Tíminn - 24.01.1964, Síða 13
FÖSTUDAGURINN HENNAR
Framhald af 4. síðu
ur verzlunarstjórinn inn til Þor-
valdar með rjúkandi kjötbollur á
diski og setur fyrir framan hann.
Þorvaldur smakkar á bollunum
og býður mér bita, það er greini-
legur útlits- og bragðmunur á
þeim. Eftir að hafa rætt við verzl-
unarstjórann um stund, útskýrir
hann þetta fyrir mér. Eg var að
smakka kjötfars, önnur gerðin er
framleidd hjá okkur, hin hjá öðru
fyrirtæki. Við fylgjumst vel með
hérna, og erum aldrei ánægðir,
erum vakandi og sofandi við að
bæta framleiiðsluna.
Sjóðið ekki svona mikið
Segðu húsmæðrum frá mér að
þær sjóði og steiki matinn alltof
lengi, hryggur á ekki að vera leng
ur i ofninum en 30—40 mín. þá
helzt safinn í kjötinu, annars guf-
ar hann bara burtu. Það gerir ekk
ert til þó að það sjáist aðeins roði
í hryggnum en blóðið á aldrei að
sjást. Bjúgun eiga heldur ekki að
sjóða of lengi, það á einungis að
láta suðuna koma upp og sjóða
svo við hægan eld í ca. 15—20
mín., þá helzt krafturinn í þeim.
Vínarpylsur og Berlínarpylsur á
að láta ofan í sjóðandi heitt vatn
og hafa hæfileg hlutföll milli
vatnsins og þeirra svo að það
myndist ekki þrýstingur, þá
springa þær. Látið suðuna koma
upp, takið pottinn af og gætið
þess að láta lokið ekki vera á,
með þessu móti er hægt að koma
í veg fyrir 'að pylsurnar springi
en þá verða þær ónýtar.
ANDREA SKRIFAR
Erambald at 4 síðu
að ég hafi eitthvaS á móti hlýiu
viSmóti, öðru nær, en af öllu má
of mikið gera. Mér finnst það t. d.
full iangt gengið þegar kona
kemur inn í dömusamkvaemi og
on ávarpar viðstadda eltthvað á
þessa leið: „Halló, ég nennl ekki
að hafa neinar serimoniur og
heilsa ykkur öllum með handa-
bandl", og hiamma sér síðan nið-
ur í stóllnn. Það er sjálfsögð kurt
eisi að heilsa hverjum og einum
með handabandi (ég á ekki við
kokteilboð). Það er mjög stórt
atriði að kunna að haga kveðju-
orðum sinum rétt og bera sig vel,
þegar maður kemur í boð, af því
að alltaf er horft á þann, sem
kemur, og framkoman skapar
manninn ekki síð.ur en fötin.
RÁÐHÚS
Eramhald af 7 síðu.
húsa, sem geta gegnt sínu hlut-
verki um langa framtíð. Margt af
þessum loftköstulum er hrein
blekking teiknimeistara og verk-
fræðinga. Takið eftir Reykvíking-
ar Við sem erum á rniðjum aldri,
munum ekki lifa það. að Þórsham
ar og VR-hú?ið verði sprengt í
loft upp og því síður að Tjarnar-
nrúin verði rifin. Lítum á fram-
kvæmdir borgarinnar í verki. —
Hekla við Lækjartorg var rifin,
nýstandsett hús, en Smjörhúsið
stendur enn og sk'agar út í um-
ferðargötu. ,,Veltan“ við Austur-
stræti var rifin. ágætt hús með
mörgum verzlunum og skrifstof-
urn. Skúrinn hans Steindórs stend
ur enn og gerir grín að fram-
kvæmdinni. Hver haldið þið að
lramkvæmdin verði þegar á að
fara að tæta niður Miðbæinn til
íð geta myndað hið mikla skugga
sælatorg norðan við Ráðhúsið?
Máli þessu er ekki lokið. Það
eru íbúar Reykjavíkur sem ráða
úrslitunum. Borgarstjórn og borg-
arfulltrúar eru starfsmenn og þjón
ar borgaranna, hreinn meirihlutl,
getur með vantrausti vikið þeim
frá. Þar sem lýðræði er viður-
kennt, verða menn að beygja sig
fyrir því. Söfnum undirskriftum og
látum vilja Reykvíkinga koma ó-
tvirætt í ljós.
Reykvíkingar, stöndum vörð um
Tjömina okkar og forðum henni
frá eyðileggingu, lofum öndunum
og kríunni að vera þar í friði. Ör-
firisey var tekin frá okkur, en
við höldum Tjörninni, þeirri nátt-
úrugjöf sem höfuðborginni okkar
var gefin.
T H R I G E I
RAFALAR
Getum útvegað meS
stuttum fýrirvara
VEITUM IÐJUSTJÓRN
um hluta af íslendingum. Þess
vegna verðum við að vera vel
á verði um að ekki sé fluttur
inn í of stórum stíl sá varning
ur, sem getur stefnt atvinnu-
öryggi okkar í hættu, en eðli-
leg samkeppni er einnig nauð-
synleg til þess að beina okk-
ur á réttar leiðir. Hlutverk iðn
aðar í framtíðinni hlýtur að
verða í vaxandi mæli tengt
öðrum höfuðatvinnuvegum okk
ar, landbúnaði og fiskveiðum,
því að öllum er ljóst hversu
þýðingarmikið það er, að ekki
sé flutt út nema sem minnst
af hráefni, heldur fullunnar
vörur, sem þýðir stórauknar
þjóðartekjur fyrir sama magn.
Og við lausn þessara mála
verður þáttur iðnverkafólks af-
ar þýðingarmikill, fram hjá því
verður ekki gengið.
Ekki þarf að efast um, að við
vinnum heils hugar að farsælli
lausn þessara mála.
En við þurfum einnig að vera
vel á verði um að sérhverri
tilraun til að rýra lífskjör okk-
ar verði mætt með fullri ein-
urð.
Eins og þið munið sjálfsagt
var pm það beðið þegar þessi:
ríkisstjórn tók við völdum, að
launþegar sýndu þolinmæði á’
meðan efnahagsmálunum væri
kippt í liðinn. Það átti ekki að
taka svo ýkja langan tíma eftir
því, sem boðað var. Einnig var
sagt. að nýjar álögur væru
nauðsynlegar en auðvitað bara
í nokkra mánuði. Þá skyldi
„leiðin ' til bættra lífskjara“
vera greiðfær. En hvernig fór
þetta svo? Jú, frestur var veitt-
ur af launþegum í 1% ár, en
því var tekið fjarri er sá tími
var liðinn að létta á þeim
álögum, sem á voru lagðar.
Svo voru knúðar fram leiðrétt-
ingar af launþegum, en ríkis-
stjórnin lét ekki standa á sér að
sýna launþegum skilning. Eða
hvað?
Jú, hann birtist í því, að
fyrir hvert það þrep, sem við
höfum stigið upp á við, lengdu
þeir stigann um tvö. Þannig
hefur gengið æ síðan. Samt er
því haldið blákalt fram að lífs
kjörin. séu alltaf að batna, og
ef okkur þyki annað, sé það
bara af ósanngirni.
Við skulum því nota atkvæð-
isrétt okkar vel í kosningun-
um um helgina og slá tvær flug
ur í einu höggi. Lýsa vanþókn-
un okkar á þessari stefnu rík-
isstjórnarinnar, sem rakin er
hér að framan, og að veita nú-
verandi stjórn Iðju aukið að-
hald, og það gerum við með
því að kjósa C-listann.
RAFSTÖÐVAR
fyrir jafnstraum
og riðstraum
frá 0,5 kw. til 75 kw.
Höfum fyrirliggjandi
jafnstraums-
og ritístraums
RAFMÖTORA
Sími 1-1620
T æ k n i d e i I d
LÍFEYRISSJÓÐURINN
Framhald af 8. síðu.
kvæði yrði fellt úr reglugerð
sjóðsins, hafi ekki metið þessa
þýðingu sjóðsins nægilega mik-
ils þar sem um annað eins hags
munamál er að ræða, þvd að
það er staðreynd, að þeir lífeyr
issjóðir, sem starfandi eru, hafa
orðið meðlimum sínum til ó-
metanlegs gagns, og því tel ég
að taka beri til athugunar að
efla þennan sjóð okkar.
Ég hef nú minnzt á eitt mál
r.f fjölmörgum, sem ástæða
væri til að ræða rækilega á
fundum félagsins. En hvort
tveggja er, að fundirnir eru
sjaldan haldnir og þá sjaldan
þeir eru haldnir, fara umiæður
cft út í mál, sem eru hagsmun-
um Iðjufélaga nviðkomandi.
Félagsmenn Iðju þurfa að
gefa sér oftar tíma til að koma
saman og ræða hagsrnunamál
sin. Er ekki ástæða til að ætla
að núverandi stjórn Iðju telji
sig of örugga í sessi og því sé
hún orðin helzt til værukær.
Því miður eru litlar líkur til að
stjórnin verði ekki endurkjörin.
En ég er sannfærður um að það
er okkur fyrir beztu að gefa
henni eftirminnilega viðvörun
og það verður bezt gert með
því að stórauka fylgi C-lista
manna í þessum kosningum.
NAU3VIA 22
MYKJUDREIFARINN
Þessi norski mykjudreifari hefur náð mjög mikl-
um vinsældum hér á landi, enda er hann bæði
einfaldur að gerð og sérstaklega lipur. Tekur 1
tonn og með honum má fá útbúnað, sem gerir
mögulegt að dreifa þunnri mykju án þess að hún
leki úr dreifaranum- Sérstaklega ódýr.
Kostar aðeins ca. kr. 14.500.00.
ARNI GE6T96QN !
Vatnsstíg 3 — Sími 11555
VerkamannafélagiA Dagsbrún
KOSNING
stjþrnar, varastjórnar, stjórnar Vinnud.eilusjóðs,
stjórnar Styrktarsjóðs Dagsbrúnarmanna, endur-
skoðenda og trúnaðarráðs Vmf. Dagsbrúnar fyrir
árið 1964 fer fram að viðhafðri allsherjaratkvæða-
greiðslu að Lindargötu 9 dagana 25. og 26. þ.m.
Laugardaginn 25. janúar hefst kjörfundur kl. 10
f.h. og stendur til kl. 9 e h.
Sunnudaginn 26. janúar hefst kjörfundur kl. 10
f.h. og stendur til kl- 11 e.h. og er þá kosningu
lokið.
Atkvæðisrétt hafa aðeins aðalfélagar, sem eru
skuldlausir fyrir árið 1963. Þeir sem skulda, geta
greitt gjöld sín meðan kosning stendur yfir og
öðlast þá atkvæðisrétt. Ekki verður tekið á móti
’ inntökubeiðnum eftir að kosning er hafin.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Skrifstofa Dagsbrjjnar er fiutf á Lindargjti^.
Verkamannafélagið Dagsbrún
LOKAÐ í DAG
frá hádegi vegna jarðarfarar
Grænmetisverzlun landbúnaðarins
TÍMINN, föstudaginp 24. ianúar 1964 -=
T » V , . ,'
13