Tíminn - 10.10.1964, Qupperneq 6
Starfshættir í
heimavistarskólum
Hvað er heimavistarbarnaskóli?
Það er starfsemi, sem greina má
í tvennt, annars vegar fræðslu-
stofnun og hins vegar heimili.
Fræðslustofnunin er sambæri-
leg öðrum heimangönguskólum.
Námskröfur til barnanna eru ná-
lega hinar sömu og í öðrum skól-
um, þrátt fyrir 1—2 ára styttri
námstíma og helmingi færri náms
daga í skóla á hverjum vetri.
Þetta fræðsluform krefst sérstakr-
ar tækni af hendi kennarans.
Glöggt eftirlit og skipulag þarf að
hafa á námi barnanna meðan þau
dvelja heima hjá sér. Námsálag er
mun meira þá daga, sem þau
dvelja í skólanum en eðlilegt er
miðað við reglubundinn daglegan
skólatíma allan veturinn. Eftirlit
er haft með lestri og námi barn-
anna síðdegis og þeim hjálpað
eftir því sem þörf gerist. í bréfa-
skólaformi og stuttum námsskeið-
um er 8 og 7 ára börnum hjálpað
með undirbúningsnám í lestri,
reikni’ngi og skrift. Hvort tveggja
er að þau eru of ung til að delja
í heimavist reglulega yfir vetur-
inn og víðast hvar í skólunum eru
þrengsli það mikil að sú aukning
‘mundi ekki rúmast í skólunum.
Þann aðstöðumun, að hafa nem.
allan veturinn og geta byrjað 1—2
árum fyrr, sem almennir skólar
hafa, er reynt í heimavistarskólum
að vinna upp með öllum ráðum.
Hvers vegna skyldi löggjafinn
krefjast 1 árs lengri reynslutíma
af kennurum við heimav.skólana
en rjið aðra sambærilega skóla?
Framangreind atriði, auk þeirra
er siðar verða upp talin, rökstyðja
að nokkru þær kröfur, sem gera
þarf til kennara í heimav.skólun-
um. Hliðstæðu námi er lokið á
mun skemmri tíma en í öðrum
skólum. Náms- og prófkröfur eru
þær sömu. Samkvæmt árlegu yfir-
liti frá Námsstjóra um einkunnir
12 og 13 ára barna á landsprófs-
fögu'num þá eru heimav.skólarnir
með sízt lakari, jafnvel betri eink-
unnir en hinir almennu skólar.
Þessi 'stutta frásögn verður að
nægja um það hversu fræðslu-
stofnunin er frábrugðin öðrum al-
mennum skólum.
Skal þá vikið að hinum hluta
stofnunarinnar og að því, er þessi
greinargerð á fyrst og fremst að
fjalla um og kynna nánar. Það
er sjálf heimavistin, heimilishaldið
sjálft, sem gerir mestan greinar-
mun frá hinu almenna skólaformi.
Mjög áberandi er hversu margir
eru ókunnugir og fáfróðir um
þessa starfsemi og hafa jafnvel
rangar hugmyndir um eðli þessa
starfs, sem fram fer utan kennslu-
stunda.
Heimilisstörfin og félagslíf með-
ai nemenda er harla umfangsmik-
ið og greinist í mörg og óskyld
atriði. í eftirfarandi frásögn er
aðeins stiklað á því stærsta, en
alls ekki gerð fullnægjandi skil
hinum mörgu þáttum, sem féltt-
ast þar saman. Þá er einnig í lok-
in bent á æskilegt framtíðarskipu-
lag í þessum störfum.
Nú þykir alveg sjálfsagt að sér-
stakt fólk annist matargerð á
þessu stóra heimili og sérstöku
fólki er ætlað að annast ræstingu
á skólanum og heimavistinni. En
börnin lifa ekki á brauðinu einu
saman. Þegar út í það er komið að
meta umsjónarstörfin í heima-
vistarskólunum, þá kemur margt
í Ijós. Undirrót að grundvallar-
skekkju í þessu mati er tvenns
konar, annars vegar hið rótgróna
vanmat á störfum húsmóðurinnar
á hverju heimili og hins vegar að
þessir stóru heimavistarskólar eru
svo nýir af nálinni og hafa sprott-
ið upp úr mjög fámennum heima-
v.sk., þar sem aðgreining á starf-
seminni var eigi gerð né ástæða
að gera það sökum fámennis.
Nú er því ekki til að dreifa að
okkur vanti fyrirmynd af þessum
heimilum. Fyrirmyndina höfum
við bæði frá hinum stóru sveita-
heimilinu á íslandi fyrr á árum
og einnig frá sambærilegum skól-
um erlendis, t.d. frá Noregi.Megin.
kjarninn er sá að heimilisstörfin
öll, þar með talin matargerð, ræst-
ing og allir heimilishættir nem-
enda, þurfa að vera í höndum
reyndrar og velmenntaðrar hús-
| móður.
Mjög víða hafa það verið óskrif-
uð 'lög og hefð að eiginkonur
l skólastjóranna hafa að meira og
j minna leyti þurft að taka hluta af
■ þessum störfum í sínar hendur og
(Orðið skólastjórunum ómetanleg
1 hjálp, en jafnframt algerlega ó
| launað starf Meðan heimilishætt-
ir nemenda eru einstaklingsbundn-
, ir og ósamræmdir og eftirliti er
i skipt á milli margra sinn hvern
I daginn, þá verður mótunin öll (
- sy v ijjjHpPI;
Eftir skrá um íslenzkar þjóðsögur hefur fjöldi bókamanna beSið um
áraraðir. Er nú komin út í fallegri og hentugrl útgáfu. Fæst í bóka-
búðum.
SlvKÁ 'IIM ÍSLÉN/KAR
l»J()ÐSÖGlj l\ OG
SKYLD RIT
SA.AIÁ V II Kl f K TKKIl).
STÍOIVDÓH STF.j.VDÓIlSSON
FKA IIl.ÖDUM
BÓKAÚTGÁFAN ÞJÓÐSAGA. Afgreiðsla Þingholtsstræti 27.
Símar 24216 og 17059.
molum. Börnin komast upp með
ýmsan óvanda og óhollar venjur í
klæðaburði, borðsiðum. heimilis-
venjum og fasi.
Annar mjög stór þáttur í heim-
ilishaldinu er félagslífið, tón»
stundirnar, útileikirnir, útivistin,
kvöldvökumar. Þessum þætti
heimilishaldsins verður ekki sinnt
sem lítt eða ólaunuðum aukastörf-
um. Framkvæmd þessara starfa er
mjög umfangsmikil og krefst mik-
illar hugkvæmni, því engin reglu-
gerð er þar til stuðnings. Nútím-
inn gerir þær kröfur til skólanna
að þessu sé sinnt f æ ríkara mæli,
hjá því verður ekki komizt. í
stærri skólunum er fullkomið
starf fyrir einn mann á þessum
vettvangi.
Að lokum er hér nokkur atriði,
isem snerta skólastjórana fyrst og
; fremst. Gild rök liggja að því að
greiða beri skólastj. heimangöngu-
jskólanna fyrir tví- og þrísetningu,
vegna þess hvað það lengir starfs-
i tíma þeirra. Hversu mikið ætli
i umsjónin yfir heimilishaldinu
lengi þá starfstíma skólastj. í
; heimav.sk. Þar er það allur dag-
I urinn, kvöldið og sums staðar
nóttin líka.
Þá er ástæða að nefna húsvörzl-
una árið um kring, þótt það snerti
eigi hið lifandi starf. Mjög fer
það eftir stærð skólanna, hvenær
ráðinn er sérstakur maður í það
í heimangöngusk. En þar er þetta
metið og greitt að fullu. Við
heimav.sk. er þetta sett á herðari
skólastjóranna yfirleitt og það ó-j
umsamið. (óátaliðl og í flestum
tilfellum ólaunað
Sala og afgreiðsla á skólavörum
nemenda er víðast hvar höfð íj
skólunum, enda hentar annað
naumast. Reikningshald yfir mötu-1
neyti og skólavörur er í höndum
skólastj. og mjög víða rekstrar-
reikningurinn líka
Þjónustuíbúðir þær, sem af eðli-1
legri nauðsyn eru staðsettar við
heimavistirnar hafa aldrei verið
metnar sem slíkar
Skal nú staðar numið, þót ýmis.
legt fleira mætti telja.
Helztu niðurstöður greinargerð !
arinnar eru þessar;
Heimilisstörfin. umsjónar og
gæzlustörfin hafa verið allt of lágt
metin. Ráða skal sérstaka hús-
móður, sem annast umsjón með
daglegu heimilishaldi nemenda ut-
an kennslu-, náms- og tómstunda.
Undir hennar stjórn yrði og mat-
argerð og ræsting. Sérstakan
gæzlumann skal hafa til að annast
félags- og tómstundalíf, útivist og
leiki. Húsvörzluna skal meta eins
og í öðrum skólum.
Þjónustuíbúðir skulu metnar
sem slíkar ef þær eru tengdar
næturvörzlunni.
Framtíð þessara skóla veltur á
því að til þeirra fáist vel menntað
og félagslynt fólk Til þess að
tryggja það. þurfa laun að vera
sambærileg við aðra skóla og þau
aukastörf, sem heimav.sk. krefjast
umfram aðra skóla, vera greidd I
sambærilega og önnur störf við j
skólana Verði eigi breyting á nú-j
verandi ástandi, þá vofir sú hætta
yfir að til þessara skóla veljist
aðeins þeir, sem hvergi fá kennslu
eða innu við aðra skóla
Þetta skólaform á framtíð fyrir
sér, ef þörfum þess er sinnt með
skilningi og sanngirni.
Kleppjárnsreykjum. 1. iúní 1964
ALDARMINNING
Páll Rósinkransson
F. 2.10. 1864 D. 20.8. 1930.
Fátt mun nú ofanjarðar af þeim
bændum, er sátu að búum sínum
í Önundarfirði, er ég kom til Flat-
eyrar 1912, en vel man ég þá alla,
þótt ekki séu þeir allir jafn minn-
isstæðir.
Það voru engir stórbændur,
enda jarðirnar flestar smáar og
tví- og þríbýli á sumum. En bjarg
álna voru þeir og sumir vel efn-
um búnir og undu hag sínum vel.
En það er til marks um hve þétt-
setinn var bekkurinn, að á 33
jörðum voru 47 ábúendur, og
mannfjöldi í heimili langflestra
8—15 manns aðeins í fáum færra.
En víst var það svo, að sjávarafl
inn var mikil stoð margra heim-
ila og hafði komið fótum undir
efnahag sumra dugnaðar- og ráð-
deildarmanna.
Svo var það um Pál Rósinkrans-
son, er sótt hafði sjóinn fast á
yngri árum og reynzt farsæll og
fengsæll skipstjóri Hann var af
sterkum önfirzkum stofni og alinn
upp við land og sjó, bóndasonur
frá Tröð í Bjarnardal Urðu þeir
þrír bræður skipstjórar og nafn-
MINNINC
Sigurður
Brynjólfsson
— h. 13.1. 1906. D. 30.8. 1964 —
Kveðjuorð frá vinnufélögum
Hjörtur Þórarinsson.
Það setti margan hljóðan, þegar
fréttist um hið skyndilega andlát
Sigurðar Brynjólfssonar Þótt okK
ur væri kunnugt um. að aann
gengi með sjúkdóm. sem ósjaidan
fyrirvaralaust fær ljáinn í hendur
hinum ,slynga sláttumanni“, þá
hvlldi sá lífsþróttur og karl-
mennskublær yfir Sigurði, að
skyndilegt kali kom okkur á óvart.
Og svo blasti þá við, er við
komum næst á vinnustað. sæti
hans autt og yfirgefið. Hinn herða
breiði, hressilegi vinnufélagi átti
aldrei framar að sjást í þeim sessi
í félagahópinn var höggvið skarð,
og vinnustofan stóð eftir, að stór-
um mun fátækari og tómlegri en
áður. En minningin lifir áfram um
ágætan starfsmann og vinnufélaga
og þó fyrst og fremst GÓÐAN
DRENG. sem ávallt var fús og
reiðubúinn að hressa og gleðja og
rétta hjálparhönd sínum veikari
bróður, ekki sízt þeim ungu. Þess
vegna fylgja Sigurði nú á vee inn
í landið ókunna, hlýjar hugsamr
og góðar óskir okkar.
Vinnufélagar á Reykjalundi.
kunnir aflamenn, þeir Sveimi,
Kjartan og Páll, Bergur kaupm-
og útgerðarmaður, en Rósinkrans
bóndi á föðurleifð þeirra. Og
fleiri voru þau systkin og eiga
þau mikinn og atorkusaman af-
komendahóp.
Páll Rósinkransson var kvænt-
ur mikilli dugnaðarkonu og á-
gætri húsfreyju, Skúlínu Stefáns-
dóttur, f. 15.12. 1867, d, 7.7. 1955.
Bjuggu þau lengi góðu búi á
Kirkjubóli í Korpudal, stórbættu
þá eignarjörð sína að ræktun og
húsakosti, eignuðust 14 börn, og
hafa þau sem upp komust ágæt-
lega mannazt, og eiga þau hjón
nú mikinn afkomendahóp og
góðan.
Á minnisblöðum mínum er Páll
einn þeirra, sem ég mat mikils og
batt tryggð við. Hann var mjög
viðfelldinn í allri viðkynningu,
meðalmaður á vöxt, fremur dökk-
ur á brún og brá, fríður sýnum,
mikill fjörmaður og hvatlegur á
svip og i fasi. jafnan glaðlegur
dugnaðarmaðui og ósérhlífinn.
Var Páll mjög fyrir bændum þar
inni í Firðinum, barðist fyrir vega-
bótum og aukinni ræktun, enda
áhugasamur og framfarasiunaður
umbótamaður að upplagi, hafði
ákveðnar skoðanir á þjóðmálum,
var Samvinnumaður og félags-
lyndur og lét sér annt um annarra
hag Sat Páll lengi í hreppsnefnd
og áttum við þar gott samstarf,
enda skoðanabræður í flestum
málum. sem þá voru á baugi. Á
I ég í minningunni marga ánægju-
j stund frá þeim samskiptum. sem
ég nú þakka horfnum vini.
j En það er til marks um heim-
: ilið á Kirkjubóli. að veturinn
1918 fórum við 16 söngmenn af
Flateyri til að syngja þar í skóla-
húsi skammt frá bænum. en
hrepptu foraðsveður og komumst
ekki heim um Kvöldið Þá stóð
okkur opið hús hjá þeim Páli og
Skúlínu á Kirkjubóli. Og þar var
heldur ekki i kot vísað. þvi að
auk veizlumatar fengum við allir
uppbúin og ágæt rúm Slíkur
myndarbragur var þá á þessum
önfirzka bóndabæ.
Hafa börn þeirra hjóna nú, til
minningar um foreldra sína á 100
ára afrnæli föður þeirra. gefið
Holtskirkju i Önundarfirði mikinn
og fagurlega gerðan skírnarfont.
Á Kirk.jubóli hefur lengi búið
góðu búi Stefán sonur Páls og
Skúlínu en er nú hættur og burtu
fluttur. og aðrir tekið við
Frá Flateyrarárum mínum á
ég margai dýrmætar minningar
um ágætt fólk sem nú sefur .,í
svörtu djúpi moldú orpið“. í
kirkjugörðum Önundarfjarðar
Blessað sé þa'ð og veri urr ár
og eilífð
2.10. 1964
Snorri Sigfússom.
TÍMINN, iaugardaginn 10. október 1964 —