Tíminn - 14.02.1961, Qupperneq 2
2
TÍMINN, þriðjudaginn 14. febrúar 1961.
Við blasir borgara-
styrjöid í Kongó
(Framhald ai 1. slðu.)
stiórnin í Katanga yfirlýsingu
J.ess efnis, að Lúmúmba hefði tek-
irt að flýja úr fangelsi sínu, ásamt
með tveimur félögum sínum, þeim
Mpóló og Ókító, sem báðir vóru
fangar með honum. Sagði Katanga-
stjórn, að leit væri hafin að þeim
félögum, sem hefðu stolið bifreið
og komizt á brott í henni. Þessi bif-
rcið á svo að hafa fundizt, en Kat-
angastjóm hélt því enn fram, að
hún vissi ekkert um afdrif þeirra
félaga.
Þessar yfirlýsingar Katanga-
stjórnar þóttu heldur dularfullar
og fór þeim stöðugt fjölgandi, sem
töldu, að Tshombe og leppstjóm
hans í Katanga hefðu látið myrða
Lúmúmba og félaga hans að eigin
frumkvæði eða tilhlutan Belga í
landinu. Kom þar, að Sþ töldu sér
ekki fært annað en senda mann
til Katanga til þess að reyna að
aíla sér nánari upplýsinga um
hvarf Lúmúmba.
En sendimaður þessi bafði
ckki árangur sem erfiði, því að
hinn sjálfskipaði leiðtogi Kat-
angafylkis, Moise Tshombe, bann-
aði honum að hafa tal af gæzlu-
mönnum Lúmúmba og öðrum
þeim aðilum, sem líklegastir
væru til þess að vita eítthvað til
örlaga hans. Varð sendifulltrúi
S.þ. að snúa heim við svo búið.
Nú eru hins vegar kunn örlög
Lúmúmba forsætisráðherra, en
mörgum mun enn þykja undar-
legar skýringar stjórnar Katanga.
Þá talar það nokkuð skýru máli
um afstöðu Katangastjórnar tU
laga og réttar, að hún heldur
hlífiskildi yfir þeim, sem hún
segir hafa vegið forsætísráðherr-
ann, og bannar mönnum aUa
vitneskju um, hvar lík hinna
látnn séu.
Ágreiningur frá fyrstu tíS
Patrice Lúmúmba var aðeins 34
ára að aldri. Hann varð forsætis-
ráðherra bjóðar sinnar, er Kongó
fékk sjálfstæði á s. 1. sumri. Var
Lúmúmba foringi stærsta stjórn-
málaflokks iandsins. Gerði hann
við stofnun lýðveldisins Kongó
samning við foringja stærstu ættar
landsins, Josef Kasavúbú. Skyldi
sá gegna embætti forseta, hvað
hann enn gerir. Hér er ekki rúm
til þess að rekja hörmungar þær,
scm dunið hafa yfir þetta unga
lýðveldi síðasta misseri. Vart hafði
það verið stofnað, er alger upp-
lausn virtist verða í landinu. Að
beiðni Lúmúmba sendu S.þ. herlið
fil Kongó til þess að reyna að
koma á lögum og reglu í landinu.
Eitt af því sem Lúmúmba krafðist,
að S.þ. gerðu í Kongó, var, að allir
Belgar, hinir fyrrverandi nýlendu-
herrar í landinu, yrðu á brott það-
an. Þetta gekk seint og illa, eink-
um hvað snerti Katangafylki, þar
sem kaupsýslumaður einn, Moise
Tshombe, hafði tekið sér öll völd,
lýst yfir sjálfstæði héraðsins og
vJdi enga aðild eiga að hinu ný-
síofnaða lýðveldi öðru vísi en þá í
sambandsformi, enda þótt tillögur
hans í þessu efni væru alla tíð ó-
ljósar. Stefna Lúmúmba var hins
vegar, að ekkert héraða Kongó
mætti skilja sig frá.
Þess má geta, að Katanga er
auðugasta hérað landsins og án
þess mætti Kongó kallasf fátækt
land. Frá fyrstu tíð hölluðust
menn að þeirri skoðun, að
Tshombe væri verkfæri í höndum
Belga og hefðu þeir lagt honum
kröfurnar um aðskilnað Katanga,
svo að hið auðuga félag, Union
Miniéré, mætti halda einhvcrju af
uámuauði sínum í héraðinu.
Ekki friður næstu 20 ár
Lúmúmba varð ekki allskostar
ánægður með starf S.þ. í Kongó,
og ekki er því að neita, að mörg-
um þótfi hann beiðast eins í dag
og hins gagnstæða á morgun. Upp- j
Lusnin fór vaxandi og hungurvof-
an barði að dyrum þessa stjórn-,
lausa lýðveldis. Kasavúbú forseti
setti Lúmúmba frá völdum, en
Lúmúmba srvaraði með því að víkja
Kasavúbú frá. Hann kallaði þá
saman þing og fékk traust þess
scm forsætisráðherra landsins. Þá
kom fram á sjónarsviðið Móbútú
ofursti, sem setti þá báða af, Kasa-
vúbú og Lúmúmba, og sfjórnaði
nieð aðstoð hersins.
Lúmúmba dvaldist nú lengi í
forsætisráðherrabústaðnum í Leo-
poldville og var gætt af hesrmönn-
um S.þ., sem neituðu að framselja
hann í hendur Móbútú.
Ekki tókst Móbútú að koma á
skipulagi í Kongó. Hann náði hins
vegar samkomulagi við Kasavúbú
og þeir síðar við Tshombe, sem
ekki er þó Ijóst, í hverju er fólgið,
nema því að vei'a í andstöðu við
Lúmúmba.
í september strauk svo Lúm-
úmba úr forsætisráðherrabústaðn-
um í Leopoldville. Féll hann þá í
hendur Móbútú, sem tafarlaust lét
setja hann í fangelsi, og skömmu
eftir áramótin var svo for'sætisráð-
herrann sendur Tshombe. Ber öll-
um saman um, að Lúmúmba hafi
hlotið hina hrottalegustu meðferð
af hálfu þessara herra.
Fylgismenn Lúmúmba hafa
mikinn hluta landsins á valdi
sínu, og loft er allt lævl blandið
enn í landinu. Mörg ríkl liafa
mótmælt témlæti S. Þ. í Kongó
og kvatt herlið sitt heim. Hvað
þessi síðasti atburður kann að
draga á eftlr sér, er ekkl vitað,
en því mtður er nokkur hætta á
því, að rætist orð eins sáttanefnd
armanna S. Þ.: Verði Lúmúmba
drepinn, verður ekki friður í
Kongó næstu 20 árin.
Hammarskjöld og Sþ ábyrg
Öryggisráð S. Þ- kom saman á
fund í dag og hóf að ræða hvarf
Lúmúmba og skýrslur, sem Hamm
arskjöld höfðu borizt þar að lút-
andi. Tíðindin um morðið á Lúm-
úmba bárust fundinum.
Fulltrúi Bandaríkjanna, Adlai
Stevenson, kvað þessar fréttir þær
hörmulegustu, sem borizt hefðu
frá Kongó. Hann hvatti hins vegar
til þess, að menn einbeittu sér nú
meir en nokkru sinni fyrr til þess
að finna lausn og ná samkomulagi
um Kongó, í stað þess að hyggja
á hefndir og blóðsuthellingar —
slíkt fengi engu um þokað og
myndi aðeins leiða af sér enn
meixi hörmungar.
Zorin, fulltrúi Sovétríkjanna,
sagði, að morðið á Lúmúmba væri
sorglegasti glæpurinn, sem ný-
lendukúgararnir hefðu staðið að
lengi, og Lúmúmba myndi verða
dýiðlingur þjóðar sinnar. Zorin
sagði, að Hammarskjöld og her-
stjórn S. Þ. í Kongó bæru fulla
ábyrgð á afdrifum Lúmúmba. Eftir
það, sem nú hefur skeð, bera Sovét
ríkin ekki lengur snefil af trausti
til Hammarskjölds og fylgjenda
hans.
Zorin lýsti sök á hendur Belgíu-
mönnum og leppum þeirra í Kongó,
Kasavúbú, Móbútú, Tshombe og
Kalonji- Þessum mönnum ber að
refsa. Þeim má ekki leyfast að
fremja glæpi, án þess að hreyft sé
hár á þeirra höfði.
Fulltrúi Br'eta lýsti yfir hryggð
sinni vegna morðsins á Lúmúmba
ogkvað nauðsynlegt að S. Þ. tækju
málin fastari tökum í Kongó.
Umræðum jim Kongó var síðan
frestað til miðvikudags, svo að
fulltrúunum gefist færi á að átta
sig á þeim viðhorfum, sem mynd-
azt hafa við morðið á Lúmúmba.
V
Nehrú, forsætisr'áðherra Indlands
hefur látið £rá sér heyra um morð
ið á Lúmúmba. Krefst hann þess,
að hinum eeku verði harðlega refs
að. Þetta er moið, sagði Nehrú,
og það eru háttsettir menn, sem
standa á bak við það.
f Bretlandi eru menn slegnir
ótta vegna atburðarins. Utanríkis-
ráðuneytig segist vera áhyggju-
fullt vegna viðbragða Sovétiíkj-
anna og sumra Afriku- og Asíu-
ríkja- Þá eru menn hræddir um
örlög hvítra manna í Kívú og Orien
tale í Kongó, en þessi héruð eru
á valdi stuðningsmanna Lúmúmba.
Omar Loufti, sem er fulltrúi
Arabiska sambandslýðveldisins hjá
S. Þ., sagði, að morðið á Lúmúmba
myndi hafa alvarlegar aHeiðingar
fyrir allt ástandið í heiminum.
Hammarskjöld hefur borizt
skýrsla frá Dayal, fulltrúa sínum
í Kongú. Segir hann borgarastyrj-
öld á næsta leiti í landinu. Segir
Dayal, að stjórnin í Katanga komi
nú upp sínum eigin her og kaupi
mikið af vopnum. Segir Dayal, að
Katangastjórn hafi nú 5000 vel
vopnaða útlendinga til reiðu og
Katangastjóm líti á S. Þ. sem höf
uðandstæðing sinn í Kongó og
krefjist þess, að herlið S. Þ. fari
á brott frá Katanga. Dayal segir,
að S. Þ. þafi reynt að koma á sætt-
um milli Tshombe og Balúba-
manna í Norður-Katanga, en slikt
sé ógerningur vegna afstöðu
Tshombe, sem haldi uppi stöðug-
um árásum á Balúbamenn. Segir
Dayal, að hermannaskríll Tshombe
eyði heilum héruðum í Katanga
norðanverðu.
Lungnaskuríur
(Framh. af 16. slðu).
var sem Poulsen dýralæknir.
Annað lungað var skorið úr
honum fyrir tveimur árum.
Hann hefur náð þeirri heilsu
að hann er aftur vinnufær,
en röddin bilaði vegna þess
að taugar skemmdust við upp
skurðinn.
í þessum þætti kom fram
fólk, sem ekki sagðist vilja
draga úr reykingum, þrátt fyr
ir hættuna, er þeim fylgir. Þá
spurði sá, sem stjórnaði út-
sendingunni:
— Hvað segið þér, Poulsen
dýralæknir, sem hafið verið
skorinn upp og eruð aðeins
með annað lungað?
— Eg reyki ekki framar,
svaraði hann með sinni bjög-
uðu rödd. Eg hef komizt að
raun um, hve fávíslega ég hef
hagað mér. Það var svo þægi
legt fyrir mig að reykja eina
sígarettu á milli viðtalanna,
og dýralæknar þurfa oft að
tala við marga á degi hverj-
um. En ég reyki ekki framar.
Eg hef sagt við son minn, eins
segi ég við alla unga menn:
Reykið ekki! Og við þá, sem
fullorðnir eru, segi ég: Ef þið
endilega þurfið að reykja, þá
veljið heldur pípu eða vindla.
Loks var flutt lofkvæði um
sígarettur, en tóbakshósti
hafður að undirleik.
Það er sagt, að margur Dan
inn hafi drepið í hálfreyktri
sígarettu þetta kvöld. Margt
af starfsfólki útvarpsstöðvar-
innar, er vann að undirbún-
ingi dagskrár þessarar hef-
ur dregið úr reykingum sín-
um, segja dönsku blöðin.
Sígarettureykingunum hefur
aldrei verið greitt annað eins
högg í Danmörku.
Fjársöfnun Rauða
krossins á morgun
Sölubörn, munið að klæða ykkur vel
fyrir merkjasöluna
Rauði kross íslands boðaði
fréttamenn á sinn fund í
Naustinu í gær í tilefni af hin-
um árlega f jársöfnunardegi
sínum, sem er á morgun, ösku-
dag. Börn munu ganga með
merki R.K.Í. í hús, og eru
Reykvíkingar hvattir til að
bregðast vel við að vanda,
þegar börnin koma.
Söfnunin nefst hér í P.eykjavík
ki. 9.30 og era sölubörn beðin að
koma þá á útsölustaðina, vel búin.
Eru foreldrar hvattir til að láta
börnin klæða sig vel, áður en þau
hefja merkjasöluna.
Sjálfboðastarf
Eins og mönnum er kunnugt er
Rauða kross-starfið sjálfboðastarf,
og verða þess vegna engin sölulaun
greidd. En öllum sölubörnum er
boðið á kvikmyndasýningu, sem
eigendur kvikmyndahúsanna láta
R.K. í té endurgjaldslaust.
Bókaverðlaun fá þau börn, sem
flest merki selja.
Margir safna
Hundruð ungra stúlkna úr
Kvennaskóla íslands, Húsmæðra-
skóla Rvk og Hjúkrunarkvenna-
skóla fslands annast afhendingu
merkjanna víðs vegar um bæmn,
en 2 þúsund börn hafa árlega selt
nærki Rauða krossin á síðustu ár-
um. Kl. 9.30 verðuf byrjað að af-
henda börnum merkin á þessum
stöðum.
Vesturbær: Skrifstofa Rauða
kross íslands, Thorvaldsenstrætt
6 Skóbúð Reykjavíkur, Aðalstræti
8. Efnalaug Vesturbæjar, Vestur-
götu 53, Kjötbúð Vesturbæjar,
Bræðraborgarstíg 43, Sunnubúðin
Sörlaskjóli 42, Síld og Fiskur,
Hjarðarhaga 47.
Austurbær A: Fatabúðin, Skóla-
vcrðustíg 21A, Axelsbúð, Barma-
hlíð 8, Silli & Valdi, Háteigsvegi 2,
Austurver, Söluturn, Skaftahlíð 24,
Sveinn Guðlaugsson, Borgargerði
12.
Austurbær B: Elías Jónsson,
Kirkjuteig 3, Skúlaskeið, Skúla-
götu 54, íþróttahús iBR, Háloga-
Lmdi, Garðabúðin, Ásgarður 20—
24, U.M.F.R., við Holtaveg, K.F.U.
M., við Kirkjuteig 33, Laugarásbíó,
Laugarási.
Fimm slasast
(Framhald af 1. síðu.)
Skipverjum tókst að ná mannin-
um, sem tekið hafði út, en í ljós
kom, að fimm menn böfðu slasazt,
þar á meðal báðir stýrimenn skips-
ins-
Fjórir í sjúkrahús
Sjúkrahúslæknirinn á Patreks-
firði, Sigursteinn Guðmundsson,
sagði í gær, að enginn mannanna
væri að vísu í lífshættu, en einn
hefði hlotið slæman áverka á höf-
uð og tveir hefðu marizt mjög og
tognað í liðum. Verða fjórir að
liggja í sjúkrahúsi um hríð, þar
á meðal stýrimennirnir, en einn
getur farið aftur á skip nú þegar.
Sjómenn frá Þýzkalandi
Nýlega hafði veikur maður verið
fluttur af þessu sama skipi í þýzkt
sjúkrahús á miðum úti, og vantar
því fimm menn á togarann. Var
gripið tii þess ráðs að biðja um
fjóra menn frá Þýzkalandi á skip-
ið. Eiga þeir að koma til Reykja-
vikur með flugvél í dag, og mun
skipið bíða komu þeirra á Patreks-
fiiði.
Það hafði verið sex daga á veið-
um, þegar það varð fyrir þessu
áfalli, og lítið aflað. — Svavar.
Thomson
áfram hár
í gær barst Thompson, sendl-
herra Bandaríkjanna hér, skeytl
frá Kennedy forseta þess efnls,
aS Kennedy æskti þess, a3 Thomp
son yrSI áfram sendiherra á ís-
landl.
Sendiherrann sendi forsetanum
svarskeyti, og kvaS þaS vera sér
ánægia aS gegna stöSunni áfram.
Eins og kunnugt er skýrSl NeW
York Times frá því. á dögunum,
aS Thompson mundi verSa skip-
aSur sendiherra í Marokkó. Þessi
frétt blaSsins er því röng.
ErfitS för
(Framhald af 1. síðu.)
kiukkustundarferð á hestum frá
Eyri í Trékyllisvík.
Og í lofti
Ekki tókst að fá flugvél eftir
dregnum á laugardaginn. Daginn
eftir var þess svo freistað á ný. og
mun vél frá Reykjavík hafa gert
tvær tilraunir til þess að fljúga
norður, en orðið frá að hverfa
vegna dimmviðris á Holtavörðu-
heiði og hálendinu þar norður af.
Að loknum kom flugvél frá Ak-
ureyri og tókst henni að fljúga
með drenginn til Reykjavíkur á
sunnudagskvöldið. —
Þannig náðj hinn ungi Stranda-
n/aður loks iæknisfundi með sinn
' brotna handlegg, hálfum öðrum
| sólarhring eftir að hann varð fyrir
siysinu, og mun honum nú líða
I eftir öllum vonum. GPV.
AUSTUR-HÚNVETNINGAR
Framsóknarfélögin í A-Húnavatnssýslu halda kvöldskemmtun laugar-
daginn 18. febrúar n. k. ki. 9 sí3d. — Skemmtiatriði: Kórsöngur
(Karlakórinn Vökumenn). Ræður. Spiluð framsóknarvist. Dans.
HÁDEGISFLOKKURINN
kemur saman á morgun (miðvikudag) á venjulegum stað og tíma,
stundvislega.
FÉLAG FRAMSÓKNARKVENNA
í Reykjavík heldur skemmtun miðvikudaginn 15. febrúar kl. 8,30
í Framsóknarhúsinu. — Kvikmyndasýning, ræða, dans o. fl. Félags-
konur, fjölmennið og takið nieð ykkur gesti. — Tilkynnið þátttöku
í síma 18244, 12560 eða 14668.