Tíminn - 03.06.1961, Síða 2
2
TlMINN, Iangardagmn 3. júni 1961.
Kennedy og Krústjoff
hittast í dag í Vín
NTB—Vínarborg, 2. |úní. —
Nikita Krústjoff, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, kom í
dag til Vínarborgar, þar sem
hann næstu tvo daga mun
eiga viðræður við Kennedy
Bandaríkjaforseta, sem er nú
að Ijúka opinberri heimsókn
í Frakklancji. Krú^tjoff kom
með lest frá Bratislava í Tékkó
slóvakíu, þar sem hann hafði
átt stuttar viðræður við ýmsa
leiðtoga. Miklar öryggisráð-
stafanir hafa hvarvetna verið
gerðar á járnbrautarstöðvum
og meðfram járnbrautarlínun-
um, og í Vínarborg sjálfri hef-
ur verið komið á fót víðtæku
öryggiskerfi til að vernda líf
og limi þessara stórhöfðingja,
Krústjoffs og Kennedys.
Miklar öryggisráístafanir ger'ðar í sambandi
vií fund þeirra
Á flugvellinum í Vínarborg tók
forseti Austurríkis, Adolf Scharf,
á móti Krústjoff og Nínu, konu
hans, en á vellinum voru einnig
allir helztu stjómmálamenn og
aðrir ráðamenn Austurríkis.
Miklar öryggisráðstafanir
Öflugt öryggiskerfi hefur verið
sett á laggirnar í sambandi við
fund þeirra Kennedys og Krúst-
joffs, og hafa austurrísku yfir-
völdin ekkert sparað til þess að
tryggja sem bezt öryggi stór-
mennanna. í Vínarborg sjálfri
munu um 8 þúsund lögreglumenn
vaka yfir hverju fótmáli þjóð-
höfðingjanna, auk leynilögreglu-
manna, sem eru í fylgdarliði
þeirra sjálfra. Meðfram járnbraut
þeiiri, sem lest Krústjoffs fór um,
Sjémannadagurinn
í Hafnarfirði
Hátíðahöld sjómannadags-
ins í Hafnarfirði hefjast á því,
að safnazt verður saman við
skýli slysavarnafélagsins.
Klukkan 10,30 verður<*gengið
til kirkju undir fánum félag-
anna og klukkan ellefu hefst
messa í fríkirkjunni. Prestur
verður séra Kristinn Stefáns-
son. Guðmundur Jónsson
syngur einsöng.
Hátíðahöldin eftir hádegi hefj-
ast með leik Lúðrasveitar Hafnar
fjaíðar við Thorsplanið klukkan
J.45. Klukkan tvö verður skemmt-
unin sett af Sigurði Sigurjónssyni,
formanni Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Kára. Ræður
flytja fulltrúi slysavarnarfélags-
ins Hraunprýði, frú Jóhanna Bryn
jólfsdóttir, og fulltrúi sjómanna,
Ólafur Brandsson. Þá verða aldrað
ir sjómenn lieiðraðir og að því
búnu verða skemmtiatriði, þar á
meðal leikþáttur undir stjórn
Gunnars Eyjólfssonar, róður, reip
tog og fleira.
Klukkan níu hefst dans í Al-
þýðu- oig Góðtemplarahúsinu. Mið
ar verða seldir í Alþýðuhúsinu á
laugardag kl. 5—7. Blöð og meiki
dagsins verða seld á göturn bæj-
arins, og verða þau afhent í verka-
mannaskýlinu. Þau börn sem selja
fyrir 150 krónur eða meira, fá
auk sölulauna miða i Laugarás-
bíó og ókeypis ferðir á milli.
Ársfagnaður Nem-
endasambands
Kvennaskólans
Nemendasamband Kvennaskól-
jans i Reykjavík hélt ársfagnað
miðvikudaginn 24. maí s.l. í
Klúbbnum. Forstöðukona kvenna-
'skólans og brautskráðir nemendur
þ. á m. voru gestir sambandsins.
Skemmtunin hófst með borð-
haldi kl. 7.30. Að því loknu voru
ýmis skemmtiatriði. Kristinn Halls-
son, óperusöngvari söng með und-
irleik Weisshappel, Bryndís
Schram sýndi listdans, Ásmundur
Guðmundsson flutti skemmtiþátt
og spilað var Bingó. Frk. Matt-
hildur Sveinsdóttir og frá Guðrún
Ryden rifjuðu upp gamlar skóla-
minningar og Sigrún Ásgeirsdóttir
þakkaði fyrir hönd nýútskrifaðra
námsmeyja. Þátttaka var ágæt.
Nokkrir jubil-árgangar skólans
voru mættir þ. á m. 50 ára nem-
endur.
Gönguför á Esju
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær efnir Ferða-
klúbbur F.U.F. í Reykjavík til ferðar á Esju næsta sunnudag.
Allar upplýsingar um ferðina eru veittar í Framsóknarhúsinu
í síma 12942 kl. 5—7 síðdegis og þar geta menn einnig látið
skrá sig í fnrðina.
Mörgum Reykvíkingum er án alls efa hugleikið að klífa
fjallið, bæði þeim sem líta það augum í lotningu daglega en
hafa ekki lagt í það stórvirki ennþá að leggja á brattann og
hinir, er leyst hafa þrautina af höndum, og hafa löngun til að
vinna hána aftur.
hafði vopnaðir öryggisverðir tekið
sér stöðu með 250 metra milli-
bili. Leiðin til Vínarborgar frá
Bratislava er fimmtíu kílómetrar.
Á undan lest Krústjoffs fór sér-
stök eimreið, full af hermönnum,
vopnuðum handvélbyssum. Ein af
þyrlum austurrísku lögreglunnar
flaug lágt yfir lestinni og fylgdi
henni þannig alla leiðina.
Auf wiedersehen
Mikill fjöldi manns hafði safn-
azt saman á járnbrautarstöðinni,
þegar lest forsætisráðherrans
rann í hlað, og var honum fagnað
með kröftugu húrrahrópi.
í stuttri ræðu, sem Krústjoff
hélt Við komuna, sagðist hann
vera kominn til Vínarborgar til
þess að kynnast Kennedy persónu
lega, skiptast á skoðunum við
hann og skýra sjónarmið Sovét-
ríkjanna í málum, sem varða sam-
skipti þessara tveggja landa. Þeg-
ar ég fór frá Vínarborg í fyrra,
sagði ég: Auf wiedersehen, og nú
hef ég efnt þau orð, sagði for-
sætisráðherrann og beindi orð-
um sínum til Scharf forseta.
Að lokum sagði Krústjoff, að
Sovétríkin óskuðu þess af heilum
hug, að hin mörgu vandamál yrðu
leyst eins skjótt og auðið væri,
en hins vegar gerðu þau sér
grein fyrir því, að ekki væri
hægt að gera allt í einu. En með
góðum vilja, má gera mikið á
skammri stund.
Sammáia um öil
meginatriði
Einhugur ríkti á fundum Kennedys og deGauIle
NTB—París, 2. júní. — í
fréttum frá París segir, aS
Kennedy Bandaríkjaforseti og
de Gaulle Frakklandsforseti
hafi*í viSræðum sínum um al-
þjóSamál, orSiS aS mestu sam
mála um öll helztu atriSi varS
andi lausn þeirra. Ræddu þeir
mest um BerlínarvandamáliS
og lýstu yfir því, aS engar
hótanir um valdbeitingu
myndu knýja vesturveldin til
þess að láta hlut sinn í Vest-
ur-Berlín.
Á blaðamannafundi í dag sagði
Kennedy, að viðræðurnar við de
Gauile yrðu sér gott veganesti
fyrir væntanlega ferð til Vínar-
borgar á fund Krútsjoff, forsætis-
I ráðherra Sovétríkjanna.
Margt borið á góma
Viðræður þeirra forsetanna
hafa verið mjög vinsamlegar, og
báðir hafa þeir látið í ljós þá
j skoðun sína, að slík persónuleg
J kynni þjóðhöfðingja séu mjög
; mikilsverð, til þess að samstaða
fáist mejðal þjóða. Mikill hluti við
ræðna þeirra hefur fjallað um
það, hvernig þessi tvö lönd, Frakk
land og Bandaríkin, eigi að haga
afstöðu sinni gagnvart Sovétríkj-
unum .og öðrum kommúnistaríkj
um, og hverja aðstoð þau eigi að
veita ríkjum Suður-Ameríku, sem
eru skammt á veg komin.
Spurður í þaula
Blaðamenn lögðu mikinn fjölda
spurninga fyrir Kennedy forseta
á fundinum í dag, og gaf hann
greið svör við þeim. Kennedy
sagði meðal annars, að viðræður
hans og Krútsjoffs myndu vænt-
anlega Itjiða í ljós, hvort vænta
mætti raunhæfrar niðurstöðu af
viðræðunum í Genf um Laos og
bann við tilraunum með kjarn-
orkuvopn. En fyrst af öllu verður
að koma í veg fyrir að ný Kóreur
styrjöld brjótist út, sagði forset-
inn.
Sagðist Kennedy vona, ag við-
ræðurnar í Evínan um frið í Alsír
og framtíðaraðstöðu landsins,
mættu fá farsælan enda, sem báð
ir aðilar gætu við unað. Sagði for
setinn og, að rætt hefði verið um
Frakka með kjamorkuvopn, og
afstöðu Rússa til þeirra tilrauna.
Sættir í þjóð-
leikhúsdeil-
nnm
Fullar sættir hafa tekizt í
ballettmeistaradeilunni í þjóð-
leikhúsinu. Ballettmeistarinn,
Veit Bethke, féll frá málshöfð-
un út af frávikningunni, en
hins vegar mun þjóðleikhúsið
hafa greitt lionum það kaup,
sem í upphafi var samið um.
Fóru þeir báðir utan í gær-
morgun, ballettmeistarinn og
þjóðleikhússtjóri, sem er á leið
á þing leikhúsmanna í Vín og
mun síðán fara til Tékkósló-
vakíu í boði menntamálaráðu-
neytisins þar.
Konungur fer til Reyk-
holts — kveður í kvöld
Hinni opinberu heimsókn
Noregskonungs lauk í gær
með veizlu konungs um borð
í skipi sínu, og síðasti dvalar-
dagur hans hér á landi er í
dag. Fer hann þá að eigin ósk
í heimsókn að Reykholfi f
Borgarfirði, en þangað kom
hann áður árið 1947, er hann
kom, þá krónprins Norð-
manna, og afhenti íslending-
um að gjöf styttu Snorra
Sturlusonar. Verður í þeirri
ferð snætt að Bifröst í Borg-
arfirði og reynt við lax við
Laxfoss í Norðurá. Um kvöldið
kveður konungurinn forset-
ann og aðra íslenzka embætt-
ismenn um borð í Norge á
Reykjavíkurhöfn, en síðan
halda norsku skipin til hafs.
Klukkan fjórðung gengin í níu
árdegis í dag fara nokkrir íslenzk
ir gestir Noregskonungs frá Lofts-
bryggju um borð í Norge, og sigla
þeir með honum inn 1 Hvalfjörð,
þar sem lagzt verður að bryggju
í Hvalstöðinni um klukkan hálf-
ellefu. Þar tekur sýslumaður
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, Þor-
steinn Grímsson, á móti hefðar-
gestum og ekur síðan með um
byggðir. Verður farið um Leirár-
sveit fr'amhjá Hvítárvöllum og um
Bæjarsveit framhjá Hesti til Reyk
holts. Þar verður staðið við fyrstu
flukfcustundina eftir hádegið.
Rennt fyrir lax
Ekið verður síðan rakleiðis í
Bifröst og gert tveggja klukku-
stunda ferðahlé til miðdegisverð-
ar. Þaðan liggur leiðin að Laxfossi
og verður þar freiðstað fiski-
heppninnar. Ekki er þó vitað til
þess, að konungur Norðmanna
hafi dálæti á þeirri íþrótt að
draga fiska úr ám. Menn frá
Stangaveiðifél. Reykjavíkur taka
iþarna á móti konungi, og munu
þeir hafa athugað fyrirfram, hvort
laxinn verður fyrir hendi, hvar
og með hvaða brögðum hann
verði helzt ginntur. Þarna er gert
ráð fyrir tveggja stunda viðdvöl,
en síðan haldið til Reykjavíkur.
Norge kemur á ytri höfnina á
seinni tímanum í níu í kvöld, og
kveður Ólafur konungur fimmti
gesti sína um borð í skipinu, áður
en hann siglir frá landi.
Flokksstarfiö í bænum
Happdrætti F.U.F.
F.U.F.-félagar. ASeins 8 dagar effir þar til dreglð verður í happdrætt-
Inu.
Leggið greiðslu inn á hlaupareikning félagsins í Samvinnusparl-
sjóðnum, hann er opinn daglega kl. 10—12,30, 14—16 og18—19.
Elnnig verður skrifstofa félagsins opin daglega í Framsóknar-
húsinu kl. 17,30—19.
Skyndisöfnun Fuíltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykjavík.
Þar sem vitað er um fjölmarga aðila, sem taka vilja þátt 1 söfn-
uninni, en af ýmsum orsökum ekki getað komið því við ennþá, verð-
ur söfnuninni haldið áfram fram yfir miðjan júní.
Skrifstofa fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna.