Tíminn - 23.12.1959, Síða 13

Tíminn - 23.12.1959, Síða 13
■X '! -.-..r - ... - V i ð t r ú b «‘ Málmbjalla hangir í útskornu • likani af kínversku hofi — fagur- ' blár siikidúkur með ísaumuðum biómum á borði — stórar, út- skornar kistur úr kamferviði eru með veggjum. Teskeiðarnar á kaffi- iborðinu eru skreyttar hinum kín- versku táknum auðs, hamingju og langlífis. Allt þetta og margt fleira minnir á að húsbændur þessa heim- ilis hafi áður flutt búferlum um iengri veg en frá Þingvöllum til Reykjavíkur. Frú Astrid Hannesson, glaöleg kona og virðuleg í senn, segir frá með stilltu brosi, en hita i rödd- inni. Ævistarf hennar hefur verið unnið við margbreytileg skilyrði og hún hefur tengzt fjarlægri þjóö sterkum böndum. Árum saman dvöldu þau hjónin í Kína við líkn- ar- og trúboðsstörf. — Hvar kynntust þið fyrst, hjón- in? — Það var á unglingaskóla í Nor- egi þegar við vorum 17—18 ára gömul, saraa skóla og Gunnhild dóttir okkar sækir nú. Mér þótti gaman að spjalla við Jóhann og láta hann segja mér frá Sögueyjunni, en það var svo sem ekkert alvarlegt á fnilli okkar þann vetur, segir frú Astrid brosandi. Seinna lagði ég stund á hjúkrun- arnám og var á sjúkrahúsi í Osló þegar Juhann kom þangað frú trú- boðsskólanum í Stavanger, til þess að lesa heimspeki við háskólann. Þá átti hann fáa kunningja í Osló og kunningsskapur okkar þróaðist í það að við trúlofuðum okkur. — Ákváðuð þið fljótlega að starfa að kristniboði? — Já, það gerðum við strax. Að hjúkrunarnámi loknu fór ég eitt ár á trúboðsskóla og lagði líka stund á málanám. Ég hafði fyrst ætlað mér að fara til Madagaskar og starfa á holdsveikraspítala, en þar var bróðir minn trúboði og ég hafði mikinn áhuga á því starfi, sem þar var .unnið. Og þó að ég færi ekki þangað, þá fór það svo, að ég komst í náin tengsli við holdsveikraspítala í Kína. Þörfin er víða brýn og hjúkrunarkona getur alls staðar lagt Uð. — Hvert fóruð þið fyrst, er þið hélduð til Kína? — Fyrst fórum við til Hong-Kong og vorum þar ár á tungumálaskóla. Náminu var skipt í fjögur stig. Við höfðum tvo kennara, sem venjulega lásu með okkur 4—5 tíma á dag og á kvöldin æfðum við okkur heima. Próf voru tekin á þriggja mánaða fresti. Það var einmitt í maí 1940, rétt eftir að við fréttum, að Þjóðverjar hefðu ráðizt á Noreg, sem við héld- um af stað frá Hong-Kong. Fórum við fyrst til Shanghai og biðum þar nokkrar vikur eftir ferð inn í land- ið. Samgöngur voru slæmai', við urðum að feröast með smábátum og vörubílum, en við vorum ung og hraust og þó að ferðalagið væri erf- itt, þótti okkur það skemmtilegt. Ferð, sem með járnbrautarlest hefði tekið 3—4 daga. tók okkur tvo mán- uði. En á þessari leið voru víða trú- boösstöðvar og þar var okkur alls staðar vel tekið. Eigum við margar góðar minningar um þá óendan- TÍMANS 1959 * * JÓLABLAO oðsstörf legu gestrisni, sem við nutum. Loksins komum við til Changsha, höfuðborgarinnar í Hunan-fylki í Mið-Kína. Þar var miðstöð norska kristniboðsfélagsins. Áður fyrr hafði einxxig verið þar sjúkrahús, en búið var að flytja það þegar við komum þangað. í Hunan er talað allt ann- að mál en í Hong-Kong, svo að við urðum enn að setjast á skólabekk í eitt ár, en eftir það að við vorum bæði búin að læra ríkismálið, sem talað er í Norður-Kína, og mállýzk- una í Hunan, áttum við tiltölulega auðvelt með að skilja flestar þær mállýzkur, sem um var að ræða í þeim landshlutum, sem við dvöld- um í. Næst fluttum við til Sinhwa og var sú trúboðsstöð fjærst aðalstöðv- unum. Þar var holdsveikraspitali og hafði Jóhann á hendi yfirstjórn hans. Einn kínverskur prestur og tveir læknar störfuöu þar einnig, tvær norskar hjúkrunaroknur og einn norskur kventrúboði. Tólf eða þrettán smástöðvar og söfnuðir voru líka í umsjá hans og ferðaðist hann á milli þeirra til eftirlits, fylgdist með kristindómskennslunni og öðru starfi safnaðanna. — Voruð þér oft með honum á eftirlitsferðunum? — Ekki mjög oft. Ég starfaöi að- allega heima og tók einkum þátt í í Kína störfum meðal kvenna. I samráði við kínversku læknana tók ég upp þann hátt eftir að Gunnhild dóttir mín fæddist, að stofna til eins kon- ar samkeppni í góðri meðferð ung- barna. Vissa daga fengu allar kon- ur úr söfnuöinum, sem það vildu, að koma inn á heimili okkar og þar sýndi ég þeim hvernig ég fór með mitt barn, hvernig ég baðaði hana, klæddi og fæddi. Ég gaf konunum snið af barnafötum, kenndi þeim að pi'jóna o. s. frv. Svo fengu þær konur verðlaun, sem bezt hirtu börn sín og önnuðust. Og ekki leíð á löngu þar til að við gátum jafnvel úti á götu lesið úr þau börn, sem fengið höfðu þá fóstrun, sem við reyndum að kenna konunum. Barnadauðinn var óskaplegur fyrstu tvö aldursárin. Kæmust þau yfir þann aldur, var næstum því eins og ekkert biti á þau. Hreinlætið var bágborið. Á sumrin rnoraði allt af mýflugum, þær bitu börnin, ígerð hljóp i bitin, flugur settust á þau, og oft sá ég opin sár, kvik af mök- um. Þá var þess sjaldan lengi að bíða aö eitrun bærist í heilann og börnin dæju. Þá var augnsjúkdóm- ui'inn tracoma, sem og kynsjúk- dómar, mjög algengir í börnum, enda ekki að undra, eins og hrein- lætinu var háttað, Það vaf bágt að sjá fallegú barnsaugum breytast — hvernig tracomarx gerði augnalokin, hrjúf að innan eins og sandpappír, augun særast og spillast. Einu sinni þegar Gunnhild okkar var ársgöm- ul, fengum við nýja vinnustúlku. Hún reyndist vera með tracoma og Gunnhild smitaðist af henni. Við urðum að halda henni þrjú meðan augnalokin og hvarmamir voru brenndir með blásteini. Það var hræðilegt! Hún varð alveg stíf á meðan, en hún fékk fullan bata. Maður varð alltaf að vera á verði — eins gegn innýflaormunum, sem allar nýjar stúlkur voru haldnar af. En einhvei'n veginn varð þetta sjálfsagt, ég var í-eyndar alltaf með sprittið og bómullina á lofti! Það þýddi til dæmis ekkert að hugsa um það, ef maöur var boðinn í te í Sinhwa, að ef til vill væru te- kökurnar keyptar hjá kökusalan- urn, sem sat á götunni með varn- ing sinn, neflaus og með spilltar hendur af holdsveiki. — Hve lengi voruð þið í Sinhwa. — í þrjú ár, við urðum að fara þaðan þegar Japanar komu þangaö. — Hvaða trúarbrögð voru algeng- ust meðal þess fólks, sem þarna bjó? — Búddhatrú og Taoismi. Trúar- brögðin áttu sterk ítök í fólkinu, sem vonlegt var og það lagði mikið á sig til þess að færa öllum þeim mörgu guðum fórnir, sem blíðka þurfti. — Hver finnst yður vera aðal munurinn á þessum trúarbrögðum og kristinni trú? Sá, að áhangendur Búddhisma og Taoisma leggja aðaláherzluna á að færa guðunum fórnir, mat vín pen- inga, reykelsi — og sitja og hug- leiöa, en skeyta lítið sem ekkert um meðbræður sína. Oft spurði þetta fólk: Hvers vegna eruð þið að fórna ykkur til að hjálpa okkur í eymd okkar og neyð? Til þess að kennsla í kristnum trúarbrögðum beri ár- angur, verður hún að haldast í hendur við líknarstörf. Hugmynda- heimur kristninnar nær ekki tök- um á fólki, nema að það sjái í verki að trúarbrögðin byggi í eðli sinu á bi'óðurkærleika. Reynsla okkar var yfirleitt sú, að eftir að fólk hafði t. d. legið á sjúkrahúsinu okkar og kynnzt af eigin raun starfinu þar, fór það að sækja kirkju og óska eftir fræðslu. Þá tók það að þrá að losna við óttann, sem alltaf bindur heiðna menn. Þeir, sem kynnzt hafa óttanum við hin heiðnu goð, sem alls staðar sitja um menn til að gera þeim mizka og aldrei má láta af að blíðka með fórnum, þeir skilja bókstaflega setninguna: Sannleik- urinn mun gei'a yður fi'jálsa. Einn dag kom kínversk kennslu- kona til mín og spurði hvort ég vildi koma með sér til sjötugrar konu, sem óskaði að láta skírast. Blessuð garnla konan hafði auðvit- að aldrei lært að lesa og ég hafði verið að segja henni ögn til, kenna henni trúax'játninguna og annað það ,sem krafizt var að fólk lærði áður en það tæki skírn. Nú sagði kennslukonan, að hún ætlaði að brenna sina gömlu húsguði. Þegar við komum heim til hennar — hún bjó í smákofa — hafði öll fjöl- skyldan safnazt umhverfis kofann og vöruðu hana ákaft við því að varpa guðum sínum á brott, með því myndi hún kalla bölvun yfir alla ættina. Gamla konan skaraði í eldinn, sótti stiga og staulaðist á litlu, reirðu fótunum upp stigann að hillu, þar sem í'aðað var guðalíkn- eskjum. Er mér þetta óhætt? spui'ði hún mig og ég fullvissaði hana um, að ekkert illt myndi koma fyrir, þess- ar tálguðu spítur hefðu aldrei hjálpað henni neitt. Svo fór hún að tína niður líkn- eskin, eitt og eitt, varpa þeim á eld- inn og bíða þess á milli til þess að Frú Sigríður Thorlacius ræðir við frú Astrid Hannesson Frú Astrid Hannesson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.