Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Blaðsíða 1

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda - 01.11.1945, Blaðsíða 1
T <e>3ö • (> zt-eT FÉLAGSTÍÐINDI STÉTTARSAMBANDS BÆNDA Jf„ Stéttarsamband bœnda er nú aö hefja starfsemi sína. Stéttarmeðvitund, samhug- ur og félagsþroski íslenzkra bœnda eru hornsteinarnir, er þessi félagsskapur verð- ur að hvíla á, ef hann á að orka því sem að er stefnt að verða virkur baráttu-aðili fyrir beinum hagsmunamálum bœnda. Stfórn Stéttarsambandsins hóf starf sitt í haust. Það, sem' gjört hefir verið, er fyrst og fremst undirbúningur og skipulagning; án þessa verður ekkert átak gert sem gagn er að. Einn þáttur þessa undirbúnings er, að kynna bœndum um land allt lög og starfsemi Stéttarsambandsins, og annað er lýtur beint eða óbeint að verkefnum þess. Til þess að það geti orðið, þarf sam- bandið að hafa greiðan aðgang að — eða umráð yfir — blaði eða riti, sem kemur til alls þorra bœnda. Hugsanlegt hefði ver- ið að snúa sér með þetta til vikublaðanna, sem mesta útbreiðslu hafa í sveitunum og fá þetta efni birt þar, en þar sem Stétt- arsambandið er ópólitískur félagsskapur bœnda, hefir stjórnin afráðið að leita yfir- ct r p leitt ekki til flokksblaðanna með birtingu á því, er hún þarf að kynna bœndum. í þess stað hafði stórn Stéttarsambandsins hugsað sér að leita til Freys með birtingu þess er þurfa þœtti. Nú hefir svo atvikast, að ritstjóri blaðsins hefir tafizt í útlönd- um meira en áœtlað var og má því gjöra ráð fyrir, að nóvemberhefti blaðsins verði af þeim ástœtðum siðbúnara en ella. Stjórn Stéttarsambands bænda hefir því afráðið að senda bœndum að þessu sinni hefti það, er hér kemur fyrir almenningssjónir. — Vœntir stjórn Stéttarsambandsins, að því verði vel tekið og að bœndur verði þess minnugir, hvar sem þeir standa í fylkingu stjórnmálanna, eða i öðrum deilumalum líðandi stundar, að þeir eru bœndur og að sameinaðir stöndum vér en sundraðir föll- um vér. Pt. Reykjavík, 22. okt. 1945. Fyrir hönd stjórnar Stéttarsanibands bœnda J ón Sigurðsson. ' :.Ai<0SB0f\ASAFN l c í o lí S 0

x

Félagstíðindi Stéttarsambands bænda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Stéttarsambands bænda
https://timarit.is/publication/1916

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.