Tíminn - 29.03.1962, Side 16
a
Skipbrotsmennirnir af Söndmöringen stíga út úr flugvélinni á Reykj avíkurflugvelli í gær.
(Ljósmynd: TÍMINN, GE).
SPILAD Í
KEFLAVÍK
Spiiuö' verður Framsóknar
vist í Ungmennafélagshús-
inu í Keflavík föstudaginn
30. marz n.k. kl. 9 s.d.
Húsið opnað kl. 8,30. —
Góð verðlaun. — Dansað á
eftir.
SOPADIST UT
Um þessar mundir er verið megrunardufli ísienzku, og
að hefja framieiðslu á nýju heíur það hlotið nafnið VITA.
Það minnir á, að í því eru víta-
mín, en auk þess er vita gam-
alt latneskt orð og þýðir líf.
Guðni Sturlaugsson
Það siys varð fyrir nokkru í Þor
iákshöfn, að Guðni Sturlaugsson,
lögregluþjónn úr Reykjavík, féll
í höfnina og meiddist nokkuð.
Stokkseyrarbátar höfðu farið í
róður, en cr þeir hugðust snúa
heim, gátu þeir ekki lent á Stokks-
eyri sökum landbrims við strönd- i
ina. Sneru bátarnir þá allir til Þor i
lákshafnar og ætluðu að reyna að j
ná landi þar.
Guðni er háseti á Hásteki II., og j
er báturinn var að komast að Suð- j
urvararbryggju í Þorlk9höfn, stökk
Guðni í land auk Elvars Þórðar-
sonar, sem einnig er á Hásteini.
Allt 1 einu reið alda yfir bryggj-
una, sópaði hún Guðna með sér í
sjóinn, en Elvari tókst að halda
sér á bryggjunni.
Guðna heppnaðist að ná í kaðal,
sem var festur við bryggjuna, og
hélt hann sér í hann nokkra stund,
en missti siðan af honum. Guðni er
sundmaður góður, og þegar hann
gat ekki lengur haldið sér uppi á
kaðlinum, lagðist hann lil sunds
og bjargaðist þannig í land.
Eins og fyrr segir, er Guðni lög-
regluþjónn í Reykjavík, en er nú
sem stendur í vetrarfríi og vinnur
sem háseti á Hásteini II. Guðni er
afbragðs sundmaður og hefur m.a.
synt Viðeyjarsund, og má líklegt
(Framhald á 15. síðu).
Að þessari framleiðslu standa
Mjólkursamsalan, Jón Ólafsson lög
fræðingur og fleiri. Dr. Geir
Guðnason, sem er doktor í mat-
vælaefnafræði, með mjólkurmat
(Dairy) sem sérgrein, hefur séð
um samsetnigu duftsins.
í Vita eru ýmiss konar bæliefni,
steinefni og fleira, auk mjólkur-
dufts, sem er aðal uppistaðan. Síð-
an er bætt í það bragðefnum, sem
eru vanilla og súkkulaði. Þetta
duft er unnið á mjög svipaðan hátt
0g hið danska Redukal og amer-
íska Metrical, sem fengizt hefur
hér að undanförnu, og á hvergi að
standa þeim framleiðsluvörum að
baki.
Mun ódýrara
Þrátt fyrir það verður Vita all-
miklu ódýrara en hin megrunar-
efnin. Dós af Vita, sem inniheldur
230 grömm og á að nægja fyrir
(Framhald á 15. síðu).
vera landvita
Um kl. hálf eitt í fyrrinótt
strandaði togarinn Steingrím-
ur Trölli vestur við Malarrif.
Togarinn hafði verið að veið-
um og skipsmenn tóku Ijós-
bauju, sem þeir sjálfir höfðu
lagt, fyrir Ijós á landi og áður
en varði voru þeir komnir í
strand.
Steingrímur Trölli var um fimm
og hálfa sjómílu frá landi og höfðu
skipsmenn lagt trossur sínar þar í
nánd og lagt við þær Ijósabauju,
til þess að geta byrjað að draga
inn snemma í gærmorgun. Síðan
rugluðust þeir á bauju sinni og
iandvita, með þeim afleiðingum að
skipið tók niðri.
Skipstjórinn, Jakob Ólafsson,
var niðri, og svaf hann þegar skip
ið strandaði. Skipið var á hægustu
ferð, er þetta vildi til og veður hið
bezta.
Skipverjum, sem eru 12, tókst að
ná skipinu út aftur án nokkurrar
aðstoðar, en ekki gátu þeir komizt
hjálparlaust til Reykjavíkur og
kom varðskipið Óðinn þeim til að-
stoðar, en það var statt þarna ekki
langt undan.
Talsverður leki kom að Stein-
grími Trölla við strandið _og var
kafari sendur niður frá Óðni til
þess að athuga skemmdirnar. Sá
(Framhald á 15. síðu).
Þegar við hittum þá á ganginum
í Herkastalanum, voru þeir hinir
ánægðustu yfir að vera komnir
hingað t^l Reykjavíkur á heimleið,
þó að sk'ip þeirra liggi nú á hafs-
botni langt í norðri með ýmsu, sem
þeir ætluðu ekki að missa, og þeir
brostu hressilega og buðu inn á
herbergi. '
Sá yngsti 17 ára
— Voru§ þið ekki 14 á Sönd-
möringen?
—Jú. En við erum hér allir
samankomnir, og þetta hefði eins
getað endað á hafsbotni, svo að við
getum verið kátir þess vegna, seg-
ir rólegur maður í grárri peysu og
brosir, svo að skín í gulltönnina.
— Hvað var sá yngsti gamall?
— Hann varð.sautján ára fyrir
tveimur dögum, en þá var einmitt
verið að bjarga okkur um borð í
Salvator.
— En sá elzti?
— Ég held, að það sé skipstjór-
inn, Amolf Sandvik. Hann er í
kringum fimmtugt.
— Getum við ekki fengið að tala
við hann?
— Nei, hann fór út að verzla,
kaupa sér föt o. s. frv. Við misst-
um flestir öll okkar föt, nema rétt
þau, sem við stóðum í. En hann
kemur á eftir.
UrSu að skilja dótið eftir
— Fóruð þið strax frá borði,
þegar sjórinn fór að fossa inn?
— Nei, ekki alveg strax, en það
fylltist fyrst aftur í, svo að þess
vegna var erfiðara að ná miklu úr
íbúðunum. Okkur tókst þó flest-
um að ,ná einhverju, poka eða
tösku, en urðum að skilja það eftir
á ísnum. Skipstjórinn stóð sig
(Framhald á 15. síðu).
Arnon &anaviK, siapsijori
(Ljósm.: TÍMINN, GÉ).
Fimmtudagur 29. marz 1962
74. tbl.
46. árg.
endað
Skipbrotsmennirnir af
norska selveiðiskipinu Sönd-
möringen, sem sökk í norður-
hafsísnum s.l. laugardagskvöld
komu flugleiðis frá Akureyri
til Reykjavíkur um hádegis-
bilið í gær. Fréttamaður Tím-
ans hitti nokkra þeirra að máli
eftir hádegið, en beir bjuggu
á Hernum. Þeir ætluðu að
fljúga til Osló í dag.