Tíminn - 23.12.1959, Blaðsíða 21
★
JÓLABLAÐ TÍMANS 1959
★
i
r
skikkjum vitringanna eru úr bóm-
ull. (Sjá stóru myndina).
Mörg heimili hafa sama mat ár
eftir ár á jóladögunum. Flestir
hafa a.m k. hangikjöt einhvern
jóladaginn, og ekki skemmir aö
baka laufabrauð að norðlenzkum
sið, til að bera fram með því.
Piparkökuhús
450 gr. púðursykur,
435 gr. sýróp,
3 dl. rjómi,
1' matsk. engifer,
2 matsk. sódaduft,
1,200 gr. hveiti.
Rjóminn er þéyttur, sykur, sýróp,
engifer og sódaduft hrært útí og
hrært vel saman. Hveitið hnoðað
uppí. Deigið geymt til næsta dags.
Munstrið að húsinu er teiknað á
smjörpappir, deigið flatt út.(ca. 3
mm. þykkt), sniðin iögð á það og
skorið eftir þeim. Stærstu bútana
er bezt að sniða á plötunni, svo að
þeir ekki aflagist þegar þeir eru
látnir ,á hana. Bakað og kælt á
plötunni.
Flórsykur hrærður með sítrónu-
safa og sprautað á brauðið i þau
munstur, sem eiga að vera á hús-
inu. Húsið er límt saman með heit-
um, bráðnum sykri.
Á jólunum er sjálfsagt að reyna
að búa borðin fallega, auk þess
sem þá er vandað venju fremur
til matargerðar. Margar fallegar
borðskreytingar má útbúa með til-
tölulega litlum tilkostnaði. Trjá-
greinar má mála með gull- eða
silfurbronsi, bora í þær göt fyrir
kerti, stinga grenigreinum eða
mislitum kúlum í þær á milli kert-
anna. Ef þær eru ekki vel stöðugar,
má s’.étta þær að neðan með gibsi
eða mótunarleir.
Englahár má leggja eftir borð-
inu endilöngu, og vefja það um
einn eða fleiri kertastjaka, eftir
því hvað borðið er stórt. Nokkrar
litlar jólatréskúlur og smáar greni-
greinar eru lagðar saman á hvor-
um borðsenda þar sem englaháls-
lengjunum s’eppir.
Úr mis’itum pappírsræmum eða
stífum borðum má búa til skemmti-
legar skreytingar til að hengja á
vegg. Á meðfyigjandi mynd sjáið
þið lika skreytingu. í hana eru
glerkúlur, en i staðinn fyrir gler-
kúlur má hnoða kú’ur úr mislit-
uhi pappír.
Skemmtileg jðlagjöf er þessi
jólasveinn, sem ætlaður er til að
hengja á vegg og geyma í honum
jólakortin. Hann má búa til úr
filti eða tvöföldu taui, sem pappi
er lagður á milli, búkurinn rauður,
andlit hvítt og beltið svart.
Þeir, sem eru duglegir að teikna
og klippa út, geta búið til fallega
jólamynd, annað hvort úr pappír
eða taugi. Sé hún gerð úr pappír,
má líma myndirnar á, annars eru
þær saumaðar. Bryddingarnar á