Tíminn - 20.09.1960, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, þriðjudaginn 20. september 1960.
Félag járniðnaðarmanna:
B-listinn
tapaði
Um helgina voru kosnir full
tiúar Félags járniðnaðar-
manna til Alþýðusambands-
þings. Kosið var um tvo lista,
A lista bor:nn fram af stjórn
og trúnaðarmannaráði og B-
lista borinn fram af Sigurjóni
Jónssyni i Sindra og fleirum,
295 neyttu atkvæðisréttar. Úr-
slit urðu þau að A-listi hlaut
204 atkvæði (69,15%) og alla
rnenn kjörna en B-listi 91 at-
kvæði (30,85%) og engan
mann kjörinn. Stuðningsmenn
rikisstjórnarinnar töpuðu all-
verulegu fylgi og sýna þessi
úrslit gremilega hver er af-
f.taða launþega til stefnu ríkis-
stjórnarinnar í efnahags- og
launamálum.
Við siðustu kosningar í félaginu
fékk A-listi 212 atkvæði eða
62.17% og B-listi 129 atkvæði eða
37.83%.
Þegar síðast var kosið til AI-
þýðusambandsþings eða 1958 voru
greidd 293 takv. A-listi hlaut þá
193 atkv. eða 63.87% og B-listi
100 atkv. eða 34.13%.
FÉKK 200 ÞÚS.
KRÓNA SEKT
Seyðisfirði í gær. — Dómur
í málinu dómsmálaráðherra
gegn Percv Allen Bedford
skipstjóra á brezka togaranum
Wyre Manner var kveðinn
upp af bæjarfógetanum á
Seyðisfirði Var skipstjórinn
dæmdur í 200 þúsund króna
sekt til Landhelgissjóðs ís-
lands.
Bf sekt verður ekki greidd
að fjórum vikum liðnum frá
birtingu dómsins komi i henn
ar stað 7 mánaða varðhald.
Skipstjórinn var að auki j
dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað þar af 6 þús-
und krónur i málflutnings-
laun til skipaðs verjanda
Gísla ísleifssonar. Sklpstjór-
inn áfrýjaði dóminum.
Setti tryogingu
Skipstjórinn setti trygg-
ingu fyrir sektinni og lét tog-
arinn úr höfn á Seyðisfirði
kl. 8 á laugardagskvöld. Fór
hann sennilega til veiða að
nýju þvi mjög litill afli var i
skipinu.
Unnig er nú að viðgerð á
togaranum Lord Lloyd, sem
Wyre Mariner dró til Seyðis-
fjarðar. í fyrradag fóru 11 af
18 skipsmönnum flugleiðis til
Reykjavikur og halda þaðan
Frystihúsií óvirkt . ... ,
(Framh. af 1. síðu),
er allt gert sem hægt er til
þess að flýta viðgerð svo sem
unnt er. Standa vonir til þess,
að ef tekst að útvega sveifar-
ásinn í Árósum, og fá hann
hingag flugleiðis, verði hægt
að koma frystivélinni í gang
fyrir helgi, en allur dráttur,
sem á þvi verður, er að sjálf-
sögðu tll tjóns.
Og ef svo slysalega skyldi
til takast, að ekki reyndist
unnt og gera við þessa bilun,
er tjón héraðsins óbætan-
legt. —s—
með flugvél til Englands.
Gert verður við togarann til
bráðabirgða á Seyðisfirði og
honum siðan siglt til Reykj a-
vikur þar sem frekari viðgerð
fer fram svo togarinn verði
sjóklár til Englands. H.G.
Sjálfkjöriö
hjá Dagsbrún
Kosning fulltrúa Verka-
mannafélagsins Dagsbrónar í
Reykjavík á þing AlþýSusam-
bands íslands fór fram á
sunnudag. Aðeins einn listi
kom fram borinn fram af
stjórn og trúnaðarmannaráði,
og var hann sjálfkjörinn. Full
trúar Dagsbrúnar á Alþýðu-
sambandsþingi eru 34 talsins.
Eiíaskóíi...
(Framh. af 1 síðu).
þvi að innrétta efstu hæð nýja
heimavistanhússins og gera þar
íbúðarherbergi fyrir nemendur.
I-Iin nýja álma handavinnuhúss-
ins verður höfð undir kemnslu-
stofur, en svefn skálar á meðri hæð
inni.
Brunaspjöll þau, sem urðu á
þaki leikfimihússins hafa verið
bætt og bráðabirgðaþak sett á ytri
enda gamla skólahússins, en hluti
hans eyðilagðist i eldsvoðanum í
vor. Verður unnt að nota talsverð-
an hluta hans í vetur. — Með þessu
verður unnt að bæta úr brýnustu
þörf og halda nokkurn veginn í
horfimu.
Ný bygging
Hafimn er undirbúningur að
byggingu nýs skólahúss að Eiðum
og mun það standa á grunni gamla
hússims Og verður þá hluti þess,
sem enn stendur, brotinn niður.
Búizt er við að unnt verði að hefja
smíðina strax að vori.
ÓvlÓunandi launakior . . .
Framhald áf 3. sfðu.
Jónsson, Ásmundur Kristjánsson,
Þórhallur Guttormsson, Guðbjart-
ur Gunnarssoti, Jakobína Guð-
mundsdóttir, Ingólfur Þorkelsson,
Björn Þorsteinsson, Gunnar Bene-
d'ktsson og Magnús Sveinsson.
Launakjör óviðunandi
LUMUMBA LIFIR
Vill fara á þing S. Þ. og gera samning
við Kasavubu
„8. þing L.S.F.K. telur, að
íaunakjör framhahlsskólakennara
séu nú með öllu óviðunandi, svo
að gagnger endurskoðun þeirra
þoli enga bið. Veldur þessu hvort
tveggja, að starf kennara hefur
\erið vanmetið og minnkandi
kaupmáttur launa. T.d. eru byrj-
unarlaun gagnfræðaskólakennara
nú 4187 kr. á mánuði eða svipuð
og laun ófaglærðra verkamanna.
Annars staðar á Norðurlöndum
eru byrjunarlaun þessara kenn-
ara frá 40—178% hærri og há-
markslaun 73—222% hærri en
hér tíðkast.
Við þessar ástæður er augljóst,
að menn með háskólamenntun
leita annarra og betur launaðra
starfa á frjálsum vinnumarkaði.
Er ástandið orðið svo alvar-
Iegt, að nær engir þeirra, sem
nú eru settir í nýjar kennara-
stöður, haia að fullu loklð til-
skilinni menntun.
Telur þingið, að fræðslumáium
þjóðarinnar stafi alvarleg hætta
af þessari þrðun, og skorar á
fræðslumálastjórnina að leysa
þetta vandamál með bráðabirgða
úrræðum, þar til launalög hafa
verið endurskoðuð með tilliti til
þessara staðreynda, eða opin-
berir starfsmenn hafa fengi®
samningsrétt um kjör sín.“
Samningsréttur
„8. þing L.S.F.K, telur réttar-
stöðu opÍDberra starfsmanna til
samninga um kjaramál sín í al-
geru ósamræmi við það sem nú
tíðkast um önnur stéttasamtök.
Þingið skorar því á ríkisstjórn-
ina að hraða undirbúningi að
nýrri löggjöf um þetta efni, er
miði að því að opinberir starfs-
mcnn fái samningsrétt til jafns
vlð aðrar stéttir.*1
Veiting embætta
„8. þing L.S.F.K. haldið í
Reykjavík dagana 16.—18. sept.
1960, telur óhjákvæmilegt að
settar verði ákveðnar reglur um
veltingu skólastjóra- og kennara-
cmbætta. Vekur þingið athygli
á þelrri staðreynd, að handahóf
og hlutdrægni hafa oft og ein-
att ráðið úrslitum í þessUm efn-
um og mun jafnan hætt við slíku
meðan veitingavaldið er alger-
Iega í höndum pólitískra ráð-
i'.erra, sem freistast til að taka
ineira tillit til stjórnmálahags-
muna og kunningsskapar en góðu
hófi gegnir. Mörg dæmi sanna
þetta og er nærtæk ráðstöfun
skólastjórastöðunnar við Gagn-
fræðaskóla Kópavogs fyrir nokkr
um dögum.
Þingið samþykkir að kjósa
þriggja manna nefnd til að gera
tillögu í þessum efnum og skal
hún leggja niðurstíöður sínar
fyrir stjórn samtakanna sem
allra fyrst.
Að því sé stefnt, að reglur
þessar verði ungum og efnileg-
um kennurum hvatning til þess
að leggja sig fram í starfi og fala
sér staðgóðrar menntunar og
þckkingar.“
Vel sótt sýning
Sýning þeirra Bat-Yosef
og John Ffrench j Bogasaln-
nm hefur nú staðið síðan á
föstudag, og hafa um 800 gest
ír komið á hana. Nær allir
leirmunirnir eru seldir, og
um 15 klippmyndir. Sýn-
ingin er opin daglega frá
klukkan tvö til tíu.
Þær reyndust harla óáreið-
rnlegar fréttirnar um það s.l.
laugardag, að Patrice Lum-
umba forsæitsráðherra Kongó
lýðveldistns hefði safnazt til
feðra sinna. Það kom í Ijós
strax á laugardagskvöld, að
Lumumba var í fullu fjöri og
felustaður hans var sendiráð
Guineu í Leopoldville.
Á sunnudaginn hélt Lim-
umba svo aftur til forsætis-
ráðherrabústaðarins í Leo-
poldville sem hinn eini rétti
fórsætisráðherra landsins og
boðaði þar til blaðamanna-
fundar og hafði frá ýmsu að
skýra.
Samningur við Kasavubu?
Lumumba sagði frá þvf í
upphafi, að hann hefði undir-
ritað samning við Kasavubu
forseta og væri nú aftur sátt
og samlyndi á milli þeirra en
um hálfur mánuður er nú lið-
inn frá því er þeir settu hvorn
annan úr embætti og ringul-
reiðin í landinu magnaðist
um allan helming og lauk með
valdatöku Mobutu ofursta.
Kasavubu bar það hns vegar
samstundis til baka að hann
hefði gert nokkurn samning
vig Lumumba — slíkt væru
helber ósannindi.
Lumumba skýrði þá blaða-
mönnum frá því, að hann
hefði boðað báðar deildir
þingsins til fundar á mánu-
dag. Þingið hefur fram til
þessa lýst trausti sínu á Lum
uma. Það hafði einnig verið
boðag til fundar á sunnudag
en enginn vissi af hverjum og
hermenn Mobutu ofursta
vömuðu þinp'mönnum inn-
göngu í þinf/.úsið.
Vill fara vestur
Þá sagðist Lumumba ætla
sér að reyna að komast á alls-
herjarþing S.þ. og verða for-
maður fulltrúanefndar Kongó
þar. Lumumba sagðist hafa
skrifað Dag Hammarskjöld
aðalritara bréf, þar sem hann
fer þess á leit að Sþ verði sér
út um far vestur um haf.
Lumumba sagðist mundu
kalla sendiherra Sovétríkj -
anna og Tékkóslóvakíu að
nýju til Leopoldville en Mo-
butu ofursti hafði vísað þeim
úr landi fyrir hádegi á laag-
ardag. Lýsti Lúmumba allar
aðgerðir Mobntu ólöglegar og
kvað sig og Kasavubu nú
brátt fara ag vinna að því að
ráða niðurlögum Mobutu.
Mobutu sýnt banatilræði
Mobutu ofursta var sýnt
taanatilræði s.l. sunnpdag.
Liðsforingi úr kongóska hern
um réðst að Mobutu þar sem
hann sat á skrifstofu sinni,
dró marghleypu úr belti sínu
og hugðist skjóta ofurstann
þar á staðnum en sá varð
fyrri tii og afvopnaði tilræð-
is manninn, sem Marokko-
hermenn í liði Sþ tóku svo í
sína vörzlu.
Svo virðist sem enn hafi
Mobutu ofursti öll völdin í
sínum höndom enda nýtur
hann stuðnings hersins að
mestu leyti. Ekkert virðist og
benda til þess að ágreiningur
sé uppi milli Kasavubu og
Mobutu.
Enn sækja kongóskir her-
menn fram í Katangafylki
þar sem Tshomþe ræður ríkj-
um. Vill sá reka in>»rásaTher-
inn af höndum sér og segist
bæði hafa til þess menn og
hergögn en S.þ. hafa haldið
flugvellinum í Elisabethville
höfuðborg Katanga lokuðum
og á því Tshombe erfitt með
liðsflutninga.
Allsherjarþing S.þ. hélt á-
fram í gærkveldi aukafundi
sínum um Kongómálin og var
afnvel búizt við, aö Krústjoff
kæmi á þann fund. Fyrir ligg-
ur nú málamiðlun frá Ghana
þess efnis, að Sþ styðji stjórn
Lumumba en að öðru leyti er
tíllagan svipuð þeirri, er
Sovétfulltrúinn beitti neit-
unarvald við fýrir helgi í
Öryggisráðin^ þar sem skor-
að var á öll meðlimaríki Sþ.
að skerast ekki f leikinn í
Kongó nema með samþykki
Sþ.
Afríkuríki reyna nú að
bera sáttarorð á ipilli Lum-
umba og Kasavubu og er ekki
talið útilokag að sættir takist
milli þeirra.
Sýning Sigfúsar
Málvcrkasýning Sigiusar Hall-
dórssonar. sem Ijúka átti á
sunnudagskvöld, hefur nú verið
framlengd um 2 daga, þ. e.
sýningunni lýkur i kvöld. Sýn-
ingin hefur verið afbragðsvel
sótt og 50 myndir hafa selzt.
Sýningin hefur hloti'ö góða
ðóma.
Kveikti í benzíni. . .
(Framh. af 1 Síðu).
Slökkti með mjólk
Á Lambastöðum var húsfreyjan
heima, ein fullorðins fólks, og var
hún að koma börnum í svefn.
Hafði hún um hríð heyrt nokkra
háreysti í drengjunum, en alit í
eimu fannst henni hún heyra ein-
•hver grunsamleg hljóð og hljóp út
á tröppur. Mætti hún þá Grétari,
alelda að framan. Greip hún þeg-
ar mjólkurílát, sem stóð þar á
tröppunum og tókst að slökkva
eldihn með mjólkinni og síðan
fötum.
Fluttur suður
Því næst hringdi hún i sjúkra-
bíl og iækni frá Selfossi, og kom
hjálpin fljótlega á vettvang. Var
Grétar síðan fluttur í sjúkrahúsið
á Seifossi, og þaðan suður á Lands
spitala.
Illa brenndur
Blaðið aflaði sér fregma af líðam
Grétars i gærkvöldi, og var húm
þá talin sæmileg. Hann.er brennd-
ur á höndum, brjósti framanverðu
og niður á fætur. Talið er, að
um 40% af húðimni hafi brennzt.