Tíminn - 26.08.1961, Blaðsíða 11
TÍM I N N, laugardaginn 2S. ágúst 1961.
skemmtir á Reykjavíkurkynningunni
SVAVAR GESTS
Það var glatt á hjalla í Hagaskóla s.l. laug-
ardag. Hljómsveit Svavars Gests var þar með
stuttan skemmtiþátt, og var það einn liður-
inn í Reykjavíkurkynningunni.
Ljósmyndari Tímans var staddur þar og
tók meðfylgjandi myndir. Á mynd nr. 2 sér
yfir hálfan salinn, en gizkað var á, að þar
hefðu verið 12—15 hundruð manns. Á mynd
nr. 1 sést Reynir Jónasson hins vegar vera
að drekka úr pela, enda tók hann að sér
hlutverk hálfs árs strákpjakks í þessu atriði.
Á mynd nr. 3 sést hins vegar öll hljómsveit-
in (nema hvað píanóleikarinn er í feluleik)
og er hún að leika síðasta lagið á skemmt-
uninni.
Síðan færði hljómsveitin sig yfir að Meia-
skóla og lék þar um skeið fyrir dansi. Hljóm-
sveitarpallurinn var óvarinn fyrir veðri og
vindum og setti píanóleikarinn upp hanzka
þegar leið á dansleikinn, og eins og sjá má
á mynd nr. 5 þá er hann orðinn grár í gegn
af kulda. Á mynd nr. 4 eru tvær reykvískar
blómarósir að dansa, en þær voru meðal
þeirra mörgu hundruða, sem skemmtu sér
með hljómsveit Svavars Gests á Reykjavík-
urkynningunni s. 1. laugardág.