytu. Ekki má gleyma andlegri vanlíðan og streitu sem getur haft verulegar afleiðingar á orku og getu viðkomandi. Þá eru ýmsir alvarleg­ ir undirliggjandi sjúkdómar sam­ anber krabbamein, hjarta og æðasjúkdóma, lungnasjúk­ dóma og lifrarsjúkdóma svo dæmi séu tekin sem ber að hafa í huga við uppvinnslu. Ekkert af þessu er yfirleitt bráða­ vandi. Sjálfsgreining Í dag er algengt að sjúk­ lingar greini sig sjálfir með hjálp internetsins og í mörg­ um tilvikum hafa þeir rétt fyrir sér. Það er hins vegar leikur einn að finna sér sjúkdóm sem passar við einkenni þess sem hefur ekki næga þekkingu til að mismunagreina og þannig mögulega vekja upp áhyggj­ ur sem geta verið með öllu óþarf­ ar. Gæði upplýsinga á netinu geta einnig verið æði misjöfn og lykil­ atriði að geta greint á milli þess sem skiptir máli og hvað ekki. Samspil og samvinna læknis og sjúklings í leitinni að vanda viðkomandi er mikilvæg og því skiljanlegt að óþol­ inmæði gæti ef ekki fást svör hratt og örugglega. Skilgreiningin á bráðum vanda er hins vegar sú að hann er lífshættulegur ef ekki er við honum brugðist. Slík vandamál fá eðlilega forgang og eiga rétt á tafarlausri af­ greiðslu, til dæmis á bráðamóttöku sjúkrahúss eða vaktþjónustu. Samkvæmt sömu skilgreiningu geta þá önnur vandamál beðið, sem er óásættanlegt fyrir viðkom­ andi sem við þau glímir, hann er jú að drepast. Nauðsynlegt er því að tryggja gott aðgengi að almennri heilbrigðisþjónustu á dagvinnu­ tíma. Ganga að traustum upp­ lýsingum til sjúklinga í gegnum internetið og efla lifandi ráð­ gjöf heilbrigðis­ starfsfólks í gegnum síma og snjalltæki. Þannig myndum við slá margar flugur í einu höggi. n Verkir Geta stundum verið nánast óbærilegir. Teitur Guðmundsson læknir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.