Alþýðublaðið - 24.12.1952, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 24.12.1952, Blaðsíða 5
JÓLAHELGIN hátíðaljósin. Það' var siður í gamla daga, að alls staðar voru sett 'ljós í hvern afkima um allan bæinn, svo hvergi skyldi bera skugga á. Þessi Jjos voru látin brenna alla nóttina. Það hefur tíðkazt til skamms tíma, að láta Ijós lifa í baðstofunni alla jólanóttina, og það er enda siður enn í sumum sveitum. Eftir að Ijósin eru kveikt og ailt hefur fengið þann hatiðasvip, Sem kostur er á, þá er lesinn húsiestur. Eftir Iesturinn er diukkið sætt kaffi með lummum. Síðan gefur húsmóðirin hverjum manni á heimiilinu kerti; það heita „jolakerti". Þá er rnikið um dýrðir hj4hörnunum’ Þegar Þau ganga um goliið í hátíðabúningnum með jóla- kertin í höndunum, og eru ýmist að slokkva á þeim eð'a kveikja á þeim aitur. Þegar á kvöldið líður, er mat- ui borinn fram; er > það venjulega supa með nýju kjöti. Aðaíjólamatur- inn er venjulega eigi skammtaður lyrr en á jóladagsmorguninn, en það er hangikjöt, brauð og flot og alls konar sælgæti. Var það venja, og er sums staðar enn, að Jiver maður fengi þá svo ríflegan skammt, að lann entist Jionum með öðrum mat fiam yfir hýár. Þessi skammtur heitir „jólarefur". Þótt mikil glaðværð sé um j.ólin, Og spil og ýmis konar leikir hafi þá mjög tíðkazt, hefur það ávallt þótt osæmilegt, að Iiafa mikinn gáska og glaðværð á sjálfa jólanóttina. Þá er sem einhyer ólýsanleg og óendanleg Jelgi hafi, gagijtekið allt. Jólanóttin l-,v' Stundum kölluð „nóttin i*;Jga“, svo. sem hún sé lieilög fram- ar öJIum öðrum helgum nóttum. Um hiiðnætti er helgin mest. því þá ætl- hÖu mehn, að. frelsarinn væri fædd- Eftir aimennri trú verða ótal Hkn og, stórmerki í það mund, sem -i'elsari mannamia fæddist. Það' er öí.I náttúran íai þá nýti: lif. Þá G mállaus dýrin mál, og jafnvei hinr uauð'u rísa úr gröfuhum. Það r sehi^allt losni úr fjötrum og allt ’erði lifandi, fagni og gleðjist. Á • nu augnabliki breytist þá allt vatn vm. I öðrum löndum cv það víða pjUenn írú, að ýmis dýr fái mál á anótlina;,pn bér á lándi er .sú trú hhennust um kýrnar, að þær tali ' þrettáiidanótt lrina síðustu jóla- jút: Á jólanóttina er það', að ’ vu-kjugarður rís“, en það er í því falið, að allir hinir dauðu úr ldrkju- garðinum rísa úr gröfunum og koma saman^ í kirkjunni og halda þar guð'sþjónustu. Á jólanóttina veíða selirnir að mönnum, svo sem þeir voru upphaflega, því þeir eru allir komnir . af Faraó 0g hans liði, er varð að selum í Hafinu rauða, Á jólanóttina eru alls konar vætt- ir á ferðinni, illar og góðar. Ein af þeim er jólakötturinn. Hann gerir engum mein, sem fær einhverja nýja flík fyrir jólin, en hinir „íara i jólaköífmn“, en það er í því falið, að jólakötturinn tekur þá, eða að minnsta kosli jólarefinn þeirra. Sumir segia og, að þeir sem fari í .ióiaköttinn, eigi að bera hrútshorn í hendinni þangað sem þeir eru fæddir. Þykir sú skrift bæði hörð og óvirðuleg, sem von er. Þess vegna leitast ailir, við,* að g’era sig þess maklega af foreldrum sínum og. hús- bændum, að beir fái einhverja nýja fiík fyrir .ióiin, svo að þeir í'ari eicki í bannsettan jólaköttinn., Á jólanótlina koma jólasveinarnir ofan af fjöllunum. Þeir eru ýmist taldir 13 eða 9. Þeir vilja fá sinn skerf af jólamatnum og öðru því, sem til fagnaðar er haft. Kertasník. ir vill fá kerti, Kjötkrókur vill fá kjöt og Pottasleikir vill fá að sleikja innan pottinn o. s. frv. Jólasvein- arniiy geta verið -viðsjálsgripir, eins og sjá má aí' vísunni; Jólasveinar einn og átta; o. s. l'rv. Þá er og hulduíólkið á ferðinni. Það' fer ian í bæina og heldur þar dansa og veizlur. Það barf margs að’ gæta til þess að' styggja ekki huldu- fólkið, því það er illt viðureignar, ef því misííkar, og má við öllu búast af því. Það var því ekkert gaman að vera einn lieima á jólanóttina í gamla daga, þegar annað fólli var lai'ið til tíða. Margt var gert til þess að iagna húldufóikinu som þezt'og iorðast- reiði þess. Ilúsbóndinn eða husmó.ðirin gekk þrisvar sinnum sölarsinhis kringum bæinn og bauð huldufólkinu heim með þessum orð- um; „Komi þeir, sem koina vilja, veri þeir, sem vera vilja, og fári þeir, .sem fara vilja, mer og mínum að meina]ausu.“ Þegar huidufólkið kernur o.g sér, að allt er þvegið og hrei.nl, og aliur bærinn svo vel iýst- ui, að hýergi ber skugga á, þá hýrn- ar yíir því, og þá segir bað: „Hér er w w bjart og hér er hreint og hér er gott að leika sér. En ef það sér einhver óhreinindi, eða að einhvers staðar er skuggsýnt, segir það: „Hér er ekki bjart og hér er ekki hreint og hér er ekki gott að leika sér.“ Má bá jafnan búast við einhverju illu af því. Margs konar illar og óhreinar -vættif eru á ferðinni á jólanóttina, að’rar en jólakötturinn, jólasveinarn- ir °S huldufólkið. Era þær allar mjög viðsjárverðar. Þó gera þær ekki mein, ef allt er hreint og bjart og þær verða eigi varar við neinn gáska og léttúð, og sérstaklega ef þeir, sém heima erú, sitja við að lesa í einhverri góðri guðsorðabók Engin ill vættur þolir að heyra nafn Jesú nefnt, og ekkert nafn guðs. Ég skal segja eina stutta sögu, sem sýn- ir bað. Einu sinni voru nokkur börn heima á jólanóttina, en allt full- oiðna folkið hafði farið til tiða. Þeim höfðu verið gefnir fagurrauðir sokk- ar. Þau léku á gólfinu með jólakert- in sín í höndunum, og lá nú heldur en ekki vel á þeim. Einkum fannst þeim mikið til um rauðu sokkana sína, og þótti hverju fyrir sig sínir sokkar vera fallegastir. „Sko minn fót, sko minn fót, sko minn rauða fót! sögðu þau. Þá er sagt á glugg- anum með ógurlega Þungri drynj- andi rödd: „Sko minn fót, skö niinn fót, sko minn gráa dingulfót.“ ()U börnin urðu dauðhrædd nema yngsta barnið. Það var mílli vita og kunni ekki að hræðast eins og hin börnin, Það kallaði út í giuggann og sagði; „Ert. þú Jesús Kristur, sem fæddist í nótt?“ Þá þagnaði þessi voðarödd á augabragði og bar eigi á lienni i'ramar. Hafði þetta verið ein- liver ill vættur, sem vildi taka börn- in, ert þoldi eigi að heyra nafn Jesú néfnt. Eí' allt fer vel og siðsamlegá fram á jólunum, barf eigi að óttast, að illar vættir geti gert mein. Það er því eigi að undra, þött allir hlakld tii jólahna, eigi að undra, þótt börn- in segi, þegar jólin nálgast:’ „Kátt er á jólunum, koma þau senn,“ þyí að þá er meira um dýrðir en.á nokk- uiii annari Iiátíð. Það sexíi þó sér- Framhald á3f. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.