Tíminn - 11.11.1961, Síða 11
Tií.M I N N, laugardaginn 11. nóvember 1961.
11
Er karlmaðurinn í raun og veru svona?
Karlmennirnir eru þrælslegir, hræsnis fullir, falskir, hlægilegir, tillitslausir,
óþolinmó'ðir og annafthvort heimskir eía dónalegir. — Flýtið ykkur atí ná í
eitt eintak af þessu furíulega karlkyni, segir Nina Farewell.
Allt er leyfilegt í ást og
hernaði, segir gamalt mál-
tæki. Og sennilega hefur
ameríski kvenrithöfundurinn
Nina Farewell haft þann
málshátt í huga, þegar hún
skrifaði bókina „The Unfair
Sex", sem út kom á þessu
ári íjallar, eins og titill-
inn gefur greinilega til
kynna, um karlmennina. í
þessari hernaðarlegu hand-
bók ástarinnar gefur hún
kynsystrum sínum fjölmarg-
ft’r nauðsynlegar leiðbeining-
ar um, hvernig þær með
hægu móti geta krækt í
mann, hneppt hann í hlekki
hjónabandsins — eða losnað
við hann aftur!
Tíu þúsund árlega
„The Unfair Sex“ er, eins og
vænta mátti, orðin metsölubók
á amerískum bókamarkaði. Eftir
útkomu bókarinnar þutu upp
alls konar „Farewell-skólar", þar
sem Evudætur á ýmsum aldri
læra listina að krækja sér í mann
eftir aðferðum þeim, sem Nina
Farewell lýsir í bók sinni. Og
í nýstofnuðum Farewell-klúbbum
snúast umræðurnar eingöngu um
karlmenn og eru þær kiyddaðar
með lýsingum á reynslu kvenna
í þeim efnum.
Hinar miklu vinsældir bókar-
innar í Bandaríkjunum stafa
sjálfsagt að miklu leyti af því,
hversu karlmenn eru þar í mikl-
um minnihluta. Það kemur
einnig fram í amerískum teikni-
seríum, þar sem kvenfólkið er
látið elta karlmennina með á-
kafa miklum, sem kemur erlend-
um kynsystrum þeirra spánskt
fyrir sjónir. Talið er, að minnsta
kosti tíu þúsund amerískar konur
lendi í „piprinu“ árlega, því að
það eru einfaldlega engir menn
til handa þeim. Það hefur orsak-
að þetta hlægilega kapphlaup
kvennanna um eitt eintak af
þessu annars svo vanvirta og
hædda karlkyni.
Og þetta kapphlaup á sér stað
þrátt fyrir að mennirnir eru —
að dómi Ninu Farewell — þræls-
legir, hræsnisfullir, falskir,
hlægilegir, tillitslausir, óþolin-
móðir og annaðhvort heimskir
eða dónalegir. En þar sem sam-
félagið byggist nú enn að mestu
leyti á stjórn karlmannanna, sjá
konurnar sig neyddar til að halla
sér að þessum lygnu og and
styggilegu verum.
Trúið honum endilega ekki
Til þess að konurnar komist
eins vel út úr þessu og hægt er.
verða þær að vera einkar var-
kárar í vali sínu, þegar þær leita
sér að eiginmanni. — Þið megið
ekki með nokkru móti reiða
ykkur á karlmennina, segir Nina
sem sjálf er gift og hefur sjálf
sagt bitra reynslu að baki í þeim
efnum. — Það býr alltaf eitt-
hvað óhreint á bak við hegðun
hans, hversu falieg sem hún er.
Öll blíðu- og ástarorðin, sem
hann hjalar, eru aðeins til að
blekkja. Þau eru hrein og klár
hræsni og lygi, og nákvæmlega
sömu oro hefur hann áður sagt
við fjölda annarra kvenna á
undan þér, og hann á eftir að
segja það við nokkrar á eftir
þér, það er að segja, ef þú ekki
heldur rétt á spilunum. Trúið
honum endilega ekki, þegar
hann segir þér. að þú sért konan.
sem hann hefur alltaf verið að
leita að og fleira í þeim dúr.
Ekki er því að neita, að kari-
maðurinn er oft sniðugur í að-
ferðum sínum. Við eina reynir
hann smjaður, fyrir aðra leikur
hann hlutverk hins sterka, fyrir
fætur þeirrar þriðju kastar hann
sér auðmjúkur og úthellir blæð-
andi hjarta sínu. En það er allt
saman svik. Raunverulega vill
hann aðeins veikja mótstöðuaflið
hjá þér. Láttu það aldrei kom-
ast svo langt.
Yfirleitt nautheimskir
Á öðrum stað segir svo:
— Það er tiltölulega auðvelt
að krækja sér í mann, því að
karlmenn eru yfirleitt naut-
heimskir. Þegar þú hefur ákveð-
ið, hver skal verða hinn ham-
ingjusamí, verður þú að hegða
þér rétt. Hlustaðu vel á það, sem
hann segir og láttu sem þú trúir
öllu. Segðu honum, hvað hann
er skynsamur, sterkur, duglegur,
myndarlegur, fyndinn o. s. frv.
Láttu hann halda, að hann sé
maðurinn, sem þig hefur alltaf
dreymt um. Auðvitað segirðu
honum þetta ekki allt í einu,
heldur gefur honum það inn í
smá skömmtum.
— Láttu hann ekki vera of
vissan um þig. Ruglaðu hann svo-
lítið í ríminu með því að vera til
skiptis tilleiðanleg og frávís-
andi. Geiðu honum ekki of erf-
itt fyrir, en heldur ekki of auð-
velt. Ofurlítil afbrýðisemi skaðar
ekki. Láttu hann ekki of fljótt
komast að leynilegum hugsunum
þínum, þrám, smekki þínum og
síðast en ekki sízt fortíð þinni.
Aldur hefur ekkert
að seqja
Og Nina gefur enn frekari leið-
beiningar. Til dæmis segir hún,
að það sé engin nauðsyn að
láta karlmanninn komast að því,
ef kvenmaðurinn hefur einhverja
líkamlega vankanta. Slíkt má
auðveldlega hylja með fötum og
öðru, og svo getur konan leitt
það, sem fullkomnara er svo
greinilega í ljós, að karlmaður-
inn beinlinis gleymi vanköntun-
um, þegar hann um síðir kemst
að þeim.
Nina segir, að aldurinn hafi
ekkert að segja. Þess vegna er
kennslufræði hennar í ástarhern-
aðinum ekki aðeins fyrir ungar
stúlkur, heldur gefur hún þeim
eldri nýja von. f Ameriku eru
þeir með nefið niðri í öllu, sem
menn taka sér fyrir hendur frá
vöggu til grafar, og þeir segja
nú. að lnn reynda kona sé langt-
um útgengiiegri heldur en sú ó-
reynda. Stöðugt, færist í vöxt, að
karimenn giftist sér eldri kon-
um. Og Nina segir það stafa af
því, að nútímamaðurinn hafi
þörf fyrir lífsreynda og þroskaða
konu, sem hann getur leitað ráða
til, sem lætur honum í té traust
og uppörvun. Enn fremur hefur
læknislist, heilsufræði og fegr-
unarvörur á síðast liðnum árum
bæði lengt lífaldurinn og gert
konunum mögulegt að varðveita
unglegt útlit fram eftir öllum
aldri, jafnvel þótt þær séu orðn-
ar ömmur.
Slíkar konur geta boðið mann-
inum annað og meira en „að-
eins“ æsku og fegurð, nefnilega
lífsreynsluna. í Bandaríkjunum
hafa menn sett fram þá athyglis-
verðu skoðun, að fráskildar kon-
ur hafi mun meira aðdráttarafl
fyrir karlmennina heldur en ó-
giftar stúlkur. Rannsakaðir hafa
verið möguleikar kvenna á að
giftast, eftir því á hvaða aldri
þær eru. Og niðurstaðan varð
sú, að 21 árs gömul stúlka hefur
91% möguleika á að giftast, þeg-
ar hún hefur náð 25 ára aldri,
hafa möguleikarnir minnkað nið-
ur í 88%, en þegar um 35 ára
gamla stúlku er að ræða, sem
þegar hefur gifzt og skilið
þrisvar sinnum áður, hefur hún
ekki minna en 95% möguleika á
því að gera fjórða manninn ham-
ingjusaman — eða óhamingju-
saman.
Notið hugmyndaflugið
Nina tiltekur tvo eiginleika
karlmannsins í viðbót við þá,
sem þegar eru upp taldir: þeir
eru óstöðuglyndir og ótrúir. Mjög
fáir eru af þeirri rólegu mann-
gerð, sem gera hjónabandið að
áhættulausu og rólegu fyrirtæki.
Flestir karlmenn, segir hún, þrá
innst inni frið og ánægju heim-
ilisins, börn og hamingjusamt
líf. En þeir geta ekki haldið það
út lengi. Þeir eru frumstæðir og
þurfa alltaf að vera að upp-
götva og sigra eitthvað nýtt. Ef
þeir finna það ekki á heimilinu
og hjá sinni eiginkonu, leita þeir
þess hjá annairi konu.
í um það bil 40—50 hjóna-
böndum af hverjum 100 (munið
endilega, að dæmin eru tekin frá
Bandaríkjunum) mun maðurinn
eftir nokkurra ára hjónaband
taka að leita sér að félagsskap
annarrar og „betri" konu. Á
þessu stigi málsins veiður hann
oft mjög skapbráður og tillits-
laus og vanrækir fjölskyldu sína
æ meira. Ef kona hans beitir
ekki öllum sínum klókindum á
þessu tímabili, er úti um hjóna-
bandið. Fyrir alla muni verður
hún að forðast alla tilfinninga-
semi og orðasennur.
Og hvað er það þá, sem fær
mennina til þess að leita sér fé-
lagsskapar annarra kvenna, eftir
að hafa verið hamingjusamlega
kvæntir í ein sjö eða tólf ár og
kannske enn lengur? Nina er
ekki í vandræðum með svarið:
Það eru leiðindi og tilbreytingar
leysi hjónabandsins. Og eins og
venjulega ber konan ábyrgð á
því.
— Notið hugmyndaflugið, hróp
ar Nina til kynsystra sinna. Eig-
inkonan verður stöðugt að finna
upp á einhverri tilbreytingu.
Hvort sem það snertir elda-
mennskuna, klæðnaðinn, óskir og
áhugamál, val ilmvatnsins eða
eitthvað annað, verður hún alltaf
fyrst og fremst að hugsa um, að
eiginmanninum leiðist ekki.
Haldið ykkur til
Nina öendir einnig á annan
hættutíma Á trúlofunartímabil-
inu og á fyrstu árum hjóna-
bandsins lítur konan alltaf ljóm-
andi vel út, en því lengra sem
fram í hjónabandið kemur, því
meira vanrækir hún útlit sitt.
Hún hugsar ekki lengur eins vel
um fötin sín, hún leggur aðeins
á sér hárið, þegar það er bráð-
nauðsynlegt, hún lítur oft þreytu
lega og druslulega út og lagar
sig aðeins til, þegar gesti ber að
Framhald á 15. síðu.
mnnmmnnwmiinnniannmnnnnnmnin
4rið 1947 vann Thor Heyerdal það afrek, að láta sig fljóta þvert yfir
Kyrrahafið. Kenningar hans hafa nú verið staðfestar frekar. Kosangas-
brúsa var ýtt úr vör við Meðalfararsund. Hann hóf þannig för sína í fót-
spor Heyerdals. í júní 1961 fannst hann á eyjunni Fuianga í Fijieyjum.
Nýlega var brúsinn til sýnis í Kaupmannahöfn. Á myndlnnl sést Thor
Heyerdal til vinstri og Henrik Tholstrup forstjóri A/S Kosangas til hægri
neð brúsann á milli sín.