Dagur

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 1996næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Dagur - 19.01.1996, Blaðsíða 1

Dagur - 19.01.1996, Blaðsíða 1
Akureyri, föstudagur 19. janúar 1996 13. töiublað 79. árg. Tvöfaldurl. vinningur í heimsókn í Strýtu Fulltrúar í sjávarútvegsdeild Alþingis sóttu í gær heim fyr- irtæki og stofnanir á Akur- eyri. Meðal fyrirtækja sem nefndarmenn skoðuðu var Strýta og þar var þessi mynd tekin. í dag liggur leið full- trúa í sjávarútvegsnefnd til Hjalteyrar, Dalvíkur, Ólafs- fjarðar og einnig til Þórshafn- ar ef flugveður leyfir. Erum kannski að losna við umheiminn - segir Jóhann Ólafsson, framkvæmdastjóri Fiskiðju Raufarhafnar og Jökuls uðvitað er mjög vont mál Lfyrir okkur að þetta skuli vera að detta upp af. Bæði hvað varðar að koma fískafurðum frá staðnum en ekki síður er þetta slæmt vegna hráefnisöflunar," Rafmagnsverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga: Atak innanlands í sölu gasskynjara Rafmagnsverkstæði Kaup- félags Skagfírðinga á Sauðárkróki er um þessar mundir að hefja markaðsátak vegna sölu á gasskynjurum, sem framleiddir hafa verið af verkstæðinu um nokkurra ára skeið. Þessir skynjarar hafa fengið góða dóma erlendis, en RKS er í samstarfi við danska aðila um markaðssetningu þeirra erlendis. „Við höfum ráðið sölumann til starfa hér innanlands, en á heimamarkaði stendur til að gera átak í sölu og það fór af stað um áramót. Jafnframt mun- um við sjálfir annast þjónustu, uppsetningu og eftirlit vegna skynjaranna hér heima,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri RKS, í sam- tali við Dag. Gasskynjarar, sem þessir, eru mikið notaðir í matvæla- og fiskiðnaði, þar sem kæliefni og gastegundir eru notaðar. Sér- stakjega þykja þeir heppilegir gagnvart hinum svonefndu Freeon kæliefnum, sem þarf að fara sparlega með og efnin þykja jafnframt hættuleg. Free- on efni eru einnig að hækka mjög í verði nú og þarf því að fara sparlega með þau. Gas- skynjarar geta þá komið að góð- um notum - og segir Röngvald- ur að séu skynjarar settir urn borð í togara geti þeir jafnvel borgað sig upp í tveimur til þremur veiðiferðum. -sbs. Fundum með heimamönnum - segir Garðar Jóhannsson hjá Eimskip Við erum búnir að fá erindi frá þeim á Raufarhöfn og höfum ákveðið að hitta þá og ræða þessi mál,“ sagði Garðar Jóhannsson hjá skrifstofu Eim- skips á Akureyri, vegna þeirrar óánægju sem fram er komin á Raufarhöfn vegna breytinga á siglingakerfí félagsins. Garðar sagðist telja eðlilegt að málin yrðu rædd á þeim vettvangi áður en menn myndu tjá sig frek- ar. Hann sagði stefnt að því að fundurinn yrði á Akureyri um miðja næstu viku og þar myndu fulltrúar Eimskips væntanlega hitta Reyni Þorsteinsson, oddvita og sveitarstjóra, og Jóhann Ólafs- son, framkvæmdastjóra Fiskiðju Raufarhafnar og Jökuls. Talað er við Jóhann í blaðinu í dag og í viðtali við Reyni í Degi sl. þriðjudag kom fram að mikil óánægja væri ríkjandi á Raufar- höfn vegna málsins. Sem fyrr seg- ir munu aðilar nú setjast niður og ræða málið. HA sagði Jóhann Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðju Raufar- hafnar og Jökuls á Raufarhöfn. Eins og fram hefur komið verð- ur þar ekki viðkoma strand- ferðaskips eftir að ný siglinga- áætlun Eimskips tekur gildi. „Við tókum þá stefnu á síðasta ári að láta okkar skip landa þar sem hentugast er varðandi veiði- svæði og fá aflann heim með strandferðaskipinu. Þannig höfum við komist af með eitt skip fyrir vinnsluna í stað þess að þurfa hugsanlega að vera með tvö, ef þau þyrftu alltaf að sigla heim. Það er því verið að skerða okkar samkeppnishæfni. I þriðja lagi er slæmt fyrir staðinn almennt að skipaflutningar skuli vera að leggjast af,“ sagði Jóhann. Einnig hefur verið á það bent að vegasamgöngur á svæðinu eru með því versta sem gerist. „Ég orðaði þetta þannig á stjómarfundi Jökuls á dögunum að við mættum kanski bara vera sæmilega sáttir því nú værum við kannski að losna við umheiminn. Við mynd- um leggja niður flugið, leggja nið- ur skipaflutningana og grafa veg- inn í sundur sitt hvoru megin við Raufarhöfn," sagði Jóhann. „Eim- skip virðist hafa beygt sig fyrir stærri frystihúsunum en við erum minni og auðveldara að stíga ofan á okkur. Við þurfum auðvitað bara að berjast tvöfalt meira en hinir, sagði Jóhann." Fiskiðjan og Jökull eru með sín viðskipti hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna og sem kunnugt er eru tengsl milli SH og Eimskips. Aðspurður hvort til tals hefði komið að flytja afurðaviðskiptin sagði hann að engin ákvörðun liggi fyrir um slíkt. „Að sjálf- sögðu munum við nota þá mögu- leika sem við höfum til að tryggja okkar viðveru og samkeppnis- hæfni, eins og aðrir gera. Eimskip nýtir sér stærð sína og kraft til að taka af okkur þessa viðkomu og við verðum að bregðast við með því sem við höfum. Við munum ræða þessi mál við Eimskip og taka okkar ákvörðun í framhaldi af því. Það liggur ekki fyrir að við munum gera neitt róttækt en við munum ekki kyngja þessu þegj- andi,“ sagði Jóhann Ólafsson. HA Snjólétt á Hveravöllum Snjólétt hefur verið á Hvera- völlum á Kili það sem af er vetrar, að sögn Sigrúnar Þórólfs- dóttur, sem býr á Hveravöllum og annast veðurathuganir ásamt sambýlismanni sínum Magnúsi Björnssyni. Nokkuð snjóaði þó aðfaranótt fimmtudags og sagði Sigrún vera nýfallin snjó yfir öllu. Hún sagði nokkra umferð jeppa vera búna að vera það sem af er nýja árinu, en ekkert þó að ráði, eins og hún orðaði það og vél- sleðamenn hafa ekki komið af skiljanlegum orsökum. Hún sagði þá sem koma hafa fylgt veginum, enda gefur snjóleysi varla tilefni til annars. Nokkuð er þó um að menn hafi komið yfir Langjökul. í gærmorgun var 6,5 stiga frost á Hveravöllum en hafði verið þriggja stiga hiti daginn áður. HA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað: 13. tölublað (19.01.1996)
https://timarit.is/issue/209853

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

13. tölublað (19.01.1996)

Aðgerðir: