Tíminn - 23.12.1959, Síða 8

Tíminn - 23.12.1959, Síða 8
B JDLABLAÐ TIMANS 1959 ★ ★ i 1 áletrunin aflagazt þá. . Það, sem sagt verður hér á eftir um hina síðustu krossa í NjarðvíkurskriíteOv-. ■er að mestu leyti eftir munnlegum og skráðum heimildum frá séra Ingvari Sigurðssyni á Desjarmýri. Til eru tvær prentaðar ritgerðir eftir 'hann um þetta efni (Gerpir 2. ár, 6. tbl- og Borgarfjörð- ur og Njarðvik, Árbók Ferðafélagsins 1956). Krossinn, sem Jón í Njarðvík hafði reist, féll um 1880, eftir um það bil 34 ár. Þegar krossinn var fallinn, fannst þessi vísa rituð á blaði á krossstæðinu, gerð af vegfaranda úr Héraði: Nú er fallinn Nadda.kross. Nú er fátt, sem styður oss. En þú, helgi klerkakraftur, krossinn láttu rísa upp aftur- Njarðvíkingar reistu kross að nýju, og er honum lýst nokkuð i ferðabók Þor- vaidar Thoroddsens, en Þorvaldur skoð- aði hann sumarið 1894, er hann ferðað- ist um Múlasýslur. í Ferðabókinni segir svo: — Innarlega um miðjar skriðurnar, við dálitla gilskoru, er trékross með letri. (Neðanmáls: Á krossinum stendur: ,,Effigiem Christi avi transis pronus honora. Anno MCCCV“), hann hefur oft verið endurnýjaður og er víst mjög gamall, en engin vissa er fyrir því, að ártalið, sem nú er á honum, sé rétt. — Eins og þessi frásögn ber með sér, er texti áletrunarinnar nú aftur kominn í ■sína upphaflegu mynd, eins og hann er hjá Olav'usi. Getur vel verið, að hún hafi verið leiðrétt á krossinum sjálfum eftir neðanmálsgreinr sem fylgir sögunni um Nadda í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, isem þá voru nýlega komnar út. Krossinn, sem Þorvaldur segir frá, stóð enn. er séra Ingvar Sigurðsson kom að Desjarmýri 1912. Lýsir hann kross- inum þannig, að hann virtist vera úr ferköntuðu rekatré, orðinn gamallegur og letr'ð máð, en þó læsilegt, ártalið 'sama og nú, MCCCVI, en síðasti stafur- inn hafi verið vzt á þvertrénu, eg þess vegna muni það vera, -að Þorvaldi hafi isézt yfir hann. Þessi kross féll í ofviðri 1913 og hafði þá staðið í kringum 33 ár. Tók hann út á ,'ió og rak upp í Njarðvík, en er ■nú löngu glataður. Krossinn var aftur endurreistur 1913. Það gerði Bóas S. Eydal, smiður, sem þá var nýfluttur til Njarðvíkur. Hann lét áletrunina halda sér óbreytta að öðru leyti en því, að hann notaði al-ls staðar upphafsstafi í stað smárra stafa, sem áður vcsru. Um leturplötuna setti hann ramma cg gler fyrir. Þessi kross stóð ■aðeins 11 . ár. Árið 1924 smíðaði Bóas nýjan kross'með sömu gerð, nefna gler- útbúnaðinum var sleppt, þar sem hann þótti ek-ki gefast vel. Svo er að siá sem Bóas hafi endurnýjað krossinn til að ■gera hann fegurri eða smekklegri, en ■ekki vegna þess, að hinn fyrri hafi þá verið ónýtur, sem varla gat verið eftir svo skamman tíma. Krossinn, sem myndir eru af í Minn- ingum Ara Arnalds, er síðari kross Bóasar. Hann stóð í 30 ár, en 1954 reisti sonur Bóasar, Árni Bóasson frá Borg í Njarðvík, kross þann, er nú stendur í skiriCiunum. Áirná >ar s.kurð'hagur sem faðir hans, smíðaði krossinn sjálfur, skar hann c? stsypti undirstöðu, all-t af sjálfs dáðum. Mæltist þetta framtak vel fyrir, og gre:ddi hreppurinn honum nokkra fjárhæð fyrir. Stendur krossinn nú á steyptum fót- 'Stalli, sem er í þrem þrepum, og er hvert þrep 10 seiítimetra hátt eða hæð stalls- ins 30 sm. Upp úr efsta þrepinu miðju rís sívait langtré 1,80 m. hátt með þveý- tré, sem er 1,10 m. að lengd. Það er ferhyrnd eikarplata og er letrið með upphafsstöfum eins og á krossum Bóas- ar. Ilæð krossins er því alls 2,10 m. yfir jörð. Áður fvrr var gatan miklu neðar en hún er nú á þessum hluta í skriðunum. Voru slv;farir þar tíðar, bæði á mönn- um og E'kspnum. Um 1860 stóð krossinn neðan við götuna að sögn séra Sigurðar Gunnarssonar. Snemma á þessari öld var gatan færð ofar í skriðurnar, og •enn var hún ílutt ofar, og er það talin imikil bót. Vegurinn var breikkaður, og var hin-n nýi kross settur á neðri vegar- brún, þar sem stálið fyrir ofan var mjcg hátt. E'i si'o lengi sem elztu menn muna, hefur kroisinn staðið ofan við götu, ■nema stundum hefur honum verið stung- ið niður í bili neðan við götu, er hann var endurnýjaður, áður en gengið hefur veriQpáýS;Tþonum endanlega. Mun það '' haSp5Éiié(gW þvi, að þar var meiri jarð- -. vegtrr tikiaff festa hann í. HL Áletrunin á krossinum er alþekkt er- lendis og kemur víða fyrir bæði fyrir siðaskipti og eflir, en ekki er mér kunn- ugt um, að hún hafi verið notuð á íslandj nema á Njarðvíkurkrossinum og stórum róðukrossi, sem lengi stóð i dóm- kirkjunni í Skálholti. Kom hann í kirkj- una á dögum Þórðar biskups Þorláks- sonar (1674—97). Var smíðaður í Ham- borg, senniiega 1692. Krossinn er ennþá til og er geymdur í Þjóðminjasafni, en áletrunin er horfin. Hefur s"nn;'“ga staðið á fótstalli, sem nú er glataður. Þegar Skálholtskirkja var r'fin, var krossinn seldur á uppboði og fluttur að Klausturhólum, og þar var hann, þangað til hann kom í safnið. Á Skálholtskrossinum stóðu þessi tvö vísuorð: Effigiem Christi qvj transis pronus honora non tamen effi.giem sed quetm designat adora. (Þú sem frrmhjá gengur fali þú fram og heiðra mvnd Krists. Tilbið samt ekki myndina, heldur þann, sem hún sýnir). Þetta er upphaf að ævafornu, latnesku kvæði, sem er að f:nna í bréfabók Gregoriusar páfa mikla (d. 604) og er sennilega eftir hann sjálfan. Rétt er að geta þess, að áletrun. lik að efni, er á róðukrossi frá Silfrastöðum, sem nú er í Þjóðminjasafni, og er talin-n vera frá siða-kiptatímanum. Á m'ttis- skýlunni standa þessar línur með mjög smáum stöfum: on deus est sed schulpta deum presentat imago qva vi:a tu in mente eolas id qvod cernis in illa. (Hún er ekki guð, en hún sýnir oss guð, þessi útskorna mynd. Er þú litur hana, dýrkar þú í huga þér það, sem þú sérð á henni). IX. Um aldur Njarðvíkurkrossins er því almennt trúað, að hann sé frá pápískri tíð og hafi í fvrstu verið reistur árið 1306, eins og ártalið bendir til. Þetta er eðlilegt, þar sem saman fer svo ljós heimild sem ártal á hlulnum sjálfum og það. að krossar á víðavangi eru miklu algengari í katólskum löndum en annars staðar. Þorvaldur Thoroddsen dregur þó í efa sannleiksgildi ártalsins, en telur samt, að krossinn ,sé frá því fyrir siða- skipti. Dr. Jón Þorkelsson gengur út frá því sem staðreynd, að krossinn sé úr pápísku, og er honum þó ekki kunnugt um neitt ártal, þar sem aðalheimild hans er ferðabók Olaviusar. (Om Digtn- ingen paa Island, bls. 75). — Að því, er ártalið snertir, er þar skemmst frá að segja, að svo snemrna á öldum er sá siður ekki til hér á landi að merkja hluti með ártöium, ekki einu sinni leg- steina. Reynsla síðari ára hefur sýnt, að hver kross stendur ekki nema þriðj- ung aldar. Hefði krossinn verið reistur í öndverðu fyrir siðaskipti, þyrftu a. m. k. sex krossar að hafa staðið á þessum stað, hver eftir annan, á undan þeim krossi, sem Olavius sá 1776. Slík hirðu- semi var kannske ekki alveg óhugsanleg, en hi'tt væri ótrúlegra, að hin latneska áletrun 'skyldi ekki aflagast á þessum öldum. Um það, hve leng: ártaiið 1306 hefur staðið á krossinum, er ekkert vitað með vissu annað en það, að það' var á krossi þeim, sem reistur var um 1880. Þorvald- ur Thoroddsen er fyrsti maðurinn, scm neínir ártalið. Það getur ekki verið til- viljun ein, að enginn þeirra manna, sem skrifað h'afa um krossinn á undan hon- um, nefnir ártal, og það þótt þeir taki áletruni'ia upp að öðru leyti. Þegar Jón í Njarðvík skrásetur söguna um Nadda, setur hann hana í samband við söguleg- ar persónur frá 16. öld. Það hefði hann ekki gert athugasemdalaust, hefði hann talið krossinn vera frá öndverðri 14. öld. Og Jóni, sem- sjálfur var ættfræð- ingur og lók saman ættartölur Njarð'- víkinga, var vel kunnugt um það, hvenær Björn skafinn var ugpi. (Hann er enn á lífi 1559). .. ‘ Þátt einum manni Mecfti yfirsézt, væri því ékkf t:l að^úreifiLað hinir fjórir, seoLskrifað tiaái'*hm áletrunina á kross- inum, þeir Oilfvius, séra B'énedikt Þór- arinsson, sérá Sigurður Guhnarsson og' Páll Melsteð, skyldu allir gievrna því atriði, sem óneitanlega væri hið allra sérstæðasta við krossinn, þ. e. hinn hái aldur hans. Þaq senr^Bngínnin^fnin ár- talið, er aðeirisVuWvJLvoCúnugufaikV'.að ræða, annað hvort hefur það ekki verið þar eða þeir hafa vitað, að það var ný- le.gt og marklaust. Kannske er MCCCVI aðeins misgröftur fyrir MDCCCVI (þ. e. D-ið hafi fallið úr).og að það hafi verið þá, .sem Hjörleifur sterki smíðaði sinn kross, oj» ártalið hafi fylgt krossinum síðan. En hvort sem svo er eða ekki, er ártalið, sem nú er á krossinum, nýlega tilkomið og algjörlega þýðingarlaust sem heimild. — Og þá er ekkert vitað um aldur hans annað en það, að hann stóð á sínum stað árið 1776, þá ártals- laus. Flestir virðast vera á þeirri skoðun, að krossinn hafi í upphafi verið reistur aðeins vegna þsss. hve leiðin um skrið- urnar var hættuleg, en ekki í tilefni af sérstökum atburði. Þó er þess getið í Minningum Ara Arnalds (bls. 215), að auk sögunnar um Nadda, séu til munn- mæli, er segja, að ikrossinn sé reistur t l minningar um það, að prestur frá Desjarmýri, :em var á leið til annexíunn- ar i Njarðvík. hafi farizt á þessurn stað. — Einnig getur Páll Melsteð þess, að hann hafi 'heyrt, að -krossinn hafi verið reistur ve.gna þess, að þar hefðu menn hrapað. í í'slenzkum æviskrám er sagt svo frá, að séra'Halldór Gíslason á Desjarmýri — þekktur kraftamaður og annálshöf- undur — hafi hrapað til bana í Njarð- víkurskriðum hinn 14. júní 1772. Þetta er dálítið villandi. Séra Ilalldór hrapaði ekki i skriðúnum, heldur miklu austar, og heitir kleíturinn, þar sem hann féll, síðan Prestabani. — Það er útilokað, að setja krossinn í samband við það slys. Afkomendur séra Halldórs bjuggu áfram á þessum slóðum, og hefði þeim áreið- ■aniega verið kunnugt um það, ef sam- band hefði verið þar á milli. í Þjóðsög- um S'gfúsar Sigfússonar er sagt ýtarlega frá dauffdaga séra Halldórs. Þar er gengið út frá því, að krossinn hafi staðið þarna, er slysið varð- Hjörleifur sterki, heimildarmaður Páls Melsteðs, var fædd- ur 1760, og hefur því verið 12 ára gam- ali, er séra Halldór fórst. Miklu frekar gæti krossinn staðið í sambandi við slvs, sem varð í Njarðvík- urskriðum vorið 1772, og er það þó vafa- samt. Séra Runólfur Ketilsson hafði verið aðstoðarprestur séra Magnúsar Hávarðssonar á Desjarmýri um tveggja ára skeið, er hann fékk Hjaltastað í Útmannasveit vorið 1711, en þjónaði jafnframt Desjarmýrarprestakalli næsta ár. Vorið 1712 varð hann fyrir snjóflóði í Njarðvíkurskriðum og fórst ásamt fyigdarmanni sínum, er hann var í messu ferð að Desjarmýri. Tók fylgdarmanninn á sió út, en sumar heimildir herma, að séra Runólfur hafi fundizt örendur í skaflinum standandi, og haft tóbaksdósir í höndum. Var það því mál manna, að hann muni hafa verið að taka í nefið, er hann lézt. Aðrir segja, að prestur hafi komizt lifandi úr snjóflóðinu, en dáið síðan, og hafi dósirnar fundizt á steini í fjörunni. Sagt er, að dósirnar muni vera til ennþá, og er það skoðun sumra, að þær séú bakstursdósir, en ekki tóbaksdósir, enda var prestur á messuferð'. Jafnvel er því haldið fram, að prestur muni hafa tekið sakramenti, "pr/hann ^arj o^ðiflp fasturij skaflinum. C- Tiifið epj! að^sepai Rúno'lfúri hafi farizt í svonefndri Skriðuvík, sem er um 1 km. frá krossinum. En engu að síður gæti krossinn verið íeistur í tilefni. þessa atburðar, ekki sem minnismerki, heldur til verndar ferðamönnum, sem um 'skriðurnar fóru, cg þá verið settur á þann stað, þar sem leiðin var hættuleg- ust. Á þann hátt gætu munnmæli þau, sem nefnd eru hér að framan, samrýmzt staðreyndum. Það verður einnig til að styðja þessa. tilgátu, að krossinn í Skálholti, sem hefur sömu áletrun og þó len.gri, er kominn í dómkirkjuna tveimur áratug- um áður, en sá kross var smíðaður erlendis- Þótt áletrunin sé alþekkt, <er ■mér ekki kunnugt um hana á fleiri stöðum á íslandi en á þessum tveimur krossum. Það er því ekki ósennilegt, að eitthvert samband .sé á milli þe'rra, en það 'getur aðeins verið, ef Njarðvíkur- krossinn er yngri. Þótt fjarlægðin milli þsirra sé mikil, eru þó báðir í sama biskupsdæmi, og ser.nilega hafa flestir prestar í Múlasýslu 'sótt menntun sína í S'kálholt og a. m. k. tekið vígslu þar. Að sjálfsögðu vil ég ekki leggja áherzlu á þessa tilgátu, aðeins benda á hana sem möguleika, sem ekki er vert að ganga framhjá. Þótt áletrunin tali um „mynd Krists“, eru engar líkur til að slík mynd hafi nokkurn tima verið á krossinum. Raunverulega er ekkert sem bendir til þess, að krossinn sé frá pápískri tíð. H:n latneska áletrun -gefur ekkert slíkt í skyn, enda vitum við, að Skálholts- krossinn er smíðaður í lok 17. aldar. Katólskur helgidómur hefði varla staðið af sér storma siðaskiptaaldarinnar. Krossar á víðavangi eru að visu ennþá algengari í katólskum löndum en annars staðar, en eru þó vel þekktir í öilum löndum, og eru reistir enn í dag, eink- um þar sem menn hafa látizt af slys- förum. Mér er kunnugt um tvö slík dæmi á íslandi frá síðustu áratugum. í byrjun þessarar aldar var reistur trékross í Hálsasveit í Borgarfjarðarsýslu á stað, þar ‘sem stúlka hafði farizt, en hann stóð aðeins skamman tíma. Nálægt Galtalæk í Landssveit, Ran.gárvallasýslu, er kross úr málmi, þar sem maður varð úti í febrúar 1940. V. Þess er getið um fleiri staði hér á landi, að þeir, sem framhjá fóru, skyldu lesa þar bænir. Alþekkt er Gvendar- al'tari í Drangey, þar sem leiðin upp á eyna var hættulegust. —í Úlfsey undan Búland'snesi í Suður-Múlasýslu er Úlfs- haugur, talinn vera haugur fornmanns. Sú var tíð, að hver sá, er í land kom á eyjunni, 'okyldi syngja vers o.g lesa bæn yfir haugnum. (Ferðabók Olaviusar). Ekki er Njarðvíkurkrossinn algert einsdæmi á íslandi. Á Kaldrananesi við Reykjafjörð í Strandasýslu er gamall trékross (eða spýta, sem kölluð er kross) á háum 'hóli við sjóinn. Segja munnmæli, að Guðmundur bískup góði hafi reLst hann þar, og látið svo um mælt, að eng- inn maður skyldi farast á ferju yfir fjörðinn, meðan krossinn stæði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.