Tíminn - 06.05.1961, Page 16

Tíminn - 06.05.1961, Page 16
>» Ástúðleg faðmlög sem eru orðnir um það bil ársgamlir. Ljónshvolparnir voru teknir frá móður sinni, þegar þeir voru átta mánaða gamlir, en tígrismóðirin, sem er orðin gömul og hefur fætt af sér fimmtíu afkvæmi, stálmaði ekki. Þegar svo stend I dýragarðinum í Kaup- mannahöfn eru tveir Ijóns- hvolpar og tveir tígrishvolpar, Helgihljómleikar í Selfosskirkju Þrestirnir í görðunum og hættan af köttunum ASferS Akureyringa bjöllu um háls kettir meí í öllum kaupstöðum og kauptúnum, þar sem gerðir hafa verið garðar með nokkrum trjágróðri, er talsvert um skógarþresti, sem gera sér hreiður og unga þar út, svo fremi þeir hafi frið. Flestum mun yndisauki að þessum fuglum, sem engum eru til meins á nokkurn hátt. En þeir eiga skæða óvini — kettina, sem sitja um líf fullorðinna fugla, þegar þeir eru að tína strá í hreiður sitt og afla matar handa ungunum, og ungana hremma þeir hvern af öðrum, þegar þeir fara úr hreiðrinu, lítt og ekki fleygir. Oft er átakanlegt að sjá og heyra, þegar for- eldrarnir eru að freista þess að ginna hinn skæða óvin frá runnum, þar sem ófleygur ungi kúrir, og aðdáanlegt hugrekki þeirra, þegar þeir hætta sér svo að segja í klær kattarins. Nú er það svo, að margir haía líka yndi af köttum, og ekki skulum við amast við því. En það er vafalaust hægt að fara bil beggja. í fyrra birti Dýraverndunarfélagið á Akureyii tilmæli og áskorun til bæjarbúa um að loka ketti sína’ inni eða hafa á annan hátt hemil á þeim um það leyti, er þrestirnir liggja á ungum sínum og ungarnir fara úr hreiðri. Jafnframt munu bæjar- yfirvöldin hafa veitt vilyrði fyrir því, að fyrir- mæli á þessa lund skyldu sett í lögreglusamþykkt Akureyrar, þegar hún verður endurskoðuð næst. Væri þetta almennt tekið upp, myndi það áreiðan- lega koma í veg fyrir. mikinn fugladauða, en ætti ekki að vera til stórfellds baga fyfir þá, sem kett- ina eiga. Þetta mál er vert að ræða nú, þegar að því dregur, að þrestjrnir fnrj að gera sér hreiður. Annað ráð er líka til, er gæti1 komið að talsverðum notum. í, Bandaríkjunum og Kanada hvað i vera alsiða, að eigendur katta hengi litlar bjöllur um hálsinn á þeim. Þetta varnar því, að kett- inir geti læðzt að fuglum, og kemur því að mjög góðum notum, nema hvað ófleygir ungar eru að sjálfsögðu ekki óhultir, þrátt fyrir slíka varúðarráðstöfun. Þröstur með maðk í nefi á leið í hreiður sitt. Komust ungar hans upp eða lentu þeir í kattakjöftum eftir alla umhyggjuna? (Ljósmynd: Björn Björnsson). Páll Sigurðsson að hætta í Varmahlíð - ekki einu sinni rispað hann smávegis með klónum. Og hér á myndinni sjáum við Poul Andre- sen í faðmlögunum við eitt fóst- urbarnanna. Faðmlögin eru svo áköf, að hatturinn hefur fokið af honum. Varmahlíð, 4. maí. — Páll Sigurðsson, sem verið hefur um nokkurt skeið veitinga- maður í Varmahlíð, eftir að hann fór frá Fornahvammi, er nú að hætta veitinga- mennsku sinni. Hann ætlar að flytja sig til Hóla í Hjaltadal og starfa við hestamennsku á búinu þar. Við rekstrinum í Varmahlíð tekur sennilega Sigurður Haraldsson í Braut- arholti. Ekkert gengur né rekur með framkvæmdir í skólabyggingu í (Framhald á 2. síðu).. Næst komandi sunnudags- kvöld, 7. þ. m., efnir kirkju- kór Selfosskirkju til helgi- hljómleika í Selfosskirkju kl. 8,30 s. m. Þar flytur Bragi Friðriksson ávarp. Kirkjukór Selfosskirkju syngur sígild, andleg lög, eftir inn lenda og erlenda höfunda undir stjióm Guðmundar Gíslasonar, organleikara, sem einnig leikur einleik á orgel. Kirkjukór Selfosskirkju hefur nú starfað af miklum þrótti rúm lega 15 ár. Fyrstu árin undir stjórn Ingimundar Guðjónssonar, en organleikari var frú Anna Eiríksdóttir. Haustið 1954 tók Guð mundur Gíslason, skólastjóri tón listarskólans á Selfossi við stjórn kórsins og organlcikarastarfi í Sel fosskirkju. Hefur hann rækt þau störf með cniklum ágætum svo óhætt er ag fullyrða að Selfoss- kirkjukór er nú meðal alLra beztu kirkjukóra landsins. Hefur hann sungið mjög víða við ýmiskonar tækifæri, meðal annars við ,,Grallaramessu“ að Bessastöðum og í Ríkisútvarpið. HelgiWjómleikar þessir eru ur á, skeyta þessi dýr ekki um afkvæmi sín, og þess vegna var tík fengin þeim að fóstru. En tígrishvolpar eru gráðugir, og þess vegna var þeim gefin mjólk úr flösku til viðbótar. Fram á þennan dag gengur gæzlumaðurinn inn í girðinguna til þes-s að gefa þeim mjólk úr flösku. Þegar hvolparnir hafa tæmt flöskuna, stökkva þeir upp um hálsinn á honum, og hann leikur sér við/ þá stundarkorn. Ljónshvolparnir eru öllu styggari og ekki eins alúðlegir og tígris- hvolparnir, en aldrei hefur borið við, að þetta ungviði hafi gert gæzlumannijium hið minnsta mein að nokkru fluttir í tilefni af 15 ára starfsemi Selfosskirkjukórs. Aðgangur er ókeypis. Er þess að vænta að Selfyssingar og aðrir Árnesingar fjölmenni í Selfoss- kirkju á sunnudagskvöldið kemur og votti með því kórnum þakklæti og virðingu fyrir ómetanlegt starf í þágu kirkju og kristindóms svo og menningar Selfossbyggðar. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur í kvöld miðnætursýninguá afmæiisleikritinu „Hringekjan" eftir úAlex Brinch- mann. Sýningin verður í Bæjarbíó og hefst klukkan hálftóif. Sýningar verða ekki fleiri í vor, svo að þetta er síðasta tækifæri fyrir fólk að sjá þessa skemmtiiegu sýningu. — Á myndlnn eru: Katrín Þorláksdóttir, Inga Blandon og (Friðleifur Guðmundsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.