Tíminn - 23.12.1959, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.12.1959, Blaðsíða 12
12 JÓLABLAÐ TÍMANS 1959 * ÞORSTEINN MAGNUSSON . FRA GILHAGA: Vor í Skagafirbi Frá ljóssins bogabraut fer blámans hilling enn um S-kagafj arðar skraut og Skagafjarðar menn. Sú nótt, sem birtu ber á bratta norður strönö; hún geislar hvert eitt gler og gyllir búans iönql. En ströndin hrein og heið, sem hófmarksboginn stár, og bundin sundin breið við bjargfuglseyjar þrjár. • Sem eilífð, yzta grunn, þar auga dauðlegt sér er aftansól við unn til árdags beygja fer. Það dreymir nýjan dag með daggarskrúð á jörð og unaðs óma slag um allan Skagafjörð, er himinheiðið fer um hárra fjalla barm, og vorfugl varpar sér á víðáttunnar arm. Þar reisa lárétt lönd sín loftsins bláu þil. Þar falla fossabönd um fer’.eg skörð og gil. Þar samir mærri mynd hinn mikli súlnakrans, en vatnsins lægsta lind er listmálari hans. Hin síuppyngda sveit, ef syrtir að í byggð, rís aftur heið og heit um héruð tíbrárskyggð. Og rúm í alla átt er útsýn veggja til. Þar bera bæir hátt sín búmannlegu þil. Sjá höldsins heimareit og húsfreyjunnar reyk. Sjá fannhvítt féð á beit og frárra hesta leik. Þar miðast mannsins tíð við mikil svigaflug. Hann fóstrar frækinn lýð með frelsis reifan hug. Það færði fæstum grið og færa mundi enn að skipta sköpum við þá Skagafjarðar menn. Þeir hittu æ þann her, sem hugði á svik og rán og höfðu í hendi-sér að hrinda hverri smán. Svo skörp í skálma hríð .var skagfirzk bændaöld að fyrir land og lýð þeir löngum báru skjöld, því mest við dirfð og mátt þeir mátu framans snið, þótt leiðir legðu þrátt á listarinnar svið. Þeir drukku hin dýru vín og dáðu fagra mey. Með glögga sálarsýn þeir sögnum g’eymtíu ei. Þeir vöktu vísdómsorð u.m vetrarkvöldin löng. Á andans breiðu borð þeir báru ljóð og söng. Um bjartan sumarsjó þeir synda létu knör, en kenndu krappann þó í Kráku-Hreiðars vör. Þeir fóru hlið við hlið um harðan foldarvang og fengu fagurt skrið á fáksins töfragang. Þá glumdi Vallhólms grund og gustaði um skeið. Svo hló við hestum sund um Héraðsvötnin breið. Og eins um auðnir lands þeir áttu kosta völ og stýrðu ferð án strands um Stórasand og Kjöl. Á hvez'j u vori var, er veðrin hófust blíö, að gesti að garði bar í Gilhaga þá tíð. Því afdalsveginn við þeir völdu suðurreið. Þar er sem opið hlið að öræfanna leið. Að árdegi var áð við efsta kvíaból og síðan hildin háð við hrikafjalla stól. Þar geymist glögg og hrein hin gam’a heiðatröð, og þraut var þá ei nein að þræða Blönduvöð. En hver um flúð og fjöll sig færir á annað svið í gegnum atvik öll og athafnanna klið, hann man þá fögru fold, þá fáksins móðurjörð: Hvar hófur markar mold hann minnir á Skagafjörð. Nauðlending Súlunnar á Skagafirði Framhaid af 12. síðu. því að mér datt í hug, að nú væri hann bilaður. Lentum við á spegilsléttum firð- tnum og var það harðari lending en á Skagafirði deginum áöur. Að endingu vil ég þakka öllum þeim, sem unnu að björgun okkar, Bigurði fyrir drengilega framkomu 1 hvivetna, og minnist ég Björns sáluga meö þakklæti og trega. Tv’eimur dögum seinna fórst flug- vélin, hvo’.fdi í roki, þar sem hún lá á Akureyrarpolli. Næst flaug ég 1946 frá Prestvík til Reykjavíkur og gekk það ágætlega, en 1947 flaug ég með gömlu Heklu Loftleiða frá Reykjavík til Kastrup- flugval’.ar. Lentum við í dimmri þoku, varð að hemia þar svo harka- lega aö öll dekkin fjögur tættust í sundui^ svo vélin stóð á þeim öllum vinálaúsum við flugskýlið, en það er- önnur saga. mtmúi Giebiieg jói! komandi ár. SJÖFN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.