Tíminn - 20.09.1960, Blaðsíða 3
TÍMINN, þriðjudaginn 20. september 1960.
3
Sænsku kosningarnar:
Fylgið hrynur af
íhaldsmönnum
Vinstri menn juku fylgi sitt
S. I. sunnudag fóru fram
kosningar til neðri deildar
aænska bingsins.. Kosninga-
þátttakan var rúmlega 80%,
sem er meira en var við kosn-
ingarnar 1958. Kosnir voru
232 þingmenn en það er ein-
um fleiri en við kosningarnar
1958. Var þingsæti þessu bætt
við í Síokkhólmskjördæmi
vegna fólksfjölgunar þar.
Aðfaranótt mánudags var lokið
talningu allra atkvæða að undan-
skildum þeim, er greidd voru utan
kjörstaða en þau voru með mesta
móti að þessu sinni og getur enn-
þá breytzt lítillega þingmannatala
flakikanna.
Afhroð hægri manna
Það er hins vegar Ijóst, að
vinstri flakkarnir hafa unnið mik-
inin kosningasigur en hægri menn
beðið afhroð. Leiðtogar allra
flokka komu fram í sjónvarpi að
TAGE ERLANDER
— sigurvegari
lokinni talningu atkvæða, og voru
allir ánægðir að undanskildum
Jarl Hjalmarssyni foringja hægri
manina, sem sagði þó, að flokkur
sinn myndi halda fast við stefnu
sína, enda þótt úrslit kosninganna
sýndu svo ekki yrði um villzt,
að straumurinn Iægi til vinstri.
Úrslit kosninganna urðu annars
þessi:
Jafnaðarmenn 1.968.423 atkvæði
og 116 þingsæti. Bættu við sig
278.929 atkvæðum og 5 þingsæt-
um miðað við kosningarnar 1958.
Þjóðflokkurinn: 699.584 atkvæði
og 39 þingsæti. Hefur bætt við
sig 29.361 atkvæði og einu þing-
sæti miðað við kosningamar 1958.
Miðflokkurinn: 567.447 atkvæði
og 36 þingsæti. Hefur bætt við sig
86.488 atkvæðum og 4 þingsætum
miðað við kosningarnar 1958.
Hægri flokkurinn: 638.576 at-
kvæði og 36 þingsæti. Hefur tapað
55.182 atkvæðum og 9 þingsætum
miðað við kosningarnar 1958.
Kommúnistar: 186.771 atkvæði
og 6 þingsæti. Hafa bætt við sig
58 atkvæðum og einu þingsæti
miðað við kosningarnar 1958.
Við stjórn í 25 ár
Jafnaðarmenn undir forystu
Tage Erlanders fonsætisráðherra,
hafa nú réttan helming þingmanna
í neðri deildinni. Hins vegar getur
farið svo við talningu utankjör-
staðaatkvæða að þeir tapi tveim
þingsætum til hægri manna og
verði þá í minni hluta í deildinni.
Jafnaðarmenn hafa nú farið með
völd í Svíþjóð í aldarfjórðung.
Kosningarnar að þessu sinni sner-
ust mest megnis um fyrirkomulag
greiðslu eftirlauna í landinu, og
er sýnt að stefna stjórnarinnar
hefur hlotið traust fólksins.
Foringi hægri manna er verst
koma út úr kosningunum er Jarl
Hjálmarsen.
Brotizt inn á
þremur stöðum
50 Iengjum af vindlingum stolií úr Grandaveri
Þrjú innbrot voru framin í
Reykjavík um helgina, litlu
stolið á tveimur stöðum en á
þeim þriðia mun andvirði þýf
isins vera um 9 þúsund krón-
ur, en þaðan hafði þjófurinn
á brott með sér mikið magn
af vindlingum.
Aðfaranótt sunnudags var
brotizt inn í KR húsið við
Kaplaskjólsveg. Komst þjóf-
urinn inn um glugga sem var
ókræktur qg hafði eitthvað
af sælgæti á brott með sér.
Þá sömu nótt var einnig brot-
ist inn í Járnsteypuna við
Ánanaust. Þar braut þjófur-
inn rúðu og komst inn um
glugga. Stolið var um 300
krónum í peningum úr litlum
peningakassa sem þar var í|
skrifborðsskúffu. Sprengdi |
þj ófurinn upp bæði skrif-!
borðið og kassann. j
50 lengjum af vindlingum
stolið |
i
I fyrrinótt var brotizt inn í!
í Grandaver, sem er verzlun j
í verbúðunum á Grandagarði j
gegnt frystihúsinu þar.
Komst þjófurinn inn um
glugga og hafði á brott með
sér rúmlega 50 lengjur af
vindlingum, eitthvað af
skiptimynt og e. t. v. fleira.
Verðmæti þýfisins mun vera
nálega níu þúsund krónur.
—h
Þetta er Norðmaðurinn Svein Johannesson, sem teflir sem gestur á minn-
ingarmótinu um Eggert Gilfer í Sjómannaskólanum þessa dagana, Jo-
hannessen er nú verandi skákmeistari Norðurianda. Myndina gerði Halldór
Ólafsson.
Frá Gilfers-móti
Biðskákin úr 3. umferð, sem
tefld var í gærkvöldi, fór þannig,
að Ingi R. vann Ólaf Magnússon.
Biðskákir úr 4. urnferð: Kári Sól-
mundsson vann Jónas Þorvaldsson,
en biðskák Ólafs Magnússonar og
Ingvars Ásmundssonar var frest-
að, þar sem Imgvar tefldi skákina
við Friðrik, sem þeir áttu að tefla
í 3. umferð, og var henni ekki
lokið.
Er blaðið fór í prentun, var
staðan þannig, að Ingi R. Jóhanns-
son var efstur með 3% viiming,
Norðurlandameistarinn Svein Jo-
hannesen og Arinbjörn Guðmunds-
son í 2. og 3. sæti með 3 vinninga
hvor, Friðrik með 2V2 vinni-ng og
skákina við In-gvar, og In-gvar með
2 vinninga, 1 biðs-kák og skákina
við Friðrik.
í kvöld, þriðjudagskvöld, tefla
þeir Svein Johannsen og Jónas Þor
valdsson, Arinbj. Guðmundss. og
Fviðrik, Benóný Benediktsson og
Ólafur Magnúss., Guðm. Ágústss.
og Guðmundur Lárusson, Ingvar
Ásmundsson og Ingi R. Jóhanns-
son, og Kári Sólmundsson og Gunn
ar Gunnars-son. Umf-erðin hefst kl.
19.30 í Sjómannaskólanum að.
vanda.
Vopnin mesta hættan
Sovétríkin hafa beint útvarps-
sendingum til íbúa Norður-Amer-
íku, þar sem lögð er á það áherzla,
að Sovétríkm séu ekki óvinur
fólksins í Ameríku. Hinn sameig-
iniegi óvinur alls mannkynsins er
vigbúnaðarkapphlaupið og einasía
leiðin til bess að koma á eðlilegri
sambúð milli Sovétríkjanna og
Ameríku sé að finna leið til þess
a'ð vfkja af braut vígbúnaðar
Launakjör kennara
með öllu óviðunandi
8. þinq Landssambands
framhaldsskólakennara var
haldið í Reykjavík dagana 16.
—18. þ.m. Helgi Þorláksson,
formaður samtakanna setti
þingið og bauS fulltrúa og
gesti velkomna til þings.
Um 60 fulltrúar víðs vegar að
af landinu sátu þingið.
Þingforseti. var kjörinin Krist-
ján Benediktsson úr Reykjavík og
til vara Hólmfríður Jónsdóttir, Ak-
ureyri og Gunnar Benediktsson,
Hveragerði. Ritarar þingsins voru
Ásmundur Kristjánsson og Gutt-
ormur Sigbjarnarson.
Gestir þingsins voru: Magnús j
Gislason, námsstjóri, Runólfur j
I*órarinsson, fulltrúi fræðslumála-:
stjóra, Skúli Þorsteinsson, form. I
Landssambands barnaskólakenn- j
sra, Jón Emil Guðjónsson, for- i
stjóri Ríkisútgáfu námsbóka og j
Guðjón B. Baldvinsson, deildar-j
s'fjóri.
Höfuðviðfangsefni þingsins voru j
launa- og kjaramál kennara og |
rikti mikil óánægja á þinginu um
kjör stéttarinnar og versnandi af-
komu. Gerði þingið margar sam-
þykktir, sem við koma kjörum
og starfsskilyrðum kennara, og í
ýmsum þeim málum, sem við
koma störf þeirra.
Helgi Þorláksson, formaður og
Sigurður Ingimundarson, varafor-
naður, báðust báðir eindregið und
an endurkosningu, enda hafa þeir
láðir setið í stjórn sanrbandsins
frá stofnun þess 1948.
Formaður var kjörinn Friðbjörn
8. þingi Landssambands framhaldsskóla-
kennara lauk í fyrradag
Benónýsson. Aðrir í stjórn: Krist-
ján Benediktsson, Kristinn Gísla-
son, Halldóra Eggertsdóttir, Þór-
liallur Guttormsson, Ingólfur Þor-
kelsson og Jónas Eysteinsson.
Varastjórn: Jakobína Guðmunds-
dóttir, Vilborg Björnsdóttir, Har-
aldur Magnússon, Hörður Berg-
rnann og Sigurður Richardsson.
Fulltrúar á þing B.S.R.B. voru
kjörnir: Kristján Benediktsson,
Kristinn Gísiason, Friðbjörn Ben-
ónýsson, Ólafur Ólafsson, Harald-
nr Steinþórsron, Þráinn Löve, Vil-
bcrg Björusdóttir, Þórður Jörunds
son og Þorbjörg Halldórs.
Varafulltrúar: Stefán Ólafur
(Framhald á 2. síðu)
Flutti hægindastól-
ana út í kirkjugarð
Övenjulegur endir kvöldfagnaöar
S. I. laugardagskvöld fór
maður einn hér í bæ í veit-
ingahúsið i.ído til að skemmta
sér. Um þær mundir að dans-
leik lauk var maðurinn orðinn
allvel við skál og hitti hann
þá fólk, sem bauð honum
heim í samkvæmi.
Maðurinn þáði boðið og var
síðan haldið í bíl vestur i bæ
og í hús skammt frá gamla
kirkjugarðinum. Þar var
drukkið um stund og fór vel
á með mönnum.
1-annst of heitt
En þar kom að gestinum
fannst of heitt inni og tók
hann sig þvl til ásamt félaga
sínum og flutti tvo stóra arm-
stóra úr stofunni og út fyrir
(Framhald á 15. síðu).