Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Blaðsíða 30
um helgina Alþjóðlegur SólSkinSdrengur Sólskins- drengurinn, heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um einhverfa strákinn Kela, hefur verið valin til sýningar á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í september. Verið er að vinna að alþjóðlegri útgáfu myndarinnar um þessar mundir. Sú útgáfa myndarinnar verður frumsýnd í Toronto en hátíðin flokkast undir svokallaða A-kvikmyndahátíð. kennir á ÍSlAndi Kristján Jóhannsson óperusöngvari verður búsettur á Íslandi í vetur en hann býr að öllu jöfnu á Ítalíu. Hann mun hefja söngkennslu við Söng- skóla Sigurðar Demetz í september. Kennslan er ætluð þeim nemend- um sem eru lengra komnir og vilja fullmóta söng sinn en Kristján mun einnig taka að sér einkakennslu. Á sínum tíma hóf Kristján sjálfur nám við skólann en hann hefur verið að kenna á Ítalíu undanfarið samfara söngferli sínum. Áheyrnarprufur fara fram 25. ágúst milli 13 og 19. SpunAkeppni Sviðslistahátíðin artFart stendur nú yfir en í kvöld verður svokallað Spunakvöld í Leikhúsbatteríinu sem staðsett er í Hafnarstæri 1. Fram fer svokallað leikhússport en það gengur þannig fyrir sig að tveir eða fleiri leikhópar keppa í spunakeppni sín á milli. Áhorf- endur mega búast við því að taka virkan þátt í sýningunni ef vilji er fyrir hendi. Miðaverð er 800 krónur og sýningin stendur frá 18.00 til 18.40. Þáttakendur eru Hera Hilmarsdóttir, Hilmar Guð- jónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Íris Stefanía Skúladóttir og Sigríð- ur Eir Zophoníasardóttir. Útgáfutónleik- Ar á HelliSSAndi Raftónlistardúettinn Stereo Hypnosis, sem samanstendur af þeim feðgum Óskari og Pan Thorarensen, heldur útgáfutónleika í félagsheimilinu Röst á Hellissandi á Snæfellsnesi á laugar- daginn. Þeir eru haldnir í tilefni útgáfu nýjustu plötu þeirra feðga, Hypnogog- ia, en platan er væntanleg til landsins í lok ágúst. Product 8, Snorri Ásmunds- son og Dj AnDre sjá um að hita upp mannskapinn. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21 og er frítt inn. Stereo Hypnosis halda síðan í Evr- óputúr 1. september en leiðin liggur til Eistlands, Lettlands og Litháen. Eyjólfur Eyjólfsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir á Gljúfrasteini: Rómantík í stofu Nóbelsskálds 30 föStudAgur 14. ágúst 2009 fókuS „Myndin er sýnd fyrir stelpurnar í kvöld (fimmtudag) en fer í almennar sýningar á morgun,“ segir Þóra Tóm- asdóttir, leikstjóri heimildarmynd- arinnar Stelpurnar okkar. Myndin fjallar um íslenska kvennalandslið- ið í knattspyrnu og ótrúlega sigurför þeirra í undankeppni Evrópumóts- ins í knattspyrnu 2009 sem endaði með því að liðið tryggði sér þátttöku- rétt eftir sigur á Írum í umspili. Landsmenn kannast vel við Þóru úr fréttaskýringaþættinum Kast- ljósi í Sjónvarpinu en þetta er fyrsta heimildarmyndin í fullri lengd sem hún sendir frá sér. Þóra lauk námi í heimildarmyndagerð frá Nordisk Institutt For Scene og Studio í Noregi árið 2003 en hún segir námið einnig hafa nýst sér vel í vinnu sinni í Kast- ljósinu. Ofurstelpur „Þetta er heimildarmynd um ofur- stelpur,“ segir Þóra um myndina en þetta er fyrsta íslenska heimildar- myndin í fullri lengd sem er gerð um kvennalið í nokkurri hópíþrótt. „Þetta eru stelpur sem geta allt, ætla sér stóra hluti og setja markmið sín á heimsmælikvarða,“ bætir Þóra við um meðlimi íslenska kvennalands- liðsins en eins og frægt er orðið er liðið það fyrsta í sögu landsins sem kemst inn á stórmót í knattspyrnu. „Við erum búin að fylgja þeim eftir í tvö ár og fylgdumst með því hvernig þær náðu þessum ótrúlega árangri.“ Þóra liggur ekki á svörum þegar hún er spurð hvað hún telji persónulega lykilinn að árangri liðsins. „Lygilegt keppnisskap og hættulegur metn- aður.“ Það er auðheyrt að stúlkurn- ar í liðinu eru í miklum metum hjá Þóru. „Þær gera það sem þær vilja af því þær langar til þess og finnst það skemmtilegt. Þær láta engan ann- an segja sér hvað þær geta og geta ekki. Þær láta það ekki stöðva sig þó kvennafótbolti hafi ekki alltaf þótt kúl og töff.“ Dramatíkin óvænt Þóra segir myndina mjög dramat- íska á köflum en það var eitt af því sem kom henni hvað mest á óvart við gerð myndarinnar. „Það er senni- elga dramatíkin. Ég hefði ekki trú- að því fyrir fram að þetta væri svona mikið taugastríð að vera í fótbolta og að fólk væri að leggja hreinlega allt í sölurnar. Þessum stelpum er dauð- ans alvara. Ég tengdi til dæmis þenn- an andlega þátt við það hvað væri að Þóra Tómasdóttir Hefur sent frá sér sína fyrstu heimildarmynd í fullri lengd. lygilegt keppniSSkAp og Hættulegur metnAður Eyjólfur Eyjólfsson tenór Verður á rómantísku nótunum með Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur á Gljúfrasteini. Rómantískir tónar munu óma í stofu Nóbelsskáldsins á sunnudag- inn þegar verkið Dichterliebe (Ást- ir skáldsins), op. 48, eftir Robert Schumann við ljóð Heinrichs Heine verður flutt á Gljúfrasteini. Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngvari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik- ari munu þar leika og syngja. Eyjólfur lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar vorið 2002. Hann lauk meistaragráðu og Postgradu- ate Diploma frá Guildhall School of Music and Drama í London sum- arið 2005. Eyjólfur hefur sungið með nafntoguðum hljómsveitum og píanóleikurum hér heima og erlendis, til dæmis Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og Konunglegu sin- fóníuhljómsveitinni í Sevilla þar sem hann söng tenórhlutverkið í óratoríunni Messías eftir Händel í Maestranza óperuhúsinu. Þá flutti hann ljóðaflokkinn Malarastúlkuna fögru eftir Schubert á tónlistarhá- tínni Islande-Provence í Esparron de Verdon og ljóðatónleika í Tón- leikasal Gnessin Tónlistarakademí- unnar í Moskvu. Anna Guðný brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og stundaði Post Graduate- nám við Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum með sér- staka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Hún hefur starf- að á Íslandi í yfir aldarfjórðung við margvísleg störf píanistans, aðal- lega í samleik ýmiss konar en einn- ig í einleikshlutverki. Anna Guðný hefur verið píanóleikari Kammer- sveitar Reykjavíkur um langt árabil og hún hefur leikið inn á um þrjátíu geisladiska og plötur í samvinnu við ýmsa listamenn. Tónleikarnir hefjast að vanda klukkan 16. Aðgangseyrir er 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.