Tíminn - 24.01.1964, Qupperneq 16
Föstudagur 24 janúar 1964
19. tbl. 48. árg.
Skrifstofa til
ieiðbeiningar um
fjölskyldulífið
HF-Reykjavík, 23. janúar.
9. febrúar næstkomandi hefst
námskeið í 6. námsflokki Félags-
málastofnunarinnar, Fjölskyldan
og hjónabandið, og fer kennslan
fram í fyrirlestrum með kvik-
myndum og í samtölum. Félags-
málastofnunin hefur fest kaup á
kvikmyndum til að nota við kennsl
una, og á einni þeirra ræðir Bert-
rand Russel um hamingjuna.
Félagsmálastofnunin er nú að
koma á fót leiðbeiningarskrif-
stofu að Lindargötu 9, en þangað
getur fólk leitað með ýmis þjób-
félagsleg vandamál sín í sambandi
við heimilislífið. Skrifstofa þessi
mun væntanlega taka til starfa
síðari hluta febrúarmánaðar.
í apríl er svo fyrirhugað nám-
akeið á vegum Félagsmálastofnun
arinnar um heimspekileg viðhorf
og kristindóminn á atómöld. Þetta
IÐJA
KOSNIN G ASKRIFSTOF A C-list-
ans — lista lýðrðissinnaðra vinstri
manna, er í Tjarnargötu 26. Símar:
verða tólf tímar og koma fram 10
fyrirlesarar, þar á meðal biskup-
inn. Hverjum tíma verður skipt í
þrjú atriði eða erindi, eitt mun
fjalla um efnishyggjuna, annað
um heimspeki og þriðja um krist-
indóminn. Vafalaust verður þetta
fróðlegur og gagnlegur erinda-
flokkur fyrir íslendinga, því að
þeir hugsa mikið um samband
efnishyggju og trúmála.
Fyrsti tími í námsflokknum Fjöl
skyldan og hjónabandið er sem
sagt 9. febrúar og ræðir Hannes
Jónsson um fjölskylduna og meg
inhlutverk hennar. Síðan verður
sýnd kvikmynd um erfðir og um-
hverfisáhrif og loks er erindi, sem
Pétur H. Jakobsson, læknir, held
um um kynfærin, erfðir og frjóvg
un. Á eftir er gert ráð fyrir al-
mennu umtali upi kvikmyndina og
efni erindanna. Hinir tímarnir
verða sunnudagana 16. og 23. febr.
og 1. og 8. marz.
pátttökugjald námskeiðsins er
200 krónur á mann, 100 kr. fyrir
nemendur framhaldsskóla og
hjónamiðar kosta 300 krónur. Inn
ritun fer fram í Bókabúð Kron og
í framhaldsskólunum.
“ ; y ^ ■
Magnús Eggertsson, varðstjori, í viðtali við Tímann
A VISANASVIKIN FÆR-
AST ALLTAFIAUKANA
KJ-Reykjavík, 23. janúar
Stöðugt má lesa í dagblöðun-
um um ný og ný ávísanasvlk,
að ávísanaheftum hafi verið
stolið og þar fram eftir götun-
um. Þá hafa bankarnir gert ráð
stafanir til þess að menn fari
varlegar með ávísanirnar, en
ekkert virðist duga, því ekki
mlnnka þessar falsanlr, heldur
aukast stöðugt.
Blaðið ræddi í dag við Magn-
ús Eggertsson, varðstjóra hjá
rannsóknarlögreglunni, en
hann hefur mikið með þessi
mál að gera.
— Þær eru margar og margs
konar afsakanirnar, sem menn
bera fyrir sig, þegar i óefni
er komið. Algengast er, að ekki
sé til innstæða á viðkomandi
reikningi, og ávísanirnar fást
þá ekki innleystar í viðkomandi
banka. Því er þá borið við, að
skakkt hafi verið dregið frá
stofni ávísanaheftisins, lofað
hafi verið að framvísa ekki á-
vísuninni fyrr en eftir svo og
svo langan tima. Þá er því ekki
svo ósjaldan borið við, að
bankastjóri hafi lofað víxli á
þessum og þessum degi, sem til
tekinn er, það hafi brugðist,
en búið að gefa út ávísun á
væntanlega innstæðu.
—En þetta er nú ekki nema
ein hlið málsins. Hitt er mjög
algengt, að þeir, sem taka við
ávísunum, séu alveg með lok-
uð augu fyrir því, hvort þær
eru glldar eða ekki. Svo sjálf-
sögð atriði sem framsal gleym-
ist oft á tíðum, en auðvitað á
sá, sem selur ávísun, að rita
nafn sitt á hana í viðurvist
þess, sem kaupir. Nú svo eru
af þessu ýmis afbrigði, t. d.
eins og tvær, sem ég er með
hér. Þetta eru yfir 30 ára göm-
ul ávísanaeyðublöð, sem við-
komandi aðili hefur fundið ein
hverstaðar, þvæld og rifin. Á
þeim er upphæðin skrifuð £
tölustöfum þar sem eiga að
vera bókstafir, og svo er ekkert
skrifað í reit viðtakanda eða
þess, sem ávísunin er gefin út
á. Það er nærri óafsakanlegt,
að kaupa svona ávísanir.
Fólk þarf að athuga vel sinn
gang, áður en það tekur við á-
vísunum eins og þau sjálf-
sögðu atriði, að upphæð sé
bæði skrifuð í tölustöfum og
bókstöfum, að ávísanimar séu
framseldar eða útgefnar í við-
urvist þess, sem kaupir þær,
Framhald á 15. sfSu
MAGNÚS EGGERTSSON, varðstjórf, meS InnlstæSulausar og fals-
aSar ávlsanlr fyrlr framan sig.
160 66, 155 64 og 1 29 42.
Þeir, sem vildu leggja fram
vinnu við kosningaundirbúninginn
og á kjördag (n. k. laugardag og
sunnudag) eru hvattir til að hafa
samband við skrifstofuna sem
allra fyrst.
Vinnum öll að glæsilegum sigri
C-LISTANS í Iðju n. k. laugardag
og sunnudag.
AKRANES
FRAMSÓKNARFÉLAG Akra-
ness heldur skemmtisamkomu í
félagsheimili sínu að Sunnubraut
21 n. k. sunnudag kl. 8,30. Spiluð
verður framsóknarvist og sýndar
kvikmyndir. Öllum er heimill að-
gangur.
Vantar 350 mill. i Land-
spítala og Borgarspítala
TK-Reykjavík, 23. janúar.
ÞAÐ vantar 350 milljónir króna!
til þess að unnt verði að ljúka við
viðbyggingar Landspítalans og
Bæjarsjúkrahúsið eins og þær
framkvæmdir hafa verið ákveðnar,!
en samtals munu þessi mannvirki
kosta 500 milljónir króna.
Til viðbyggingar tengiálniu og
vesturálmu við Landspítalann hef-
ur nú verið varið 76 milljónum
króna en til að Ijúka þeim bygg-
HJALPARSJÓDUR ÆSKU
'm
FÓLKS SETTUR Á STOFN
FB-Reykjavík, 23. janúar.
STOFNAÐUR hefur verið Hjálp-
crsjóður æskufólks, en markmið
lians er að flýta fyrir því, að reist
verði heimili fyrir börn og ungl-
inga, scm eiga hvergi höfði sínu
að halla, eða lent hafa á glapstig-
um, auk þess sem veita má úr hon-
um styrki eða lán til barna og ungl
inga, sem ekki hafa aðstöðu til
þess að dveljast á heimilum sínuin
af einhvcrjum ástæðum.
í sjóðinn rennur allur ágóði af
sýningum kvikmyndarinnar Úr dag
bók lífsins, en auk þess hefur ver-
ið gerð sérstök söfnunarbók, secn
mun fylgja myndinni, hvert sem
hún fer, og geta menn þar skráð
nöfn sín, um leið og þeir láta fé
af hendi rakna. í Reykjavík og
Hafnarfirði verður þó annar hátt-
ur hafður á, og mun bókin liggja
írammi í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í Austurstræti á næst-
unni, en myndin verður bráðlega
tekin til sýninga í Tjarnarbæ.
Magnús Sigurðsson skólastjóri,
sem lét gera myndina Úr dagbók
lifsins skýrði blaðamönnum frá til
komu sjóðsins og bókarinnar á
fundi í dag. Sagði hann, að bókin
hefði fyrst verið lögð fram við sýn-
Framhald é 15. slðu.
ingum, þarf 93,3 milljónir til við-
bótar og er vonast til að þeim
geti verið lokið á árinu 1966 og
þá verði unnt að taka til notkun-
ar 4 deildir með samtals um 100
sjúkrarúmum. Þá er eftir bygging
norðurálmu og er áætlað að hún
muni kosta um 135 milljónir. í
norðuráknu á að vera m. a. geð-
veikradeild með rúm fyrir 100
sjúklinga. Horfurnar í geðveikra-
málum landsins eru geigvænlegar.
Er talið að þörf muni 500 sjúkra-
rúma fyrir geðveikisjúklinga hér
á landi og þegar sé brýn þörf 300
nýrra sjúkrarúma til að draga úr
neyðarástandinu, sem ríkir í þess-
um málum. Á Kleppi er rúm fyrir
240 sjúklinga, en oft hefur verið
þrengt þar inn 270 sjúklingum. —
Helmingurinn af þessum sjúkling-
uen er í gamalli timburbyggingu,
sem byggð var árið 1908. Vegna
fyrirhugaðrar hafnar er sýnilegt
að geðveikraspítalinn verður að
flytjast frá Kleppi. Æskilegast er
talið, að fyrst verði komið upp 100
sjúkrarúmum við Landspítalann
fyrir geðsjúklinga, en þau mætti
nýta fyrir aðra sjúklinga, er
byggður hefði verið nægilega stór
geðveikraspítali á nýjum stað.
Til Borgarsjúkrahússins í Foss-
vogi hefur nú verið varið 73 mill-
jónum króna. Til að fullgera það
þarf 135 milljónir til viðbótar og
mun húsið því kosta ef áætlað er
við núverandi verðgildi krónunnar
rúmar 200 milljónir króna. Búist
er við að 1. áfangi byggingarinnar
verði lokið fyrir árslok 1965 og
bætast þá við 185 sjúkrarúm. 2.
áfanga er áætlað að ljúka fyrir
árslok 1966 og bætast þá við 35
sjúkrarúm.
Upplýsingar þéssar komu fram
i ræðu, sem Jóhann Hafstein, heil-
brigðismálaráðherra flutti á Al-
þingi í gær, er hann fylgdi úr hlaði
írumv. um breytingu á lögum
um sjúkrahús. Taldi hann ástandið
í sjúkrahúsmálunum geigvænlegt
og að gera þyrfti raunhæfa áætlun
Framhal^ 6 15. slðu.
- Listi lýðræöissinnaðra vinstri manna í Iðju-xC
I