Tíminn - 12.04.1960, Síða 13
T.tHI3tffl,.j>rigftidagInn 12. apríl 1960.
13
MINNING:
HJHJHJEJHJHJHJHfHJHJHJHJHraJHiHJHrajHJHJHjajHJajHJHjajsjajHrHjajajHJHJBJHJHiHJHJHJHJHrHJHJHJHraiHJajHJHJHiHJ
Margrét Kjartansdottir,
Reynivöllum, Skerjafirði
Hinn 5. þessa mánðar andaðist
Margrét Kjartansdóttir, húsfreyja
á Reynivöllum á Skildinganesi.
Hún verður borin til moldar í dag.
Margrét Kjartansdóttir var fædd
2. ágúst 1896 að Efrihúsum í Ön-
undarfirði. Foreldrar hennar voru
Kjartan bóndi á Efrihúsum (f. 12.
júlí 1848, d. 21. janúar 1918) Jóns-
son bónda á Kirkjubóli í Bjarnar-
dal í Önundarfirði og Ytri-Lamba
dal í Dýrafirði, Arnfinnssonar, og
kona hans Halldóra (f. 21. nóvem-
ber 1855, d. 2. apríl 1940) Jóns-
dóttir bónda á Ytri-Veðrará í Ön-
undarfirði, Halldórssonar. Eru þar
á báða bóga þróttmiklar, vestfirzk-
ar bændaættir, auðraktar til mikil-
hajfra höfðingja, Mágnúsar prúða,
Daða Eggerts hirðstjóra Hannes-
sonar, Daða í Snóksdal, Björns í
Ögri og margra fleiri.
Margrét ólst upp hjá foreldrum
sínum í Efrihúsum. Gerðist hún
snemma þroskavænleg, námfús
jafnt ti-1 munns sem handa, ötul og
atkvæðamikil að hverju sem hún
gekk.
Margrét gekk í kennaraskólann
og lauk þaðan kennaraprófi vorið
1924. Næsta vetur var hún kenn-
ari í Geithellnahrcppi í Suður-
Múlasýslu. Þar kynntist hún manns
efni sínu, Georg Jónssyni, atorku-
manni miklum, austfirzkum að ætt,
bróður hinna kunnu listamanna
Ríkarðs myndhöggvara og Finns
málára. Gengu þau í hjónaband 5.
marz 1927 og reistu bú á Lauga-
bökkum í Ölfusi. Árið 1931 flutt-
ust þau að Reynivöllum á Skild-
inganesi við Skerjafjörð þar sem
þau hafa áfct heima síðan. Ráku
þau þar búskap með myndarbrag,
enda dugmikil bæði og samhent.
Var hjónaband þeirra einkar far-
sælt, heimilishættir til fyrirmynd
ar, og blessun í búi.
Margrét og Georg eignuðust tvö
börn: Önnu, f. 20- febr. 1928,
stúdent, gifta Gunnari Péturssyhi
og Kjartan, f. 7. maí 1933, búfræð-
ing, bvæntan Sigríði stúdent Pét-
ursdóttur.
Margrét Kjartansdóttir var kona
ágætlega vel gefin, svo sem hún
átti ætt til, stefnuföst og ákveðin
í skoðunum. Hjá henni fóru sam-
an orð og gerðir, eins og vænta
mátti um svo heiisteypta konu.
Skaprík var hún nokkuð og sagði
hiklaust skoðun sína, hver sem í
hlut átti. En auk hreinskilninnar
var hún gædd hjartahlýju, hjálp-
semi og góðvild. Öfluðu þessir
eiginleikar henni virðingar og vin-
áttu þeirra, sem af henni höfðu
kynni.
Kona, sem þekkt hefur Mar-
gréti Kjartansdóttur um áratuga
skeið, lét í gær svo ummælt við
höfund þessara lína: Henni mátti
treysta- Jafnan var gott til henn-
ar að leita og því betra, sem meira
lá við. — • Slíkt eru fögur eftir-
mæli.
Kjarkmikil kona var Margrét.
Kom það jafnan i ljós, þegar á
reyndi, en þó aldrei fremur en í
hinum iangvinnu og erfiðu veik-
indum hennar. Fjögur síðustu ár-
in háði hún baráttu við sjúkdóm
þann, sem að lokum varð lífskraft-
inum yfirsterkari. Allt til hinztu
stundar hélt hún andlegu þreki
sínu og beið þess með hugarró,
sem verða vildi. Kvíðalaust og án
æðru tók hún öllu sem að hönd-
um bar um ævina, einnig því að
verða nú að kveðja.
Þeir munu í dag verða margir,
•sem minnast Margrétar Kjartans-
dóttur með virðingu og þökk,
biðja henni blessunar og senda
ástvinum hennar einlæga samúðar
kveðju.
G. G.
í dag veröur jarðsungin hér
í Reykjavík merkiskonan
Margrét Kjartansdóttir frá
Efrihúsum í Önundrfirði.
Ung að árum útskrifaiðst
hún úr Kennaraskólanum, og
skömmu síðar tók hún að sér
kennslustörf austur í Geit-
hellahreppi í Álftafirði. Kann
vetur kynlitist hún eftirlif-
andi manni sínum, Georg
Jónssyni frá Strýtu við Ham
arsfjörð.
Eigi alllöngu síðar giftust
þau ‘ og byfjuðU' búskap á
Laugabökkum í-,rÖlfusi,'>en;
lengstaf hafa þáu búið rausn
arbúi á Skildinganesi við
Skerjafjörð, langa farsældar
tíð, sannkgllað blómaskeið
æfinnar. Þeim varð tveggja
barna auðið og ólu upp hið
þriðja. Eru þau nú öll gift
og.búsett hér syðra.
Margrét Kjartansdóttir var
greind kona og mikilhæf. Hún
var ásjáleg hvar sem á var
litið, kona sem dró að sér
athygli hvar sem var, hún
vakti tráust allra sem nokk-
uð kynntust henni, og var
gædd þeirri meðfæddu göfug'
mennsku sem öllum vildi:
hjálpa, enda var heimili
þeirra hjóna löngu alkunn-
ugt fyrir alúð og gestrisni.
Voru það ekki síst vinir og
venslafólk austan af landi og
vestan sem þangað leitaði.
Svo var mikill sálarstyrkur
Margrétar, að ekki mun hún
allsjaldan hafa orðið nærri
.einasta andlegt athvarf vina
sinna í þeirra sárustu hörm-
úm.
Það var hverjum manni
Ijóst að slíkur ættarmeiður
hlaut að vera af styrkum rót
um runninn. En annar mér;
fróðari mun greina frá ætt!
hennar og uppruna.
Þessi örfáu minningarorö
eru um leið hinzta kveðja og
þakkir fjölda vina og venzla
fólks, fyrir langa, lærdóms-
ríka og ómetanlega viðkynn-
ingu. Já, nú er sannarlega
Skarð fyrir skildi í samfylk-
ingu okkar vina þinna.
Rikarður Jónsson.
í dag verður Margrét Kjartans-
dóttir, Reynivöllum í Skerjafirði,
PÁSKAFÖTIN
FRÁ
OKKUR
STAKIR JAKKAR
STAKAR BUXUR
VORTÍZKAN 1960
Skíðabuxur úr ull/helanga-nylon.
JHJajaJHJHJHJHJHJaJHJHJHJHjaJHJHfaJHJHJHJHjaJHJHJEJHJJHJaJHJHJHJHJHJHJajajHJHJaJajHJHjaJHJHJaJHfaJHrHJHITjJ
jarðsett í Fossvogskirkjugarði.
Margrét var fædd að Efri-Hús-
um í Önundarfirði 2. ágúst 1896.
Sumarið 1924 útskrifaðist Mar-
grét úr kennaraskólanum, réðist
hún strax til farkennslu á önd-
verðu landshorni, í Álftafirði í
Suður-Múlasýslu, og kom til Djúpa
vogs um haustið .
Um þetta leyti gekk mislinga-
faraldur í Reykjavík, og héraðs-
læknirinn á Djúpavogi ákvað því
að setja Margréti í sóttkví. — Ör-
lögunum er stundum ráðstafað
nobkuð kynlega. —
Árið 1907 höfðu komið upp misl
ingar í faktorshúsinu á Djúpavogi,
og var heimilið sóttkvíað, nema
auðvitað krambúðin, sem allir
þurftu að skipta við.
Um þetta leyti var drenghnokki
úr sveitinni, inn frá Djúpavogi,
sendur í kaupstaðinn til að kaupa
eitthvert lítilræði. Er hann kemur
út úr búðinni svífur einn af fakt-
orssonunum á hann: og segir: „Nú
skal ég setja í þig mislinga“, en
þessir drengir voru þekktir fyrir
ærsl og gáska. Ekki þarf að orð-
lengja það, að .sveitadrengurinn,
og heimili hans, Strýta, smitaðist.
Urðu þessi tvö heimili þau einustu
í sveitinni, sem tóku veikina í
þetta sinn.
Nú víkur sögunni aftur til árs-
ins 1924 er ungu kennslukonunni
hafði skolað á land á Djúpavogi og
var grunuð um smithættu. Faktors-
fólkið var flutt til Vesturheims
fyrir lön-gu og Strýtuheimilið það
einasta í sveitinni, sem ómóttæki-
legt var fyrir mislinga, tók héraðs
læknirinn því það ráð að koma
Margrétu þar fyrir í sóttkví. Og
þar með hafði örlagadísin lokið
fyrsta þætti að einni af sínum
snotru smásögum.
Margrét Kjartansdóttir og Georg
Jónsson frá Strýtu gengu í hjóna-
band 5. marz 1927. Síðan er liðinn
heill mannsaldur að gömlu tali,
langur annatími skins og skúra,
elju og strits utan húss og innan,
eins og gengur hjá þeim, sem við
búskap fást.
Margrét og Georg hófu búskap
að Laugabökkum í Ölfusi, fluttust
um tíma að Melshúsum á Seltjarn-
arnesi og loks að Reynistað í Skild
inganesi árið 1931 og hafa dvalið
þar síðan. Þau eignuðust 2 börn,
Önnu og Kjartan, sem bæði eru
uppkomin og gift, og ólu auk þess
upp frænku Margrétar, Jónu Sigur-
jónsdóttur.
Margrét var vel gefin kona og
vel lesin, hafði mikla kímnigáfu,
skemmtin og létt í tali og fylgdi
henni hressandi blær. Húsmóðir
var hún góð. Mundi reyndar kann-
ske á sparnaðarárunum hafa verið
telin eyðslusöm. En sú eyðslusemi
var öll bundin hjálpsemi og gest-
risni, enda voru henni ekki settar
neinar hömlur í því efni, og mun
henni jafnan stundum hafa verið
lagt meira upp í hendur en efnin
raunverulega leyfðu. Oft líktist
heimilið að Reynivöllum gömlu,
góðu íslenzku heimilunum, þar
sem margt var heimamanna og
mangt gesta, sem komu og fóru
eftir vild.
Og nú er Margrét dáin. Þriggja
ára vonlaus barátta er loks á enda.
Samt eru umskiptin ástvinunum
alltaf þungt áfall. Við, sem fjær
stöndum tökum innilega þátt í
sorg þeirra, og við söknum þeirrar
Margrétar, sem vár og hét.
Vinur.
Ný Ijóðabók
Bjarni M. Brekkmann frá
Brekku á Hvalfjarðarströnd
hefur gefið út nýja ljóðabók
eftir sig og nefnist hún Fræ
korn, ljóð II. — Bókin er
prentuð í 500 tölusettum ein
tökum og árituð af höfundi.
Hún er prentuð sem handrit
og á kostnað og ábrgð höf-
undar.
í formála, sem séra Jón M.
(Framhald á 15. síðu).