Tíminn - 04.02.1962, Síða 14
Carl Shannon:
1
ÖRLAGASPOR
kvaddi lækni og gekk til bif-
reiðar minnar, yfir garð spít-
alans. Á leiðinni var allt í einu
kallað til mín. Það var Bonner
læknir, hann var klæddur
hvítum sloppi, hvítum buxum
og skóm og ákaflega vísinda-
mannslegur á svip. Eg beið
í vagninum.
— Leigh, mælti hann, — ég
vildi aðeins láta yður vita, að
við Nikk Follett vorum nánir
vinir. Við vorum saman í há-
skóla og fylgdumst að hingað.
— Já, einmitt, og svo?
— Leigh, ég held, aö þér
hafið myrt hann. Það eru
margir, sem halda hið sania,
og ég skal fá það sannað. Eg
vil ráða yður til að hverfa
héðan, inn á franskt umráða-
svæði.
Árásin kom svo óvænt, að
mér varð orðfall um stund.
Bonner sneri baki við mér
og fór, en ég gat þó aðeins kall
að á eftir honum: — Verið
ekki að gera yður að fífli,
Bonner. Eg myrti ekki Follett
og ég hef fullgilda fjarvistar-
sönnun.
Farris læknir var kominn að
dyrum sjúkrahússins, er hann
kallaði til mín yfir öxl sér: —
Jæja, þér haldið það.
5. kafli.
Andartak sat ég eins og
bjáni og glápti á eftir Bonner
lækni. Þá heyrði ég léttan hlát
ur fyrir aftan mig, og mál-
róm Jönu Set. Hún var á leið
til mín, með Jeff Craig við
hlið sér.
Mikki? spurði Jeff, er hann
hafði heilsað mér. — Þú ert
eins og blautum klút hafi ver-
ið kastað framan í þig.
— Bonner var að enda við
að saka mig um að hafa myrt
Nikk Follett, anzaði ég fok-
vondur. — Mér er fyrst núna
að detta í hug allt það, sem ég
hefði þurft að segja þessu
ímyndunarveika fífli.
— Og hafi svo verið, get ég
ekki annað sagt en að það var
gott, að við losnuðum við
hann, sagði Jeff í spaugi.
— En Jeff Craig, hvernig
getið þér sagt annað eins og
þetta? mælti Jana. — Eg, sem
hef verið að halda niðri í mér
skælunum, síðan þetta skeði.
— Blessuð, grátið þá, barn,
anzaði Jeff. — En það yrðu
margir á sama máli og ég.
Svo varð hann allt í einu al-
varlegur á svip, og hélt á-
fram: — Þeir Farris og Nikk
voru vinir, meira að segja
mjög nánir vinir. Af því að
Jana er hér, ætlá ég ekkert
að lýsa því, hvernig þeir voru
gerðir. Eg hef heyrt, að yngri
menn meðal plantaranna séu
eitthvað að stinga saman nefj
um um, að þú hafir haft hönd
í bagga með dauða Folletts.
En taktu það ekki nærri þér,
lagsmaður.
— Eg myrti ekki Follett. Það
get ég sannað.
— Eg veit ósköp vel að þú
myrtir hann ekki, Mikki, og
Jana veit það. Hvað viltu þá
hafa það meira?
Eg leit á Jönu og hún bætti
við glettnislega: — Eg er nú
ekki svo viss um herra Leigh.
Hann er einmitt af þeirri gerð
manna, sem er trúandi til alls.
Svo hélt hún áfram í alvarleg
um tón: — Hræðilegt er ann-
ars af okkur að tala svona.
6
— Maður veður ekki í öðru
en vandræðum, mælti Jeff og
varp öndinni. — Eiga þó fleiri
eftir að bætast við, sagði hann
og benti á Fordvagnsskrifli
sem var á leið upp að spítal-
anum.
Eg þekkti, að þetta var
vagninn, sem félagið hafði lát
ið D. Cuddington Jones i té.
Ríkisstjórnin áleit að ekki
væri þörf fyrir umdæmis-
stjórann að hafa bifreið, en
Harmon hafði fengið því fram
gengt, að Cestes-plantekran
sæi honum fyrir vagni.
Það var um seinan. Umdæm
isstjórinn hafði komið auga
á okkur, og stefndi rakleitt til
okkar, með kakiklæddan svert
ingja við stýrið. Við hlið bif-
reiðarstjórans sat lögreglu-
þjónn, sem var eins klæddur
og hann, en hafði rauðan
vefjarhött á höfði, til merkis
um stöðu sína. Jones staulað-
ist út úr bílnum. Hann var
hvitklæddur með hitabeltis-
hjálm á höfði. í hendi sér bar
hann staf með gullknappi. Nú
leit hann á mig blóðhlaupn-
um augum, sem voru allt ann-
að en vingjarnleg.
— Ó, herra Leigh. Þér eruð
kominn aftur.
— Já.
Eg reyndi eftir megni að
hafa samræður okkar sem
stuttorðastar.
— Eg heyrði einhvern smá
fugl kvaka um það, að þér
kunnið að hafa haft hönd í
bagga með þessum snögglega
dauða Folletts.
Eg kaus að sleppa því að
svara, taldi það vita þýðingar-
laust.
Við höfðum verið óvinir,
umdæmisstjórinn og ég, síðan
hann stjórnaði einni af deild-
um fyrirtækisins. Þá hafði ég
staðið hann að því, að svíkja
félagið með því að falsa ýmis
plögg og fylgiskjöl. Það var
einungis fyrir þá sök, að hann
var frændi landsstjórans í
framættir, en hann hafði feng
ið embætti það er hann skip-
aði nú.
— Það verður víst mín ó-
þægileg skylda, að taka yður
fastan og hafa yður í haldi,
meðan rannsókn þessa máls
stendur yfir, sagði hann við
mig.
— Já, óþægilegt, er víst
rétta orðið, Jones. Af því
munu áreiðanlega hljótast
mestu óþægindi, sem þér haf-
ið nokkru sinni í komizt. Við
skulum nú koma okkur af
stað, ungfrú Set. Sælir á með-
an Jeff.
Eg hélt hurðinni opinni fyr
ir Jönu. Hún stakk sér inn, og
ég lét bílinn gjósa allri þeirri
svælu, sem mér var unnt, aft
ur fyrir sig. Þar stóð Jones
nefnilega, og ég var öskureið-
ur við hann gamla sérvitring.
— Mér þykir vænt um skap
heitt fólk, herra Leigh, sagði
Jana. Hitabeltishjálmurinn
skyggði að mestu leyti á and-
lit hennar.
— Eg er kallaður Mikki, ef
þér viljið gera svo vel. Og
hvað við kemur skapríki, þá
á að koma svona fram við
þennan gamla halanegra, —
Hann veit, að hann er þorpari
og veit, að mér er kunnugt um
það. Og nú álítur hann, að
ég sé það líka.
Hún sat um stund án þess
að segja neitt, loks mælti hún
alvarlega: — Þér megið eins
vel kalla mig Jönu nú þegar,
eins og síðar.
— Svo þér eigið við, að ég
muni einnig fá tækifæri til
þess síðar meir?
— Já, það vona ég sannar
lega.
Eg hló. — Ágætt, Jana, svar
aði ég, og það var eins og allt
í tilverunni væri betra og
bjartara útlits.
Við vorum ekki lengi á leið
inni upp til bústaðar Folletts.
Þegar þangað kom, sá ég, að
svertingjar stóðu í dyrunum,
og þekkti ég þegar, að annar
þeirra var Mómó. Hinn leit út
fyrir að vera Varni, en svo hét
Búzzíi nokkur, er unnið hafði
á plantekrunni um margra
ára skeið. Þegar við stigum út
úr bifreiðinnl, kom Mómó til
okkar.
— Góðan dag herra Leigh,
sagði hann og starði á Jönu.
— Það vera yðar ungfrú?
— Nei. — Mér flaug í hug,
hvernig mér hefði verið innan
brjósts, ef ég hefði mátt svara
spurningunni játandi. — Er
húsið lokað? spurði ég.
Á tæpum sólarhring hafði
húsið orðið einna líkast eyði-
Ungir menn
treysta Heklu
fyrir efninu,
litnum
og sniðinu
á frakkanum.
•endisveinn
óskast fvrir hádegi.
MARS TRADING COMPANY H.F.
Klapparstíg 20 — Sími 17373.
Aðalfundur
Kvennadeildar Slysavarnafélagsins í Reykjavík
verður mánudaginn 5. febrúar kl. 8.30 í SjálfstæS-
ishúsinu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Til skemmtunar: Sýnd verður kvikmynd frá ferð
m.s. Heklu til Noregs.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Hnífsdælingar.
Hnífsdælingar.
Drekkið sólarkaffi
í Klúbbnum, fimmtudaginn 8. febrúar kl. 8.30
Tilkynnið þátttöku sem fyrst í síma
35372 — 12468 eða 19894.
Þjóðleikhúskórinn
endurtekur samsöng sinn í Kristskirkju, Landa-
koti, sunnudaginn 4. febrúar kl. 21, vegna fjölda
áskorana.
Aágöngum. í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
og í Blaðasölunni, sama stað.
DeiBdarstjóri
Óskum eftir að ráða deildarstjóra í nýtízku kjör-
búð hjá kaupfélagi á Vesturlandi. Nánari upplýs-
ingar hjá Starfsmannahaldi S.Í.S. Sambandshús-
inu.
Starfsmannahald S.Í.S
14
TIMINN, sunnudaginn 4. febrúar 1962
I