Tíminn - 23.12.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.12.1959, Blaðsíða 7
* JOLASLAÐ TÍMANS 1959 ★ JOHANN BRIEM: tínMÍH H í ttjartoíkurAkrifatn i. í Njarðvíkurskriðu'in í Norður-Múla- sýslu hefur um langan aldur staðið tré- fcross og stendur þar enn í dag. Hann ihefur oft verið endurnýjaður, nú síðast fyrir fáum árum. Á þverálmu krossins er þessi latneska áletrun: EFFIGIEM CHRiISTI QVI TRANSIS PRONUS HQNORA ANNO MCCCVI. (Þú, sem framhjá gengur, fall þú fram og heiðra mynd Krists. Ár 1306). Hefur áletrun þessi verið þýdd á íslenzku í bundnu máli, og er vísan talin gömul: Þú, sem að framhjá fer, fram fall í þessum reit, og Christi ímynd hér •auðmjúkur lotning veit. Um krossinn er til alþekkt þjóðsaga, ®em skrásett hefur verið þrem sinnum eftir munnmælum eystra. Elzt og ýtar- legust er frásögn séra Benedikts Þórar- inssonar á Ási í Fellum. Hún er skráð 1348 og hefur aldrei verið prentuð fyrr. (Heimildarinnar verður getið síðar). Séra Benedikt segir svo frá: ---------Gil eitt bratt og djúpt, sem li,ggur ofan til sjávar, er norðan við skriðurnar, þar sem þær byrja, þegar farið er frá Njarðvík. Það er kallað Naddagil. í þessu gili skal í fornöld hafa haldið sig óvættur nokkur. Hann var kallaður Naddi (máske dregið af nafninu Njarðvík). Stóð mönnum svo mikill ótti af honum, að það þótti ógjörningur að fara yfir gilið og skrið- urnar, þegar dimma tók af nóttu, en ekki sakaði um daga. Maður er nefndur Björn skafinn. Hann var svo kallaður, af því að hann var fæddur á fjallvegi, þar sem ekki var vatn að fá. Vóru því skafin óklái-indin af barninu með knífi í laug- ar stað. Tveir Jónar vóru synir þessa Björns. Bjó annar í Njarðvik, en hinn í Gilsárvalla hjáleigu í Borgarfirði. Þeir vórú miklir menn fyrir sér og ramir að afli. Þeir höfðu eirneglur, er þeir hugðu til áfloga, en það voru eirklær, er þeir settu upp á hvörn fingur. Það var einn tíma, að Jón í Gilsárvalla hjáleigu fór upp yfir fjall til Fljótsdals- héráðs, og er hann fór heimleiðis aftur, kom hann í Njarðvik síðla dags og vildi ná að heimili sinu um kvöldið. Hann var lattur þess að fara í skriðurnar, þar eð mjög tók að dimma, en hann kvaðst ekki mundi láta Nadda hindra ferð sína og fór ei að siður. Þegar hann kom í ■gilið, var Naddi þar fyrir og réðist á Jón, en hann sleit sig af honum. Svo fór og í öðru sinni. Hið þriðja sinn kom Naddi framan að honum. Vóru þeir þá komnir í miðjar skriðurnar. Þar tókust þeir á fast. Fann þá Jón, að hann hafði ekki afl á við Nadda, og þótti honum sem mundi hann kreista hold allt frá beini. Hét hann þá fyrir sér að fjölga kirkjuferðum sinum, ef hann fengi unnið óvættinn, því hann hafði ekki verið kirkjurækinn maður. Var þá sem kippt væri fótum undan Nadda, og hryggbraut Jón hann þar um klett einn og byiti honum síðan á sjó út. Varð ekki síðan vart við Nadda, en Jón komst heim að Gilsárvalla hjáleigu um kvöldið og lá í 3 vikur eftir viðureign þeirra- Var þá krossinn settur þar sem sigurvinningar rnerki. Það hafði fyrrum verið siður ferðamanna, er þeir. komu að krossinum, að þeir tóku ofan höfuð- fat sitt og gjörðu bæn sína, en nú er það aflagt. — í þjóðsögum Jóns Árnasonar er sagan um Nadda, skráð af Jóni Sigurðssyni í Njarðvík, sem var alkunnur fræðimaður og ættfræðingur. Þar er Nadda lýst svo, að hann var í mannslíki að ofan og dýrs- líki að neðan.; Þar. sem hano fór heyrðist „eins og eitthvað væri að nadda og glamra á grjótin". Af því var nafn hans dregið. Að öðru leyti er ekkert nýtt í frásögn Jóns, enda er hún miklu stytlri en saga séra Benedikts. Loks hefur '.séra Ingvar Sigurðsson á Desjamýri skráð söguna eflir munn- mælum i Borgarfirði eystra. Er sú frá- sögn samhlióða hinum fyrri, en því bætt við, að Naddi hafi búið í helli, sem síð- an heitir Naddahellir, og sé ofarlega í Naddagili. Þá er einnig sagt, að Naddi rændi menn og meiddi. Þess vegna getur •séra Ingvar þess til, að Naddi hafi verið stigamaður, enda sé leiðin vel fallin til árásar og hellirinn ákjósanlegt vigi. — En þess þarf ekki með til að skýra uppruna sögunnar. í öllum löndum eru til sagnir um óvættir, sem héldu si.g á hættulegum stöðum á alfaraleiðum, og var þeim kennt um slysfarir, sem þar urðu (Sírenurnarí Messínasundi, Lóreley hjá Rín o. fl.). II. Elzta heimild um krossinn er í ferða- bók Olaviusar (Ólafs Ólafssonar), en hann ferðaðist um þessar slóðir sumarið 1776. Lýsir hann nákvæmlega leiðinni um skriðurnar og því, hve hættuleg hún sé og ægileg fyrir vegfarendur. Seg- ir hann, að sumir, sem þessa Ieið fara, bindi fyrir augun og hafi band um sig, en einn leiðsögumaður gangi á undan og annar á eftir og haldi í bandið. — Síðan lieldur hann áfram: — Á þessari leið miðri stendur litill trékross. Þar lesa allir ferðamenn Faðirvor samkvæmt gamalli venju og vegna áletrunar þeirr- ar, sem stendur á krossinum: Effigiem Christi qvi transis pronus honora. — í fornleifaskýrslu Desjamýrarpresta- kalls er ekkert minnzt á krossinn, en hún er skrifuð af séra Þórði Gunnlaugs- syni í janúarmánuði 1823, Næstu heim- ild verður því að telja frásögn Páls Melsteðs, sagnfræðings, sem prentuð er í „Blöndu“. Hún er að vísu ekki skráð fyrr en 24. september 1881. Segir Páll þannig frá ferð sinni um Njarðvikur- skriður: ---------Eg hefi farið einu sinni yfir þær með föður mínum og eru nú milli 50 og 60 ár 'SÍðan. Við komum frá Desjar- mýri, riðum út að Nesi (Snotrunesi). Þar bjó þá Hjörleifur Árnason sterki. Nes er yzti bær þeim megin fjarðar, en Höfn hinum megin. Þar bjó þá Jón bróðir Hj örleifs (Hafnarbræður). Hjör- leifur fylgdi okkur út yfir skriðurnar. Gatan var svo tæp, að ég skil varia, að hestar hefðu getað mætzt þar nema með lífsháska. Þar, sem mig minnir, að skrið- urnar væru tæpastar eða hættulegastar, stóð þá kross. Það var trékross allmikill og á hann rist nokkur orð á latínu, mig minnir þess innihalds: Hver sem fer um þennan veg, falli fram og tilbiðji guð. Þenna kross, sem ég sá, hafði Hjörleifur smíðað og rist á letrið og endurnýjað þann garnla kross, sem þar stóð áður og kominn var að falli. Mig minnir, að Hjörleifur segði, að sú skylda lægi á Nesbónda að halda krossinum við og að svo væri framan úr öldum. Þess heyrða ég getið, að þar hefðu menn hrapað og fyrir þá sök hefði krossinn verið reist- ur.--------- Samkvæmt þvi, sem hér er sagt, á það að hafa verið á árunum 1821—1831, að Páll fór um skriðurnar. (Hjörleifur sterki dó 1831). En um það verður ekk- ert sagt, hvort kross Hjörleifs hefur komið næst eftir kross þann, sem Olavius sá 1776, eða hvort einn kross hefur verið þar á milli. Athyglisvert er það, að Olavius talar um „lítinn tré- kross“, en kross sá, er Páll sá, var ,,all- mikill“. Krossins er lítillega getið í sóknalýs- ingu Desjarmýrarprestakalls eftir séra Snorra Sigfússon, en hún er skráð 1840. Eins og aðrar sóknalýsingar er hún svör við ákveðnum spurningum. Þar sem skýrt er frá alfaravegum, getur séra Snorri um leiðina um skriðurnar, en segir ekki um hana annað en það, að henni sé greinilega lýst í ferðabók Olaviusar. En spurningunni um það, hvort nokkrar fornleifar séu í sóknum hans, svarar hann þannig: Nei, nema á krossinum í Skriðunum (og vitnar aftur til Olaviusar). Næsta heimild um krossinn er skýrsla, sem séra Benedikt Þórarinsson á Ási i Fellum sendir Norræna fornfræðafé- laginu 4. janúar 1848 sem svar við prentuðu ,,boðsbréfi“‘ félagsins, dagsettu 28. apríl 1846. Séra Benedikt hafði áður verið prestur á Desjarmýri (1831—37). í Þjóðminjasafninu eru til ljósmyndir af fornleifaskýrslunum gömlu, og er skýrsla séra Benedikts með þeim, þótl hún sé miklu yngri en þær flestar. — Se.gist honum svo frá: Um dýrkun krossins lielga er mér ókunnugt, einungis get ég þess, að í Njarðvíkur skriðum (milli Desjarmýrar og Njarðvíkur) stendur ennþá sá litli kross af tré, sem getið er um í Olavii Reise Beskrivelse, pag. 451, og er skorið í hann þetta letur: Effigiem Christi, qvi transis pronus honora. Þó er það ekki hinn sami kross, sem þar stóð til forna, því hann var orðinn fúinn, var því smíð- aður nýr eftir hinum gamla og skorið á hann sama letrið.--------- Síðan talar séra Benedikt um orsök þess, að krossinn var reistur í fyrstu og segir þar söguna úm Nadda, sem birt er hér að framan. Þótt hér sé aðeins talað "tini éina endursmíð á krossinum á tímabilinu frá 1776 til 1848, hefur hann þó verið reist- ur a. m. k. tvisvar sinnum á þeim árum, og verður skýrt frá þvi hér á eftir. „Sá litli kross af tré“, sem séra Benedikt talar um, er eflaust kross Hjörleifs sterka, sá sami, sem Páll Melsteð telur „allmikinn", en augljóst er, að séra Benedikt notar hér orð Olaviusar. Næst er krossins getið um 1860 í frá- sögn séra Sigurðar Gunnarssonar, sem þá var prestur á Desjarmýri og hafði verið þar 16 ár. (Lbs. 417 8vo bls. 421). Heitir saga hans Krossjaðar. Þar segir svo: Svo heitir meljaðar í Njarðvikur- skriðum- Stendur neðan til í honum tré- kross rélt neðan við götuna og eru skor- in á krossinn þessi orð: „Effigiem Christi qvi prodis pronus honora". (Fyr- ir 14 árurn): 1846 var krossinn orðinn fúinn og fellilegur. Þá setti bóndinn Jón Sigurðsson í Njarðvík, fræðimaður og fornmenjavinur, annan nýjan með sömu gjörð og hinn gamla.----------- Einkennilegt er það, að nú er áletrun- in orðin breytt frá því, sem áður var. í stað transis (gengur framhjá) er komið prodis (gengur áfram). Ómögulegt er að segja um það, hvort hér er um að kenna ritvillu séra Sigurðar, eða hvort áletrunin á krossinum sjálfum hefur raunverulega brenglazt. Það sannar ekkert, þótt séra Benedikt noti orðið transis. Þegar hann skrifar skýrslu sína, eru 11 ár liðin dðan hann flutti burt úr Borgarfirði, og getur vel verið, að hann hafi tekið setninguna upp eftir ferðabók Olaviusar. Hafi tekstinn aflagazt, gæti það helzt átt sér stað, ef nýr kross væri smiðaður, ef-tir að hinn fyrri væri eyði- lagður, og þvi ekki tiltækilegur til sam- anburðar. En þess er getið sérstaklega, að bæði Hjörleifur sterki og Jón i Njarð- vik endurnýjuðu krossinn, vegna þess að hinn eldri var orðinn hrörlegur (en ekki glataður). En vel getur verið, að krossinn hafi verið endurnýjaður einu sinni á tímabilinu frá 1776 og þangað til Hjörleifur smíðaði sinn kross og hafi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.