Tíminn - 24.01.1964, Side 4
.
RITSTJÓM: OLGÁ ÁGÚSTSDÓTTIR
ÍMW'
ÓSJALDAN er klifað á þvi aS
vlS íslendingar séum menningar-
og bókmenntaþjóS, og er þaS
sjálfsagt rétt, en hitt er annað
mál, hvort viS séum aS sama
skapl siðmenntaSir.
Varla kemur hingaS til lands
þekktur útlendingur, að ekki sé
haft við hann blaðaviðtal og oft-
ast nær er spurningunum þannig
hagaS að hann kemst varla hjá
því aS fara mörgum fögrum orð-
um um náttúrufegurð landsins,
gestrisni landsmanna og glæsi-
ielk kvenþjóðarinnar. Þetta er
ollt gott og blcssað svo langt sem
þaS nær, en mér er til efs, hvort
þesslr útlendingar mæli ætið af
heilum hug, hvort við eigum í
reuninni skilið allt það ígf, sem
á okkur er hlaðlS. Ég held, að
gagnrýnl og aðfinnslur góðra
manna mundu ekki saka stöku
stnnum.
Þar sem erlendum ferðamönn-
um þyklr fyrir ýmissa hluta sak-
Ir ekki viðeigandl aS tala opin-
skátt og hispurslaust um það,
sem þelm finnst miSur í fari okk-
<iir, þá ætia ég aS reyna aS segja
ýkkur ( þessum dálki, hvaS við
getum gert til þess að öðlast fág-
aða og um lelð skemmtilega fram
komu.
Ég held ekki aS ég sé aS fara
með neina speki, en þaS er ekkl
nóg að vitna í hverju kurtelsis-
reglur eru fólgnar, ef menn haga
sér ekki samkvæmt þelm.
Tökum sem dæmi þpssa an-
kannalegu kveðju „Halló", sem
því miöur er orðln svo algeng
hjá ungu fólki. Þannlg heilsuðust
forfeður okkar aldrei. Hvers
vegna ættum við þá að gera það?
Þetta er ekki íslenzk kveðja. Vi8
eigum að segja „komlð þér sæl-
Ir eða sælar", þegar við þérum.
Mér er spurn hvers vegna menn
ncta þetta tilkomulltla og stutt-
aralega „halló", þar sem við elg-
um einhverja fallegustu kveSju,
sem til er f nokkru máll, svo
vltnað sé i orð Courmont, mál-
snillingsins fræga og íslandsvin-
arins góða.
Þeir sem eru alltaf að gera sér
far um að vera kumpánaleglr og
tilgerSarlauslr hættir stundum tll
að gera sér of dælt við ókunn-
ugt fólk. Ef það er rétt, að öll
sönn kurteisi **~3glst fyrst og
fremst á tillitsseml við náungann
þá er mörgum hollt að muna
þ?ð, að ekkert er auðveldara en
aö styggja menn með uppáþrengj
andi elskulegheitum eða yfirþyrm
andi kumpánaskap.
Enginn má skilja orð mín svo,
Framhald á 13. siðu.
Lambakjöt okkar
sent til Hollywood
Nýr réttur hefur rutt sér til rúms, en það er hið svokallaða London lamb.
Hinn góðkunni veitingamaður Þorvaldur Guðmundsson, hefur hafið fram-
leiðslu á því. — Aðspurður kvaðst Þorvaldur hafa farið að reyna að létt-
reykja kjötið, svona til tilbreytingar, því það væri alkunna, að íslendingar
borðuðu lambakjötið ýmist steikt eða soðið, og alltof mikið soðið bætir hann
svo við.
Eg byrjaði á þessu fyrir nokkr-
um árum, segir Þorvaldur, en er
fyrst núna að ná góðum árangri.
Fyrst í stað var kjötið misreykt
frá degi til dags, þ. e. árangurinn
var aldrei sá sami, en nú erum við
komnir upp á lagið með að reykja
það.
5 tonn til útflutnings
London lamb hefur líkað mjög
vel erlendis og þykir ljúffengt.
Það hefur mikið verið um það
skrifað í hóteltímarit, og hérna
er ég með bréf fiá hótelstjóran-
um á Carlton Tower Hotel í Lond-
on, en þáð hótel hefur sérrétti frá
hinum ýmsu löndum á boðstól-
um. í þessu bréfi segir að þetta
villta íslenzka lambakjöt sé svo
Ijúffengt að hann vonist til að
hótelið megi hafa þann heiður
að fá að hafa þennan rétt á mat-
seðli sínum í framtíðinni.
Eg hef miðað þessa framleiðslu
aðallega við útflutning, ekki svo
að skilja að mér sé ekki annt um
að landsmenn leggi það sér til
munns, en þar sem íslendingar eru
stöðugt að leita að nýjum útflutn
ingsafurðum, þá verður fyrst fyrir
að gera tilraunir með. íslenzka
lambakjötið, og nú er svo komið
að í næsta mánuði sendum við 5
tonn af íslenzku lambakjöti til
Hollywood. Niðri í búðinni er
hægt að kaupa útbeinað London
lamb, einnig sneiðar sem eru góð-
ar með steiktu eggi og margir eru
komnir upp á lagið með að nota
í staðinn fyrir bacon.
— Hvernig stendur á þessari
nafngift, London lamb?
— Eiginlega er ég ekki nógu
ánægður með það, en þetta fest-
ist einhvern veginn við það, þar
sem alltaf var talað um lambsrétt-
inn sem var sýndur í London, þá
kölluðu starfsmennirnir það bara
London lamb, Annars vil ég endi-
lega breyta þessu, en vantar gott
nafn.
Rjúpur til Hollywood
Það hefði þótt tíðindum sæta
hérna fyrir nokkrum árum að
heyra sagt frá þvi að kvikmynda-
stjörnurnar i Hollywood legðu sér
til munns islenzka rjúpu, en þetta
er heilagur sannleikur. Veitinga-
búsið Skandia, sem er þekkt fyrir
norræna rétti, hefur tekið íslenzku
rjúpuna upp á matseðil sinn og út-
vegar Þorvaldur rjúpurnar. Eig-
andinn, sem er danskur maður
hefur tekið að sér að hefja matar
gerð Nprðurlandabúa til vegs og
virðingar i borg kvikmyndanna.
Forsetaboðið í Englandi.
Eins og menn rekur minni til
var boðið upp á íslenzkt lambakjöt
í veizlu þeirri, sem forseti íslands
hélt fyrir gesti í heimsókn sinni
til Englands í nóvember s.l. ár,
en Þorvaldur sá um veizlumatinn.
í þeirri veizlu var lambakjötið
framleitt eins og venja er til hjá
íslenzkum húsmæðrum, og hlaut
það einróma lof. íslenzka kjötið
er gjörsneytt því tólgarbragði sem
einkennir Wales-kjötið og New-
Zealand og eru Englendingarnir
vanir að bera fram með því mint-
Þorvaldur Guömundsson, I kvöldverðarboöl, sem hann hélt ( London, til aö
kynna m. a. London-lamb fyrlr blaðamönnum og matráðsmönnum. Dótt
ir Þorvalds er þriðja frá hægri.
U Cr*m» G«mtlfif «n Tma
Ua ÞorUa
Ut Unf WtnMHi
U* P*oa Poiinlnrrt
L« H*r(cocs V*ft* flas flMH
Lm f omiM RiftoHts
itrodMOU 1
0*0
NitMTtiNni prnmNNÓiic
ms VOSNE ROMANCS
tm HCIOOIECK
Liooruw* COONAC.
CLA»»IDOr**««T NOVrUKR IW
Þetta var matseðlllinn ( forsetavelrl-
unni, sem haldln var í Clarldge's 21.
nóv. s. I. Þar var London-lamb á
borðum.
sósu. Hún var höfð á boröum í
þessu tilfelli, en það var enginn
sem óskaði eftir henni með ís-
lenzka kjötinu. Við höfum þá
ánægju að birta hér mynd af
matseðlinum, sem var í veizlu for-
setans.
Kjötveizla fyrir matreíðslumenn
Eg hef eytt miklum tíma til
þess að útbreiða íslenzka lamba-
kjötið, segir Þorvaldur, og þarf
að gera enn betur. Þetta er ekkert
annað en dægrastytting hjá mér
enn sem komið er. f nóv. s.l. hafði
ég boð fyrir 25 manns í London.
Þar voru komnir allir helztu blaða
og matreiðslumenn til þess að
smakka á kjötinu, að ógleymdri
einni fremstu blaðakonu Breta,
Miss Burck, sem skrifar þessi ó-
sköp af kvennasíðum fyrir blöðin,
og var hún yfir sig hrifin. Þetta
varð til þess að einn af stærstu
veitingahúsaeigendun Englands
hr. Forte, sendi mann til íslands,
til þess að athuga með innkaup
almennt á lambakjöti frá íslandi.
Eg hafði mér til aðstoðar Mr.
Cipolla þá yfirmatsveinn á Conton
Tower Hotel í London, sem er
núna yfirmaður hjá stærsta fiótel-
eiganda London. Þetta vakti mikla
athygli og varð til þess að Lond-
on Lamb mun verða tekið upp á
matseðil allra veitingastofa Forte
á Piccadilly, en þar þykir villt
fjallalamb gott og er dýrt.
Þegar hér er komið sögu, kem-
Framhald á 13. slðu.
ÞANNIG ER MATREBTT
London lamb-læri
Ofn- eða grill-steik.
2 kg. læri eða hryggur sett
í ofn eða grill og steikt við góð
an hita í ca. 45 mín. eins og
venjuleg lambasteik. Ef notað
er soð af steikinni í sósu, skal
laga hana á sama hátt og venju-
lega brúna sósu, en gott er að
setja 3—4 matsk. af rauðvíni
eða madeira út í.
London lamb-rúlla
Tilvalið er að nota London
lamb ef gesti ber óvænt að og
fylgja hér nokkrar uppskriftir,
sem bæði má nota sem forrétt
og aðalrétt.
1. Glasserað London lamb:
Rúlla, ca. 1,5 kg., soðin í 30
mín. Tekin upp og himnan tek-
in utan af, sett á rist inn í ofn,
stráð sykri og steikt við góð-
an hita í 10—15 mín. Með þessu
má framreiða t. d. sykurbrún-
aðar kartöflur, blómkál, spin-
at-jafning, ristaðan ananas og
ýmis fersk salöt, eftir því hvað
hægt er að fá á hverjum tíma.
2.
% cm. þykkar sneiðar skorn
ar af rúllunni, steiktar í smjöri
á pönnu. Með þessu er mjög
gott að framreiða franskar kart
öflur, eða ofnbakaðar, steikt
egg og ferskt salat.
3. London lamb, sem forréttur:
Þunnar sneiðar skornar af
rúllu eða læri og framreitt með
ristuðu brauði, smjöri, soð-
hlaupi og sítrónu. Einnig ljúf-
fengt með köldu kartöflusalati.
Sem álegg á brauð eða samlok
ur og einnig steikt með eggi til
morgunverðar.
T í M I N N , föstudaginn 24. janúar 1964 —
4