Tíminn - 27.05.1961, Síða 12

Tíminn - 27.05.1961, Síða 12
TÍMINN, Iaugardaginn 27. maí .1961.1 RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON FRAM bezta knattspyrnufélag Reykjavíkur •.. . • -V ■ ■ ?-trJ ■ ■ V:::' :' . llShiiii spai Síðasti leikur Reykjavíkur- mótsins í meistaraflokki fór fram í fyrrakvöld og þá sigr- aði Valur KR með 3—2, en það gerði það að verkum, að Fram hlaut titilinn „Bezta knatt- spyrnufélag Reykjavíkur 1961" og voru leikmönnum Fram afhent verðlaun fyrir mótið eftir leikinn. Valur geiði talsverðar breyting- ar á liði sínu fyrir leikinn við KR, sem reyndust allar til bóta. Þetta var tvímælalaust bezti leikur Vals í mótinu, og sannar sem við höf- um sagt hér á síðunni, að þegar Valsliðið nær saman, getur það unnið hvaða lið sem er hér. Fyrri hálfleikur. Það leit þó ekki vel út fyrir Val í byrjun leiksins. KR-ingar sóttu mjög til að byrja með og Þórólfur Beck lék í gegnum vörn Vals og átti gott skot en í þverslá. Aðeins síðar stóð Gunnar Felixson fyrir opnu marki, en misnotaði tækifærið herfilega. En smám saman komu Valsmenn meira með í leikinn og miðherjinn Skúli Skúlason komst einn inn fyrir ENGIN KÆRA ) ) ) } } } } } } } } ) Kærumál hafa oft sett leið- ) indasvip á íþróttastarfsemina, / hér á landi, einkum þó í knatt/ / spyrnunni. Félög hafa tapað, ) leikjum á því, að leikmenn, ) hafa ýmist vcri'5 of gamlir, } eða of xmgir, eftir því hvað, / átt hefur við hverju sinni.; ' Menn hafa oft brosað að þess-, / um kærum — og sannarlega t ) haf# margar verið broslegar. ) Það gekk fjöllunum hærra, , undanförnu, að KR myndi, ) kæra tapleik sinn við Víking, Reykjavíkurmótinu í knatt-, . spyrnu ef félagið sigraði ekki ; í mótinu með öðru móti. Mót- inu er nú lokið og engin kæra , kom fram — en þess skal get , ið, að Víkingur mun hafa ver ) ið með ólöglegt lið gegn KR ■ — marga 2. flokks drengi, þaraf einn, sem var fimm döa- um of ungur, þegar leikurinn var háður. Ef leikurinn hefð ' verið kærður hefði KR öruggr' lega verið dæmdur sigur í lion'' um, en til þess kom ekki, og' eiga KR-ingar heiður skilið ( fyrir. ( Víkingar töldu sig hafa lit’ ( sigurmöguleika gegn KR r ( hættu því á, að stilla upp því ( liði, sem þeir gerðu — end- ( voru níu landslíðsmenn í F' / liðinu gegn Víking. Úrslit urðu/ hins vegar þau óvæntustu ) mótinu og Víkingur vann mc' ) eina markinu í leiknum. Ungl / ingarnir sigðruðu því hina, þrautreyndu landsliðsmenn —/ og vissulega hefðu menn bros- að ef það hefði verið kært, en KR valdi: aðra leið, sem var, þeim meir til sóma. / vörn KR — meira að segja mark- manninn líka — en tókst þó á óskiljanlegan hátt að koma knett- inum framhjá markinu. Þar var farið illa með gott tækifæri. Þegar hálftími var af leik lék Þórólfur að marki Vals. Björg- vin Hermannsson, markvörður Vals, kom á móti honum og kast- aði sér á knöttinn, en missti hann til Gunnars Felixsonar, sem renndi knettinum í autt markið. Nú bjuggust áhorfendur við því, að KR-ingar færu að ná meiri yfirtökum í leiknum, en Valsmenn gáfu ekki eftir, og þeg ar um fimm mínútur voru til hálfleiks náðu Valsmenn góðri sókn. Matthías Hjartarson gaf knöttinn til Björgvins Daníels- sonar á markteig og skoraði Björgvin auðveldlega. Jafntefli var því í liálfleik 1-1. Tvö mörk á þremur minútum. Valsmenn byrjuðu ágætlega í síðari hálfleik, voru ákveðnir og samleikur góður. Þetta bar fljótt árangur, því að á 7. mín. fær Matthías knöttinn frá Bergsteini Magnússyni við vítateig, lék sig frían og skoraði með mjög fallegri vinstri fótar’ spyrnu efst í markið. Fallegasta markið í leiknum. Vals menn létu ekki þar við sitja. Á 10. mín. fékk Björgvin knöttinn fyrir utan vítatei.g, lék á KR-vörn- ina og skoraði þriðja mark Vals í leiknum. Valur hafði nú tvö mörk yfir og virtust nú álíta að sigurinp væri öruggur. (Jáfu þeir talsvert eftir ög var KR mun meira í sókn það sem eftir var hálfleikisins. Á 20. mín. var KR í sókn og Sveinn Jónsson gaf knöttinn til Gunnars Felixsonar, sem renndi knettinum fraanhjá Björgvin, mark manni, sem var aðeins of seinn að yfirgefa mark sitt. Valur lék varnarleik það sem eftir var, en lítið plan var þó yfir sóknarleik KR. Alltof mikil pressa á miðj- unni, en lítið reynt að opna vörn- ina með dreifðara spili, og árang- urinn því enginn. Bezti leikur Vals. Valsliðið styrktist mikið við það, að tveir gamlir leikmenn, Björgvin Henmannsson og Magnús Snæbjörnsson léku nú með að nýju. Björgvin varði vel og greip oftast vel inn í leikinn, og virðist í ágætii þjálfun, enda æft vel. Vörnin var nokkuð sæmileg með Árna Njálsson sem bezta mann. Framverðirnir, Ormar Skeggjason og Hans Guðmundsson, unnu mjög vel, en eru full seinir í flestum aðgerðum. í framlínunni bar mest á Björgvin Daníelssyni og Matthí- asi Hjartarsyni, sem báðir áttu ágætan leik og þeir skoruðu mörk- in. Vörn KR var nokkuð sundurlaus í leiknum og kom á óvart hve Valsmönnum tókst létt að finna glufur í hana. Hörður Felixson var nokkuð frá sínu bezta og sama (Framhald á 15. síðu) Valur sigratJi KR í síðasta leik Reykjavíkurmótsins metJ 3—2 og tryggtii Fram því sigur í mótinu — Valur varS í ötJru sæti ■ Ljósmyndari Tímans, Guðjón Einarsson, tók þessar skemmti legu myndir í leik Vals <,• KR í fyrrakvöld. — Á ef myndinni slær Björgvin He mannsson, markvörður Va! knöttinn yfir þverslá, en \ þeirri neðri skallar Hreiðar Ársælsson, bakvöiður KR. knöttinn frá. ;:■ I I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.