Tíminn - 13.03.1962, Side 4
wmmm
T‘Í*M I N Ny-þriðjudagur 13^ marz-1962.
FRUMSYNING
Tíminn tók þessar myndir á
frumsýningu í Þjóðleikhúsinu
á laugardagskvöldið. Frumsýn-
ingargestir fögnuðu sýningunni
á My Fair Lady ákaflega, en
skoðun þeirra flestra var sú,
að þetta heffW verið ein stór-
kostlegasta sýning, sem þeir
hefðu séð í Þjóðleikhúsinu. —
Myndin hér að ofan er af leik-
urum að hneigja sig fyrir áhorf
endum f leikslok. Hér tU hlið-
ar er svo Egill Bjamason, þýð-
andi ljóða leiksins á tali við
tvær söngkonur. Myndin hér að
neðan er af Guðlaugi Rósin-
kranz, þjóðleikhússtjóra, að
flytja nokkur þakkarorð til leik
stjóra og leikenda að sýningu
lokinni. Guðlaugur er lengst til
vinstri á myndinni, en næstir
honum staiula Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra og
Guðmundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, en lengst til
hægri eru þeir Emil Jónsson,
sjávarútvegsmálaráðherra, Erik
Bidsted, ballettmeistari, Vil-
hjálmur Þ. Gíslason og Sven
Aage Larsen, leikstjóri. Stóra
myndin að neðan sýnir raunar
bezt hvaða fögnuður ríkti í
Þjóðlcikhúsinu eftir vel heppn-
aða, en vandasama sýningu. —
Kvíðanum er aflétt í þetta sinn,
og nokkrar dansmeyjar hafa
tekið að sér að kenna Bergi
dyraverði undirstöðuatriðin í
Can Can.
I