Tíminn - 09.06.1961, Page 6
T í MINN, föstudaginn 9. JáiPl96tf
IVIimiÍBigarorð:
Jón
prentari
Jón Árnason, prentari er til
grafar borinn í dag. Hann andað-
ist að morgni 5. júní, á áttugasta
og sjötta afmælisdegi sínum, eftir
um það bil hálfs annars árs sjúk
dómslegu. Með honum er horfmn
hér af sjónarsviði stakur óg merki
legur persónuleiki.
Jón Árnason var þjóðkunnur
maður fyrir fjjagsmálastörf sín í
prentarastétt og fyrir störf sín í
þágu bindindismála, m.a. sem
fræðslustjóri unglingadeildar Góð'
templarareglunnar í áratugi hér
fyrr á árum, ritstjóri Templars
um árabil og umboðsmaður al-
þjóðahátemplars um áratugi.
Jón Árnason var ýmislega braut
ryðjandi í túlkun og kynningu
siðaspeki og dulfræða. Hann var
um langt skeið einn af aðaltúlk-
endum og fræðurum guðspeki-
nema hérlendis. Hann stofnsetti
og flutti hér fil lands Reglu Co-
Frímúrara fyrir 40 árum og var
lengst af aðalstjórnandi hennar
hérlenáis. Hann flutti og inn og
stofnsetti hér fyrir 12 árum Reglu
musterisriddara og var stjómandi
henwar um skeið. Hann hafði um
langan aldur numið táknfræði og
talna- og stjörnuspeki. Mun hann
hafa verið öllum hérlendum mönn
um fróðari í þeim efnum. Fyrir
þátttöku sína og lærdóm i siða-
frœðum og dulspeki var hann
þekktur og virtur meðal erlendra
fræðara í þeim greinum.
Þegar Jón Árnason varð átt-
ræðúr, var gefið út afmælisrit
um hann. Þar er að finna ævi-
ágrip hans og ýmsar umsagnir
íslenzkra og erlendra manna, á-
samt góðu sýnishorni af ritgerð-'
um hans um margvísleg efni.
Verður vísað hér til þess, án þess
að fara nánar út í störf hans og
æviferil.
Jón Árnason verður ógleyman-
legur þeim er þekktu hann og
nutu hlutdeildar í fræðslu hans
í persónulegri viðkynningu og
samræðum. Þar birtist hugvit,
stutt af skarpskyggni og innsærri
mælsku, sem er næsta fátíð. Mað
urinn var um allt athyglisverð-
ur. Hann var stór vexti, karl-
mannlegur og einai'ður og í svipn-
um bjó andleg reisn. Hann var
fálátur við fyrstu kynni, hispurs
laus og beinskeyttur í svörum og
enginn viðhlæjandi manna, án
tilefnis. Sumir héldu hann vera
allan upp í skýjunum og lítt við-
mælandi um almenna og áþreifan-
lega hluti. Það var mikill misskiln
ingur, en næsta algengur gagn-!
vart þeim er ekki fara alfaraleið
ir. Hann var hvort tveggja, raun-;
sær og rökvís, langt um aðra
menn fram, þegar rætt var um
þá hluti er mældir verða og vegn
son
ir á metaskálar okkar takmörk-
uðu þekkingar. En honum var
tamt að líta hátt. Hugur hans
sveif ofar öllum vetrarbrautuim
og á því hugarflugi var á fárra
færi að fylgja honum. Hann hlust
aði eftir samræminu í söng hnatt
anna, en þvíumlíka heyrn hafa
aðeins drottins útvaldir, og hann
komst í snertingu við samhljóma
alheimsins með þeim hætti sem
fáum er gefið. Hann dáði alheims
orku þá sem öllu stjórnar, eftir
vissum óf: ivíkjanlegum lögmál-
um, og lífstrú hans var björt og
sterk og einlæg. Hann leit á það
sem æðstu skyldu hvers einstakl-,
ings að grafa ekki það pund í ■
jörðu er honum var fengið til á-[
vöxtunar, heldur temja sig með.
raunsærri sjálfsögun, sjálfum sérl
til framhaldandi þroska og bless j
unar. Hann vildi hjálpa til að
þroska hvern einstakling til þeirr
ar áttar, að hann léti samfélags-
kenndina, bræðralagið og rétt-
lætið verða hið ríkjandi afl í
breytni sinni og athöfn, samfélag
inu til vaxtar og viðgangs í fram
þróun til siðrænni lifnaðarhátta
og fagurra mannlífs. — Hann var
í ætt við spámenn og mannkyns
fræðara, með þeim orðum verð-j
ur honum bezt lýst.
Ég vil enda þessa ófullkomnu
kveðju mína með því að tilfæra
hér að lokum orð hans sjálfs, er
hann mælti við mig eitt sinn:
„Að vinna ekki eftir sínum tak-
markaða skilningi og beztu getu
að úrlausn sérhvers máls er
að bregðast lífinu og svíkja sjálf-
an sig. — Það er ekki hægt að
skipta við lífið, alheimsorkuna,
guðdóminn, eins og prangara. Það
hittir mann alltaf aftur, ef maður
svíkst um. Guð skilar alltaf rétt-
um reikningi, þar hallast ekki á
. . . . að lokum.“
Indriði Indriðason
Eg tek mér penna í hönd til
þess að bera blak af einu góðu,
litlu, íslenzku orði, sem hefur
mætt mjög ósanngjarnri meðferð.
Þetta orð er sögnin að forða.
Ekki er langt síðan að margir
þeirra, sem rita blöð og tala í út-
varp, tóku upp á því að svipta
þetta orð sinni fornu merkingu
og láta það tákna þveröfugt hug-
tak.
Hvort þetta var gert með ákveðn
um samtökum eða, sem líklegra
er, að hver át eftir öðrum vitleys-
una, skal ég láta ósagt. Nokkrar
tilvitnanir kem ég með máli mínu
til sönnunar: Hann forðaði Skúla
fári undan þungu. — Ekki verður
feigum forðað. — Forðaðu þér,
ef þú vilt lífi halda. — Þarna
merkir orðið svipað og að bjarga.
Mér finnst munurinn aðeins sá að
bjarga sé jákvæðara, hitt orðið!
hafi neikvæðari, flóttalegri svip. |
Ekki alls fyrir löngu tóku að
dynja á fólki setningar eins og
þessar: Slysinu varð ekki forðað.
— Bílstjórinn gat með naumind-
um forðað árekstri. — f það sinn
tókst að forða styrjöld. Og nú, á
þessum síðustu og verstu tímum,
eru hvað eftir annað látnar í Ijós
óskir um, „að forða verkföllum".
(Vísir.)
Mér finnst vægast sagt lítil á-
stæða til þess að forða svo við-
sjárverðum hlutum sem slysum og
styrjöldum. Enda er þetta orð
notað í stað margra ágætra orða
og orðatiltækja, sem fákunnandi
ritskussar hafa ekki þekkt. Þetta
minnir á skólapiltinn, sem þýddi:
Hver á þessa bók? — Hot spring
river this book.
Að varna árekstri. — Að koma
í veg fyrir slys. — Að'komast hjá
styrjöld. — Að sporna við verk-
föllum. Þessi orðatiltæki hafa dá-
lítinn blæbrigðamun. Það er próf-
steinn á góða kunnáttu í hverju
tungumáli að geta látið blæbrigði
þess njóta sín réttilega. En sá
maður er hins vegar ekki sendi-
bréfsfær á neina tungu, sem snýr
algerlega við mer’kingu algengra
orða, eins og þess, sem hér um
ræðir.
Fáein orð
um eitt orð
ísl'enzkan er blæbrigðarík og við
kvæm. Stundum jaðra merkingar
orða hver við aðra, t.d. að forðast
og að varast.
Varastu þeim að veita styggð —.
Varastu spjátur, hæðni og
hlátur —,
segir séra Hallgrímur.
Mér skilst að forðast tákni
hreyfingu, flótta frá einhverju. Að
varast frekar íhugun, aðgæzlu,
varkárni.
Til þess eru vítin að varast þau.
— Þess vegna hefði ég heldur kos
ið að á þeim góðu viðvörunar'-
spjöldum á vegum úti stæði: Var-
izt slysin! en ekki: Forðizt slysin!
Þó hafa þeir, sem gerðu spjöld
þessi úr garði, vafalaust þekkt
forna merkingu orðsins slys, að
það er atburður eins og drukknun
köfnun. En ekki skilið það eins
og þeir góðu menn, sem sömdu
auglýsinguna frægu á slysavarð-
stofunni: „Tekið á móti slysum“.
Eins og þær ólánssömu verur,
sem þar þyrftu að leita athvarfs,
nefndust slys en ekki menn.
Sumum finnst ef til vill smá-
munasemi að gera veður út af
vafasamri notkun eins ,orðs. En
málið er nú einu sinni byggt upp
af einstökum orðum og slíkar mál
breytingar, sem ekki stafa af
neinni nauðsyn, heldur eingöngu!
af leti og' draslarahætti, eiga alla
fordæmingu skilið. íslenzkan er
rökvisst og tært mál, skapað og
iðkað af mönnum með heiðríka
hugsun og ríka ímyndun. Hún
getur því verið vopna hvössust í
viðureign orða og hljóðfæra þíð-|
ast í ljóði. Nú á tímum eru afdrif.
hennar að miklu leyti í höndum
útvarps- og blaðamanna. Því hvíl-l
ir þeim mikil ábyrgð á herðum
gagnvart tungu sinni. Allt of oft
sjást í blöðunum fáránlegar setn-
ingaflækjur, sem eru líkar því,
sem þær væru hugsaðar á illri
amerísku. Sumir blaðamenn virð-
ast ætla að gerast „alþýðlegir“
með því að rita frásagnir af
drottningum, leikurum og glæpa-
mönnum, sem sagt því, sem þeim
finnst girnilegast lestrarefni, á
grófu, klaufalegu gæjamáli, sem
þeim finnst líklega vera mál „al-
þýðunnar". En íslenzk alþýða er
ekki heimsk. Hún kynni áreiðan-
lega að meta kurteisa og listfenga
frásögn, jafnvel þótt efnið væri
hjónabönd Brigitte Bardot eða
barnshöfn Margrétar Engla-
prinsessu. Blaðamenn afsaka oft
lélegt orðfæri sitt með því að þeir
þurfi að hraða sér svo mikið að
þeir geti ekki „forðað villunum".
En það er ekki fljótlegra að skrifa
vitleysur heldur en hitt, sem
skárra er, ef maður hefur móður-
mál sitt á. takteinum. Ég er sízt
fljótari að prjóna sokk allan með
lykkjuföllum og gúlum út úr hér
og þar, heldur en vel gerðan, ef
ég kann að prjóna. Til þess að
stunda sæmilega ritmennsku hvað
málfar snertir, þarf auðvitað
nokkra hæfileika. Einnig þurfa
menn að hafa nokkurt vald á máli
sínu, smekkvísi til að finna það,
sem er ábótavant og löngun til að
bæta það. Úrræðið er lestur og
aftur lestur góðra íslenzkra bóka
frá öllum tímum, þar til málið er
runnið mönnum í merg og bein.
Þá er sá tími kominn, þegar menn
eiga að gerast blaðamenn og rit-
stjórar.
Þórunn Guðmundsdóttir.
MODEL 600
Allir spyrja um þetta nýja
slankbelti. Hvers vegna?
Model 600 sameinar alla
kosti góðs slankbeltis. Það
nær vel upp fyrir mittið.
í því eru fjórir teinar, sem
halda vel að, svo vöxturinn
verður mjúkur og spengi-
legur.
Framleitt bæði krækt á
hliðinni og heil. Fyrsta
flokks efni. Fyrsta flokks
vinna - Stærðir: Medium-
Large — Extra Large.
Biðjið um Model 600 og
þér fáið það bezta sem völ
er á
Fæst í flestum vefnaðar-
vöruverzlunum um Iand
allt.
LADY H.F.
lífstykkjaverksmiðja, Barmahlíð 56, sími 12-8-41.
N •V.X*
-•■V'V»V*V
Drengur óskust
á 11. ári óskar eftir sveita-
vinnu.
✓
Uppl. í síma 18487.
Ung barnlaus hjón vantar
2 herbergja íbúð með haust
inu. Algjör reglusemi.
Tilboð sendist blaðinu
merkt 314 fyrir þriðjudags-
kvöld.