Tíminn - 03.06.1961, Qupperneq 11
Gagarín skrifar minn-
insar sínar í Pravda
En til þessa hefur ævisaga Krúst-
joffs hvergi verið birt
— Fjöfskyldan, sem ég er
kominn út af, er mjög venju-
leg fjölskylda, sem ekki skil-
ur sig aö neinu leyti frá öðr-
um verkamannaf jölskyldum
í okkar sósíalistíska föður-
landi.
ic Þannig byrjar hinn 27 ára
gamli rússneski geimfari, Juri
Gagarín er fæddur 9. marz 1934 í
smábæ skammt frá Smolensk.
ir Líf þeirra, sem á samyrkju-
búinu unnu, var rólegt og
áhyggjulaust. f fjölskyldulífinu
var það Gagarín pabbi, sem öllu
réði. Hann ól upp bömin sín fjög-
ur, Juri, Valentin, Boris og
Somju (dóttir) og gerði það á
strangan, en föðurlegan hátt,
kenndi þeim aga, virðingu fyrir
hinum eldri og ást á vinnunni.
it 1951 flutti Gagarín til Sara-
tow og tók að nema verkfræði.
Uppáhaldsgreinar hans voru
stærðfræði og eðlisfræði, og í
frístundum sínum lék hann
körfubolta. Námsstyrkur hans,
50 rúblur, leyfði honum ekki að
fara oft í leikhús eða kvikmynda-
hús, en í staðinn las hann mikið
af bókum. Mest mat hann bókina
Stríð og friður eftir Tolstoj, en
þar að aulci las hann bækur eftir
Victor Hugo, Char'les Dickens,
Jules Verne, H. G. Wells og
Conan Doyle. Hann var einnig
mjög hrifinn af bók eftir ensk-
pólska höfundinn Liliane Vonich,
sem heitir á ensku The Gadfly.
Bók þessi er nær óþekkt á Vest-
urlöndum, en hefur náð óhemju
sölu og vinsældum í Sovétríkjun-
um allt frá árinu 1917.
ic Gagarín stóðst verkfræði-
prófið með miklum sóma, og hóf
þá strax að læra fluglistina, sem
hann stóðst einnig með mikilli
piýði. Um leið beið hans staða í
rússneska flughemum, og hann
tók henni fegins hendi. — Því
mér hefur alltaf getizt vel að her-
aganum og einkennisbúningi
hersins, auk þess sem ég vil verja
land mitt.
it 8. janúar 1956 vann hann
hermannseið sinn. — Það er dag-
ur, sem ég mun ætíð minnast.
Með sverð í hendi, frammi fyrir
félögum sínum, þuldi hann eið-
inn hægt og skýrt: — Ég, borgari
í Sovétríkjunum ... Og eftir því,
sem hann sjálfur segir, starði
hann um leið sem heillaður á
mynd af Lenin á veggnum gegnt
sér.
★ Það er sagt liggja í augum
uppi, hvers vegna Gagarín fær að
skrifa ævisögu sína í stærsta mál-
gagn rússneska kommúnista-
flokksins. Hann fléttar sögu sína
stöðugum lofsöng til ríkisins,
flokksins og hersins. Ævisaga
hans á að færa Sovétborgaranum
heim sanninn um það, að í Rúss-
landi geti hver sveitadrengur orð-
ið frægur geimfari eða annað
hliðstætt, sé hann aðeins dugleg-
ur, undirgefinn, fórnfús og um-
fram allt, trúaður á línuna, sem
gefin er í Moskvu ...
Hefur lesið baekur Jules Verne
Ætlaði að Kitta
Jaqueline -
lenti í bilslysi og dó
Gagarín, sjálfsævisögu sína, sem
um þessar mundir kemur út sem
greinaflokkur í rússneska stór-
blaðinu Pravda.
★ Síðan „stutt æviágrip" Stal-
íns var birt, er þetta í fyrsta sinn,
sem Pravda birtir ævisögu rúss-
nesks borgara sem framhaldandi
greinaflokk.
★ Með birtingunni í Pravda
verður ævisögu Gagaríns dreift
í upplagi fimm milljón eintaka
um öll Sovétríkin. Þetta er mjög
mikill heiður, ekki hvað sízt,
þegar á það er litið, að fram að
þessu hefur ekki verið birtur
stafur af ævisögu sjálfs KRÚST-
JOFFS!
★ Eftir því, sem Gagarín segir,
unnu foréldrar hans við sam-
yrkjubú. Faðir hans var trésmið-
ur, en móðir hans byrjaði sem
mjaltastúlka, en vann sig upp í
það að verða yfirfjósameistari.
í sambandi viS heimsókn
Kennedys til Parísar varð
það slys í Frakklandi, að ung
stúlka beið bana og tveir
karlmenn slösuðust. Unga
stúlkan var frænka Jaqueline
og karlmennirnir voru faðir
hennar og blaðaljósmyndari.
Þau voru á leið til að taka á
móti forsetahjónunum en
bílstjórinn missti vald á bíln-
um á beygju með þeim af-
leiðingum, að hann rakst af
feikna afli á tré, sem stóð við
veginn. Fjórði maður var
með í bílnum, en hann slapp
svo að segja ómeiddur.
Unga stúlkan hét Daniele
Souquet-Bouvier, frænka Jaquel-
ine Kennedy. Hana hafði vikum
saman di'eymt mikla dagdrauma
um fund sinn við hið fræga
frændfólk, sem hún hafði aldrei
séð. Hún hafði sýnt vinum sínum
og venzlamönnum ýmsar smá-
gjafir, sem hún ætlaði að gefa
þeim forsetahjónunum, og hlakk-
aði afskaplega mikið til.
Buðu bílfar
Um síðustu helgi komu svo
franskur ljósmyndari og blaða-
maður heim til hennar í Pont St.
Esprit, þar sem Daniele átti
heima. Þeir voru að safna efni í
greinar um þennan meið Kenn-
edy ættarinnar. Þeir buðu Dani-
elu að verða samferða til Parísar,
og aðfaranótt mánudagsins lögðu
þau af stað. Faðir hennar var
með í ferðinni.
Missti vald á bílnum
Það var Olain Retsin, sem ók
bílnum, þegar slysið varð. Þar
sem þau voru öll spennt fyrir að
komast ems fljótt og hægt væri
til Parísar, var ekið mjög hratt.
Á beygju nærri Belleville sur
Saone missti Retsin allt í einu
vald á bílnum, sem sentist þvert
yfir veginn og skall af miklu afli
á vegartré. Aftasti hlutinn af
bílnum fór gersamlega í smátt.
Siapp með skrámur
Daniele dó um leið og árekst-
urinn varð. Pabbi hennar er enn
Litu vel eftir
John og Jackie
Sagt er, að sjaldan hafi verið
hafðar uppi eins miklar varúðar-
ráðstafanir í sambandi við heim-
sókn erlends þjóðhöfðingja til
Parísar, eins og þegar Kennedy
Bandaríkjaforseti kom þangað á
miðvikudagsmorguninn. Sem
dæmi má nefna það, að á undan
de Gaulle og fyigdarliði hans,
sem tók á móti hjónunum á flug-
vellinum og flutti þau til borgar-!
innar, óku fimm götusópar. Þeir
áttu að sjá um, að göturnar væru
hreinar, ekki einasta af bréfa-
milli heims og helju. Ljósmynd-
arinn liggur í dái. En blaðamað-,
urinn er svo að segja ómeiddur,
slapp með hræðsluna og nokkrar
smáskrámur.
Lögreglan beið
Afgangurinn af fjölskyldu Dan-
ielu fór frá St. Esprit til Parísar
með járnbrautarlest. Þegar þang-
að kom, beið lögreglan eftir
henni á járnbrautarstöðinni til
þess að tilkynna um slysið, og
bandaríska sendiráðið flutti for-
setahjónunum hina dapurlegu
fregn.
Daniele var aðeins 18 ára
gömul.
rusli, heldur einnig og ekki síður
áttu þeir að tryggja það, að ekk-
ert „hættulegt“ leyndist á götun
um.
Að öðru leyti var 10 þús.
manna öryggislið að starfi.
Slökkviliðið lagði til hóp af
mönnum, sem stóðu vörð uppi á
húsum með fram þeirri leið, sem
farin var. Hver maður var með
lítið senditæki á sér, til þess að
hægt væri þegar í stað að til-
kynna um grunsamlega hreyf-
ingu í mannfjöldanum, vörður
var settur við allar leiðir til
þeirra gatna, sem farið var um,
og meðal fólksfjöldans sem á
horfði voru um 1000 leynilög-
reglumenn!
Og Parísarlögreglan valdi f jóra
herðabreiðustu og mannborleg-
ustu Ieynilögreglumennina, sem
í þjónustu hennar eru, til þess
að fylgjast með ferðum frú Jaq-
ueline, meðan á heimsókninni
stóð. Lögreglan vildi ekki láta
nafna þeirra getið, en gaf þó þær
upplýsingar, að það sén sömu
mennirnir og gættu frú Mamie
Eisenhower og Fabiolu Belga-
drottningu, þegar þær heimsóttu
París. Enn fremur er það skýrt
tekið fram, að allir þessir lög-
reglumenn séu harðgiftir!
ll.síðan