Tíminn - 03.06.1961, Síða 3
»
Norskur konungur á Þing-
völlum í fyrsta skipti
FRÁSÖGN:
Davíð Erlingsson
LJÓSMYNDIR:
Guðjón Einarsson
Merkisatburður í sögu
Islands og Þingvalla
Á þriðja og síðasfa degi
hinnar opinberu heimsóknar
sinnar hjá íslendingum í gær
fór Ólafur fimmti Noregskon-
ungur í árdegisheimsókn til
Þingvalla. Svo mjög sem
norskir konungar og norskf
vald hafa komið við sögu
lrðs á hólkolli uppi í melbrekk-
unum, spölkorn fyrir ofan veginn.
Vegurinn var góður, sem vænta
mátti. Á tveimur stöðum á leið-
inni voru merki verkfallsins aug-
ljós. Bílar og tæki vegagerðarinn-
ar stóðu í röðum við veginn, fán-
ar blöktu þar til heiðurs konung-
inum, en fátt manna var þar.
þessa helgasta minjastaðar ís-
lenzku þjóðarinnar, sem skip-
ar einstæðan sess í sögu lýð-
ræðisins, var þetta þó í fyrsta
skipti, sem norskur konungur
hefur komið til Þingvalla. Var
því dagurinn í gær mikill
merkisdagur í sögu staðarins.
Konungurinn og forsetinn og
fylgdarlið konungs kom í Al-
mannagjá um klukkan hálf tíu
árdegis með stæðilega bifhjóla-
menn á undan og eftir bifreið
höfðingjanna í fararbroddi lestar
svartgljáandi farkosta. Voru þeir
kaldir af blæstri, enda var hratt
farið og ekki hlýtt í veðri. Það var
skýjað árdegis, og aðeins sólskins
blettir hér og hvar, tindar fjall-
ana huldir sjónum. Á leiðinni aust
ur til Þingvalla, þar sem vegur-
inn um Mosfellssveitina greinist
frá, stóð lögregluþjónn einn síns
KONUNGUR ÁHUGASAMUR
í Almannagjá stanzaði konung-
j urinn við Lögberg, og tók þar Em-
jil Jónsson, félmráðh., form. Þing-
j vallanefndar, og fleiri nefndar-
' manna á móti honum að ógleymd-
, um séra Eiríki J. Eiríkssyni þjóð-
'garðsverði. Dr. Kristján Eldjárn,
þjóðminjavörður flutti á Lögbergi
1 erindi um stað þann og Þingvelli
! alla fyrir konunginn. Talaði hann
1 einkum um sögu staðarins, en drap
einnig á náttúrufar Þingvalla og
þýðingu þeirra fyrir íslendinga
fyrr og nú. Meðan þessu fór fram,
hvíldi yfir skuggi af skýi, og kald-
ur gustur lék um gestina. Sól-
skinsblettur var í hlíð Ármanns-
fells, en Skjaldbreiður var að
mestu hulinn skýjaþykkni. Kon-
ungurinn, sem í stað einkennisbún
ins fyrri heimsóknardaganna var
nú klæddur gráum, teinóttum
borgaraklæðum, sýndi mikinn á-
huga fyrir Þingvöllum og spurði
margs, en íslenzkir fylgdarmenn
Konungur í forsetabifreiðinni á leiS niður Almannagjá.Lögreguþiónar á bifhjólum aka á undan og eftir, en á
eftir fer konungsfylgdin.
leystu úr. Fylgdarlið konungs var
með í förinni austur að undan-
skildum Halvard Lange, utanríkis
ráðherra.
HRESSING í RÁÐHERRA
BÚSTAÐ
Frá Lögbergi var gengið niður
á vellina og í ráðherrabústaðinn
sunnan Valhallar, þar sem fram
var borin hressing. Var eftir það
(Framhald á 13. slöu
☆
Ráðherrar og forsetar al-
þingis ganga niður bryggj-
una á ieið til veizlu í kon
ungsskipinu í gærkvöldi.
☆
A tvídálka myndinni til vinstri handar sést Ólafur konungur, ásamt forsetanum og Emil Jónssyni félagsmálaráð-
herra og formanni Þingvalianefndar, við útsýnisskífuna á barmi Almannagjár. Myndin hér að ofan sýnir forset-
ann á ieið út í konungsskipið í gærkvöldi. Sióliðar standa í röðum meðfram borðstokk norska tundurspllllslns
og heilsa forsetanum með lúðrablæstri.