Tíminn - 24.07.1964, Blaðsíða 15
ENGIN KVÖLDSALA
Franihaid at 1. sfiJu.
ustu, svo að ólíklegt er að sam-
staða náist meðal þeirra um samn
ingaviðræður við verzlunarmenn.
Að vísu létu kaupmannasamtök
in svo sem þau væru öll af vilja
gerð að bæta þjónustu við neytend
ur, þegar hinar frægu tillögur
þeirra voru á dagskrá, en menn
hljóta að furða sig á því, að
þeir skyldu þá um leið semja við
verzlunarmenn til tveggja ára um
fastákveðinn vinnutíma, sem sam
rýmdist alls ekki þeim lokunar
tíma, sem tillögurnar kváðu á um.
_ Blaðið ræddi m. a. við Svein
Ásgeirsson, formann Neytenda-
samtakanna og spurði um aðgerð
ir samtakanna í þessu máli. Hann
sagði, að neytendasamtökin hefðu
því miður ekkert vald, en þau
hefðu frá því fyrsta stundað áróð
ur fyrir bættri þjónustu við neyt
endur, m. a. með kvöldsölu, og
reynt eftir fremsta megni að
styðja hverjar breytingar til
batnaðar. Hann sagði, að stjórn
neytendasamtakanna hefði m. a.
rætt um einhvers konar mótmæla
aðgerðir, jafnvel verkfall neyt-
enda, þegar sýnt þótti, að ekkert
yrði úr framkvæmdum í kvöld-
sölumálum, en ekkert hefði enn
verið ákveðið. Eins og er, er
raunverulega ekkert hægt að gera
annað en bíða átekta og vita,
hvort kaupmenn og verzlunar-
menn semja ekki, svo að kvöld-
salan komist aftur á. En til þess
virðist engin von í bráð.
SAUMAVELIN
Framhald af 1. síðu.
ur einn tvíbreiður. Þá eru
í vélinni saumuð rúmteppi,
húsbóndateppi, sængur og
fleira. Kristinn sagði okk
ur að bráðlega yrði sett
upp tæki við vélina, og þá
gæti hún saumað út í stórar
ábreiður og teppi, alls kon
ar munstur.
VOPNFIRÐINGAR
Framnam at 16 síðu.
sumar var tekið til við borunina
aftur og gekk hún nú betur. Bor-|
holan mun vera um 40 metra djúp,'
og virðist þessi hola ætla að reyn-j
ast nokkuð vel, og má nú búast
við, að vatnið verði nokkurn veg-
inn nóg, að sögn Vopnfirðinga. j
Þá var einnig hafizt handa um'
það í sumar, að reisa annan vatns-j
geymi við hlið hins gamla. Nýi,
geymirinn tekur 300 tonn af vatni
og verður senn fullgerður.
MINNING
Framhald af bls. 12.
Tónsmíðar hans eftirlátnar eru
fáar sem Ijóð Anakreons, en þær
boða birtu og ljóma, svo sem
gerðu kvæði Anakreons. — Undir
suðrænni sól hefði hann orðið arf-
taki þessa gríska gleðiskálds. Og
nú vitum við, hvar hans er að
leita.
„Þar sem að gróa þéttar á grundu
rósir og vaxa um vang
vínberin fögur á grein,
þar sem með sætum söngvi að una
á sumrunum fuglar,
þar við hin þýðustu blóm,
þar er Anakreons gröf.“
Hafðu þökk, félagi og vinur, nú
og ævinlega.
Dr. Hallgrímur Helgason.
Á VlÐAVANGI
lega búnir að missa stjórnar ;
taumana úr höndum sér að
verulegu leyti. Eðlilegt væri, að
slík stjórn segði af sér við!
fyrsta tækifæiri og gæfi Alþingij
og þjóðinni tækifæri til aðj
móta nýja stjórnarstefnu.“
NET AV ERKSTÆÐI
Framhald af 16. síðu.
með 60 fermetra grunnflöt. Er
áætlað, að netaverkstæðið kosti
fullgert um 3.7 milljónir.
Mjög mikil verðmæti eru oft
geymd á netaverkstæðinu, og
verður því mjög vandað til
brunav^rna í nýju bygging-
unni. Ekki er ennþá ákveðið,
hvaða kerfi verður notað. Þó
hefur t. d. komið til greina að
leggja sjálfvirkt slökkvikerfi,
sem er þannig að rör, með
rifum eða götum eru lögð um
bygginguna þvera og endilanga.
Inni í þeim rörum eru hafðar
slöngur, sem tengdar eru við
vantsgjafa. Þessar slöngur
springa síðan við visst hitastig
og flæðir þá vatn um allt.
Friðrik sagði þó við frétta-
ritara blaðsins í dag, að ekk
ert væri enn ákveðið um,
hvaða slökkvikerfi yrði notað.
Maður frá brunaeftirliti ríkis-
ins kom til Neskaupstaðar fyr
ir nokkur dögum og var þá
rætt um nýrra slökkvikerfi en
þetta. Þó mun það að einhverju
leyti byggjast á sömu grund-
vallaratriðum.
Auk þess verður brunahani
staðsettur við netaverkstæðið
og liggur tveggjg þumlunga að-
rennslisrör að honum.
Friðrik Vilhjálmsson hefur
netaverkstæði sitt nú í gam
alli trébyggingu og er þ«r hin
mesta eldhætta, svo að nýja
húsið er hin mesta nauðsynja
bygging.
SJÓMANNSKONUR
Framhald af 16. síðiL
hljóðið. En það var gert við
bílinn á Blönduósi, og ég vona,
að þau hafi komizt leiðar sinn
ar á mánudag.
— En þar með var ekki
hjálparstarfseminni lokið, var
það?
— Nei, þegar við komum að
Staðarskála, var þar fyrir bil-
aður stationbíll, og ég lofaði
að taka hann í bakaleiðinni.
Hann var svo á pallinum hjá
mér suður um nóttina.
— Var það eins fjörugt fólk?
— í þeim bíl voru þrír far
þegar, en þeir voru nú daufari
í dálkinn, enda komin nótt.
— Kemur svona lagað oft
fyrir á ferðum þínum?
— Þetta var nú með mesta
móti. En ég tek samt nokkuð
oft litla bíla á pallinn hjá
mér, og það er ágætt að geta
hjálpað náunganum þannig. Yf
irleitt gerist eitthvað skemmti
legt í hverri ferð.
— Og hvert heldurðu núna?
— Til Akureyrar og Egils-
staða fyrir Innkaupastofnunina.
Ég þarf að fara að koma mér
af stað.
SÍLD TIL OLAFSFJ.
BS-Ólafsfirði, 23. júlí.
HINGAÐ komu í dag 4 bátar
með síld. Stígandi 300 tn., Guð-
björg 305 tn., Ólafur Bekkur 316,
og Sæþór 230. Saltað var á tveim
plönum 552 uppsaltaðar tunnur,
en afgangurinn af afla bátanna
263 tunnur fóru í frystingu. Á
síldarplani Jökuls voru saltaðar
362 tunnur og hjá Stíganda s.f.
190 tunnur. Var þetta fyrsta síld-
in sem söltuð var hjá Jökli, en þar
var búið að salta í 3100 tunnur á
sama tíma í fyrra og hjá Stíganda
var búið að salta í 3700 tunnur,
en nú hefur verið saltað þar í
92ft,tuiuaur„ Síldin sem nú var $ölt
uð var jöfn, og saltað rúml. 60%
af henni. Bátarnir fengu síldina
djúpt út af Langanesi.
8 SAGT UPP
AF SELFOSSI
KJ-Eeykjavík, 23. júlí.
Stjórnarfundur Eimskipafé-
lags íslands samþykkti í gær,
að þeim átta skipsmönnum af
Selfossi, sem gerðust sekir um
smygltilraun á dögunum, skyldi
vikið úr starfi tafarlaust. Sam-
kvæmt þeirri samþykkt fóru
þeir áttmenningamir allir úr
skipsrúmi í gær með pjönkur
sínar. Eins og sagt var frá hér í
blaðinu í gær, þá gaf Eimskip
út yfirlýsingu á sínum tíma
þess efnis, að þeir skipverjar
félagsins, sem gerðust sekir um
smygl, yrðu umsvifalaust rekn-
ir úr skipsrúmi, og hefur þeirri
samþykkt verið fylgt hér.
Meðal þessara átta skips-
manna Selfoss, sem reknir
voru í land munu vera tveir af
stýrimönnum skipsins.
S.Þ. veitír 20
milijónir tíl raf-
orkurannsókna
HF-Reykjavík, 23. júlí.
SÉRSTAKUR sjóður Samein
uðu þjóðanna hefur nú veitt fs-
landi 20 milljón króna styrk
til raforkumálarannsókna. —
Styrkur þessi mun verða not-
aður til að borga kostnað á und
irbúningsrannsóknum um virkj
anir í Hvítá og Þjórsá, en þær
rannsóknir munu taka tvö ár.
Það var „U. N. Special Fund“,
sem veitti þennan styrk og er
hann óendurkræfur.
Samningar um styrk þennan
voru undirritaðir í Washington
13. júlí s. 1„ af Thor Thors,
ambassador íslands í Banda-
ríkjunum, og Paul G. Hoffman,
framkvæmdastjóra sjóðsins. —
Eitt hið fyrsta, sem gert verður
fyrir peningana, er að reisa
rannsóknarstofur uppi við Brú-
arfell. Tveir sérfræðingar frá
Noregi hafa dvalið hér að und
anförnu við rafdrkurannsóknir
og er þegar byrjað að rann-
saka ísmyndanir í Þjórsá. Nú
munu fleiri erlendir sérfræð-
ingar verða fengnir hingað og
þéim greitt af framlagi SÞ. —
ísland hefur aldrei áður fengið
framlag úr þéssum sjóði.
SLÝIÐ GREINT
Framhald al 16. siðu
Eins og sagt var frá í blaðinu
í dag, er talið, að þetta slý hafi
borizt hingað til lands með ó-
venjusterkum, suðlægum straum-
um
DRYKKJA OG SLAGSMÁL
Framhald af 2 síðu
aðhöfðust fleira af því tagi. Gekk
það svo langt, að í fyrrinótt fóru
tveir Seyðfirðingar um borð í eft-
irlitsskipið, komu að máli við skip
herrann og kröfðust þess, að hann
hefði betri aga á mönnum sínum,
því að annars myndi framferði
þeirra kært til viðkomandi ráðu-
neytis. Tók skipherra máli þeirra
vel og sendi menn í land til þess
að flytja „hermenn" sína um borð.
Seyðfirðingar eru mjög óánægð-
ir með þróun mála undanfarna
daga, enda standa ólætin fram til
klukkan 5 á morgnana og er því
ekki um svefnfrið að ræða hjá
þeim. Einungis fjórir lögregluþjón
ar starfa nú á Seyðisfirði, og ráða
þeir að sjálfsögðu ekfcert við þenn
an fjölda. Þeir hafa heldur engan
lögreglubíl og einungis þrjá fanga
klefa, hvern þeirra fyrir einn
mann. f fyrrinótt varð t. d. að
halda rétt til kl. 3 um nóttina til
þess að hægt væri að koma nýjum
sökudólgum í fangelsi.
YFIR TUNGNAÁ í KLÁF
Framhaid af 16. siðu.
Sprengisandsleið. Þegar Illugavers
leiðin er farin, er haldið áfram
suður að Köldukvíslarbrú, suður
*c-i
íþróttir
Framhald af 5. síðu.
tneistara Fram í innanhússhand-
knattleifc, en undanfarin ár hef-
ur Fram ekki tekið þátt í útimóti.
Má því búast við, að FH, sem hef-
ur sigrað 8 ár í röð í íslandsmóti!
utanhúss, fái hárða keppni. Auk|
FH og Fram keppa í meistara-i
flokki karla Haukar, KR, ÍR og!
Ármann.
í meistaraflokki kvenna eru
þátttökuliðin 7 talsins og sama er
að segja um 2. flokk kvenna, þar
eru þátttökuliðin einnig 7 talsins.
Mótið í ár verður því umfangs-
mikið og getur staðið yfir allt til
10. ágúst.
i S-Þing.
FÉLÖG ungra Framsóknarmanna
í Suður-Þingeyjarsýslu halda hér-
aðsmót um næstu helgi. Á laug-
ardagskvöld verður aðalhátíðin að
Laugum og svo sunnudagskvöld
að Skjólbrekku í Mývatnssveit.
KARL
JÓN
LAUGAR.
Héraðsmótið laugardaginn 25.
júlí hefst kl. 9 síðdegis. Ræður
og ávörp flytja alþingismennirn-;
ir, Jón Skaftason
og Karl Kristjáns
son og Kristján
Ingólfsson sfcóla-
stjóri. Sfcemmti-
atriði annast
Haukur Morth-
ens og hljómsv.,
Jón Gunnlaugs-
KRISTJÁN son gamanleikari
og Kristinn Hallsson óperusöngv-
ari, við undirleik Ólafs Alberts-
sonar. Að lokum verður dansað.
Haukur Morthens og hljómsveit
leika og syngja fyrir dansi. Ungl-
ingar innan 16 ára fá ekki aðgang
að þessari samkomu.
SKJÓLBREKKA.
Sunnudagskvöldið kl. 9 verður
héraðsmótinu fram haldið, en þá í
Skjólbrekku í Mývatnssveit og er
sérstaklega ætlað ungu fólki á
aldrinum 14—21 árs. Algerlega er
bannað að hafa áfengi um hönd.
Skemmtiatriði verða hin sömu og
á Laugum.
fl ouwux au AVuruuiwiaicU. UTU, bUOUr
; fyrir Þórisvatn, austur undir Veiði
vötn og þar fram á Hofs-vað
við Tungnaá Sprengisandsleið-
in liggur aftur á móti meðfram
vörðunum fram að Eyvindarkofum
fyrir austan Biskupsþúfu og fyr
ir ofan Sóleyjarhöfða og þaðan
beint frarn að Haldi (éða kláf-
ferjunni). Nýlega kom það fyrir,
að ferðafólk, sem ætlaði Sprengi
sandsleiðina suður að Haldi, villt
ist á Illugaversleiðina og hafnaði
á HofsvaðL Þar varð fólkið svo
uppiskroppa með olíu og varð að
senda hana á móti því úr byggð.
Fyrsti jeppinn fór, eins og áð-
ur er sagt, yfir Tungnaá méð
kláfferjunni í gær. Ekki var búið
að ganga frá uppfyllingunni að
norðanverðu við ferjuna, en bíln-
um var náð niður með staurum.
Búizt er við, að kláfferjan verði
opnuð til umferðar í dag eða á
morgun, en á Akureyri bíður
fjöldi af jeppum eftir því að ferj
an opni. Ekki er hægt að fara
Sprengisandsleiðina á litlum fólks
bílum, og jeppar ættu ekki að
fara, nema að hafa samfiot.
Eftir að Vegamálaskrifstofa Ak
ureyrar hefur sett upp vegvísa og
önnur kennileiti á Sprengisands-
leiðina ætti fólki ekki að verða á
að villast, en frá kláfferjunni nið-
ur að yzta bæ Eyjafjarðar er
205 kílómetra vegalengd. Frá
Tungnaá að Innra-Hreysi eru 96
km, frá Innra-Hreysi að vegamót
um Eyjafjarðar og Bárðardals eru
43 km og frá vegamótum Eyja-
fjarðar og Bárðardals að Þór-
móðsstöðum, sem eru yzti bær í
Sölvadal, eru 66 km. Frá Þormóðs
stöðum til Akureyrar eru svo 50
| km.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartanlegt þakklæti sendi ég öllum, sem minntust mín
á sjötíu og fimm ára afmæli mínu 16. júní s- 1., sendu
mér skeyti, blóm og aðrar gjafir eða. glöddu mig á ann-
an hátt. Sérstaklega þakka ég börnum mínum og tengda-
börnum sinn mikla þátt í að gera mér daginn ánægjuleg-
an. Hafið öll þökk.
Kristín Sigurðardóttir frá Skútustöðum.
Maðurinn minn,
Guðmundur Jónsson,
Hólmi, Austur-Landeyjum,
verSur jarðsunginn laugardaginn 25. þ. m. — Athöfnin hefst með
húskveðju frá heimili hins látna klukkan 4 siðdegis.
Fyrlr mfna hönd og barna minna.
Gróa Krlstjánsdóttir.
T f M I N N, föstudagur 24. júií 1964.
15