Tíminn - 23.12.1959, Side 17

Tíminn - 23.12.1959, Side 17
Scott og félagar á Suðurpólnum. Efri röð frá vinstri: Oates, Scott og Evans. Sitjandi: Bowers og Wilson. U M Dagbók Scotts á leiðinni segir ná- 'kvæmlega frá atburðum. Öðru 'hvoru kennir nokkurs ótta og kvíða, einkum ef eitthvað bjátar á um veður.1 Erfitt er að draga sleðana og færið er ekki alltaf isem bezt. Þegar Scott skrifar dag- bók sína að kvöldi sunnudagsins 14. janúar kvartar hann um að dagleiðin hafi verið erfið og færðin þung. Þyngt hafði í lofti um kvöldið og skafrenning- ur með hægum vindi. „Ég vona að ekk- ert verði úr stormi“, segir Scott, ,,og . jafnvel þó að hvessi lítilsháttar, ættum við að geta haldið ferðinni áfram“. Dagurinn 16. janúar var þeim félögum dagur óvæntra tíðinda. Þá segir Scott i dagbók sinni: „Það versta, eða næstum því það versta sem fyrir gat komið, hefur hent. Okkur miðaði vel áfram um morguninn og lögðum að baki hálfa áttundu mílu. Við héldum glaðir af stað eftir hádegishvíld og vorum búnir að reikna út, að næsta dag yrðum við á pólnum. Er við höfðum gengið röskan klukkutíma, festi Bowers auga á svartri þústu framundan og stuttu síðar á svart- an depil, sem ekki gat verið snjór. Þegar nær kom sást að svört veifa blakti þarna á snjóbreiðunni. Hafði tuska verið bund in á brotinn sleðameið og rétt hjá sáust inerki eftir tjaldstæði, Sleðaför lágu þar um kring, spor eftir menn og 'hunda, — marga hunda. Þessi ummerki sögðu okkur söguna alla. Norðmennirnir eru á undan okkur og hafa orðið fyrstir á pólinn. Þetta eru hræðileg vonbrigði og mig tekur sárt til trúfastra vina minná. Margar hugsanir hafa komið upp í huga okkar og við höfum rætt margt saman. Á morgun verðum við að halda áfram til pólsins og halda síðan heim á leið ei-ns greitt og við komumst. Dagdraumar eru á enda og vonir brostnar. Leiðin til baka verður þreytandi og erfið. Næsta dag greinir dagbókin frá kom- unni á pólinn'. Þar segir: — Loksins náðum við pólnum, en kringumstæðurn- ar eru allt aðrar en við höfðum búizt við og vonað, Við höfum átt erfiðan dag. Auk vonbrigðanna hefur blásið svalt í fang okkar, 4—5 vindstig og gaddurinn 22 stig. En við höfum samt haldið ferð- inni áfram, kaldir á höndum og fótum. Skammt frá þeim stað, þar sem Norð- menn höfðu tjaldað á pólnum, 'hlóðu þeir Scott og félagar hans vörðu. Stungu þar niður brezka fánanum og tóku mynd af sjálfum sér þar við. Þarna var tjald, sem Norðmenn höfðu skilið eftir. Fundu þeir þar skýrslu þeirra um komuna til Suðurpólsins og sagt frá því að hinn 16. desember eða réttum mánuði áður, hefði Roald Amundsen verið þar stadd- ur við fimmta mann. í tjaldinu voru ennfremur lítið eitt af munum og mæli- tækjum, sem þeir höfðu skilið þar eftir og bréf til Hákonar Noregskonungs, ásamt miða til Scotts, þar sem Amund- sen biður hann að koma bréfinu til skila. Er svo að sjá, sem Scott hafi þótt þessi tilmæli undirstrika ósigur sinn, því að hann setur upphrópunarmerki á eftir þeirri setningu, þar sem hann skýrir frá þessu í dagbókinni. Annars er þar ekkert æðruorð að finna, enda þótt ekki leyni sér að vonbrigðin voru mikil. Til lítils höfðu menn lagt á sig þrotlaust erfiði og náð markinu til þess að finna þar norskan fána og tjald Amundsens með bréfinu til Noregskonungs. Amundsen hafði náð pólnum á þeim tíma, sem heppilegastur var talinn. Hann hafði getað lagt fyrr af stað en Scott frá vetrarbækistöðvum við strönd- ina. Stafaði það ekki sízt af því, að Amundsen byggði leiðangurinn sinn til pólsins öðru vísi en Scott, sem treysti á mennina eina til að draga sleða með vistum og útbúnaði. Amundsen hafði aftur á móti fjölda hunda til að draga isleða sína leiðina alla á pólinn og til baka. Scott og félagar hans voru miklir dýravinir og hafði Scott liðið önn fyrir slæma meðferð dýranna, bæði hunda og hesta i fyrri leiðöngrum. Er þetta talin ein ástæðan til þess að hann valdi ekki sleðahunda til ferðarinnar á pól- inn. Vegna þess að Aniundsen hafði hunda fyrir sléðum sínum gat hann lagt mun fvrr af stað en auk þess voru vetrar- bækistöðvar hans um 80 milum nær pólnum en vetursetustaður Scotts. Ömurleiki og þreyta gerðu mjög vart við sig hjá Scott og félögum hans, eins og sjá má af dagbókinni 17. janúar, dag- inn, sem þeir héldu kyrru fyrir á póln um. Vindur blés og kuldinn var 21 st;g. Þeir tjölduðu til þess að geta fengið sér miðdegisverð og gerðu sér dagamun með því að borða það, sem Scott kallar sunnudagsmat. Kvöldið h-efur verið heldur ömurlegt í tjaldinu, þegar Seott rifjar upp endur- minningarnar frá deginum til að festa á blöð dagbókarinnar. Hann segir:. .— Góði guð, —- þetta er hræðilegur staður, — og ömurlegt. fyrir okkur að hafa lagt á okkur allt þetta erfiði, án þess að geta uppskorið þau laun að fá að verða fyrstir. Nú verðum víð að hefja hinn óttalega barning heim. — Það verður erfið ferð,- og guð einn veit hvort við fáum henni lokið. Daginn, sem Seott hélt kyrru fyrir á Suðurpólnum gerði hann ýmsar mæling- ar. Frostið var um 29 sti.g, en veður að öðru leyti gott. Hæð yfir sjó .mældist þeim vei'a um þrjú þúsund metrar á pólnum. Félagarnir fimm sneru nú baki við pólnum. Takmarkinu, sem þeir höfðu stefnt að til þessa og að lokum náð að loknu miklu erfiði. Framundan voru ekkj minni erfiðleikar. Senn von á hörð- um veðrum, 800 mílur til vetrarbæki- stöðva. Fimrn menn á skíðum með far angur sinn á tve;mur sleðum. Dagbók Scotts geymir nákvæma og átakanlega lýsingu á ferð þeirra og hrakningum allt til hinzta áfangastaðar þeirra á ísauðnunum. Dagbókin fannst í tjaldi hjá líki Scotts og tveggja félaga hans átta mánuðum eftir að síðast hafði þar verið dregið til stafs. Skulum við nú fylgjast með ferð þeirra, samkvæmt heimildum dagbókarinnar. Strax hinn 20. janúar eða á þriðja degi frá því að þeir lögðu af stað heim- leiðis frá pólnum, fer að bera á misjöfnu úthaldi þeirra og Scott byrjar að óttast um Oates. —- Ég held að hann sé næm- ari fyrir kulda og þreytu en við hinir, seglr Scott. Þegar þeir félagar vöknuðu eftir næturhvíld í fjórða tjaldstað, var komið stórviðri og dimmt yfir af snjókomu, svo að heita mátti. að ekki sæi til sólar. Meðan þeir voru að matast lygndi allt í einu og veður fór batnandi. Þegar þeir ætluðu að leggja upp kom í ljós að öll bönd voru freðin, svo að brottför tafðist þar til klukkan að verða fjögur, Færð reyndist þá orðin mjög erfið og jökul- sprungur töfðú ferð þeirra. Að kvöldi hins 23. janúar skrifar Scott í dagbókina: Það er eng nn vafi á því, að Evans er orð'nn mjög veikburða. Fingur haus eru illa bólgnir af kulda og nef hans blóð- hlaupið af frostum. Hann er óánægður með sjálfan sig og það veit aldrei á gott. Ég held hvns vegar að Bowers, Wilson og ég séum eins heilsuhraustir og frek- ast er hægt að búast við miðað við að- stæður okkar nú. — Ég hef miklar áhyggjur af því, hvað kuldinn virðist bíta mik'ð á þá Oates og Evans. Tveimur dögum síðar. hinn 25. janúar: ■— Við þolum allir meiri og. minni þján- ingar. Oates kvelst af kali á fótuin. Ev- ans er illa bólginn á fingrum og nefi cg í kvöld hefur Wilson sára verki í aug- unum. Bowers og ég erum þeir einu, sem ekki hafa miklar þjánihgar. Veður- útlitið er mjög ótrygg-t. En stormar á þessum tíma árs, þó ekki séu langyinnir, geta orðið okkur hættul-egir. Þennan dag höfðu þeir orð ð að liggja veðurtepptir. Þegar rof3ði til og hrið-in birti svo að hægt var að átt-a sig á gömlu slóðinni, reyndust sleðarnir og tjaldið svo rækilega fennt .að langan tíma tók að moka ofan af farangrinum og losa tjaldið. Þegar þeir .loksins komust af stað aftur voru þeir svo heppnir að komast á gömlu slóðína cg tókst að finna vistabúrið. Þeir höfðu merkt það með rauð-ri veifu á leiðinni til pótsins.: Þar borðuðu þeir nægju sína og héldu svo upp að nýju með níu daga nesisauka. Nokkrum dögum síðar vildi það óhapp til -að Wilson tognaði á fæti. Bólgnaði fóturinn er á daginn leið, en hann tók því öllu með jafnaðargeði og hélt ferð- inni áfram til kvölds, eins og -ekkert hefði í skorizt, enda þótt har.n liði sárar kvalir. Scott hafði talsverðar áhyggjur vegna þessa atviks og um kvöldið bættist það við, að Evans var óvenju slæmur í hör.dunum. Frostbólga og kal var kom ið á svo hátt stig, að tvær n-eglur rifnuðu af fir.grum hans. Fannst Scott að Evans hefði misst mikið kjark síðustu dagana og verið mjög áhyggjufullur. Tveimur dögum síðar varð Scott fyrir því óhappi að falla á skíðunum og meiða s'g í öxl. Hafði hann af þessu sárar kvalir, þegar komið var í náttstað um kvöldið og talar um að ekki sé leiðang- urinn orðinn efnilegur þar sem þrír af fimm séu orðn'r sjúklingar. Hafi Wilson þá ekki getað annað en haltrað með fé- lögum sínum síðan hann tognaði á fæt- inum. í þessu sambandi skrifar Scofct: — Við eigum erfiðasta hluta leiðarinnar ófar- inn. Við megum teljast sérlega heppnir, ef við komumst á leiðarenda án þess að nafa beðið enn alvarlegra tjón á lífi eða Tmum. Við höfum, guði sé lof, ennþá nóg að borða á hverjum matmálstíma, en samt er eins og matarskammturinn geti ekki satt hungur okkar. Hinn 13. febrúar getur Scott þess í dagbókinni, að Bowers, sem til þessa hafði all-taf ver'ð hraustur, þjáist . af snjóblindu og þannig sé það oinnig með Wilson. Evans hefur oklci leugur þrótt til þess að hjálpa þe:m félögum á kvöld- in við vinnuna í tjaldinu. Jökulsprungur og slæm færð að öðru leyti tafði oft mjög ferð þeirra. Eitt s:nn duttu þeir Scott og Evans báðir í sömu jökulsprunguna samtímis og Ev- ans í aðra sprungu nokkru síðar. Settust þeir að með fyrra móti það kvöld og leituðu hvíldar. Þegar förinni var haldið áfram næsta dag, dró óvenju í'ljótt af Evans. Bowers reyndist þá, sem jafnan Á leið á Suðurskautið.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.