Tíminn - 10.11.1962, Page 9
í
.
S
zmkmrn&JBimimenmmnmmis iP&mtwMttmfiimmjvuiim «r -».r)R-»8raMwnt! ir-^.wpngm.r
FW.n,
í„<í»
Það má mikið vera, ef falleg-
asta jólakortið í ár er ekki
komið á markaðinn. Það er lit-
prentað kort af vatnslitamynd
eftir Ásgrím Jónsson: Haust á
Þingvöllum. Og þetta er meira
en venjulegt jólakort, það er
tvöfalt að stærð, og mér er nær
að halda, að margur, sem það
eignast, geti ekki stillt sig um
að hengja það upp á vegg öll-
um til augnayndis fremur en
leggja það niður í skúffu eða
bréfakörfu.
í allri þeirri dyngju jóla-
korta, sem dengt er á markað-
inn fyrir hver jól seinni árin
hér í bæ, er sárafátt um kort,
sem menn kæra sig um. —
En jólakort á að vera meira.
Fáir hafa efni á að senda vin-
um frumgert listaverk í jóla-
gjöf. En vönduð eftirmynd
listaverks er hlutur, sem marga
gleður og þeir varðveita lengi.
Það ber vissulega vott um
menningarstig þjóða, hvers
■ Ítíiíi'Æ'i-íkiý:-:
Þetta er Þingvallamyndin, sem Ásgrlmur sá mest eftir að hafa selt. Nú er hún komin út litprentuð
á júlakorti.
Lagði prentsmiðjustjórinn þar,
Hafsteinn Guðmundsson, sig
allan fram um að vanda til
prentunarinnar eins og föng
voru á, en hann er mjög smekk
vís og listfengur maður, sem
kunnugt er. Á bakhlið kortanna
er ljósmynd af Ásgrími Jóns-
syni listmálara að starfi ogtexti
fylgir á ensku og dönsku vegna
þess, hve kortin eru mikið
keypt til að senda til útlanda
og hinir mörgu útlendu gestir
safnsins kaupa þau mikið.
— Hvernig gekk kortasalan
í fyrra?
— Gerð kortanna er að sjálf-
sögðu mjög dýr, og þetta var
fyrsta tilraun safnsins til korta-
útgáfu. Okkur óraði ekki fyrir
því, að þessu yrði eins frábær-
lega vel tekið og raun varð á.
Auk einstaklinga þá keyptu
mörg fyrirtæki litkortið og
sendu til viðskiptavina út um
allan heim, svo að upplagið
gekk til þurrðar. Hefur nokkurt
upplag verið endurprentað og
er enn fáanlegt.
— Það hefur þá ekki orðið
tap á útgáfunni?
— Nei, síður en svo. Og þeg-
Myndin, sem Asgrímur dauð
sá eftir - oa endurheimti
konar kort eru fáanleg til að
senda á afmælum, jólum eða
við önnur slík tækifæri. Gegn-
ir alveg sama máli um slík kort
og t.d. bókagerð og minjagripi.
Erlendis er það alsiða, að lista
söfn láti litprenta kort eftir
málverkum og öðrum mýndúm,
bæði handa safngestum til
minja um komuna og til að
senda vinum og vandamönnum.
Víðast hvar eru slík kort úr
garði ger, jafnvel þótt úti í hin
um stóru löndum sé. Þykir
Listasafni íslands ekki ástæða
til að fara að dæmi erlendra
listasafna og gefa út litprentuð
kort af listaverkum safnsins og
hafa til sölu hjá dyraverði? Þau
hlytu að verða mikið keypt,
einkum af útlendum gestum,
og gæti orðið ekki lítil kynn-
Þegar við komum inn úr dyrunum í Ásgrímssafni, var Guðbjörg Þor
bjarnardóftir leikkona að kaupa Þingvallakort af Bjarnveigu safn
verði Bjarnadótfur. (Ljósm.: TÍMINN—GE)
GUNNAR BERGMANN
ing á íslenzkri list um leið og
þau bærust út um lönd. Fyrir
nokkrj}m , árpm -gaf bókaútgáf-
an HelgafeH út- nokkur lista-
verkakört. Þau seldust upp á
skömmum tíma, og voru ein-
mitt ekki sízt send út um heim.
Fyrir einu ári gaf Ásgríms-
safn út nokkur kort gerð eftir
þjóðsagnakortum Ásgríms og
eitt litprentað, eftir olíumál-
verki af Heklu. Er skemmst af
að segja, aa Heklukortið seld-
ist alveg upp, og vakti það svo
mikla hrifningu, að margir
keyptu það raunar til að gefa
sjálfum sér og nota fyrir vegg-
prýði. Nú í vikunni, þegar tvö
ár voru liðin frá því að Ásgríms
safn var opnað almenningi,
kom út annað litprentaða kort
ið, Haust á Þingvöllum, sem
nefnt var í upphafi þessarar
greinar. í tilefni þess skrupp-
um við suður í Ásgrímssafn til
að hitta að máli safnvörðinn,
frú Bjarnveigu Bjarnadóttur,
sem sýnt hefur sérstaka um-
hyggju og dugnað í því að
hlynna að þessari ómetanlegu
gjöf listamannsins til lands
síns. Það vildi svo til, að ein af
beztu leikkonum okkar var að
kaupa Þingvallakortið, þegar
við komum inn úr dyrunum,
og það var eins og við manninn
mælt, ljósmyndarinn var búinn
að fá mynd i blaðið.
— Hver hefur prentað þessi
kort?
— Það eru líka listamenn,
sem lagt hafa þar hönd að
verki. Myndamótin að báðum
kortunum gerði Eiríkur Smith
listmálari, sem er starfandi
prentmyndasmiður við Pret-
mót. Heklukortið var prentað
í Litmyndum í Hafnarfirði, en
Hólaprent í Reykjavík annað-
ist prentun Þingvallakortsins.
ar í ljós kom, að talsvert hafði
safnazt í kassann, var sá ágóði
notaður til að senda málverk
út til Statens Museum í Kaup-
.mannahöfn, til hreinsunar og
viðgerðar,- gömul listaverk,
sem fundust í húsi listamanns-
ins eftir lát hans. Þetta verk
er mjög seinlegt og kostn-
aðarsaft, og verður öllum ágóða
af kortasölunni varið til að
kosta verkið. Ágóðinn af sölu
hvers korts er samt ekki svo
ýkja mikill, því að verðinu er
mjög stillt í hóf, og Þingvaila-
kortið kostar sama og Heklu-
kortið, þótt flest hafi hækkað
síðan í fyrra.
— Þið eruð nokkuð snemma
á ferðinni með jólakort í ár.
— Já, og það er gert með
vilja. Margur þarf að senda jóla
kveðju um langan veg. Daginn
sem salan hófst, kom hinn
Framhald á 13 síðu
Á bakhlið jólakortsins er þessi ljósmynd, sem Ósvald Knudsen tók af Ásgrími að mála úti í hrauni
J
T í M I N N, laugardagur 10. nóvember 1962.
9