Tíminn - 24.01.1964, Page 15
Skipstjörinn sýknaður
ÁVÍSANAFALS
FramhalO at 16. sífíu.
og svo auðvitað að kaupa ekki
ávísanir, sem gefnar eru út
á einhverja aðra aðila og ekki
framseldar af þeim, eins og
komið hefur fyrir.
— Það mun ekki tíðkast hér,
eins og sums staðar erlendis,
að fólk sýni persónuskilríki,
þegar það selur ávísanir.
— Nei, það hefur nú ekki
tíðkast mér vitanlega, en þetta
er atriði, sem þið blaðamenn-
irnir gætuð komið á framfæri
við fólk, og sem myndi áreið-
anlega veita mikið aðhald í út-
gáfu ávísana.
— Það væru ökuskírteini og
passar, sem nota mætti til
slíkra hluta?
— Já, ég sé ekkert því til fyr
irstöðu, að menn sýndu öku-
skírteini til þess að sanna,
hverjir þeir séu, og fullvissa
þannig fólk um, að rétt nöfn
og heimilisföng séu skrifuð á
ávísanir. Annars er nú sumt
fólk þannig, að það hefur ekki
það, sem til þarf, að nota ávís-
anahefti. Það þarf dálitla ná-
kvæmni og reglusemi í notk-
un þeirra.
— Notkun ávísana hefur auk-
izt mikið upp á síðkastið?
— Já-, hún hefur gert það.
Einkum eru það mörg stór fyr-
irtæki og stofnanir, sem greiða
nú starfsmönnum sjnum laun-
in inn á ávísanareikninga, sem
svo starfsmenn ávísa á.
— Hafið þið orðið varir við,
að ráðstafanir bankanna hafi
mikil áhrif til batnaðar á ávís-
ananotkunina?
—Nei, ekki get ég nú sagt
það, að minnsta kosti berast
okkur alltaf fleiri og færri ávís
anir, sem ekki er til inni fyrir
og aðrar sem eru falsaðar. Við
fáum að vísu ekki allar inn-
stæðulausu ávísanirnar, því
oft reyna einstaklingar og fyr-
irtæki að innheimta þær sjálf,
eða þá þær eru sendar til lög-
fræðinga til innheimtu. Mism-
unurinn á því, hvort þær eru
sendar til okkar eða lögfræð-
inga, er að lögfræðingur tek-
ur innheimtulaun fyrir, en ef
við náum í viðkomandi aðila
sæta þeir sektum fyrir athæf-
ið. Þá fjallar Sakadómari rík-
isins um þessi mál, ef þau eru
alvarlegs eðlis, og ákveður þá,
hvort höfðað skuli mál eða
ekki.
— Hvað er svo til úrbóta?
— Það er nú auðvitað fyrst
og fremst að þeir sem hafa und
ir höndum ávísanahefti, gæti
þeirra vel, fylli ávísanirnar
rétt út og gefi auðvitað ekki út
ávísun, nema innstæða sé fyr-
ir hendi. Þá er það sú hlið, sem
snýr að þeim, er kaupa ávísan-
irnar. Þeir þurfa að gæta þess,
að þær séu framseldar í þeirra
viðurvist, og þá er ekki úr vegi
að láta fólk sýna persónuskil-
ríki.
350 MILLJ.
Framhald af 16. síðu.
um hvernig afla megi aukins fjár
til þessara mála og leysa bygging-
arvandamálið á sem skemtnstum
tíma. Skoraði hann á alla þing-
menn að sameinast um að finna
haldgóða lausn þessara mála.
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
upplýsingar ráðherrans gæfu það
skýrt til kynna, að allt of mikill
seinagangur hefði verið á þessum
rnálum undanfarin ár og þó eink-
um hér í Reykjavík við byggingu
Landspítalans og Borgarsjúk.húss-
ins. Þau verkefni eru mest aðkall-
sndi, ekki fyrir Reykjavík og ná-
grenni eingöngu heldur fyrir allt
iandið. Því verður ekki borið við,
sð við hefðum ekki getað gert bet-
ur í þessutn málum en raun hefur
á orðið. Safnast hafa hundruð
milljóna í Seðlabankanum á und-
anförnum árum þótt aðeins broti
af því fé hefði verið varið til
þessarra mála, værum við nú
miklu betur á vegi staddir. Sama
mætti segja um greiðsluafgangana
hjá ríkissjóði á síðustu árum. —
Minnti Þórarinn einnig á, að fyrir
2 árum hefði hann ásamt fleiri
Framsóknarmönnum flutt frum-
varp um töku láns til að fullgera
á sem skemmstum tíma viðbygg-
ingarnar við Landspítalann. Þetta
írumvarp náði illu heilli ekki fram
að ganga. Ekki tjóaði samt að sak
ast um orðinn hlut heldur einbeita
sér að því að leysa þann vanda,
sem við væri að glíma.
Einnig tók Hannibal Valdemars-
son þátt í þessum umræðum.
Skúli Guðmundsson hafði kvatt
sér hljóðs utan dagskrár í Samein-
uðu þingi og lýsti óánægju sinni
yfir því, hve illa gengi að fá mál
tekin fyrir. 14 þingsályktunartillög
ur, sem fluttar hefðu verið fyrir
áramót hefðu ekki fengizt teknar
fyrir, þar af 2 fluttar í okt. og 7
í nóv., en þingfundir stæðu aðeins
4 daga vikunnar. Engir fundir
væru haldnir á föstudögum. For-
seti kvaðst myndu taka þessa á-
bendingu til athugunar.
EITURLYFJANEYZLA
Framnaid af 1. siðu.
svo við, að lögreglan hefur nærri
engin afskipti af mönnum sem
eru í „rús“ eins og sagt er eða
undir áhrifum eiturlyfja og ekki
finnst heldur pilluglös á drukkn-
um mönnum sem þó var mjög al-
gengt. Að því er tyeir varðstjór-
ar hjá lögreglunni í Reykjavík,
þeir Bjarki Elíasson .og Guðmund-
ur Hermannsson, tjáðu blaðinu í
dag, kemur það varla fyrir núna
að lögreglan hafi afskipti af mönn
um undir áhrifum eiturlyfja og
hefur algjörlega skipt um til hins
betra, Mikið var talað um þetta á
sínum tíma, og er ekki að efa að
dagblöðin hafa átt sinn þátt í'að
kveða þennan ósóma niður. Pillur
þær sem fundust þá á mönnum
voru fengnar í apótekum_gegn lyf
seðlum, og virðast því læknar nú
hafa kippt mjög að sér hendinni
í útgáfu lyfseðla á eiturlyf. Tvtim
meðölum mun hafa verið bætt á
lyfjaskrá sem apótekin skrifa nið-
ur hverjir fá og frá hvaða lækn-
um. Að sögn lækna mun mjög hafa
brugðið til hins betra í þessum efn
um, og þeir ekki nærri eins plagað
ir með beiðnum um lyfseðla fyrir
eiturlyfjum.
HJÁLPARSJÓÐUR
Framhald af 16. síðu.
ingu á myndinni í Stykkishólmi
27. des. og eftir það á ýmsum stöð
um fyrir vestan. Nú hafa 300
manns skrifað nöfn sín í hana og
gjafaféð nemur samtals 27 þús.
krónum. Biskupsskrifstofan varð-
veitir sjóðsféð, og hefur henni ver
ið afhent 100 þús. kr. upphæð,
sem er ágóði af kvikmyndasýning-
unum.
Magnús sagði, að þörfin fyrir
heimili handa börnutn og ungling-
um, sem af einhverjum ástæðum
hefðu lent, eða væru í þann veginn
að lenda á glapstigum fari stöðugt
vaxandi. Það væri ódýrara fyrir
þjóðfélagið að hjálpa þessum þjóð
félagsborgurum á meðan það gæti
borið einhvern árangur, heldur en
að þurfa að loka þá inni í fanga
húsum síðar meir. Sem dæmi má
nefna að kostnaður af rekstri
drengjaheimilisins í Breiðuvík var
í 10 ár sá hinn sami og gert var
ráð fyrir á fjárlögum að kostaði
að reka Litla-Hraun í eitt ár. Á
heimilinu í Breiðuvík eru nú 16-
17 drengir. Frá upphafi hafa ver-
(ið þar 57 drengir og aðeins 7
þeirra hafa bilað síðar. Má telja
það góðan árangur því í nágranna
löndunum er talið gott, ef 25%
(þeirra, setn fara á slík heimili
verða að nýtum þjóðfélagsborgur-
um, sagði Magnús. Hér er hlut-
fallstalan 87,7%.
Söfnunarbókina gerði Helgi
Tryggvason bókbindari og gaf
hann andvirði hennar í Hjálpar-
sjóðinn, en frú Bjarnveig Helga-
dóttir skreytti bókina. Á fyrstu
síðuna skrifa fyrstir forseti íslands
cg biskupinn, en síðan ýmsir fyr-
irmenn menntamála og mannúðar-
mála. Bókin verður lögð fram hjá
Eymundsson á morgun. Þar geta
menn skráð nöfn sín í bókina um
leið og þeir leggja eitthvert fjár-
magn af mörkum. Minnsta upp-
Iiæð er 50 krónur. Upphæðin er
hins vegar ekki skráð í bókina, en
gefendur fá sérstaka kvittun fyrir
henni. Þegar bókin hefur verið
fullskrifuð verður hún geymd í
Landsbókasafninu.
TOGARI SÝKNAÐUR
Framhald af 1. síðu.
Hæstiréttur, að hinn áfrýjaði dóm
ur skyldi vera ómerkur og málinu
vísað frá dómstólunum á þeim for
sendum, að togarinn mundi hafa
verið kominn út fyrir fiskveiðitak
mörkin þegar stöðvunarmerki var
gefið, og samkvæmt alþjóðaregl-
um hefði því takan verið ólögleg.
í gær kvað Hæstiréttur svo upp
hliðstæðan dóm í máli Roy Belc-
her, skipstjóra á Dragoon frá Fleet
wood, sem varðskipið Óðinn stóð
að meintum ólöglegum veiðum
1,4 sjómílu innan markanna út af
Kóipanesi 14. okt. 1962, og dæmdi
Sakadómur ísafjarðar skipstjór.
ann í 230 þús. fer. sekt 16. okt,
sama ár. Hæstiréttur kvað upp
dóm í málinu í gær, þar sem hinn
áfrýjaði dómur var ómerktur og
málinu vísað frá, þar sem fram-
burður vairðskipsmanna var ekki
tvímælalaus um, hvenær stöðvun-
armerki var fyrst gefið..
Gísli ísleifsson, hld., verjandi
skipstjóranna, sagði blaðinu í dag,
að slíkir dómar sem þessir væru
óvenjulegir um allan heim. Hann
kvaðst muna eftir hliðstæðu máli
fyrir fáum árum þar sem vafi lék
á um sama atriði, og.fór málið til
Hæstaréttar. En dómur var aldrei
uppkveðinn í því máli, þar eð
dómsmálaráðherra gaf skipstjór-
anum upp sakir árið 1962. Hann
kvaðst einnig muna eftir því, að ár
ið 1961 hefðu tveir brezkir tog-
arar verið hreinlega sýknaðir af
ákæru landhelgisgæzlunnar, en
annars væri hér um mjög óvenju-
l'ega dóma að ræða.
S0FA HEIMA
Á AUREYRI
ED-Akureyri, 21. jan.
Leiklistarlíf er með miklum
blóma hér í bæ og um allar sveitir.
Leikfélag Akureyrar er nú að æfa
sjónleikinn „Góðir eiginmenn sofa
heima“ undir stjórn Jóhanns Ög-
mundssonar. Leikur Menntaskól-
ans verður að þessu sinni „Er á
•meðan er“ eftir þá Kaufman og
Hart, sem eru að góðu kunnir hér
síðan nemendur M.A. sýndu leik
þeirra „Gestur til miðdegisverð-
ar“. Jónas Jónasson stjórnar leikn-
um núna, eins og hinum fyrri. Mý-
vetningar hafa þegar sýnt „Allra
meina bót“ sjö sinnum, og ætla að
sýna hann hér á Akureyri um
næstu helgi. Ólafsfirðingar, Gren-
víkingar og Hríseyingar, hafa
skipzt á heimsóknum með leik-
sýningar Á fimmtudaginn verður
leikritið „Jósafat" frumsýmt á
Laugaborg undir stjórn Ágústs
Kvaran. Og l'oks er verið að æfa
leiki í Svarfaðardal, Öngulsstaða-
hreppi og á Dalvík.
LANDSBYGGÐ
(Framhald al Z~ síðu)
ieysi. Einn bátur héðan og tveir
frá Sauðárkróki, ætla að reyna
við smásíldina til að byrja með,
en undanfarna daga hafa þeir
ekki getað aðhafzt neitt vegna
veðurs. Smásíldina getum við
fryst hér á Hofsósi, en auk þess
er hægt • að koma henni í
bræðslu á Sauðárkróki.
FB-Reykjavík, 23. jan.
Fyrir nokkru var skipstjórinn
á vélbátnum Júlíu, Emil Ander-
sen, sýknaður, en hann hafði ver-
ið tekinn að veiðum 17. ágúst,
eftir að starfsmenn Landhelgis-
gæzlunnar höfðu gert mælingar úr
flugvél og ákveðið að hann hefði
verið 0,2 sjómílur innan 4 mílna
•markanna. Sjálfur hélt skipstjór-
inn því fram, að hann hefði verið
0,7 mílur utan markanna.
KH-Reykjavík, 23. jan.
Eins og lesendur Tímans muna,
kom upp ákærumál vegna neta-
veiði í Vatnsdalsá sumarið 1962.
Þáverandi leigutaki árinnar kærði
ALLRA MEINA BÓT
í MÝVATNSSVEIT
PJ-Reynihlíð, Mývatnssv., 21. jan.
Undanfarið hefur Kvenfélag
Mývatnssveitar sýnt gleðileikinn
„Állra meina bót“ í Skjólbrekku í
Mývatnssveit og á Húsavík.
„Allra meina bót“ er gleðileikur
í þrem þáttum með söngvum og
tilbrigðum eftir Patrek og Pál., en
lög eftir Jón Múla Árnason.- Leik-
endur í sýningu þessari eru allir
ú Mývatnssveit, og hefur Birgir
Brynjólfsson úr Reykjavík annazt
leikstjórn og farizt vel úr hendi.
Aðalhlutverkið, dr. Svendsen, leik
ur Þráinn Þórisson, og aðrir leik-
endur eru: Böðvar Jónsson, Pétur
Þórisson, Steingerður Jónsdóttir,
Steingrímur Jóhannesson, Áslaug
Sigurðardóttir, Kristín Pétursdótt-
ir, Ásmundur Kristjánsson og
ívar Stefánsson. Undirleik annast
séra Örn Friðriksson, leiksviðs-
stjóri er Arnþór Bjömsson og leik
tjöld eftir þá Ingva Kristjánsson
og Jóhannes Sigfinnsson.
Fjórar sýningar hafa verið í
Skjólbrekku og tvær á Húsavík,
ávallt fyrir fullu húsi, og mjög
góðar undirtektir. Um næstu helgi
er ætlunin að sýna leikinn á Ak-
ureyri, en óráðið um fleiri sýn-
ingar.
Allur ágóði af sýningunum
rennur í snjóbíl'ssjóð fyrir Mý-
vatnssveit.
Jón Þorláksson fulltrúi í Vest-
mannaeyjum kvað upp dóminn, og
byggist hann á því, að tveir sér-
fræðingar um mælingaraðferðir
voru fengnir til að athuga mæl-
ingar úr flugvél, og komust þeir
að þeirri niðurstöðu að við slíkar
mælingar gæti skakkað 0,1 til 0,2
sjómílum. Því taldi dómarinn sig
ekki geta annað en sýknað mann-
inn.
bónda fyrir að stunda ólöglega
netaveiði í ánni. Samkvæmt kröfu
bóndans var málið rannsakað og
sent veiðimálastjórn til athugunar
og síðan afhent saksóknara. Sak-
sóknari hefur nú nýlega tilkynnt
Páli S. Pálssyni, lögfræðingi séra
Þorsteins Gíslasonar, að hann sjái
ekki ástæðu til að gefa út ákæru
í þessu máli, og er það þar með
niður fallið.
HVÍTANES Á
LEIÐ HINGAÐ
KJ-Reykjavík, 23. janúar.
í kvöld leggur af stað frá Hauga-
sundi í Noregi nýtt íslenzkt skip,
Hvítanes, eign Kaupskip h/f.
Hvítanes var afhent eigeiídum
um mánaðamótin sept.—okt. 1963,
en hefur verið í ferð til frönsku
Vestur-Indía frá því að það var
afhent. Hvítanes er 2540 dw,
heimahöfn þess verður Keflavík
og skipstjóri er Sigurður Þor-
steinsson. Hvítanes kemur með
tunnufarm til Austfjarðahafna, og
mun verða þar um næstu helgi.
Að því er framkvæmdastjóri
Kaupskip h/f tjáði blaðinu í dag,
er skipið smíðað í Hamborg hjá
Agust Phal, áhöfnin er 22 menn,
og mun það verða í almennum
flutningum í millilandasiglingum.
Framsóknarvist
Framsóknarvlst verður spiluð í
félagsheimili Framsóknarmanna
að Tjarnargötu 26, f kvöld,
föstudag kl. 8,30. Aðgöngumiða
má panta í sinA 15564. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
ÞAKKARAVORP
Hjartans þakkir til barna okkar, tengdabarna og
vina, fyrir gjafir og vinsemd á 80 ára afmælinu 9. þ.m.
Guð gefi ykkur farsælt nýtt ár.
Jóhann Sveinbjarnarson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
fósturmóður mlnnar
Guðrúnar Sigurðardóttur
frá Syðri-flV.
Knútur Berndsen.
innilegar þakkir faerum við öllum þeir er auðsýndu okkur samúð
og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns, föður
okkar og afa,
Björns Bergmann Jónssonar
Mánabraut 6A, Akranesi.
Kristín Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn
og barnabörn.
Vatnsdalsármálið
látiö niður falla
TÍMINN, föstudaglnn 24. ianúar 1964 —
15