Tíminn - 24.01.1964, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.01.1964, Blaðsíða 9
 ÞRJÁR UNGAR GEFJUNARSTÚLKIIR SKORA Á ALLT IÐNVERKAFÓLK í REYKJAVÍK: Styðjum einhuga C-lista Stjórnarkosningar í Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks, standa fyrir dyrum, og þess vegna leggjum við leið okkar um bæ- inn að finna iðnverkafólk að máli. Við höfnum inni í fata- verksm. Gefjuni við Snorra- braut, þar sem hin nafntog- uðu Gefjunarföt eru búin til. Við þræðum leiðina á milli saumavélanna, þar til við rek- umst á unga og fallega stúlku, sem brosir svo yndislega, að ?ið stöldrum ósjálfrátt við: — Nafn og símanúmer, takk! — Sóley Baldursdóttir heiti ég. Svo geturðu flett i síma- skránni! SÓLEY BALDURSDÓTTIR Á meðan ljósmyndarinn smellir í gríð og erg, fæ ég að vita, að hún er 21 árs gömul, og hefur unnið hjá Gefjun í tæp tvö ár. Og auðvitað ætlar hún að kjósa C-listann — lista lýðræðissinnaðra vinstri manna: FATAVERKSMIÐJA GEFJUNAR. — Það veitir ekki af að fá nýtt líf í stjórn Iðju — segir hún, — og frambjóðendur C- listans eru að minu áliti hæf- astir til þess að taka að sér félagsstjórnina. — Hvernig hefur félagslífið í Iðju verið, þann tíma, sem þú hefur verið félagi þar? —Það hefur verið bókstaf- lega ekki neitt. Við verðum ekki vör við félagsstjómina, frekar en hún væri ekki til. Fé- lagið heldur enga fundi, engar skemmtanir, ekkert félagslif. Það getur varla verið aumlegra. — Og þú heldur, að það verði betra, ef nýtt fólk tæki við ‘ stjórn? — Eg^er í engum vafa um það. Það er gamalkunn stað- reynd, að það er hollt hverj- um félagsskap, að endurnýja forystu sína öðru hvoru. Löng valdaseta núverandi félags- stjómar hefur gert hana kæru lausa. Hannes Jónsson, for- mannsefni C-listans, er ungur og ötull félagsmálamaður, laus við allt pólitískt ofstæki. Eg hef orðið vör við, að hann vek- ur alls staðar traust manna. Það sama get ég sagt um vara- formannsefnið, Öldu Þórðar- dóttur, sem við starfsystur hennar hér þekkjum af öllu góðu. — Þess vegna vona ég, að sem flestir leggi C-listanum lið í kosningunum um helgina — segir Sóley, og snýr sér aft- ur að saumavélinni. Við yfirgefum saumasalinn og þrömmum í gagnstæða átt, þar til við sjáum tvær ungar og glæsilegar stúlkur, sem handfjatla hið fegursta fata- éfni. Við snúum okkur að þeirri dökkhærðu fyrst: — Eg heiti Hjördís Baldurs- dóttir og er Reykvíkingur að ætt og uppruna —segir hún. Hún reyndist vera í blóma lífsins, aðeins 16 ára gömul. Hún hefur því ekki unnið lengi hjá fataverksmiðju Gefjunar, einungis örfáa mánuði, en það minnkar ekki áhuga hennar á kosningunum: —Eg hef mestar mætur á frambjóðendum C-listans, og er að mfnu áliti mikils af þeim að vænta fyrir okkur Iðjufé- laga. Þess vegna kýs ég C-list- ann — segir hún. — Hvemig eru sigurhorfurn- ar? — Við getum því miður ekki gert ráð fyrir sigri í þetta sinn — segir Hjördís. — En þótt við vinnum ekki í þessum kosn ingum, þá tel ég mjög æskilegt að C-listinn nái það miklu fylgi, að félagsstjórnin telji sig ekki of örugga í sessi. Það myndi veita henni aðhald og ef til vill stuðla að því, að hún gerði eitthvað af viti í framtíðinni. — Eg vil þess vegna hvetja alla framfarasinnaða Iðjufélaga að fylkja sér um C-listann í kosningunum, og vinna þannig að eigin velferð — segir hún. Ungfrúin segist heita Helga Garðarsdóttir og fædd og uppal in í höfuðstöðvum samvinnuiðn aðarins á íslandi, Akureyri. — Hún hefur dvalið í Rvík um skeið og unnið hjá Gefjuni, og er staðráðin í að kjósa C-list- ann: — C-listinn er minn listi — segir hún. — Hann er að mín- um dómi sá listi, sem við get- um vænzt mest af. Við þurfum að fá menn í trúnaðarstörf í Iðju, sem eru traustir og laus- ir við allar öfgar. Eg álít að Hannes Jónsson, formannsefni C-listans, sé einmitt slíkur mað ur. Hann mun láta hagsmuni félagsins ganga fyrir hagsmun- um utanaðkomandi aðila. — Sama má segja um aðra menn listans, þeir munu örugglega standa vel í stöðu sinni, ef þeir ná kjöri; félagsstarfið mun aukast og kjör okkar batna. — Eg vil því hvetja sem flesta Iðjufélaga til þess að standa vörð um hagsmuni sína og kjósa C-listann — segir Helga og snýr sér aftur að fata efninu. Og þegar við göngum niður stigann og út úr fataverksmiðj unni Gefjuni, þá erum við þess fullvissir, að C-listinn, listi lýðræðissinnaðra vinstri manna er sá listi, sem allt framfara- sinnað fólk, ungt sem gamalt, mun styðja í komandi Iðju- kosningum. Við tökum því und ir orð stúlknanna þriggja: — Iðjufélagar — kjósið C-listann, lista lýðræðis- sinnaðra vinstri manna. skiptir ekki minna máli, heldur jafnvel meira máli að tryggja verðgildi þess. Það er til lítils að fá kauphækkun, ef hún er strax tekin aftur með nýjum verðhækkunum. Þess vegna ber okkur að leggja á það stór- aukna áherzlu í sambandi við kaupsamninga í framtíðinni, að kaupið verði verðtryggt, t.d. að það hækki í samræmi við framfærsluvísitölu eins og áð- ur var. Slikt myndi vera ríkis- stjórn á hVerjum tíma hvatn- ing um að reyna að halda verð- laginu í skefjum, enda er það staðreynd, að síðan vísitölu- uppbæturnar voru felldar nið- ur, hafa verðhækkanir orðið ör- ari og meiri en áður. Talsvert er nú rætt um að gera kaup- samninga um lengri tíma, og gæti það verið báðum aðilum til hags, verkafólki og atvinnu- rekendum. En slikt er hins veg- ar útilokað nema kaupið fáist verðtryggt með einhverjum hætti, og jafnframt hækki það í samræmi við auknar þjóðar- tekjur. Ég vil víkja að nokkrum sér- mál'um Iðju, er ég tel að stjórn félagsins hafi ekki sinnt nægi- lega. Ég nefni t.d. fyrst rétt- indi kvenna, sem vinna hálfan daginn, þetta eru oft giftar kon ur, sem þarfnast þessarar vinnu vegna heimilanna. Þær hafa oft verið árum saman og hafa öðlazt mikla* æfingu í starfi sínu. Samt eru þær oftast látn- ar víkja fyrst, ef starfsfólki er fækkað. Þetta álít ég ekki rétt, og því þarf Iðja að tryggja rétt þessara kvenna betur en nú er gert. Þá álít ég stjórn Iðju eiga að fylgjast vel með því, þegar viss fyrirtæki segja upp alveg eða fækka starfsfólki og kynna sér vel, hvaða ástæður valda þessu. Er það kannski vegna óeðlilegs innflutnings á vör- um, slæmra lánsskilyrða o.s. frv. Iðja á á að beita áhrifum sínum eftir því, sem hæft er, til þess að fá hlut þessara fyrir- tækja bættan, svo að þau þurfi ekki að fækka starfsfólki af þessum ástæðum. Ég vil svo endurtaka það, sem ég sagði hér á fundinum í fyrra, að ég tel heppilegt báð- um aðilum, verkafólki og at- vinnurekendum, að unnið sé sem mest að því að jjoma á ákvæðisvinnu. Mín reynsla er sú, bæði hérlendis og erlendis, að ákvæðisvinna tryggir ekki aðeins hærra kaup, heldur auki einnig vinnugleðina. Fólk finn- ur þá betur að góð vinnubrögð bera árangur í hækkuðu kaupi. Ákvæðisvinnu á svo ekki að- eins að nota til að hækka kaupið, heldur einnig til að stytta vinnutímann. Ég hef ver- ið hjá iðnaðarfyrirtækjum í Bandaríkjunum, í Noregi og í Danmörku, og hjá öllum þeim fyrirtækjum þar sem ég vann, hafði iðnaðarfólkið frí á laugar- dögum, án þess að vinna lengur aðra daga vikunnar; þessu marki er hægt að ná með aukn- um vinnuafköstum og aukinni vinnugleði. Að því ber að stefna hér á landi. Þetta er eitt af þeim málum, sem Iðja verður að láta meira taka til sín. , Stjórn Iðju hefur verið tóm- lát í þessum efnum og mörg- um fleiri vegna þess, að hún hefur haft svo öflugan meiri- hluta að baki sér. Enn er þetta fylgi svo sterkt, að ég tel víst að stjórninni verði ekki steypt úr stóli að þessu sinni. Það er hins vegar hægt að skapa henni aukið aðhald og hvetja hana til starfa. Það verður bezt gert með auknu fylgi C-listans. Það verður aðvörun, sem stjórn Iðju skilur, ef fylgi C-listans eykst. Ég er sannfærð um, að við styrkjum Iðju bezt og hvetjum stjórnina bezt til starfa með því að fylkja okkur um C- listann. TÍMINN, föstudaginn 24. janóar 1964

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.