Tíminn - 06.12.1960, Síða 8

Tíminn - 06.12.1960, Síða 8
8 Davíð Stqfánsson frá Fagra- skógi: I dögun. — Helgafell Reykjavík. MCMLX. Frá þeim tíma, sem fyrsta ljóða- fiók Davfðs Stefánssonar frá Fagra skógi kom út, hafa ljóðabækur hans verið meir lesnar og keyptar en nokkurs annars skálds. Og ajdrei mun hafa verið uppi ljóð- ykáld hér á landi, sem í samtíð sanni hefur notið jafnmikilla vin- sælda sem hann. í kvæðum Davíðs ei jafnan eitthvað, sem allir geta notið, hvort sem lesandinn er lærð w maður eða lítt lærður, vitur maður eða venjulegur maður, unglingur eða öldungur, karl eða kona og hverrar stéttar sem hann er. Davíð Stefánsson er skáld þjóð arinnar í heild en ekki neins sér- staks flokks eða nokkuirar sér- stakrar stéttar. Hann er þjóð- skáldið, sem hver einasti andlega frjáls íslendingur finnur sig tengdan, er hann les Ijóð hans. Þessu veldur hinn djúpsæi og g’öggi skilningur hans á þjóð sinni í fortíð og nútíð, skilningur á trú hennar, lífsskoðunum og lyndiseinkennum, samhyggð hans með lífsbarátfcu hennar; aðdáun hans á mikilmennum þjóðarinnar, sem sýnt hafa hetjudáðir í baráttu v.ð óblíða náfctúru og baráttu gegn kúgun erlendra valdhafa, ást hans og samhyggð með smælingjum þjóðfélagsins, ást hans á hinum sígildu bókmenntum þjóðarinnar og aðdáun á þeim, sem hafa samið þær við misjöfn lífskjör, oft í þiöngum húsakynnum „við kol- una á kveldin", ást hans og aðdá- un á íslenzkri náttúru, dauðri og lifandi, léttur hrynjandi kvæð- anna og óskrúfað mál, laust við til- gerð og sérvizku en hreint og fag- urt. Að sjálfsögðu skynja ekki aliir aðdáendur hans allt. sem í ljóðum hans býr. Á bak við hina ytri merkingu orðanna er jafnan önnur dýpri. Hann er stórskáldið, rctfastur í því kjarnmesta og bezta er þróazt hefur í íslenzkri menningu gegnum aldir. en hefur jnfnframt andlegt víðfeðmi fjöl- menntaðs og frjálshuga heimsborg ara, er lætur sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Það má segja með sanni. að þjóð ir hefur beðið með eftirvæntingu eftir hverri nýrri bók frá Davíð S efánssyni, hvort sem bókin hef- u" verið Ijóð, leikrit eða hin mikla saga hans, Sólon íslandus. Hin nýja ljóðabók Davíðs, í dög- un, er níunda ljóðabókin, sem hann hefur sent frá sér. Hún er stærst allra ljóðabóka hans. í lienni eru 61 kvæði. Sum kvæðin í þessari nýju bók Davíðs Stef- ái.'ssonar eru meðal beztu kvæða hans. Líklega hefur hann aidrei ort betur en nú. Davíð Stefánsson ttignar lífið og ljósið og þann kraft, sem er frumorsök alls. í fyrsta kvæði bókarinnar, sem ber sama nafn og bókin sjálf, í dcgun, túlkar skáldið þessa hrifn- ir.gu sína: „Hver getur slíkum guðakrafti íýst, e- gleði hiinins út um myrkrið brýzt og flæðir yfir fjöll og byggð og nöf, sem fengu lífið sjálft í morgungjöf." Orðin í kvæði þessu eru venju- leg og auðskilin, eins og raunar jafnan er i kvæðum Davíðs, og mörgum lesendum mun finnast þeir skilja kvæðið og skynja hug- sýn skáldsins við fyrsta lestur. Nú bef ég lesið þetta kvæði nokkrum sinnum, og þót' mér fyndist ég skilja það strax er ég las það þá nýt ég þess meir eftir því sem ég les það oftar. Við ris dagsins verður sál skáldsins altekin af fögnuði nátt- ú’unnar: „Af grasi hrynur draumsins daggarglit, og dögun breytir kyrrð í morgunþyt, TÍMINN, þriðjudaginn 6. desember 1960. „Líklega hefur hann aldrei ort betur en nú“ en loftin verða heið og höfin blá, og himni sínum fagnar tré og strá.“ Það er ljósið, fegurðin og auð- mýktin fyrir almættinu, er getur gert menn hamingjusama: Þorsteinn M. Jónsson, fyrrv. skólastjóri, ritar um síðustu ljóðabókDavíðs Stefáns- sonar „í dögun“ „En hverri sál, sem eitt sinn ljósið leit, -er líknsema veitt og gefið fyrirheit. Því mun hún aldrei myrkri ofurseld, að minningin er tengd við dagsins eld. Sá einn er sæll, sem á sinn morgunþeim, Sá einn er tign, sem iýtur mætti þeim, er getur björgum likt og Iaufi feykt og lífsins eld á jöið og himni kveikt.“ Annað kvæði bókarinnar, sem siáldið nefnir Um páskaleytið, er stórbrotið og rismikið. í því birt i.-t skilningui skáldsns á „kross- urum þremur“, jafnframt því, sem það er magnað ádeilukvæði: „Til er að heiglai hendi sér í fossinn, hyggi það minni raun en nálgast krossinn. En þó eru hinir þúsund sinnum fleiri, sem þjáningin gerir vitrari og meiri.“ Seinna í sama kvæði segir skáldið: - Sjá, spekingar og spámenn ganga hjá með spjótasár og naglaför í höndum En það er eins og flestir forðist þá, og fáir vilji heyra þá né sjá, sem boða frið til bjargar öllum löndum. Hvort eru slíkir menn til sigra sendir, er sjálfir voru krossfestir og brenndir? DAVÍÐ STEFÁNSSON — (Mynd af kápu bókarinnar „í dögun“) Þótt þriðjung allra þjóða skorti brauð, og þegna sína allir furstar svíki, og jörðin sé af banablóði rauð og bresti mannkyn frið og sálarauð og helja nísti heimsins mestu ríki — sjá fáir skin hins fyrsta morgunroða og flýja dagsins miklu sendiboða". Og enn seinna í kvæðinu segir skáldið þessar spöku setningar: „Ef kjarninn hættir stofnsins afl að erfa, þá eyðist jörð og skógar hennar hverfa.' En þrátt fyrir ugg skáldsins um frnmtíð mannkynsins bá sigrar samt trú þess á mátt kærleikans: „Hin innri Dylting, blessur. dauðlegs manns, mun brautir ryðja stækka veröld hans, unz kynslóð frjáls í lífdögg ljóssins skirð, að lokum fagnar — upp- risunnar dýrð. Skáldið trúir á fortilveru rnanna. í kvæðinu, Óður til lífs- ins, segir hann: „Eilífð var öllum sköpuð áður en til voru jarðnesk spor.“ Samkvæmt skoðun skáldsins eru þrjár aðaluppspiettulindir manns- sálarinnar: „í sálir vorar streymir óðsins andi frá æðri heimum, þjóð og föðuriandi.“ Þannig endar hann kvæðið „Þagnarljóð“. Ættjörðin og það líf, sem þró- azt hefur á henni, er mjög oft í huga skáldsins. Davíð unni mjög móður sinni. Hann var henni góður sonur og; oit: til hennar fagurt og innilegt ljóð. sem allir ísiendingar þekkja Hann ann einnig móður ættjörð af heilum hug. Minnstu smælingjar hennar eru vinir hans. í kvæðinu Blóma saga, segir hann- „Milt er sunnan við moldar barðið og melinn giáa. Þar fagnar mér ennþé fífillinn guli og fjólan bláa“. Davíð Stefánsson er ekki tízku skáld. Vegna þess, meðal annars, verða Ijóð hans sígild. í kvæðinu Stjörnudraumur biður hann: „Tak frá mér tízku og 'hjóm, gef mér trú, gef mér anda, sem fagnar í faðmi sólar." Davíð skáld hefur sterka samúð með öllum þeim mönnum, sem eru þrælkaðir og fá ekki að njóta lifsins, þótt þeir eigi heima í fjarlægum löndum: í kvæðinu Sykur, segir hann: „Sykurrófna ræktun gaf ríkum mikið fé. Að henni unnu þrælar, sem óðu moldina í kné. Þetta er hungraður hópur, • sem heimskur og derrinn glópur barði með bambustré." Kvæðið Ómar Kajani er töfrum slungið: „Sjá allt er fágað, fægt af storms ins.væng, öll foldin eins og heilög brúðar sæng, og döggvað skín hvert dúnmjúkt liljublað, því drottinn sjálfur hefur vökvað það.“ , í sarna kvæði segir skáldið: „Hví ætti ég að breyta um brag og hátt? Hvort breyta menn um sál og hjartaslátt? Öll tilgerð er mér tákn um helgl brot, allt tilfinningale'ysi andlegt þrot.“ • Skáldinu finnst eins og raunar mörgum öðrum, að skipting þjóðar innar í harðsnúna stjórnmála flokka, sem gæta eftir mætti, að enginn sleppi úr flokksgirðingunni, sem einu sinni hefur lent í henni, sé orðið þjóðarmein: „Nú er öllu í dilka deilt, dreift í flokka, ekkert heilt“. Þannig kemst hann að orði í kvæðinu Blysför. í sarna kvæði segir hann: „Trúarvana tvístruð þjóð, tekur sínum þegnum blóð.“ í hinu mikla bókasafni Davíðs skálds skipa fornritin breiðan sess og veglegan. í þau hefur þjóð hans um aldir sótt kraft og kynngi. í kvæðinu íslcnzku handritin, segir hann: „Vor forna saga er fólksins heilsulind, frelsandi kraftur, ættanna helg: runnur, traustasta vígið gegn tízku og lýgi, tungunnar óskabrunnur“. Davíð Stefánsson dáir drengilega karlmennsku. Og svo víðfeðmur er andi hans, að hann vill sprengja öll bönd rúms og tíma. í kvæðinu Díógenes segir hann: „En líklega væri það heimsins mesta mein, ef mennirnir hefðu ekkert við að glíma. Svo mikið er lífið, að -mér finn-st heimska ein að miða við rúm og tíma.“ Stórskáld eru spámenn og sjá endur ,enda er Davíð Stefánsson hvort tveggja. f kvæðinu Atlantis sér skáldið sýnir af-tur í þann tíma, er hið mikla meginland Atlantis var ofansjávar. Þetta minnir á hið gullfagra kvæði hans Arítu, er kom í Ijóðabókinni í byggðum, þar sem hann sér sýnir langt aftur í aldir. í kvæðinu Atlantis segir hann: „Ég er ómur Ijúfra laga. Ég er ljóð um horfna daga. Ég -er svipur. Ég -er saga.“ Stórbrotið og magnþi'ungið er kvæðið Klakastfflur. Það er í senn herhvöt og lof um karlmennsku og þrek og ádeila á þróttleysi og lítil -mennsku. Það hefst með þessum braglínum: „Svipum loftsins særð og lamin sveipast jörð í vetrar'ham. Klakabrynja köld og þröng kæfir fljótsins gleðisöng.“ Seinna í kvæðinu: „Ópnið dyrnar út í bylinn“ Skáldið endar kvæðið með þessu hugnæma erindi: „Myrkur frost og fjötrar víkja fyrir þeim, sem aldrei svíkja. Svo má beita bróðurhug, . að bráðni ísar — milli ríkja. Inn í bæ og borgarflauminn bera þræðir logastrauminn. . Þjóðir heimsins eiga allar einn og sama — ljósadrauminn." Þótt skáldið sé oft harðort í á (Framhald af 12. síðu).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.