Tíminn - 04.02.1962, Blaðsíða 16
fundur
Klúbbfundur Framsóknarmanna
verður haldinn mánudaginn 5.
febrúar á venjulegum sfað. Fund-
urinn hefst klukkan 8,30 stundvís-
lega. Ágúst Þorvaldsson, alþm. og
Einar Ágústssonð sparisjóðsstjóri,
flytja stutt framsöguerindi. Menn
geta tckið með sér gesti.
návígi við dauðann
Ritdómur
eðagrein?
Matthías Jóhannessen hringdi
til Tímans í gær út af skrifum um
ljóð þau, sem birtust hér í Tím-
anum og reikningi þeim, sem
fylgdi í kjölfarið. Matthías sagði
að hann væri að hringja af því að
han vissi að blaðið vildi fara rétt
með. Benti hann á, að í grein
Hjálmtýs hefðu birzt sex stutt ljóð
úr ljóðaflokknum Hólmgönguljóð,
og hefði því ekki Verið um ljóða-
brot að ræða, þar sem hvert fyrir
sig hefði verið birt í heild. Síðan
sagði Matthías orðrétt: Ég hef
aldrei amazt við ritdómum, og ef
ég teldi þetta ritdóm, þá hefði ég
ekki tekið þessa afstöðu. Auk þess
lít ég á Tímann sem merkilegra
blað en það, að ég telji mig hafa
leyfi til að líta á skrif Hjálmtýs
sem/ ritdóm.
í sambandi við þessa umsögn
Matthíasar vill blaðið taka eftir-
farandi fram. Mál þetta er nú
komið á það stig, að raunar er
ekki deilt um annað en, hvort
Hjálmtýr hafi verið að skrifa rit-
dóm eða grein. Mörkin milli rit-
dóma og greima hafa aldrei verið
skýrð, og því ekki tök á að skýra
þau hér, enda mundi það bezt
gert með dómi. Hins vegar vill
blaðið að óbreyttu halda fast við
þá skoðun sína, að þarna hafi ver-
ið um ritdóm að ræða.
Á sínum tíma stofnaði Rithöf-
undasamband íslands réttarhafa-
skrifstofu, sem Kristinn Ó. Guð-
mundsson, lögfræðingur veitir
forstöðu. Matthías er aðili að
þeirri skrifstofu sem meðlimur
í Félagi íslenzkra rithöfunda. Það
má því kallast eðlilegt, ag hann
skyldi snúa sér til hennar með
kröfuna um innheimtu. Hitt getur
blaðið ekki sætt sig við, að Rit-
höfundasambandið, sem slíkt skuli
afdráttarlaust hafa tekið þá ákvörg
un, að hér hafi ekki verið um
ritdóm ag ræða, og væri fróðlegt
(Framhald á 15 síðu i
Verstu óvinir Merz hafa ver-
ið tímasprengjur og sprengi- j
þræðir. Mjög örðugt getur ver-
ið að eyða þeim, af því að ákveð
in efni virka að nokkru leyti
sjálfvirkt á þá. Alls konar gadd
ar voru hafðir á sprengjunum i
stríðinu til að gera nær ómögu
legt að flytja þgsr burt og gera
þær óvirkar. Oft varð Merz að
treysta sínum eigin getgátum
og ágizkunar'hæfileikum, af því
að sprengiþráðurinn sást ekki
utan frá. Þá var ekki nokkur
leið að sjá, hvaða tegund hafði
verið notuð af þeim 400, sem
völ var á. Nokkrum sinnum i
voru þræðirnir „skotnir úr“, en
Merz og liðsmenn hans vörðust
brotunum sem bezt þeir gátu. !
Þr'átt fyrir allt, sem á daga
Merz hefur drifíð, hefur hann ,
sloppið að öðru leyti en því,
að hávaðinn og drunurnar hafa
skemmt heyrn hans nokkuð.
Eflaust á hann þekkingu sinni
á sprengjum að þakka, hve vel
honum hefur tekizt, þó að hann
telji sig bara hafa verið hepp-
inn, en hann er eini maðurinn
úr sprengjusveitinni, sem byrj-
aði strax eftir stríð og hefur
unnið stanzlaust síðan, sem er
enn á lífi. í Berlín hefur verið
reist minnismerki um þá 1,372
í Ilamborg þekkja allir borg-
arbúar Walter Merz og dá hann.
Hamborg varð illa úti í mörg-
um ægilegum loftárásum síð-
ustu heimsstyrjaldar, og þess
vegna er engin furða, þó að
borgarbúar kunni að meta
menn eins og hinn hálfsextuga
Walter Merz, aðalsprengjusér-
fræðing borgarinnar, sem lét
af störfum fyrir nokkrum dög-
um og hafði þá gert óvirkar
hvorki meira né minna en 4800
sprengjur með eigin höndum
og hætt þannig Iífi sínu i ann-
arra þágu jafnoft.
Nú lifa Hamborgarbúar í
friði og ró og eiga öryggi sitt
margir þessum manni og und-
irmönnum hans að þakka. Að
eðlisfari er hann ákaflega hóg-
vær maður og vinsældir hans
eru því sannar og rótgrónar.
Fyrir stuttu síðan heiðraði
borgarstjórinn í Hamborg Merz
í ráðhúsinu í tilefni af því, að
hann lætur nú af löngu og
giftudrjúgu starfi.
SPRENGJUR í ÞÖK
Waller Merz var vélsmiður,
en á slríðsárunum 'kynnti
hann sér sérstaklega, hvernig
gera ætti sprengjur og sprengi
efni óvirkt og varð brátt for-
ingi Sprengjuútrýmingarsveitar
innar. Á stríðsárunum gerði
hann og menn hans aðeíns eitt
heit: þeir skyldu aldrei snerta
framar á sprengjum eða
sprcngiefni eftir stríðslok. En
það fór á annan veg. Fyrstu
Klúbb-
vikuna eftir stríð fórust 40
börn i Hamborg, af því að þau
voru að leika sér að sprengi-
efni. Lögreglunni bárust sífellt
kvartanir og upplýsingar um
slys og nýfundnar sprengjur.
og þá gáfu Merz og menn hans
sig fram af fúsum vilja og
stofnuðu Sprengjuútrýmingar-
hersveit. Ósprungnar sprengjur
og hættuleg sprengiefni var
flutt á vögnum til bækistöðvar
þeirra dag eftir dag og gert-
þar óvukt. Þeir félagar unnu
16 tíma á sólarhring og vonuð-
ust til að ljúka þessu verki fyr-
ir áramótin 1945—’46. Og það
er ekki fyrr en nú, 1962, að
Merz getur með góðri samvizku
dregið sig í hlé. En menn hans
verða að halda áfram enn um
sinn ásamt nýjum yfirmanni.
Það kom í ljós eftir stríðið, að
margir óbreyttir borgarar
höfðu farið óvarlega með
sprengiefni, byggt virki úr
sprengikúlum, notað þær við
viðgerðir á þökum sínum, og
við höfnina fundust allmörg
tonn af virku sprengiefni og
sprengjum.
menn, sem létu lífið við þessi
störf, en margir þeirra voru þó
engir viðvaningar í faginu. Oft
segist Marz hafa verið hræddur,
en heppnin hafi bjargað sér.
„Það hefur oft valdið mér á-
hyggjum eftir leyfi og frídaga,
að mér hefur fundizt, að nú
gaeti varla verið að ég væri
eins og ég ætti að mér og mætti
ekki snerta sprengju framar"
En hann hefur ekkert að óttast
lengur; hann lét af störfum fyr
ir nokkrum dögum, og menn
hans halda nú áfram þaulæfð-
ir, en undir annars stjórn.
BENÓNV
SIGRADI
Benóný Bencdiktsson sigraði
með yfirburðum á skákþingi
Reykjavíkui, sem Iauk á
fimmtudagskvöldið. Benóný
hlaut átta vinninga af níu
mögulegum, vann allar skákir
sínar nema cina. Unglinga-
meistari Norðurlanda, Bragi
Kristjánsson, var hinn eini,
sem lagði Benóný að velli.
Þetta er i annað sjnn, sem Ben
óný verður Skákmeistari
Reykjavíkur. Hann tefldi af
miklu öryggi á mótinu og vann
mnrgar skákir á skemmtilegan
hátt.
Nokkrar biðskákir eru enn
eftir á mótinu og endanleg röð
því ekk: fyrir hendi. Bragi
Kristjánsson og Björn Þor-
steinssor, hlutu sex vinninga,
Sigurður Jónsson hefur 5Vi og
biðskák og getur því náð öðru
sæti í mótinu. Bragi Björns-
son hlaut 5% vinning og Egill
Valgeirsson fimm vinninga.
Hinir ungr drengir, Jón Hálf
dánarson, 14 ára, og Haukur
Angantýsson, 13 ára, vöktu
mikla athygli í meistaraflokks-
keppninni, þótt ekki tækist
þeim að komast í efstu sætin.
Haukui hlaut 4V^ vinning og
Jón fjóra vinmnga, en hann
byrjaði mjög vel í mótinu.
í keppni 1. flokks sigraði
Björn Víkingur Þórðarson, sem
Framhaio a ois 15
BENÓNÝ BENEDIKTSSON '
HAUKUR ANGANTÝSSON
JÓN HÁLFDÁNARSON
I