Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 V estmannaeyjar: Fokkervél teppt- ist vegna veðurs V estmannaeyium. FOKKERVEL Flugleiða hefur verið teppt í Vestmannaeyjum frá því á þriðjudag vegna veð- urs. Vélin kom venjulega áætlun- arferð síðdegis en veður versnaði skyndilega meðan verið var að afgreiða hana. Farþegar höfðu beðið í vélinni í um klukkustund þegar hætt var við flugtak. Norðan áhlaup var í Eyjum á miðvikudaginn, en samkvæmt upp- lýsingum Braga I. Ólafssonar, umdæmisstjóra Flugleiða, urðu engar skemmdir á vélinni. Stórum vörubifreiðum var raðað kringum hana og hún njörvuð niður svo sem kostur var á. Mikill skafrenningur fylgdi norð- anrokinu og mynduðust víða skaflar á götum og við hús. Bifreiðar teppt- ust víða og hafði lögreglan í mörg hom að líta við að aðstoða fólk. I Friðarhöfn fauk vörugámur í loft upp og lenti ofan á nýlegri Honda- bifreið og skemmdist hún mjög mikið. Bifreiðin var mannlaus. Fiskikör fuku um á hafnarsvæð- inu, sem lauf í vindi, en ollu engum skaða. Samkvæmt upplýsingum lögreglu og hafnarvarða urðu engin önnur óhöpp eða slys í þessu norð- anáhlaupi. — hkj. Frystingu loðnu- hrogna lokið hjá SH SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús- anna stöðvaði móttöku á loðnu- hrognum til frystingar klukkan 20.00 í gær. Þá var gert ráð fyr- ir að frystihús á vegum SH hefðu fengið nægilegt magn til að upp- fylla sölu á rúmlega 5.300 Iestum af hrognum til Japans og fryst- ingu lyki í dag. Aðrir og smærri aðilar eiga eitthvert svigrúm til frystingar hrogna eftir enn. A þriðjudag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Erling KE 750, Öm KE 400, Gígja VE 500, Þórshamar GK 500, GuðmundurRE 450, Berg- ur VE 450 og Kap II VE 50 lestir. Síðdegis á miðvikudag höfðu eftir- talin skip tilkynnt um afla: Jón Finnsson RE 300, Sighvatur Bjamason VE 600 og Júpíter RE 400. Vitað var um fleiri skip, sem Egilsstaðir; Maður lést í umferðarslysi Egilsstöðum. MAÐUR um fertugt lést í um- ferðarslysi á Egilsstöðum að- faranótt siðastliðins miðviku- dags. Maðurinn var á leið suður Lagarás er hann missti stjóm á bifreið sinni og ók utan i ljósa- staur með fyrrgreindum afleið- ingum. Bflstjórinn var einn í bflnum og er talið að hann hafi látist sam- stundis. Bifreiðin, sem er af gerð- inni Mercedes Benz er talin gjörónýt. Ekki er unnt að birta nafn mannsins að svo stöddu. Björa höfðu fengið afla, en áttu eftir að tilkynna sig. Loðnan veiðist nú á tveimur stöð- um, sunnan Reykjaness og á Breiðafirði. Umtalsverð lækkun á skíðum SAMKVÆMT breytingu á toll- skrá sem samþykkt var á Alþingi í gær lækka tollar á skíðum, bind- ingum og stöfum um 50% og tollar á skíðaskóm um 25%. Að sögn Guðmundar Kjartans- sonar, framkvæmdastjóra Sport- vals mun skíðabúnaður lækka um 30% út úr verslunum við breyting- una. Sem dæmi má nefna að skíðabúnaður kostar nú kr. 16.790 en eftir tolllækkun kr. 12.990. Toll- urinn leggst snemma á vöruna og hefur mikil áhrif á önnur gjöld svo sem eins og söluskatt. Þinglausn- ir verða í dag ÞINGLAUSNIR verða í dag kl. 16:00. Fundir hafa verið boðaðir í efri og neðri deild kl. 11:00 árdegis og er stefnt að þvi, að afgreiða þau mál, sem stjórnarflokkarnir hafa sett á oddinn, og mál, sem samkomulag er um milli stjóraar og sfjóraarandstöðu. Á fundi efri deildar síðdegis í gær voru fjögur frumvörp sam- þykkt sem lög frá Alþingi. Þar er um að ræða vaxtalög, lög um dráttarvexti, lög um tollaafslátt vegna öryrkjabifreiða og lög um tollskrá. Síðastnefnda laga- breytingin felur í sér, að tollur á ýmsum smávörum er felldur niður eða lækkaður verulega. í meðförum neðri deildar í fyrn- nótt var felldur niður tollur á skíðum, skautum og hlutum til þeirra, en það voru ekki upphaf- lega áform fjármálaráðherra. Efri deild féllst á þessa breyt- ingu í gær, en fram kom í máli Eyjólfs Konráðs Jónssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að um vítaverð vinnubrögð framsóknarmanna hefði verið að ræða í máli þessu. Sjá þingfréttir á bls. 40 og 41. Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg Haraldur Hannesson kynnir samninginn á félagsfundi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í gær. Fjölmenni var á fundinum og fullt út úr dyrum. Star f smannafélag Reykjavíkurborgar: Oánægja með nýgerðan samning á félagsfundi Fóstrur og slökkviliðsmenn greiða atkvæði gegn samningnum Starf smannaf élag Reykja- vikurborgar hélt í gær fund til þess að kynna nýjan kjarasamn- ing við launadeild Reykjavíkur- borgar sem undirritaður var aðfaranótt sunnudags. Slökkvi- liðsmenn og fóstrur hafa einnig fundað um samninginn og var hjá báðum aðilum ákveðið að greiða atkvæði gegn honum. Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, kynnti samninginn í upphafi fundarins. Sagði hann þá gefa starfsmönnum Reykjavíkur- borgar að meðaltali um 8-10% hækkun. Lágmarkslaun hækka mest eða um allt að 25% en hæstu laun minnst eða um 2,29%. Með þessum samningi hefðu menn líka nálgast það markmið að kjarasamningamir við Reykjavfkurborg færðust nær því sem gerðist hjá öðrum sveitarfé- lögum. Sagði Haraldur að við gerð kjarasamninga kæmu samnings- aðilar alltaf að því augnabliki að verða að hrökkva eða stökkva. Samningsnefnd starfsmannafé- lagsins hefði ákveðið að skrifa undir þennan samning en það væri síðan félagsmanna að ákveða hvort endanlega bæri að sam- þykkja hann. Það hefði þó verið orðið ljóst í samningaviðræðunum að ef meira ætti að fást þyrfti hörð átök. Allnokkrir félagsmenn tóku til máls á fundinum og töluðu þeir flestir gegn samningnum. Menn höfðu það helst út á hann að setja að hækkunin sem í honum fælist væri of lítil en einnig gætti óánægju með hlut þeirra sem ekki eru á lægstu töxtunum. Atkvæði verða greidd um samninginn í dag og á morgun. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar eru á bilinu 2.500-2.600. Matthías Bjamason bankamálaráðherra um Útvegsbankann hf: Næsta skref verður að auglýsa eftir hlutafé Fyrirspurn borist frá einum erlendum banka MATTHÍAS Bjaraason banka- málaráðherra segir að nú, eftir að frumvarpið um Útvegsbanka íslands hf. er orðið að lögum, sé næsta skref af hálfu stjóravalda að taka ákvörðun um að auglýsa eftir hlutafé og að undirbúa stofnfund nýja bankans, sem verði að öllum líkindum haldinn snemma í aprílmánuði. Matthías sagði að stjóm hins nýja hlutafélagsbanka myndi að því Ioknu undirbúa yfirtöku bankans, en á hitt væri að líta, að ýmislegt annað myndi taka lengri tíma, svo sem störf nefndar þeirrar, sem á að starfa samkvæmt lögunum. Það hefði þó engin áhrif á það, að yfír- taka bankans færi fram eftir að stjómin hefði lokið undirbúningi. Láms Jónsson bankastjóri Ut- vegsbankans sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ein lausleg fyrirspum, fyrir milligöngu íslensks lögfræðings, hefði borist bankanum erlendis frá, um hugsanlega fjár- festingu dansks banka í nýja hlutafélagsbankanum. „Þessi fyrirspum dansks banka hefur borist okkur fyrir milligöngu íslensks lögfræðings. Það var raun- ar einungis spurt hvort raunhæfur möguleiki væri á slíkri fjárfestingu og því var svarað játandi. Annað er ekki um málið að segja á þessu stigi,“ sagði Láms. Franskir ferðalangar veltu bíl við Djúp: „Ég hélt ég sæi drauga“ - sagði Einar Ingólfsson bóndi Reykjanesi. „ÉG HÉLT ég sæi drauga," sagði Einar Ingólfsson, bóndi í Botni í Mjóafirði, þegar tveir franskir ferðamenn, maður og kona, kvöddu dyra hjá honum á þriðjudagskvöldið. „Það er heldur óvanalegt að bakpoka- ferðalangar banki upp á hér svona um hávetur." Frakkarair tveir voru reyndar ekki á putta- ferðalagi heldur hafði bíll þeirra oltið og stórskemmst þegar ökumaðurinn náði ekki beygjunni af Vatnsfjarðarveg- inum í botni Mjóafjarðar. Beygja þessi er mjög kröpp og á að vera merkt með grind en hún hefur verið keyrð niður svo öku- maðurinn sá ekki beygjuna í tæka tíð. Skemmdist bíllinn töluvert en fólkið sakaði ekki. „Það má heita lán í óláni að þau fóm útaf einmitt þama. Það er ekki gott að segja hvemig hefði farið ef þetta hefði gerst þar sem lengra er til bæja því vonskuveður var, hvassviðri með skafrenningi og 8 stiga frost,“ sagði Einar. Ferðalangamir gistu í Botni um nottina. __ Björg Samníngar hjá ÍSAL STARFSMENN hjá íslenska ál- verinu skrifuðu undir kjara- samning í gær og verður samningurinn borinn upp í hlut- aðeigandi félögum á næstu dögum. Samkvæmt samningnum hækka gmnnlaun um 5%, ákvæði em um endurmenntunamámskeið og breytingar verða á greiðslum fyrir ferðir til og frá vinnustað. Þá breytast bónusgreiðslur og yfirvinna verður 1% af mánaðar- launum, í stað eftir- og nætur- vinnu áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.