Tíminn - 27.03.1960, Page 1
TÍMINN flytor daglega
meira af innlcndum frétf-
Eum en önnur blöð. Fylgizt
meS og kaupiS TÍMANN.
44. árgangur — 71. tbl.
TÍMINN er sextán sltfur
daglega og flytur fjöl-
breytt og skemmtitegt efni
sem er við allra hæfi.
Sunnudagur 27. marz 1960.
Macrnillan gengur frá flugvélinni í átt að hótelinu. í fylgd með honum eru þeir Tómas Tómasson, fulltrúi í
utanrlkisráðuneytinu (t.v.) og Bjarni Guðmundsson, blaðafulltrúi (í miðju). (Ljósm.: TÍMINN KM).
Macmillan kom við
á Kef Savíkurf lugvelli
Úhemju afti barst
land í Eyjum
Aldrei áður hefur jafn mikill afli borizt á
land í Vestmannaeyjum á einum degi
Margir bátanna voru með um 40 tonn úr
róðrinum í fyrradag
Vestmannaeyjum, 26. marz.
í gær var mikið um að vera
hér í Vestmannaeyjum og hef-
ur ekki öðru sinni á þessari
vertíð borizt meiri afli á land á
einum degi. Er auk heldur
sennilegt að slíkur afladagur
hafi ekki áður þekkst í sögu
Eyjanria.
Heildarfiskmagnið mun
hafa verið nálægt 2360 tonn-
um. Bátarnir fiskuðu allir vel
og voru yfirleitt áþekkir um
aflamagn Voru þeir margir
með um 30 tonn. Þeir allra
hæstu fóru þó nokkuð yfir 40
tonn og höfðu frá 5—6 þúsund
fiska. Virtist fiskur um allan
sjó.
Annríki var gífurlegt og
stóð löndun og vinna í fisk-
iðjuverum yfir fram undir
morgun. Allir eru einnig önn-
um kafnir í dag og allir bátar
eru á sjó en láta ekki vel af
aflabrögðum.
Lélegur afli hefur verið hjá
færabátum enda illa viðrað
fyrir þá, lengst af austan-
strekkingur. S. K.
Ræðir við Eisenhower um gagn-
tilhoð Rússa í afvopnunarmálum
Skömmu eftir hádegið í gær
kom Harold Mcmillan, for-
sætisráðherra Breta, til Kefla-
víkurflugvallar á leið sinni
vestur um haf, þar sem hann
mun ræða við Eisenhower
Bandaríkjaforseta um síðasta
gagntilboð Rússa varðandi
bann við kjarnorkuvopnatil-
raunum.
, Meðal þeirra, sem tóku á móti
Macmillan á flugvellinum, en
hann stóð við í einar þrjátíu mín-
útur, voru þeir Tómas Tómasson,
fulltrúi i utanríkisráðuneytínu og
Bjarni Guðmundsson, blaðafull-
'trúi. Forsæ'tisr'áðherrann virtist
vera fáliðaður í þessari vesturför,
en með . honum voru þrír eða
fjórir menn og þrjár konur. Hann
ferðaðist í Comet-þotu frá þrezka
flughernum. Með honum var Con
O. Neill, sérfræðingur í afvopnun
armálum.
Virðulegur maður
Macmillan, forsætisráðherra, er
einstaklega virðulegur maður og
hlýlegur í framkomu. Virðist
íann berast lítt á í klæðaburði,
jins og raunar títt er um mar'ga
Breta. Hann er heldur lágmæltur
og yfir persónu hans hvílir blær
látleysi og valdsmennsku í senn.
Hann sat lengstum á tali við
Bjarna Guðmundsson, blaðafull-
trúa, meðan hann stanzaði og
ræddi auk þess töluvert við yfir-
mann herstöðvarinnar. Hins veg-
ar vildi hann ekki tala við við-
•stadda blaðamenn, að minnsta
kosti óskaði hann ekki eftir að
svara fyrirspurnum þeiira.
Ávarpaði blaðamenn
Macmillan sagði nokkur or'ð við
blaðamenn, þar sem hann lýsti
þakklæti sínu yfir að hér skyldi
hafa verið tekig á móti honum af
fufltrúum ríkisvaldsins. Einnig
taldi hann sér það til ánægju-
auka, að fá nú tækifæri til að
stanza hér' að degi til. Hann
kvaðst einu sinni hafa komið til
landsins áður, en þá ag nóttu til.
Að lokum óskaði hann lands-
mönnum alls góðs.
Vodka og Egill sterki
Macmillan voru boðnar veiting-
ar. Stóð margfrægt viský á borð-
1 um og enskt gin, auk þess var
þar vodkafiaska og synti tappinn
ofan á miðinum. Þetta var rúss-
(Framhald á 3. síðu).
Macmillan tók upp pípu sína
meðan hann stóð við í gær. Ljós-
myndarar blaðanna kepptust við
að taka af honum myndir og for-
sætisráðherrann spurði þá, hve
mörg dagblöð væru i Reykjavík
og hvort þau væru öll mynda-
blöðlil
Verðlaun fyrir
áskriffasöfnun
í gær hófst áskriftasöfnun
TÍMANS á vegum fulltrúaráðs
Framsóknarflokksins í tilefni
af því hafði blaðið tal af for-
manni nefndar þeirrar, sem
sér um söfnunina, Gústav Sig-
valdasyni, og fulltrúa flokks-
ins, Jóhannesi Jörundssyni
— Já, sagði Jóhannes, — við
höfum orðið áþreifanlega varir við
það, að fólki hefur líkað breyting-
in á blaðinu mjög vel. Það kann
vel við útlit þess, þótt á því sé
nokkur dagamunur, efnið er fjöl-
breytt, og hver fjölskylda getur
fundið sér eitthvað til dægrastytt-
ingar í hverju .blaði. Það hefur
rgint yfir okkur hringingum á
skrifstofunni frá mönnum, sem
lýsa ánægju sinni yfir blaðinu.
Söfnunin
— Þess vegna hefur ykkur dott-
ið þessi söfnun í hug?
— Já. Fulltrúaráðið kaus nefnd
til þess að sjá um skipulagningu
og framkvæmd hennar.
— Þú ert formaður nefndarinn
ar, Gústaf?
— Já. Með mér eru þau Guðrún
(Framhald á 3. síðu).
Á vertíöarballi i Eyjum — bls. 8
~ir"'ifTnr~im rr~r~r~i frtnTnr~r'nTTrnTffiBíWiiiiniíirirn r r~