Tíminn - 22.01.1964, Page 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framfcvæmdastjóri: Tómas Ámason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón DavíSsson.
Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f. —
Glæpabrigzl Gunnars
Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra hefur verið
fúsari til þess en flestir aðrir leiðtogar stjórnarflokkanna
að gefa fyrirheit um frjálsa verzlun. Eftir fimm ára „við-
reisnarstjórn" er efndum þessara loforða ekki betur á
veg komið en svo, að verzlunin býr hér við miklu meiri
verðlagshöft en í nokkru öðru landi Vestur-Evrópu og
að vaxandi lánsfjárhöft þrengja stöðugt að henni.
Þegar bent er á þessar efndir á loforðunum um frjálsa
verzlun, lætur Gunnar blað sitt snúast við á þann veg,
að það hlýtur að vekja undrun og fyrirlitningu lands
manna. Gunnar lætur blað sitt segja, að ekki sé hægt að
gefa verzlunina frjálsa, því að Framsóknarmenn og
samvinnumenn séu upp til hópa hreinir þjófar og muni
nota verzlunarfrelsið til skipulegs þjófnaðar. Þess vegna
verði að hafa verðlagshöft og alls konar höft á verzlun-
inni.
Sennilega er ekki hægt að finna dæmi þess, að stjórn-
málamaður hafi þannig reynt að stimpla andstæðinga
sína þjófa og glæpamenn síðan Hitler var uppi í Þýzka-
landi sællar minningar.
Og hvað notar svo Gunnar til þess að sanna þessa
fullyrðingu sína? Eitt af dótturfélögum samvinnufélag-
anna hefur orðið fyrir því, að einn starfsmaður þess, hef-
ur gert sig sekan um mikinn fjárdrátt og fleiri sakir.
í hæstaréttardómi, sem er nýlega fallin, er tekið fram,
að stjórn félagsins hafi ekki átt neinn þátt í þessum
brotum, en hins vegar eru stjórnarmenn dæmdir í sekt-
ir fyrir ónógt eftirlit. Það er þó kunnara en frá þurfi
að segja, að erfitt er fyrir stjórnir að fylgjast nákvæm-
lega með rekstri stórra fyrirtækja.
Af þeim fimm mönnum, sem áttu sæti í stjórn um-
rædds félags, voru tveir Framsóknarmenn, en þrír
Sjálfstæðismenn. Af þessu dregur Gunnar þá ályktun,
að Framsóknarmenn og samvinnumenn séu yfirleitt þjóf-
ar og glæpamenn og vegna þeirra sé ekki hægt að hafa
verzlunina frjálsa.
Ef nota á slík rök til að koma glæpaorði á heila
flokka og stórar félagshreyfingar, eins og samvinnu-
hreyfinguna, yrði harla auðvelt að gjalda Sjálfstæðis-
flokknum líku líkt. í umræddri stjórn voru t. d. fleiri
Sjálfstæðismenn en Framsóknarmenn. í fyrirtækjum,
sem Sjálfstæðismenn stjórna, hefur sannarlega orðið
uppvíst um meiri og fleiri fjárdrætti en hjá
samvinnufélögunum, þar sem þeir hafa verið svo
sjaldgæfir, að það vekur sérstaka athygli, þegar þeir
verða. Nú seinast hefur t. d. orðið uppvíst um stór-
an fjárdrátt í fyrirtæki, þar sem formaður Sjálfstæðis-
flokksins er í stjórn. Þrátt fyrir þetta, væri það vit-
anlega fyrir neðan allt velsæmi að ætla að nota þessi
einstöku tilfelli til að reyna að koma þjófaorði á alla
Sjálfstæðismenn og öll einkafyrirtæki. Það væri að
fylgja fordæmi Hitlers, sem reyndi að stimpla
menn glæpamenn, ef þeir voru ekki á sömu skoðun og
hann.
Þess vegna mun þessi ritmennska málgagns Gunn-
ars Thoroddsen vekja undrun og fyrirlitningu þjóðar-
innar. Slíkur málflutningur mun ekki gagna honum til
að draga athygli frá því, að loforðin um frjálsa verzlun
hafa verið svikin. Þvert á móti mun svona málflutningur
gera þau svik enn augljósari.
Nýjar opinberar stórbyggingar,
sem vekja umtal í Evrópu
f tilefni af þeim umræðum,
sem orðið hafa um fyrirhugaða
ráðhúsbyggingu í Reykjavík,
þykir ekki úr vegi að birta hér
nokkrar myndir af þremur op-
inberum stórbyggingum, sem
nú eru á döfinni í Evrópu, þótt
þær séu allar að sjálfsögðu
miklu stærri í sniðum en hið
fyrirhugaða ráðhús hér.
f Luxexmburg er hafin bygg-
ing mikillar hallar, sem á að
vera miðstöð fyrir evrópsk
samtök. Það er ríkið, sem sér
um þessa byggingu. Hún er 20
hæða há, hefur um 600 skrif-
stofuherbergi og marga fund-
arsali. Auk þess ert il hliðar
lægri bygging, þar sem er rúm-
góður þingsalur. Luxemburg
ætlar að bjóða Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, að þing þess verði
haldið í þessum sal. Luxemborg
hefur ráðizt í þessa byggingu
m.a. til að tryggja það, að þing
Efnahagsbandalagsins hefði að-
setursstað þar í framtíðinni.
í Briissel er nylega byrjað á
mikilli byggingu, sem á að vera
aðalskrifstofubygging Efnahags
bandal'agsins, og mun hún bera
nafnið Place Robert Shuman
til minningar um þann mann,
sem öðru fremur er talinn upp-
hafsmaður bandalagsins. Bygg-
ing þess á að hafa skrifstofu-
pláss fyrir um 3000 manns. Hún
verður 17 hæðir, 12 ofanjarðar,
en 5 verða neðanjarðar, og
verða þær ætlaðar bílum, en
um 1600 bílar eiga að geta rúm-
azt þar. Bygging þessi verður í
fjórum álmum, sem mynda eins
konar kross. Til hliðar verða
ýmsar minni byggingar, sem
ætlaðar eru fyrir fundi og ráð-
stefnur. Á þaki byggingarinnar
verður flugvöll'ur fyrir heli-
coptera.
Þá er í þann veginn verið að
hefja byggingu ráðhúss í Essen
í Þýzkalandi, sem hefur vakið
talsverða athygli. Það verður
reist inni í miðri borginni, en
búið er að selja gamla ráðhús-
ið fyrir 50 millj. marka. Hið
nýja ráðhús verða tveir 28
hæða skýjakljúfar, en tengdir
með lágri byggingu á milli
þeirra, en þar verður fundar-
salur borgarstjórnarinnar.
Segja má, að allar þessar
byggingar séu á vissan hátt
stæling á höll S.Þ. í New York,
þ. e. að skrifstofum er komið
fyrir í eins konar skýjakljúfi,
Hið fyrirhugaða ráðhús í Essen.
en helztu fundarsalir eða þing-
salir eru hafðir í lágum við-
byggingum. Mörg þau þinghús,
sem nýju ríkin í Asíu og
Afríku hafa nú í hyggju, eru
enn nýtízkulegri, einkum þó
hvað snertir allt fyrirkomulag
innanhúss. Þannig hefur þekkt-
Evrópuhöllin í Luxemburg, þar sem þing Efnahagsbandalags Evrópu
mun væntanlega halda fundi sína. ,
ur, danskur húsameistari r,ý-
lega iokið teikningu á nýju
þinghúsi fyrir stjórnina í Pa-
kistan. Ef byggt verður eftir
henni, verður þinghúsið í Pa-
kistan að flestu leyti frábrugð-
ið öðrum þinghúsum til þessa
dags, einkum þó þingsalurinn.
Skrifstofuhöll Atlantshafsbandaiagsins I Brussel.
TÍMINN, miðvikudaginn 22. ianúar 1964 —
/