Tíminn - 26.08.1961, Blaðsíða 6

Tíminn - 26.08.1961, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, laugardaginn 26. ágúst 196. Það er 19. júlí, og til mín var kominn Guðm. Snæland. Eg spyr: — Hvernig gengur þér að láta þér batna í fótunum? Eins og kunnugt er, brotnaði hann á báðum fótum fyrir hálfu öðru ári. — Ja, mér líður sæmilega — ekki er það nú meira. — Þú ert aðeins haitur enn þá? — Já, það er ég á vinstri fæti. — Hvar ert þú núna? — Eg borða á Elliheim- ilinu í Keflavík, og mér líður þar mjög vel eftir ástæðum. Eg hef herbergi á Tjarnargötu 2. — Já einmitt. En þú ert ekki enn þá búinn að festa þér konu — eða ráðskonu? Guðmundur brosir — og tekur spurningunni eins og tii ,var ætlazt. — Nei, Jón minn — ekki enn þá. En það getur svo sem margt gerzt á þessum um- brotatímum. Eg vil ekki taka að mér konu, fyrr en ég get unnið fyrir henni. — Þú ert auðvitað sáttur við allt og alla, Guðmund ur? — Já, svo sannarlega. Það þykir mörgum vænt um mig — og mér sömuleiðis um1 marga. Fólkið finnst mér yfirleitt gott. Talað við Guðmund Snæland Jæja, Jón. Eg vil mega biðja þig, ef þú sendir þessar línur í blað, að flytja fyrir mig heilla- óskir til fermingarbarnanna, sem fermdust í vor í Keflavík. Eg óska þeim allra heilla — og vona, að þau verði foreldrum sínum til ánægju og gleði í framtíðinni. Enn fremur óska ég þess, —■ að allir gái vel að sér í umferðinni. Eg hef orðið fyrir óbætanlegu slysi, og þess vegna vil ég, á þess- um asatímum, að foreldrar og aðr- ir áminni börnin sín og gæti var- úðar. Hætturnar eru alls staðar og aðgæzlan ein getur hjálpað. Frá sjúkrahússveru minni í Keflavík þakka ég Jóni Jónssyni spítala- lækni fyrir frábæra vinsemd. Þá og drengnum litla, Borgari Jóns- syni, mikla vinsemd og þakka þá daga, er við vorum saman. Hjúkrunarfólki öllu þakka ég innilega- — þessa 12 mánuði, sem ég dvaldi á spítalanum. Sjómönnunum óska ég alls góðs í sínu erfiða og hættusama starfi. Eg lít á erfiðismanninn, sem lykil að velmegun og uppbyggingu alls þjóðlífsins. Bíldudalur er mér kær, kærar kveðjur til þess alls, sem þar gerist. Á ísafirði dvaldi ég frá 1927 til 1950, þaðan á ég ógleymanlegar minningar. Á Reykjalundi var ég fyrir nokkru, mér leið þar vel — í hug mínum býr hlýja og þakklæti til staðarins. Þetta er það helzta, sem ég vildi segja í dag. Bráðum verð ég albata. Lífið er að nokkru ófanð. Við skulum segja eins og skáldið: „Drjúgur verður síðasti áfanginn." Guðmundur lauk máli sínu. — Þú ert bjartsýnismaður, Guðmund- ur, segi ég að lokum. Og nú er það kaffið. — Já, já, ég held það, segir Guðmundur um leið og hann | sezt. Hún Hulda gleymir mér ekki, og ég gleymi henni ekki heldur, bætir hann við. — Manstu eftir því, Jón, þegar ég skrapp eftir kaffinu fyrir þig | úr Keflavik inn í Njarðvík um há- ;nótt, þegar þú varst á næturvakt á símstöðinni. Þá var ég nú ekki slæmur strákur. — Hvorl ég man. Jú, ég man eftir mörgu á þeim árum. Eins ! og geta má nærri. Rás viðburð- j anna og leiðir fólksins — ofar skilningi okkar og kannski er það bezt. Jón M. Bjarnason, I frá Skarði, ■ n<i.ii „i i .... .... . ... Til sölu I nokkrar góðar mjólkurkýr og ársgamlar kvígur, einnig Bamfords hjólmúgavél, hjá Guðjóni Högnasyni. Laxár- dal n, Gnúpverjahreppi. | VV.V.V.'VV.W.'V.V.VX.V.'v Sfúlka éskasf til afgreiðslustarfa í veit- ingasal. Upplýsingar í Hótel Tryggvaskála, Selfossi. 1 visýnt a þingi S.þ. NTB-New York, 23. ágúst. — Óvíst er um afstöðu Norðurtand-1; anna í máli þessu. Vitað er, að sendinefndir allra þe;rra hafa ósk-1 að eftir nánari fyrirmælum ríkis- stjórna sinna. Allsherjarþing S.Þ. hélt í dag áfram umræðunni um Bizerte-deil una, og var tillaga Asíu- og Afríku' ríkjanna lögð til grundvallar. Brezki fulltrúinn lýsti því yfir, að Bretar gætu ekki stutt tillöguna. Eina vonin um samkomulag væri bundin við, að deiluaðilarnir sett- ust þegar í stað að samningaborði. Bíla- & búvélasaian selur Ferguson bensín drátt arvélar árg. ’53, ’55, ’56, með sláttuvélum og ámokst urstækjum. Farmaíl B 250 dísil dráttar vél með sláttuvél. BlLA & BUVÉLASALAN Ingólfsstræti 11. Þennan vagn má sjá í sýningardeild lögreglunnsr. Hann var notaður 1913 til flutnings ofurölvaSra manna, og munu lögregluþjónarnir sjálfir hafa dregið hann. SKATTAR 1961 Skattgreiðendur í Reykjavík eru minntir á að greiða skatta sína hið fyrsta. Lögtök eru að hefj- ast hjá þeim, sem ekki hafa greitt inn á skatta sína tilskilda upphæð eða skulda eldri gjöld. Atvinnurekendum ber að halda eftir af kaupi starfsmanna sinna upp í skatta þeirra og skila þeim upphæðum reglulega, að viðlagðri eigin ábyrgð á sköttunum. Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. QQQQQ Með piparmyntubragði og virku Cum- asinasilfri, eyðir tannblæði og kemur í veg fyrir tannskemmdir. QDDE3 Sérlega hressandi með Chlorophyl, hinni hreinu blaðgrænu, fjarlægir leiða munn- þefjan. QQE3QQ f^reyðir kröftuglega með pipar- myntubragði. VEB Kosmetik Werk Gera Deutsche Demokratische Republik Á vííavangi Framhaio af 7 síðu lóð, en húsið Þrúðvangur stend- ur á lóðinni nr. 7 við Laufásveg. Þetta er gamalt hús. Ef til vill ætlar bankinn að reka starfseini sína þar, en trúlegar er það þó, að húsið verði rifið og nýtt hús reist í staðinn. Eru bankarnir farnir að leggja stund á fasteignabrask? Hvað; hefur Scðlabankinn að gera við 10 milljóna króna lóðina við Lækjargötu og hvað hefur litli Framkvæmdabankinn að gera við '• allar sínar dýru lóðir? Menn standa undrandi yfir þessum aðförum. Þeir sjá það, að ofvöxtur færist i alla skapaða hluti. Þeir eru vitni að því, að forstjórar spili með fé þeirra eins og þeir séu að lcika sér. ílver stofnunin á fætur annarri belgir sig út, en á sama tíma er næstum útilokað að fá nægan mannafla til þess að skipa upp fiskinum, sem allt stendur þó og fellur með. Og verkafólk verður að sauma að sér og því er sagt, að það sé nauðsynlegt. Hvað á það að hugsa? — Það er verið að tæta sundur íslenzkt þjóðfélag, og varla má á milli sjá, hvor gengur betur fram i þvi niðtirrifsstarfi, þeir, sem eiga að gæta verðmæt- anna, eða hinir, sem vinna að því vitandi vits að eyðileggja allt í höndunum á okkur. Gammar haf ast við i krónum trésins, en rott- ur naga rætur þess.“ funginnálakennsla Harrv Vilhelmsson Kaplaskjóli 5. sími 18128 Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.