Tíminn - 26.08.1961, Blaðsíða 16
Stofna samband
stúdenta erlendis
Námskostnaður fer síhækkandi
íslenzkir stúdentar, sem stunda
nám erlendis, hafa myndað' með
sér samtök, Samband íslenzkra
stúdenta erlendis, sem mun hafa
ýmsa fyrirgreiðslu fyrir námsfólk
og vera fulltrúi íslenzkra stúd-
enta erlendis gagnvart íslenzkum
og erlendum stjórnarvöldum. —
Stúdentasamtök sem þessi hafa
víða verið stofnuð erlendis og
vinna mikið starf í þágu náms-
manna.
Síðastliðið haust voru haldni.r í
Reykjavík tveir fjölmennir ftind-
ir stúdenta, þar sem ræddir voru
hinir stórauknu fjárhagslegu erfig
leikar námsfólks við' erlenda skóla
vegna gengislækkunarinnar, og
ráð til úrbóta. Var á fyrri fund-
iíium kosin þriggja manna nefnd
til að flytja menntamálaráðherra
fundarsamþykkt og ræða við hann
um vandamál st.údenta. Á síðari
fundinum voru svör hans birt.
Á fundum þessum var einnig
fjallað um hugsanlega stofnun
samtaka íslenzkra stúdenta eriend
is. Með' því mundi gréitt mjög fyr-
ir samskiptum stúdenta vig hið'
opinbera, t.d. í áðurnefndu máli.
Síðastliðinn vetur starfaði nefnd
st.údenta að undirbúningi stofn-
unar slíkra samtaka. Þau voru
síðan formlega stofnuð sunnudag-
inn 13. ágúst 1961.
S.í.s.e. er bandalag íslenzkra
stúdenta-félaga eða -hópa erlendis.
Senda félög þessi fulltrúa á full
trúaráð'sfund, sem fer með æðsta
vald í sambandinu. Fulltrúar
kjósa úr sínum hópi s.tjórn. Stjórn
in ræður sér siðan starfsmabn,
sem sér um framkvæmdir sam-
bandsins á fslandi í fjarveru
stjórnar.
Hlutverk sambandsins er að
gæta hagsmuna íslenzkra stúdenta
erlendis, efla samheldni þeirra í
milíum og kynna nýjum stúdenl-
um nám og kjör stúdenta erlend-
is. Sambandið mun hafa samvinnu
við önnur stúdentasamtök og þá
einkum við stúdentaráð Háskóla
fslands, svo og vi.ð eldri stúdenta,
sem hafa lokið námi erlendis. Full
trúar sambandsins munu greiða
fyrir stúdentum, sem koma til
náms á félagssvæði þeirra.
í stjórn S.í.s.e. eiga þessir menn
sæti: Benedikt Bogason formaður,
Ingi Fr. Axelsson ritari, Ketill
Ingólfsson, Gylfi Guðnason og Sig
urður St. Helgason meðstjórnend
ur.
Stjórnin telui' sitt fyrsta hlut-
verk að ná samkomulagi við hið
opinbera um hækkun lána og
styrkja U1 íslenzks námsfólks, en
hagur bess hefur versnað stórlega
við síðustu gengislækkanir. í
BardaríFjunum hftfur í ár náms-
kestnaður hækkað úr 70 þúsund-
um á ári í 80 þúsund, þótt ferðir
séu ekki reiknaðar, og í Dan-
roörku, sem er eitt ódýrasía Iand-
ið, hefur árlegur námskostnaður
Iiækkað úr 35 þúsundum í 40 þús.
Næsta fimmtudag verður hald-
inn aðalfundur sambandsins.
Bragakafíi kynnt á iðnstcfnunni á Akureyri.
Halldór Sigurðsson, húsvörður
Edduhússins í Reykjavík, hefur
fært þremur öryrkjafélögunum —
S.Í.B.S., Sjálfsbjörg, landssam-
bandi fatlaðra, og Blindrafélaginu
— 15.000 krónur, er skiptast skulu
jafnt á milli þeirra.
Gjöfin er gefin í tilefni 70 ára
afmælis Halldórs, sem er 29. ágúst.
— Gjöfin til S.Í.B.S. er gefin
minningu um Guðlaugu dóttur
hans, sem iézt lir berkláveiki fyrir
allmörgum árurn, og skal hún not-
uð til kaupa ó lækningatæki að
Reykjalundi.
Félögin biðja blaðið að færa
Halldóri kærar þakkir og afmælis-
óskir.
Ýmis konar klæðnaður frá Heklu á Akureyrl.
Ég er enginn komm-
ilnisti^ segir Jagan
Cheddi Jagan, sem trúlega
myndar stjórn í brezku Guiana,
einhvern næstu daga, hefur sagt,
að hann myndi fylgja hlutleysis-
stcfnu á svipaðan hátt og Ind-
land og Ghana.
Hann tók jafnframt skýrt fram
að flokkur sinn væri alls enginn
kommúnistaflokkur.
Á blaðamannafundi hóf Jagan
máls með því að segja, að hann
væri viss um að fá spurningar
um, hvort hann væri kommúnistij
Slíkum spurningum rnyndi hann
ekki svara. Hann sagðist búast
við, að brezka Guiana fengi sjálf-
stæði 31. maí næsta ár, um leið
og Vestur-Indíasambandið yrði ó-
háð. Þá.yrði líklega þjóðaratkvæða
greiðsla um, hvort Guiana skuli
ganga inn i það samband.
Jagan kvaðst gjarna vilja fá lán
við lágum vöxtum hjá Bandaríkj
unum. Landið hefði nú þörf fyrir
um 25 milljarða króna. Hann var
þá spurður, hvort hann myndi
taka lán hjá Sovétiíkjunum við
2% vöxtum, og kvaðst hann þá
þiggja lán 'njá hverjum þeim, sem
ekki léti nein sérstök skilyrði
fylgja.
NTB—Vejle 24. ágúst. — Foss
Madsen aðstoðarlæknir við sjúkra
húsið í Vejle í Danmörku gerði
fyrlr nokkrum dögum dramatísk-
an hjartauppskurð með vasahníf á
svölum einnar af efri hæðum bygg
ingarinnar. Rafvirkinn Vagn Duer
hafði verið þarna að störfum.
Hann fékk rafmagnshögg og hné
niður sem dáinn væri. Kallað
var á lækninn, sem notaði vasa-
hnífinn sinn til þess að komast.
að hjartanu nógu snemma, vildi
ekki draga aðgerðina andartak. í
dag var rafvirkinn talinn úr
hættu.
.-»sg imur Stefánssui , vc- him.cu-íjó. i I Heklu, selur LúSvi': GuSnasyni,
deildarstjóra hjá Kaupfélagi Árnesinga, varning á iðnstefnunni.
Kveðjustað-
ur gelmfara
i f ramf íðinui
NTB—Washington 24. ágúst. —
Bandaríska, borgaralega geimkönn
unarstjórnin, NASA, héfur til-
kynnt, að öilum mönnuðum geim-
skipum, sem beint væri til tungls-
ins, og öllum öðrum geimskipum
með menn um borð yrði í fram-
tíðinni skotið upp frá Canav'eral-
höfða á Flórída. Hefur geimkönn-
unarstjórmn fest kaup á miklu
landsvæði til viðbótar við það,
sem tilraunastöðin hefur nú, og
kostar það sem svarar um 30
milljörðum íslenzkra króna. -
Koparnálar
í geimnum
NTB—San Franisco, 25. ág.
Heill hópur af færustu sfjörnu
fræðingum heimsins hefur
einum rómi samþykkt álykt-
un, þar sem varað er við því,
að bandarískir rannsóknar-
menn framkvæmi áætlun sína
um að senda upp nokkra
gervihnetti, sem nota á til
hernaðarlegs f jarskiptasam-
bands.
Tilraunum þessum er ætlað að
fara fram í sambandi við hina
svokölluðu West-Ford-áætlun.
Hér er um að ræða strangleyni-
legar tilraunir, sem ganga út á
það að senda heil ský af kopar-
nálum á braut umhverfis jörðu.
Þessi ský á síðan að nota til þess
að endurvarpa mikro-bylgjumerkj-
um milli fjarlægra staða á jörð-
unni.
Hættulegar tilraunir
Fulltrúar á þingi alþjóðasam-
bands stjarnfræðinga, sem haldið
hafa fundi sina í háskólanum í
Berkeley, fara í ályktuninni fram
á að fá fullkcmnar upplýsingar um
West-Ford-áætlunina. Þeir fara um
leið fram á að tilraununum verði
frestað, þai til unnið hafi verið
úr nýjum upplýsingum varðandi
það, hvort slíkir hlutir geti haft
skaðleg áhrif á stjarnfræðileg rann
sóknarstörf í framtíðinni. í ann-
arri ályktun fordæma stjarnfræð-
ingarnir harðlesa hvers konar
eitrun andrúmsloftsins. í eitrun-
um sé fólgin hætta á því, að
; stjörnufræoiathuganir verði ófram
ikvæmanlegar.