Tíminn - 06.05.1961, Page 3
augardaginn 6. maí 1961.
3
Mikið um dýrðir við
komu Noregskonungs
Bræðurnir Kengja upp.
Benidikt Gunnarsson
opnar málverkasýningu
í dag klukkan fjögur opnar
Benedikt Gunnarsson mál-
verkasýningu í Listamanna-
skálanum. Hann sýnir sextíu
myndir, allt olíumálverk, flest
gerS 1960—1961.
Benedikt hefur einu sinni áður
haldið sérsýningu í skálanum.
Það var árið 1954. Síðan hefur
hann tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum. Einnig sýndi hann gler-
myndir í salnum á horni Ingólfs-
strætis og Hverfisgötu, ‘ en hefur
yfirleitt haft heldur hægt um sig
á þessu árabili.
Aðdragandi þessarar sýningar
Benedikts er orðinn alllangur, þótt
málverkin séu flest endanlega
gerð á hálfu öðru ári, enda kemur
hann nú fram umskapaður í nýrri
mynd.
Fréttamaður og ljósmyndari
blaðsins litu inn í skálann í gær
meðan Benedikt var að hengja
upp. Myndin sýnir Benedikt til
vinstri og Veturliða bróður hans
í stiganum og eitt málverkið. Gera
má ráð fyiir, að þessi sýning
eigi eftir að koma mörgum á ó-
vart, enda hefur Benedikt farið
dult með, hvað hann hefði á
prjónunum.
Samúðarverkfall kvenna
á Suðurnesjum á miðnætti
Á miðnætti í nótt hefst sam
úðarverkfall kvenna á Suður-
nesjum gagnvart Vinnuveit-
endafélagi Suðurnesja. Verk-
fallið beinist eingöngu gagn-
vart Vinnuveitendafélagi Suð-
urnesja, en eins og kunnugt
er var verkfall kvenna í Kefla
vík gagnvart jaeim atvinnu-
rekstri dæmt ólöglegt, en
verkfall kvenna í vinnu hjá Út
vegsbændafélagi Suðurnesja
dæmt löglegt og stendur það
verkfall enn.
Verkfallið, sem hefst á mið-
nætti í nótt, er eins og fyrr segir
samúðarverkfall kvenna í vinnu
hjá atvinnurekendum f Vinnuveit
endafélagi Suðurnesja til styrkt-
ar vertefalli kvenna í vinnu hjá
, atvinurekendum í Útvegsbænda-
j félagi Suðurnesja.
j Blaðið átti tal við Hannibal
j Valdimarsson, forseta ASÍ, í gær,
! og innti hann eftir fréttum af
j deilunni. — Sagði hann að at-
j vinurekendur væru að smáhækka
! sig í tilboðum sínum til kvenn-
' anna, en sí^gsta tilboð mun þó
ekki vera formlegt. Samninga-
nefnd kvenna álítur þessi tilboð
ekki fullnægjandi. — Sagði Hanni
bal, að senn liði að því að sátta-
semjari boðaði til samningafunda
með deiluaðilum í Keflavíkur-
deilunni að nýju.
Lokað á hádegi
í dag verður sölubúðum lokað
kl. 12 á hádegi og verður svo
framvegis í sumar, en hins vegar
verða búðir opnar til kl. 7 síðd.
á föstudögum.
Svo sem áður er kunnugt
af fréttum, kemur Ólafur Nor-
egskonungur í opinbera heim-
sókn til íslands í lok þessa
mánaðar eða 31. maí og mun
dveljast hér þar til að kvöldi
3. júní. Kemur konungur hing
að á skipi sínu, Norge, en í
fylgd með því verður stærsta
herskip Norðmanna, Bergen.
íslenzkt varðskip mun fylgja
konungsskipunum síðasta spöl
inn að landi.
Með konungi verða í förinni
Halvard Lange, utanrikisráðherra
Noregs, Odd Grönvold, stallari,
E.T. Lundesgaard, yfiradjudant,
Arne Haugh, adjudant konungs,
og skipherrann á Norge, V.G.
Thoresen.
Blómsveigur að styttu
Jóns Sigurðssonar
Bátur konungs mun leggjast
að Loftsbryggju um ellefu leytið
miðvikudaginn 31. maí. Að lok-
inni móttökuathöfn þar verður
ekið um Geirsgötu, Pósthússtræti,
Hafnarstræti, Lækjartorg, Lækjar
götu og Vonarstræti, að ráðherra
bústaðnum að Tjarnargötu 32, en
þar mun konungur búa, á meðan
hann dvelst hér. Fylgdarlið kon-
ungs mun hins vegar búa að Hót
el Borg. m m
Klukkan 12 á hádegi þennan
sama dag mun koriungur leggja
blómsveig að styttu Jóns Sigurðs
sonar á Austurvelli. Er þetta í
fyrsta sinn, sem erlendur þjóð-
höfðingi leggur blómsveig að stytt
unni. — Síðar um daginn verður
athöfn í Fossvogskirkjugarði við
minnisvarða Norðmaijna þar. Um
kvöldið efna forsetahjónin siðan
til veizlu til heiðurs konungi að
Hótel Borg.
Konungi flutt kvæði
Fimmtudaginn 1. júní mun kon
ungur heimsækja Háskóla íslands.
Þar mun háskólarektor ávarpa
konung, dómkirkjukórinn syngur
nokkur lög og Davíð Stefánsson
frá Fagraskógi mun flytja kon-
ungi kvæði. Að þeirra athöfn lote
inni mun konungur skoða þjóð-
j minjasafnið, en síðan verður hald
j ið til Bessastaða, en þar fer fram
! guðsþjónusta í Bessastaðakirkju.
| Þar þjónar séra Garðar Þorsteins-
j son fyrir altari, en biskflp fslands
i flytur prédikun. Síðar sama dag
| verður konungur gestur Reykja-
| vikurbæjar^ í Melaskólanum. Um
I kvöldið vérður hátíðasýhing i
þjóðleikhúsinu, og fluttur leik-
þáttur, sem dr. Sigurður Nordal, j
prófessor, hefur samið, og nefnj
ist „Á Þingvöllum 984“, auk þess j
karlakórinn Fóstbræður munu;
syngja.
Þess má geta, a% þátturinn „Á
Þingvöllum 984“ verður sýndur
fyrir almenning dagana 2. og 5.
júní í þjóðleikhúsinu. Æfingar á
leikþættinum eru hafnar, og
er Lárus Pálsson leikstjóri.
Til Þingvalla og Reykholts
Föstudaginn 2. júní er gert ráð
fyrir, að farið verði til Þingvalla
um morguninn og gengið á Lög-
berg, en um hádegið bvður rikis-
stjórn íslands konuns’ til hádegis
verðar í Sjálfstæð'ishú ;inu. Síðar
um daginn verður gestamóttaka
fyrir norska gesti í norska sendi-
ráðinu. Að kvöldi þessa dags verð
ur kveðjuveizla um borð í kon-
ungsskipinu, og er þá hinni opin-
Konungur mun leggja blómsveig acS styttu Jóns
SigurtJssonar fyrstur erlendra þjó<Shöfftingja —
hátí'Sasýning í þjóðleikhúsinu — Davíð Stefáns-
son mun flytja konungi kvæ'Si
beru heimsókn Ólafs Noregskon-
ungs lokið.
Á laugardag mun skip konungs
sigla upp í Hvalfjörð, og stígur
konungur af skipsfjöl við hval-
stöðina. Verður síðan ekið það-
an til Reykholts. Að kvöldi halda
kouungsskipin síðan af stað til
Noregs.
Kom hér 1947 '
Ólafur konungur hefur áður
farið í opinberar heimsóknir til
Danmerkur og Svíþjóðar. Til fs-
lands kom hann sem krónprins
Norðmanna 1947, er Snorrahátíð
in var í Reykholti. Er hann jafn
framt fyrsti Noregskonungurinn í
sögunni, sem heimsækir ísland.
Fjögurra manna hátðanefnd
hefur skipulagt heimsóknina, og
mun annazt frapikvæmd hennar.
f nefndinni eiga sæti Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri, Agn-
ar Klemenz Jónsson, ráðuneytis-
stjóri, Hörður Bjarnason, húsa-
meistari ríkisins og | Haraldur
Kröyer, forsetaritari.
Forstjóri Laugarásbíós segir:
Ekkert hótunar-
bréf komið
Sýningum á hinni umdeildu mynd „Ökunnur
gestur“ hætt í Laugarásbíó
Laugarásbíó hefur nú hætt
sýningum á myndinni „Ókunn
ur gestur", sem sýnd hefur
verið við mikla aðsókn tvær
undanfarnar vikur.
myndarinnar „Frihedens Pris“ 5.
maí, en þann dag var Danmörk
frelsuð undan oki nazismans.
Þessar óskir hefðu hins vegar
borizt það seint, að ekki hefði
verið unnt að hefja sýningu mynd
arinnar í gær, 5. maí, en sýningar
á henni hefjast í dag.
— Við ætlum að senda „Ókunna
gestinn“ til sýninga út á landi,
en munum hefja sýningar á mynd-
inni í Laugarásbíói að nýju síðar.
Blaðinu barst sú saga í gær, að
Laugarásbíó hefði ákveðið að
hætta sýningum á kvikmyndinni
végna hótunarbréfa, sem forstöðu
mönnum kvikmyndahússins hefðu
borizt. Mynd þessi hefur verið
mjög umdeild, hvaxvetna sem,
hún hefur verið sýnd. Þetta er j MffcríSllf-
verðlaunamynd og af ýmsum tal-j J 1 ðlíl iwlUUl
in listaverk, en víða hefur sýn-j j J £ *•
ingu myndarinnar verið mótmæltj l3nU3lCrÖlfl
á þeirri forsendu, að hún væri j
hið grófasta klám og þá einkum! Fyrsta hópferð sumarsins til
vitnað til eins atriðis myndarinn- Norðurlanda verður á vegum
ar, sem leikstjórinn hefur látið j ferðaskrifstofunnar Sunnu, og
hafa eftir sér, að myndin standi j verður flogið með Flugfélagi ís-
og falli með.
jlands til Kaupmannahafnar 13.
Af tilefni þessa söguburðar umjmaí og komið aftur til Reykja-
hótunarbréf sneri blaðið sér tilivíkur að kvöldi 1. júní.
forstjóra Laugarásbíós, Valdimars' Er hér um að ræða ferð, þar
Jónssonar, og innti hann eftir sem fólk getur valið um dvalar-
sannleiksgildi sögunnar. Sagði staði, þegar út er komið. Dvalið
hann hana tilhæfulausa. — Að verður á gistihúsi í Kaupmanna-
vísu hefði hann fengið upphring-; höfn og timinn að mestu til
ingu frá einni konu, sem farið frjálsrar ráðstöfunar fyrir fólk.
hafði á myndina með dóttur sinni Hægt er að fara í stuttar ferðir
15 ára gamalli, og mótmælti kona frá Kaupmannahöfn, meðal ann-
þessi harðlega sýningu myndar- ars til Svíþjóðar.
innar, sem hún taldi vera hið Gert er ráð fyrir því að flestir
versta klám. i þátttakendur í þessari ferð vilji
Sagðist Valdimar reyndar hafa
frétt, að ýmsir teldu myndina ó-
siðlega. Kvikmyndaeftirlitið hefði
hins vegar ekki haft neitt við
myndina að athuga, annað en
banna hana börnum yngri en 16
ára. Það var Guðjón Á. Guðjóns-
son, skólastjóri, sem yfirfór mynd
ina fyrir kvikmyndaeftirlitið.
— Ástæðuna til þess að sýn-
ingu myndarinnar er nú hætt,
einnig fara til Hamborgar, og
munu þeir, sem þangað ætla,
fljúga þangað beint, áður en
komið er til Kaupmannahafnar.
Þaðan er hægt að komast í lengri
og styttri ferðir suður um Þýzka-
land, eða dveljast aðeins fáa daga
og fljúga svo aftur til Kaupmanna
hafnar og dveljast þar þangað til
farið er heim.
Einnig geta þeir, sem taka þátt
þrátt fyrir góða aðsókn, sagði í þessari fyrstu hópferð ársins til
Valdimar vera þá, að honum hefðu
borizt óskir frá samtökum Dana
hér á landi um að hefja sýningu
Norðurlanda farið áfram í ferða-
lög til meginlandsins með dönsk-
(Framhald á 2. síðu).