Tíminn - 26.08.1961, Page 2

Tíminn - 26.08.1961, Page 2
T í MIN N, laugardaginn 26. ágúst 1961. ................................■.............................•.......................................................................................................................................................................................■....................................................................................................................................................................................................................................................................................................■■•■■■■■■•'"•■■■■.......................................................................................................................................... I KATANGA AFVOPNAD NTB—ELISABETHVILLE, 25. ág. — Hersveitir sameinuðu þjó'ð- anna hófu í dag aðgerðir að af- vopna gervalian her Katanga, 13 þúsur.d menn. Fyrr um daginn sagði Kimba, utanríkisráðherra Katangastjórnarinnar, að ef S.þ. reyndu að afvopna herinn, myndi Katanga gera allt, sem við þyrfti til varnar. Við slíkar aðstæður hefð'i Kat- anga rétt til sjálfsvarnar og liti, þá á hersveitir S.þ. sem innrásar-' lið. Stjórnin myndi þá biðja fólkið | Gengur illa hirðingín Nýi og gamli flugturninn á Reykiavíkurflugvelli. Nýi flugturninn (Framhald ai 1. síðu.) tals 1850 ferm. og kostnaðarverð hússins er 9,1 milljón krónur. Teikningar að húsinu gerðu þeir Gísli Halldórsson, Jósef Reynir og Ólafur Júlíusson. Húsinu er enn ekki íulllokið, en von er tíl -f-f ^ ÍU..... .;<« þá að koma þeim fyrir. Flugturninn hefur verið alllengi í smíðum, en það var fyrir til- stilli Eysteins Jönssonar, þáver- andi flugmálaráðherra, að hafizt var handa um byggingu hans. Bygging nýs stjórnturnar mátti ekki dragast lengur úr hömlu. Flugumferðarstjórnm á Norður- Atlantshafi var til húsa í gamla flugturninum, sem brezka setu- liðið reisti til bráðabirgða og er þröngur, íangt oí lítill og lekur að auki. Má telja mildi, að aldrei skyldi henda óhapp vegna þess- ara óhagstæðu vinnuskilyrða flug- umferðarstjórnarinnar á Norður- Atlantshafssvæðinu. Tækin í nýja fiugturninn, sem kosta tugmillj- ónir króna, hafa Bandaríkin lán-1 að til 15 ára, og taldi flugmála- stjóri það nánast gjöf. Þá minnti flugmálastjóri á það, að um leið og þetta nýja og glæsi- lega hús væri tekið til notkunar, væri jafnframt minnzt þrefalds 25 ára afmælis, þ.e. Svifflugfélags ís lands, Flugmálafélags íslands og 25 ár eru síðan stofnað var em- bætti flugmálaráðunauts, en við því embætti tók Agnar Kofoed Hansen 6. ágúst 1936. Agnar Koefod-Hansen flugmálastjóri í ræðustóli, að lokið verði við stjórnturninn sjálfan fyrir áramót. í kjallara hússins er vararafstöð, símakerfi, stillitæki og geymsla. Á 1. hæð verður veðurspárdeild Veðurstofunnar til húsa. Á 2. hæð verður almenn skrifstofa flugmála stjórnarinnar. Á 3. hæð verður loftferðaeftirlitið og skrifstofa flugvallarstjóra. Á 4. hæð verða skrifstofur og fundaherbergi flug- ráðs og skrifstofa flugmálastjóra. Á 5. hæð verður radíóverkstæði og tæki ýmis konar. Á 6. hæð verð uj flugumferðarstjórnin á Norð- ur-Atlantshafi og þar fyrir ofan verða radartæki og ýmis stjórn- tæki önnur, en ekki lokið við enn Smátelpa fyrir bíl á Húsavík Akureyri, 25. ágúst. Það slys varð á Húsavík í gærdag, að tveggja og hálfs árs telpa varð fyrir bíl og slasaðist. Var fengin sjúkraflugvél frá Akureyri til að flytja hana á fjórðungssjúkrahúsið. Reyndist hún vera viðbeinsbrotin og var með allmikinn hita í dag, en talið' er að hún hafi ekki skadd- azt að öðru leyti. Telpan heitir Pálína Hinriksdóttir og er dótt- urdóttir Karls Kristjánssonar alþingismanns. ED. Síldveiðum aö Ijúka Engin veiði í gær Siglufirði, 24. ágúst. — Eng in veiði var I dag á Kolku- grunni og síidar leitin telur litlar líkur til að úr rætist með nóttinni. Veður er annars gott á miðunum, en skipin eru orðin fá og dreifð. Flestir bát- ar eru nú að búa sig undir heimferð. Fyrir austan !and er nú engin síldveiði. Til Siglu fjarðar komu í dag fimm skip með samtals 984 mál og tii Skagastrandar komu sjö skip með samtals 1300 mál. I.K. Faldi veskið í salerniskassa Ungur maður stal á miðvikudags kvöld peningaveski og tékkhefti úr jakkavasa og buddu úr kvenveski í verzlun einni í bænum. Hafði hann fengið leyfi til að hringja úr afherbergi í verzluninni og notað tækifærið til þjófnaðarins. Lögreglan náði manninum á veitingastofu sama kvöld, en þá var maðurinn farinn að gefa út ávísanir í stórum stíl. Lögreglan fann veskið ofan í vatnskassa sal- ernis veitingastofunnar. I Egilsstöðum, 23. ágúst. Mjög illa hefur gengið með hey- skapinn hér eystra í sumar, en nú eru menn að gerast heldur bjatí- sýnni á þau mál. Undanfarna 10 daga hefur verið sæmilegur þurrk- ur, að vísu sums staðar smáskúrir, en bjart og fallegt veður og 15 stiga hiti í skugga. Veðurútlit er gott og vonast bændur eftir nokk- urra daga þurrki. Korn lítur vel út og horfur eru á góðri uppskeru, ef þurrt og hlýtt veður héídist nú í hálfan mánuð, en að honum liðnum er kominn tími til þess að slá akrana. Unnið er að byggingu kornþurrk unarstöðvarinnar, og mun hún sennilega geta tekið við korni til þurrkunar um miðjan september. Ýmsar aðrar byggingar eru í smiðum í héraðinu, m. a. skóla- húsið á Eiðum og nýtt prestseturs- hús á sama stað. Eldur út un dyr og glugga að verja hendur sínar, sagði Kimba. Hann sagði enn fremur, að Katanga hefði ekkert á móti því, að vera í efnahagslegri samsteypu með öðrum hlutum Kongó, en ekki stjórnmálalegri heild. Lagði hann því til, að settur.yrði upp sameiginlegur markaður í Kongó í líkingu við það, sem gert hefði verið í Evrópu. Hann veittist að S.þ., sem kúguðu hinn smáa, en smjöðruðu fyrir hinum máttuga. Her S.þ. í Katanga er 11 þúsund manns; Indverjar, írar og Svíar. Þeir munu fyrst taka að sér stjórn yfir öllum tilflutningum Katanga- liðsins, áð'ur en þeir hefja sjálfa afvopnunina. Nýjar snurður NTB-Genfy 25. ágúst. Nýjar snurður hlupu í dag á þráðinn á 14-ríkja ráðstefnunni um ^ Laos í Genf. Fram kom ágreining- i ur um þrjú mikilvæg atriði í sam- t bandi við alþjóðlegu eftirlitsnefnd ina, sem á að tryggja, að Laos sé I og verði hlutlaust rikí. Endaði með því, að stinga varð þessum ágreiningsatriðum undir stól, þar til síðar. Samkvæmt AFP-frétta- stofunni visuðu kommúnistar á bug mörgum uppkaststillögum vesturveldanna, þar sem með þeim væri verið að ganga á hlutléysið. Byrjað að æfa Strompleikinn l Snemma í gærmorgun kvikn- aði í íbúðarbragga við Kamp Knox 11 C. Eldsins varð vart klukkan tæp- lega fimm um morguninn og kom slökkviliðið strax á vettvang. Stóð þá eldur út um dyr og glugga í austurenda braggans. í þeim hluta bjó kona, Jóhanna Þorsteinsdóttir, og telpa, en þær björguðust báðar. Önnur íbúð er í vesturenda braggans, en hana tókst að verja. Hins vegar varð mikið tjón í aust- uríbúðinni og tók slökkviliðið þrjá stundarfjórðunga að vinna bug á eldinum. | Ekki er vitað um eldsupptök. Halldór Kiljan Laxness Síðast liðinn þriðjudag var byrj að að æfa hinn nýja sjónleik Kilj- ans, Strompleikinn, sem Þjóðleik- húsið sýnir í haust. Fyrsta sýning- in verður væntanlega 10. október, og verður Gunnar Eyjólfsson leik- stjóri. Borgarfjarðarsýsla Stj órnmálaf undur Framsóknarmenn í Borgarfjarðarsýslu halda almennan stjórn málafund að Brún í Bæjarsveit n. k. sunnudag og hefst hann kl. 3 e. h. Fmmmælendur á fundinum verða Þórarinn Þórarinsson alþm og þingmenn flokksins í Vesturlandskjördæmi. Jafnframt verður haldinn aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðar- sýslu. Héra'Ssmót kl. 9 Um kvöldið kl 9 hefst svo héraðsmót Framsóknarmanna og verður það einnig að Brún. Ræður flytja Þórarinn Þórarinsson og Daníel Ágústínusson. Arm Jónsson, óperusöngvari. syngur með undirleik Skúla Hall- dórssonar, tónskálds Ómar Ragnarsson fer með gamanvísur, og að lokum verður dansað.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.